Morgunblaðið - 07.09.2013, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 07.09.2013, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013 ✝ KristjanaHjartardóttir fæddist í Hnífsdal 1. júlí 1918. Hún lést á Landspít- alanum í Fossvogi 30. ágúst 2013. Foreldrar henn- ar voru Margrét Þorsteinsdóttir, f. 9.4. 1879, d. 8.2. 1958 og Hjörtur Guðmundsson, f. 2.2. 1889, d. 4.3. 1967. Systkini hennar sammæðra eru Helga, f. 1904, d. 1990, Sigríður, f. 1906, d. 1986, Jóakim, f. 1907, d. 1913, Guðrún, f. 1908, d. 1941, Páll, f. 1910, d. 1911, Að- albjörg, f. 1912, d. 2006. Al- systkini eru Elísabet, f. 1917, d. 2000, Jóakim, f. 1919, d. 1997, Ingibjörg, f. 1923. Sonur Kristjönu, Grétar Þórðarson, f. 1939, maki Katr- ín B. Jónsdóttir, f. 1941. Börn: Hjörtur, f. 1961, maki Helga Jóhannesdóttir. Þau eiga fjög- ur börn. Jón, f. 1965. Hann á tvö börn. Hinn 23. desember 1941 gift- ist Kristjana Karli Sigurðssyni, skipstjóra, f. 14.5. 1918. For- eldrar hans: Sigríður I. Salo- monsdóttir, f. 1986, d. 1976, og Sigurður Jónasson, f. 1866, d. 1965. Börn: Ásgeir, f. 1941, d. 1952, maki Guðbjartur Ást- þórsson, f. 1950. Börn: Álfhild- ur, f. 1972, d. 2008. Hún á þrjú börn. Margrét, f. 1974, maki Hjálmar Þorvaldsson. Þau eiga þrjú börn. Ástþór, f. 1979, maki Jasmin Thorisson, f. 1984. Þau eiga þrjú börn. Hall- dóra, f. 1961, maki Páll Guð- jónsson, f. 1956, Börn: Hafdís, f. 1978, hún á þrjú börn. Marta, f. 1982, maki Guðmundur Guð- mannsson, f. 1980. Þau eiga þrjú börn. Karl, f. 1985, unn- usta Lilja Friðbergsdóttir. Kristjana, f. 1988. Hún á eina dóttur. Kristjana er fædd og uppalin í Brekkuhúsinu í Hnífsdal. Hún gekk í barnaskóla og ung fór hún í vist hjá eldri systrum sín- um í Reykjavík og Patreksfirði þar sem hún var fram á full- orðinsár. 1939 kom hún svo aftur heim þar sem þau Karl bjuggu sér heimili uppúr 1941, lengst af bjuggu þau á Skóla- vegi 9 og síðustu ár á Hlíf 2, Ísafirði. Hún vann í Rækju- verksmiðjunni og síðar í Hrað- frystihúsinu í Hnífsdal, en faðir hennar var einn af stofnefnd- um þess. Kristjana lét sig félagsstörf miklu varða og var hún í Slysavarnarfélaginu Tindum og Kvenfélaginu Hvöt, Hnífsdal, þar sem hún var heiðursfélagi. Áttu þau hjónin miklu barnaláni að fagna og eru afkomendur þeirra orðnir 65. Útför Kristjönu fer fram frá Ísafjarðarkirkju í dag, 7. sept- ember 2013, kl. 14. 1966, maki Jó- hanna Jóakims- dóttir, f 1943. Börn þeirra: Agnes, f. 1962, maki Snorri Bogason, þau eiga tvo syni og eitt barnabarn. Karl, f. 1964, maki Guð- laug Jónsdóttir, þau eiga tvo syni. Sonur Jóhönnu: Ásgeir Guðmunds- son, f. 1970, maki Sædís Kr. Gígja, þau eiga þrjú börn. Guð- rún, f. 1945, maki Úlfar Víg- lundsson, f. 1942, d. 2011. Fyr- ir átti Guðrún Kristjönu, f. 1967, með Hermanni Lúth- erssyni, f. 1941, d. 1966. Maki hennar er Jóhannes Ólafsson, þau eiga þrjár dætur. Börn: Brynja, f. 1970, maki Jóhannes Hjálmarsson, þau eiga þrjár dætur. Hermann, f. 1971, maki Ágústa Gunnarsdóttir, þau eiga eitt barn. Hermann á tvö börn fyrir og Ágústa eina dótt- ur. Þórey, f. 1977, á hún einn son. Hjördís, f. 1949, maki Helgi Björnsson, f. 1947. Börn: Ásgerður, f. 1968, maki F. Jón- as Friðriksson, þau eiga þrjú börn og eitt barnabarn. Gísli Þór, f. 1973, maki Anna D. Gunnarsdóttir, þau eiga tvo syni. Hulda, f. 1979. Sigríður, f. Elsku mamma mín. Þegar ég sit hér og minnist þín með fátækum orðum þá hvarflar hugurinn aftur um viku þegar ég bjóst nú síst við, viku seinna, að ég væri í þessum spor- um, þ.e að skrifa minningar- grein. Síðasta vikan í sumarfrí- inu og markmiðið var að eyða dögunum með ykkur pabba. Fara m.a