Morgunblaðið - 07.09.2013, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 07.09.2013, Blaðsíða 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013 Íslendingar eru um þessar mundir að leggja niður þann sið að verða sadd-ir eða mettir – enda gæti slíkt bent til að þeir kynnu sér ekki magamálog væru á hraðri leið að verða feitir (eða stórir eins og nú þykir fínna). Ístað þess að verða södd verður þjóðin nú góð (stundum fín). Dæmi: Gestgjafi: Má bjóða þér upp á meiri súpu? Gestur: Nei takk, ég er góður. Og augljóst er að þessi yfirlýsing hefur ekkert að gera með hjartalag við- komandi. Þetta var náttúrlega ekki mál Gunnars á Hlíðarenda og Njáls. Þær Hall- gerði langbrók og Bergþóru hefði vafalítið rekið í rogastans ef þeir vinir hefðu svarað boði þeirra kvenna um ábót með því að þeir væru góðir (eða, sem lík- legra reyndar væri, að þeir væru drengir góðir). Þetta er eins og margt annað nýmælið í málinu runnið úr ensku (I am good) og er orðið mál ákaflega margra hér á landi. Þó eru þeir ófáir sem þykir sem hér hafi verið skotið yfir markið og finnst lítið til koma. Þeir hafa margir hverjir gert sér gómsætan mat úr þessu og til hafa orðið þekktir leikþættir þessu tengdir. Dæmi: Gestgjafi: Má bjóða þér meiri súpu? Gestur: Nei takk, ég er góður. Gestgjafi: Já, ég veit það, en má ekki bjóða þér meiri súpu? Eða: Gestgjafi: Ég læt það nú vera en má ekki samt bjóða þér meiri súpu? Eða: Gestgjafi: Annað hef ég samt frétt. Þú gætir heimsótt hana móður þína, gamla og örvasa, oftar. Ég býð þér nú samt meiri súpu. Þetta má síðan útfæra á marga aðra vegu eftir því sem sköpunargleðin blæs fólki í brjóst. Annars má heyra þessa nýju notkun lýsingarorðsins góður víðar en við mat- borð. Fyrir skömmu var ég í Hagkaupum og heyrði þá konu nokkra, sem ýtti á undan sér hlaðinni innkaupakerru, kalla til manns síns að hún væri orðin góð. Hún átti við að nú væri nóg komið af vörum í kerruna, mál að hætta, aka að af- greiðsluborði og taka fram veskið. Þessi nýja notkun orðsins góður leiðir til þess að andstæðuparið góður – vondur lendir á villigötum. Til dæmis gengur eftirfarandi dæmi ekki upp: Gestgjafi: Má bjóða ykkur meiri súpu? Gestur: Nei takk, ég er góður. Gestur: Já takk, ég er vondur. Til er þannig orðið nýtt andstæðupar, góður – svangur. Eins og fram hefur komið er ég ekki sérstaklega hrifinn af þessum gæða- blóðum, sem nú slá hring um matborð þjóðarinnar, og þykir sem íslenskt mál hafi ekki auðgast fyrir framlag þeirra. Það kann að vísu að eiga rætur í því að ég er ákaflega lystugur og segi eiginlega alltaf þegar gestgjafi býður mér meiri súpu: Já takk. Af gæðablóðum Tungutak Þórður Helgason thhelga@hi.is Morgunblaðið/Eggert Benedikt Erlingsson hefur unnið menningarlegtafrek með kvikmynd sinni um íslenzka hest-inn. Reyndar er þetta ekki fyrsta slíka afrekiðsem þessi ungi leikari og leikstjóri vinnur. Hann hefur unnið merkilegt frumkvöðlastarf við að kynna efni Íslendingasagna fyrir nýjum kynslóðum Ís- lendinga eins og sýningarnar um Egil Skallagrímsson og Gunnlaug Ormstungu eru til marks um. Sterk tilfinning Benedikts fyrir íslenzkri þjóðmenningu vekur athygli. Kvikmynd Benedikts um íslenzka hestinn kallar fram ljúfar minningar af margvíslegu tagi, alla vega fyrir mína kynslóð. Sveitalífið sem var birtist okkur á ný með sínum hætti. Gömul kynni af íslenzka hestinum rifjast upp. Stórbrotin náttúra landsins blasir við. Ég hef að vísu alltaf verið meiri áhugamaður um kýr en hesta. En þar sem gæðingarnir þeystu um grundir