Morgunblaðið - 07.09.2013, Blaðsíða 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013
fallegum ballöðum en svo skýst allt-
af eitt og eitt dansvænt lag inn á
milli, t.d. „Jungle Drum“, smástuð.
Það á einnig við um Tookah. Þetta er
dálítið þinn stíll, ekki satt?
„Af því lífið er bara þannig,“ segir
Emilíana og hlær. „Plöturnar mínar
eru rosalega mikið bundnar við
tímabil, hvenær ég er að semja lögin
og hvernig hugarástandið er. Það er
eins með þessa plötu, ég er búin að
eignast son og vera í því og svo kem-
ur alltaf að því að maður þarf að
hrista sjálfan sig, fara að dansa og fá
útrás.“
Eins og dagbók
Spurð hvort hamingjan sé gegn-
umgangandi stef á plötunni segir
Emilíana að svo sé ekki. Þótt það sé
dásamlegt að eignast barn sé lífið
ekki alltaf dans á rósum, það skiptist
á skin og skúrir. „Þetta er líka svolít-
ið um þetta „duality“,“ segir Emil-
íana um plötuna, leitar að íslenskri
þýðingu og sættist með blaðamanni
á tvíeðli eða tvískiptingu. „Það eru
oft þessar samræður í lögunum, í
„Blood Red“ er mjög mikið um þetta
tvíeðli í samtali. Þannig að platan er
mjög mikið ferðalag fyrir mig, mér
finnst erfiðara að taka lögin úr sam-
hengi því mér finnst þetta allt eiga
að vera saman, eins og dagbók.“
Á Tookah má heyra að Emilíana
er að þróast að einhverju leyti í nýj-
ar áttir tónlistarlega því hljóðgervl-
ar og raftónlist eru meira áberandi
en á fyrri plötum hennar. „Ég bara
vissi að þetta væri það sem ég vildi,
ég vildi elektrónískt, var orðin svo
ástfangin af hljóðgervlum og tölv-
um,“ segir hún en bætir við að tón-
list hennar hafi alltaf verið rafskotin
að einhverju leyti. Þá hafi stemn-
ingin í stúdíóinu hjá Carey haft mikil
áhrif á útkomuna og tilraunir á borð
við að syngja róleg lög við dúndrandi
blikkljós.
Emilíana samdi lagatexta plöt-
unnar og spurð hvort hún eigi auð-
velt með textasmíðina segist hún
nokkuð vandlát og nákvæm þegar að
henni kemur. „Ég elska texta, ljóð
og góða penna. Ég vanda mig mjög
mikið við textana, finnst gaman að
skrifa þá og það tekur mig kannski
heila eilífð að skrifa texta sem virkar
einfaldur en það er rosalega margt í
honum,“ segir Emilíana. Hvað yrk-
isefnin varðar segist hún að mestu
sækja í eigin reynslu og reynslu
sinna nánustu.
Inn í kjarnann
Að lokum berst talið að „Tookah“,
titli plötunnar, orði sem Emilíana
bjó til og tengir við djúpa og ein-
staka hamingju. „Þessi tilfinning
þegar þú ert að ganga einhvers stað-
ar og finnur fyrir þessari ljúfu ham-
ingju og þakklæti, það þekkja þetta
allir. Ég trúi því að þá sértu kominn
inn í kjarnann,“ útskýrir hún og
brosir blítt til blaðamanns, hamingj-
an uppmáluð.
Emilíana kemur fram á tónlist-
arhátíðinni Iceland Airwaves 30. okt.
nk. og heldur svo í tveggja vikna
tónleikaferð um Evrópu sem hefst
með tónleikum í París 7. nóvember.
emilianatorrini.com
Tónlistarhópurinn Kúbus flytur
Kvartett um endalok tímans eftir
Olivier Messiaen í Tjarnarbíói í
kvöld kl. 22. Verkið samdi Messiaen
í haldi nasista í fangabúðum í Gör-
litz. Innan þeirra veggja var kvart-
ettinn frumfluttur í janúar 1941 þar
sem bæði flytjendur og áheyrendur
voru í haldi. „Frá tónsmíðinni staf-
ar óttablandinni eftirvæntingu eftir
sáluhjálp sem er að finna handan
við yfirstandandi tíma. Hún er auð-
ug af ást á söng fugla og litum ver-
aldarinnar og býr yfir hendingum
sem seilast út fyrir mörk laglín-
unnar í átt til hins óendanlega,“
segir m.a. í tilkynningu.