í okkar árlegu ferð til Þingeyrar og signa yfir minning- arsteininn um Ásgeir föðurbróð- ur minn og fá okkur kaffi í Simbahöllinni. Sú ferð var aldrei farin, þess í stað fórum við mæðgurnar suður í sjúkraflugi og uggurinn sat í mér, ég vissi að þú vissir að örlögin réðu för. Svo fór að við fjölskyldan þín, börn og mörg barnabarnanna þinna, sameinuðust hjá þér þar til yfir lauk. Ég var lánsöm og vinnings- hafi í happdrætti lífsins að hafa fengið ykkur sem foreldra, móð- ur sem var bæði góðum gáfum gædd, bjó yfir yfirvegun og átti ótakmarkaða ást og kærleik fyrir okkur börn sín og afkomendur. Við eigum öll margar góðar minningar um hlýjan faðm móð- ur og ömmu, góðar stundir þar sem amma hafði endalausa þol- inmæði við að hafa ofan af eða kenna ungviðinu. Minningarnar streyma fram sem fljót og af mörgu er að taka, þær munu ávallt fylgja okkur og verða okk- ur huggun í sorginni. Það eru einstök forréttindi að fá að hafa foreldrana hjá sér svona lengi, fylgjast með ást þeirra á hvoru öðru í hjónabandi í 72 ár. Skilyrðislausri ást á öll- um afkomendunum þar sem mamma mundi afmælisdaga allra barnanna, fylgjast með hvernig þau voru alveg með hvernig veðrið var á fjarlægum slóðum þar sem barnabörnin bjuggu og sambandi barnanna við þau. Næmleika mömmu ef eitthvað bjátaði á og orð voru óþörf. Það þýddi nú lítið að reyna að halda henni fyrir utan, hún fann það. Upplifa hversu sterk hún var þegar áföllin dundu yfir, þar sem hún reyndist kletturinn. Lífið er hverfult og það er eitt sem við vitum að þegar við fæð- umst þá eigum við eftir að deyja. Hversu lengi fáum við í lífinu að dvelja er í höndum þess sem öllu ræður. Þetta var staðföst trú þín, elsku mamma mín, og á 95 árum fékkstu ýmislegt að reyna. Ég trúi að þér hafi verið vel tekið af guði þínum og í móttökunefnd- inni hafi fremstur verið ástvinir þínir, Geiri bróðir og Álfhildur. Ég þakka guði fyrir líf þitt, ég þakka þér fyrir alla þína leið- sögn, ást og kærleika sem þú veittir mér. Farðu í guðs friði elsku mamma mín, minning þín mun ávallt vera ljós í lífi okkar. Þín dóttir, Halldóra. Við kveðjum þig með kærleiksríku hjarta, þér Kristur launar fyrir allt og allt. Þú varst svo sterk og lést ei böl þig buga og birtan skín í gegnum húmið kalt. Það er gott að lífsins degi lýkur, að ljómi birta um þann sem kvaddur er. Því eitt er víst, að guð vor gæskuríkur, glaða framtíð hefur búið þér. Kæra mamma, ljúfur guð þig leiði, um landið efra í Edens fagra lund, og á þinn legstað blóm sín fögur breiði, svo blessi drottinn þessa hinztu stund. Í okkar hjarta ljúf þín minning lifir, þú leiddir okkur fyrstu bernskuspor. Við biðjum guð sem ræður öllu yfir, að enn þér skíni blessuð sól og vor. Að eiga góða móður er það dýrmætasta sem nokkur maður getur óskað sér. Það áttum við systkinin. Elsku mamma mín, þú varst okkur ekki bara góð móðir, þú varst líka dásamlegasta amma, langamma, langalangamma, tengdamamma og allt sem hægt er að nefna við þá sem þér og kynntust. Þú vildir alltaf veg allra sem mestan og bestan, umhyggja þín var slík. Vildir alltaf fá að fylgj- ast með hvernig gengi hjá hverj- um og einum og studdir þá af kærleika í blíðu og stríðu. Enda elska þig allir afkomendurnir þínir. Lífið hefur ekki alltaf verið þér létt og þú gengið í gegnum mikil áföll í lífinu en með æru- leysi og kjarki komst þú í gegn- um það . Ég er þakklát fyrir allar stundirnar sem við áttum saman og dugnaðinn í ykkur pabba að koma á hverju einasta ári frá því 1969 til Ólafsvíkur í heimsókn til okkar, ekki bara einu sinni á ári, oft tvisvar, jafnvel oftar. Öll ferðalögin, sumarbústaðarferð- irnar