í kvikmynd Benedikts varð mér hugsað til tveggja gam- alla vina minna, Þokka og Faxa. Þeir voru að vísu ekki gæðingar í nútímaskilningi þess orðs en þeir stóðu fyrir sínu. Þokki var kominn yfir tví- tugt en dag hvern að sumri til var hann spenntur fyrir hest- vagn og flutti mjólkina áleiðis til móts við mjólkurbílinn. Ég mátti að vísu ekki standa aftan á vagninum eins og ég hafði séð menn gera í bandarískum kúrekamyndum en þá kom Faxi til sögunnar. Það var auðveldara að láta sér þykja vænt um Þokka. Faxi var fjarlægari persónuleiki. Þar að auki hafði ég dottið af baki á Faxa. Um þá lífs- reynslu segir í kafla í bók, sem út kom árið 1998 á vegum bindindishreyfingarinnar og heitir Á lífsins leið: „Á Hæli (í Flókadal í Borgarfirði) var bæði kúabú- skapur og sauðfjárrækt. Á vorin smöluðum við Hæls- heiðina og það var töluvert verk. Mér virtist smölunin spanna að mestu landsvæðið milli Geirsár og Flókadals- ár og langleiðina inn að Oki. Þegar fénu hafði verið smal- að í réttina sem enn stendur við túnfótinn á Hæli var tek- ið til við að rýja ærnar með handklippum. Mér gekk þokkalega að ná tökum á því verki. Í fyrstu smala- mennsku minni var ég settur á brúnan hest sem hét Faxi. Hann var hastur en rólegur. Það var engin áhætta tekin. En ég datt samt af baki. Það var mikil niðurlæging og ég var gráti næst. Þá kom Guðmundur Bjarnason þeysandi á hvítum hesti, Kjóa, sem hann átti sjálfur og sagði: „Hérna, Styrmir minn, taktu þennan.“ Þetta var upphafið að vináttu okkar Guðmundar sem stóð til æviloka hans.“ Guðmundur Bjarnason var gamli bóndinn á Hæli. Kjói var gæðingur. Þess vegna skil ég þá sem hafa áhuga á hestum, þótt sjálfum þyki mér kýr forvitnilegri skepnur. Á Kjóa upplifði ég sjálfan mig sem Roy Roger á Trig- ger en þá félaga þekkja yngri kynslóðir sennilega ekki! Þegar fólkið úr sveitinni í kvikmynd Benedikts kom saman á hestum rifjuðust upp fyrir mér útreiðartúrar fólksins á bæjunum í Flókadal og stöku sinnum úr Reyk- holtsdal á sunnudögum. Þeir gáfu mér færi á að skoða fólkið í sveitinni og kynnast því sumu, bændasonum og heimasætum og nokkrum kaupakonum. Heimferðin af hestamannamótum á Hvítárbökkum var hápunktur slíkra sameiginlegra hestaferða. Á beinum og breiðum vegarkafla var alltaf hleypt. Ég hef fylgzt með þessu fólki mestan hluta ævinnar úr fjarlægð og séð hvernig ný og ný kynslóð úr sömu fjöl- skyldu hefur tekið við búinu og hvernig fjölskyldur hafa tengzt. Það er ævintýri að lesa bækur Kristleifs Þor- steinssonar fræðaþular á Stóra Kroppi um fólkið og mannlífið í Borgarfjarðardölum og sjá hvernig fólk úr sömu fjölskyldum hefur með margvíslegum hætti dreifst um þess dali. Það eru nýir tímar framundan í sveitum á Ís- landi. Við leitum nú log- andi ljósi að nýjum vaxt- arbroddum í íslenzku atvinnulífi. Frændur okkar og vinir á Írlandi telja sig vita hvar vaxtarbroddinn í þeirra at- vinnulífi sé að finna. Rök þeirra eru þau að fólksfjölgun sé svo mikil í heiminum að markaður fyrir matvæli fari stórvaxandi. Þeir ræða nú um að afnema mjólkurkvóta á Írlandi. Eftirsókn í framhaldsnám, sem tengist landbún- aði er vaxandi. Fólk er að verða þreytt á borgarlífinu og þeim þrýst- ingi sem því fylgir. Þess vegna má búast við að margir leiti út í sveitirnar á ný á næstu árum og áratugum. Lífið verður einfaldlega betra þar og auðveldara að ala upp börn. Landsbyggðin á Íslandi, sem margir hafa formælt á undanförnum áratugum og talað niður til, mun rísa á ný og fólk þeysa um á gæðingum ekki síður en bílum. Með kvikmynd