Flytjendur á tónleikunum eru:
Guðrún Dalía Salómonsdóttir pí-
anóleikari, Grímur Helgason klar-
inettleikari, Ingrid Karlsdóttir
fiðluleikari og Júlía Mogensen
sellóleikari.
Kúbus leikur kvart-
ett eftir Messiaen
Kvartett Kúbus er nýstofnaður tónlist-
arhópur með bakgrunn í sígildri tónlist.
mbl.is
alltaf - allstaðar
Tvær sýningar verða opnaðar í An-
arkíu listasal, Hamraborg 3, í dag
kl. 15. Annars vegar sýning Önnu
E. Hansson „Umbrot“ og hins vegar
sýning Sævars Karls „Sólskin um
hánótt“. Á sýningunni sinni vinnur
Anna með portrettmyndir af venju-
legum og óásjálegum hlutum. „Í yf-
irborðslegum einfaldleika þeirra er
fólginn hulinn vettvangur sem veit-
ir listakonunni rými til að kljást við
væntingar umhverfisins gagnvart
tilverurétti drauma, langana og
innri þrár,“ segir í tilkynningu.
Á sýningu Sævars gefur að líta
níu málverk málið á sl. mánuðum.
„Myndirnar eru abstrakt- express-
jónískar, þar sem listamaðurinn
teflir saman skærum litum sem
virka hver í sínu rými, en mynda
eina samhljóma heild á striganum,“
segir í tilkynningu. Opið er þri. til
sun. kl. 15-18. Allar nánari upplýs-
ingar á vefnum anarkia.is.
Tvær sýningar opnaðar í Anarkíu
SÝNINGAR HEFJAST
AFTUR Í KVÖLD!
EINLEIKIN GAMANSEMI Í HÖRPU
„Sprenghlægileg sýning
fyrir allan aldur!“
- Sirrý, Rás 2
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Lau 7/9 kl. 19:00 2.k Lau 21/9 kl. 19:00 10.k Lau 5/10 kl. 19:00 18.k
Sun 8/9 kl. 15:00 3.k Sun 22/9 kl. 13:00 11.k Fim 10/10 kl. 19:00 19.k
Fim 12/9 kl. 19:00 4.k Fim 26/9 kl. 19:00 13.k Mið 16/10 kl. 19:00 20.k
Fös 13/9 kl. 19:00 5.k Fös 27/9 kl. 19:00 14.k Mið 23/10 kl. 19:00 21.k
Lau 14/9 kl. 19:00 6.k Lau 28/9 kl. 19:00 15.k Fim 24/10 kl. 19:00 22.k
Sun 15/9 kl. 15:00 7.k Sun 29/9 kl. 13:00 aukas Fös 25/10 kl. 19:00 23.k
Fim 19/9 kl. 19:00 8.k Fim 3/10 kl. 19:00 16.k
Fös 20/9 kl. 19:00 9.k Fös 4/10 kl. 19:00 17.k
Súperkallifragilistikexpíallídósum! Leiksýning á nýjum skala.
Rautt (Litla sviðið)
Sun 8/9 kl. 20:00 2.k Fim 19/9 kl. 20:00 aukas Fim 26/9 kl. 20:00 8.k
Fim 12/9 kl. 20:00 3.k Fös 20/9 kl. 20:00 5.k Fös 27/9 kl. 20:00 9.k
Lau 14/9 kl. 20:00 aukas Lau 21/9 kl. 20:00 6.k Lau 28/9 kl. 20:00 10.k
Sun 15/9 kl. 20:00 4.k Sun 22/9 kl. 20:00 7.k
Margverðlaunað meistaraverk sem hreyfir við, spyr og afhjúpar.