sem við fórum saman þeg- ar börnin voru yngri gáfu þeim mikið og okkur hjónunum líka. Það var sko oft glatt á hjalla þá. Það var alltaf gaman að koma í heimsókn til ykkar á sumrin vestur og ekki vantaði matföngin því þú varst myndarleg húsmóðir og alltaf mikill matur og bakkelsi á borðum . Þú varst mikil hannyrðakona og féll þér aldrei verk úr hendi. Börnin njóta þess og eiga marga dýrgripi frá þér og að ógleymd- um barnateppunum sem þú gerðir fyrir öll nýfæddu börnin Það er svo margs að minnast að ég gæti skrifað heila bók um það, elsku mamma mín. Elsku mamma mín, við eigum eftir að sakna þín mikið, en það er ekki öllum gefið að eiga mömmu og pabba sem eru 95 ára og búin að búa saman í 73 ár og voru jafn hress og þið. Og við þökkum guði fyrir það En enginn veit sína ævi fyrr en öll er. Missir pabba er mikill og hann á eftir að sakna þín mik- ið, því þú varst augu hans og eyru. Elsku pabbi minn, guð styrki þig og verndi. Hjartans þakkir, elsku mæta móðir, þér miskunn veiti Guð svo hvílist rótt. Þig verndi og gæti allir englar góðir, ástarþakkir, mamma, góða nótt. (HJ) Guðrún. Elskuleg móðir mín er til moldar borin í dag, 7. september. Ég hef verið svo lánsöm, hún hefur verið til staðar fyrir mig í 64 ár, ég mun sakna þess að geta hringt í hana til að spjalla, spjalla um allt og ekkert. Minningarnar sem koma upp í hugann eru svo margar, mikil ást og gleði, en líka sorgarstundir. Sorgarstundir þegar ástvinir féllu frá langt fyrir aldur fram. Gleðistundirnar voru margar. Eftir að pabbi hætti til sjós voru þau dugleg að ferðast um landið, þau eru fá fjöllin í Borgarfirði sem þau höfðu ekki kannað. Yf- irleitt var staldrað við í sumarbú- stöðum, þá var gaman að koma í heimsókn til þeirra, spilin voru alltaf á borðinu, það var mikið spilað og mikið hlegið. Eftir að við Helgi eignuðumst okkar bú- stað komu þau á hverju sumri, þau nutu þess að vera á Jaðri. Mamma hafði ekki treyst sér að koma sl. tvö sumur en var farin að tala um að hún ætlaði að koma næsta sumar, því hún hefði verið svo hress undanfarið. Í júní sl. kom stórfjölskyldan saman til að fagna, fagna því að mamma og pabbi áttu bæði 95 ára afmæli á árinu, gleðin var við völd þessa helgi, eins og alltaf þegar við hittumst, farið í leiki og sprellað. Mamma var hress og naut þess að vera með hópnum sínum, og ánægð að sjá hvað fjöl- skyldan hafði stækkað á árinu, tvö langömmubörn og tvö langa- langömmubörn. Mamma var með stórt hjarta, laðaði að sér alla sem áttu leið hjá, tók vel á móti nýjum fjöl- skyldumeðlimum og vinum barnanna. Alltaf var opið hús á Skólavegi 9, börnin elskuðu að koma til þeirra, alltaf var eitt- hvert góðgæti á borðum. Mamma var mikil kjarnorku- kona, hún varð fyrir mörgum áföllum en stóð alltaf upp aftur eins og klettur. Þau pabbi áttu samleið lengi og alltaf jafnást- fangin, hann mun sakna Jönu sinnar. Elsku mamma, ég veit að Geiri bróðir, Álfhildur, Hemmi og Úlli halda utan um þig, við munum halda utan um pabba fyrir þig. Minning þín lifir í hjörtum okkar. Þín dóttir, Hjördís. Mamma mín er dáin. Það er erfitt að segja þetta hvað þá hugsa, ég vonaði að það væri langt í þessi orð hjá mér, en svona er lífið. Ég þakka fyrir þessi 61 ár sem ég hafði hana hjá mér, og mun minnast hennar sem akkeris í lífi mínu, mamma sem kenndi mér allt, elda, sauma, prjóna og var mér stoð og stytta í barnauppeldinu, alltaf var hægt að koma til mömmu og fá pössun fyrir börnin ef við hjónin þurftum að bregða okkur af bæ. Það var gaman að hlusta á sögurnar hennar af árunum þeirra pabba saman á ferðalög- um út um landið og átti ég því láni að fagna að ferðast