sinni er Benedikt Erlingsson ekki bara að bregða upp mynd af íslenzka hestinum og tengslum hans við mannskepnuna. Hann er líka að bregða upp mynd af þeirri framtíð, sem við getum séð fyrir okkur í sveitum landsins, hvort sem er í Borgarfjarðardölum, við Djúpið og nyrzt á Ströndum eða í einni af afskekktustu sveitum landsins í Skaftafellssýslum, þaðan, sem móðir Benedikts, Brynja heitin Benediktsdóttir, var ættuð. Kvikmynd þessa tileinkar Benedikt minningu móður sinnar. Ég átti í fyrstu erfitt með að skilja áhuga Brynju á lífi fólks á norðurslóðum, þegar hún setti upp leikverkið INÚK ásamt samstarfsfólki sínu en seinni árin hefur mér orðið ljóst að með því verki, sem fjallaði um hlut- skipti og örlög Grænlendinga vísaði Brynja veginn til þess áhuga sem nú beinist að norðurslóðum. Þeir fræði- menn eru til sem telja að hin mikla bylting 21. aldar verði ekki tilfærsla valds og áhrif frá Vesturlöndum til Asíu heldur sú mikla uppbygging, sem verði í nýja norðrinu. Kvikmynd Benedikts Erlings- sonar er menningarlegt afrek Með leikverkinu INÚK vísaði Brynja heitin Benediktsdóttir veginn til áhuga nútímans á norðurslóðum Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Nokkrar bækur hafa birst áensku um bankahrunið, og kennir þar margra grasa. Ein er Deep Freeze: Iceland’s Economic Collapse eftir Philipp Bagus og David Howden, sem kom út hjá Ludwig von Mises-stofnuninni í Alabama 2011. Þessum tveimur ungu hagfræðingum er mjög í mun að kenna Seðlabankanum íslenska um bankahrunið 2008. Hann hafi ábyrgst skuldir banka, svo að þeir hafi hegðað sér gáleysislega. Þeir Bagus segja á bls. 95: „Seðlabank- inn, sem var undir stjórn Davíðs Oddssonar, sendi 13. nóvember 2001 frá sér fréttatilkynningu, sem fól í sér, að hann yrði þrautavaral- ánveitandi fjármálakerfisins.“ Í fyrsta lagi var Davíð Oddsson ekki seðlabankastjóri 2001. Í öðru lagi var þessi fréttatilkynning um, að ný lög um Seðlabankann hefðu tekið gildi. Ekki var í lögunum minnst á, að Seðlabankinn yrði þrautavaralánveitandi, heldur hon- um aðeins veitt heimild til að veita fjármálastofnunum lán. Í frétta- tilkynningunni sagði, að samkvæmt lögunum væri Seðlabankanum veitt heimild til að veita þrautavaralán. En slík heimild felur ekki í sér skyldu. Í þriðja lagi vísaði Davíð sjálfur því beinlínis á bug að Seðlabank- inn þyrfti undir öllum kring- umstæðum að gegna slíku hlut- verki. Hann sagði á blaðamannafundi í Seðlabankanum 8. maí 2008: „Skyndilega hefur það gerst, þegar fjárþurrð skap- ast, að þá kemur upp sú kenning, að seðlabankar eigi að vera ein- hvers konar ábyrgðarsjóður banka, í hvaða stærð sem þeir fara. Þetta hefur maður nú aldrei heyrt um áður, að bankar eigi að stækka eins og þeim hentar og taka þá áhættu, sem þeim hentar, en síðan beri almenningi, fyrir meðalgöngu síns seðlabanka, að vera einhvers konar ábyrgð- arsjóður út í það óendanlega fyrir slíka starfsemi.“ Davíð bætti við, að vissulega hlyti Seðlabankinn að reyna að tryggja peningalegan stöðugleika og stuðla að fjár- málastöðugleika. Það er því enn ein þjóðsagan, að Seðlabankinn hafi undir forystu Davíðs Oddssonar ýtt undir ábyrgðarleysi fjármálastofnana. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Þjóðsögur um bankahrunið (4) Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi · Sími 535 4300 · axis.is Opnunartími: mán. - fös. 9:00 - 18:00 Lauf Fjölnota skeljastóll Sturla Már Jónsson Húsgagna- og innanhússarkitekt hannaði LAUF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.