Jeppi á Fjalli (Nýja sviðið)
Fös 4/10 kl. 20:00 frums Mið 16/10 kl. 20:00 8.k Fös 25/10 kl. 20:00 15.k
Lau 5/10 kl. 20:00 2.k Fim 17/10 kl. 20:00 9.k Lau 26/10 kl. 20:00 16.k
Sun 6/10 kl. 20:00 3.k Fös 18/10 kl. 20:00 10.k Sun 27/10 kl. 20:00 17.k
Fim 10/10 kl. 20:00 4.k Lau 19/10 kl. 20:00 11.k Fös 1/11 kl. 20:00 18.k
Fös 11/10 kl. 20:00 5.k Sun 20/10 kl. 20:00 12.k Lau 2/11 kl. 20:00 19.k
Lau 12/10 kl. 20:00 6.k Mið 23/10 kl. 20:00 13.k Sun 3/11 kl. 20:00 20.k
Sun 13/10 kl. 20:00 7.k Fim 24/10 kl. 20:00 14.k Fös 8/11 kl. 20:00 21.k
Benni Erlings, Bragi Valdimar og Megas seiða epískan tón - sjónleik
Mary Poppins – HHHHH – MLÞ, Ftíminn
4 sýningar á 13.900 kr.
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Lau 7/9 kl. 19:30 24.sýn Mið 16/10 kl. 19:30 Aukas.
Sun 8/9 kl. 19:30 25.sýn Mið 30/10 kl. 19:30 Aukas.
Leikrit ársins 2013 - fullkomið leikhús!
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Sun 8/9 kl. 14:00 Aukas. Sun 15/9 kl. 13:00 Aukas. Sun 15/9 kl. 16:00 Lokas.
Aðeins þessar þrjár sýningar!
Maður að mínu skapi (Stóra sviðið)
Lau 14/9 kl. 19:30 Frums. Lau 21/9 kl. 19:30 4.sýn Lau 5/10 kl. 19:30 7.sýn
Fim 19/9 kl. 19:30 2.sýn Fös 27/9 kl. 19:30 5.sýn
Fös 20/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 28/9 kl. 19:30 6.sýn
Nýtt íslenskt leikrit eftir Braga Ólafsson!
Harmsaga (Kassinn)
Fös 20/9 kl. 19:30 Frums. Mið 25/9 kl. 19:30 Aukas. Lau 28/9 kl. 19:30 5.sýn
Lau 21/9 kl. 19:30 2.sýn Fim 26/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 5/10 kl. 19:30 6.sýn
Ofsafengin ástarsaga sótt beint í íslenskan samtíma!
Skrímslið litla systir mín (Kúlan)
Lau 14/9 kl. 12:00 Frums. Lau 21/9 kl. 14:00 4.sýn Lau 28/9 kl. 14:00 7.sýn
Lau 14/9 kl. 14:00 2.sýn Sun 22/9 kl. 12:00 5.sýn Sun 29/9 kl. 12:00 8.sýn
Lau 21/9 kl. 12:00 3.sýn Lau 28/9 kl. 12:00 6.sýn
Barnasýning ársins 2012
Karíus og Baktus (Kúlan)
Lau 5/10 kl. 13:30 Lau 12/10 kl. 19:30
Lau 5/10 kl. 15:00 Lau 12/10 kl. 19:30
Karíus og Baktus mæta aftur í október!
Hættuför í Huliðsdal (Kúlan)
Sun 8/9 kl. 16:00 Frums. Sun 15/9 kl. 13:00 4.sýn Lau 21/9 kl. 16:00 7.sýn
Lau 14/9 kl. 13:00 2.sýn Sun 15/9 kl. 16:00 5.sýn
Lau 14/9 kl. 16:00 3.sýn Lau 21/9 kl. 13:00 6.sýn
Hugrakkir krakkar athugið - aðeins þessar sýningar!