með þeim, og man sérstaklega eftir þegar við flutum út úr tjaldinu í Galtarlækjarskógi rennandi vot, nokkrar voru sumarbústaðaferð- irnar þar sem mikið var spilað og hlegið, farið í gönguferðir og náttúran skoðuð. Mamma var mikil handa- vinnukona og mörg verkin eru til eftir hana, alltaf var gaman að koma til hennar og sitja hjá henni og læra þetta og hitt, hekl- ið eða prjónamynstrið, óendan- lega þolinmæði sýndi hún, hætti ekki fyrr en maður var búinn að læra. Þegar við vorum yngri systurnar saumaði hún öll föt á okkur og sjálfa sig, oft hef ég sagt, æ ég vildi að ég væri eins dugleg í höndunum og þú, alltaf svaraði hún, þú getur það, byrj- aðu bara. Kvenfélagið Hvöt var henni hugleikið og vann hún þar félagsstörf af hug og sál, það eru ekki mörg ár síðan hún hætti að geta sótt fundi, alltaf fylgdist hún með því sem við vorum að gera. Minningarreitinn okkar í Hnífsdal sem hún og pabbi sáu um svo lengi sem þau höfðu heilsu til heimsótti hún í hverri viku til að fylgjast með og dást að hvað hann blómstraði vel. Elsku mamma mín, ég veit að horfnir ástvinir hafa tekið á móti þér og umvefja þig. Hvíl í friði. Þín dóttir, Sigríður (Sigga). Mikið svakalega hef ég verið lánsöm, að eiga þig að, elsku amma. Þú hefur átt viðburðaríka og góða ævi, varðst 95 ára í júlí sl. Að fá að eldast með maka sín- um og halda heilsu er mikils virði. Afmælishátíðin, sem haldin Kristjana Hjartardóttir ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐLAUGUR SVANBERG EYJÓLFSSON frá Stuðlabergi, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 1. september. Útför hans fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 12. september kl. 13.00. Halla Gísladóttir, Sumarrós Hildur Ragnarsdóttir, Bergur Finnsson, Gunnar Gísli Guðlaugsson, Guðbjörg B. Guðmundsdóttir, Anna María Guðlaugsdóttir, Kristján Jóhann Guðjónsson, Stefán Kristinn Guðlaugsson, Iðunn Pétursdóttir, Guðlaugur Helgi Guðlaugsson, Guðbjörg Pétursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elsku mamma okkar, tengdamamma og amma, JÓNHEIÐUR GUNNARSDÓTTIR, Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Lundi á Hellu miðvikudaginn 4. september. Útförin fer fram frá Örkinni í Kirkjulækjarkoti laugardaginn 14. september kl. 14.00. Yngvi Guðnason, Rebekka Jónasdóttir, Már Guðnason, Anna Óskarsdóttir, Rebekka Guðnadóttir, Ásgeir Rafnsson, Gunnar Rúnar Guðnason, Júlíana Þórólfsdóttir, G. Heiðar Guðnason, Sigrún Drífa Annieardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, GARÐAR PÉTURSSON rafvirkjameistari, lést miðvikudaginn 4. september. Svava Agnarsdóttir og fjölskyldur. ✝ Ástkær systir okkar og frænka, ELÍN ÞORSTEINSDÓTTIR SNÆDAL, lést á Landspítalanum í Fossvogi mánu- daginn 2. september. Jarðarförin fer fram í kyrrþey. Systkini og fjölskylda. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVANHILDUR JENSEN, Sóleyjarima 23, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnu- daginn 25. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir sendum við starfsfólki deildar 11E fyrir góða umönnun og kærleik. Fyrir hönd aðstandenda, Carl Skúlason. ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og systur, ERNU ÞRÚÐAR MATTHÍASDÓTTUR, Grófarsmára 23. Sérstakar þakkir til Óskars Þórs Jóhannssonar, annarra lækna, hjúkrunarfólks og heimahlynningar Kópavogs fyrir frábæra umönnun og alúð í veikindum hennar. Guð blessi ykkur öll. Óli Þór Júlíusson, Eva Hrund Harðardóttir, Lóa Lind, Ari Júlíus, Sigríður Ólöf Matthíasdóttir, Sigurjóna Matthíasdóttir, Bjarni Jón Matthíasson, Ragna Matthíasdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.