Morgunblaðið - 07.09.2013, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 07.09.2013, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013 Breska forsætisráðuneytið krafði stjórnvöld í Kreml skýringa á ummælum rússnesks embættis- manns sem hæddist að Bretlandi, kallaði það „litla eyju sem enginn gefur gaum“. Embættismaðurinn lét þessi orð falla við nokkra fréttamenn fyrr í vik- unni, en talsmaður Pútíns lagði áherslu á að forset- inn hefði ekki viðhaft þessi ummæli. David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, varði landið, tíundaði afrek Breta í glæstri sögu þeirra, sagði þá m.a. geta verið stolta af sigrum á fasistum og nasistum í Evrópu, afrekum á sviði lista og bókmennta, auk sem þeir hefðu fundið upp allar íþróttir sem iðk- aðar væru núna í öllum heiminum. Bretland ekki bara „lítil eyja“ CAMERON SVARAR RÚSSA SEM HÆDDI BRETA David Cameron Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Barack Obama Bandaríkjaforseta og Vladímír Pútín Rússlandsforseta tókst ekki að jafna ágreining sinn um hvort grípa ætti til hernaðaraðgerða gegn stjórn Sýrlands á tveggja daga leiðtogafundi G20-ríkjanna sem lauk í Pétursborg í gær. Eftir fundinn birti Bandaríkjafor- seti yfirlýsingu þar sem leiðtogar ell- efu af G20-ríkjunum hvetja til „öfl- ugra alþjóðlegra viðbragða“ við mannskæðri efnavopnaárás sem gerð var í úthverfum Damaskus 21. ágúst. „Sönnunargögnin benda greinilega til þess að ríkisstjórn Sýr- lands beri ábyrgð á árásinni sem er hluti af mynstri í notkun efnavopna af hálfu stjórnarinnar,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni. „Við hvetj- um til öflugra alþjóðlegra viðbragða við þessu broti á alþjóðlegum reglum og siðferðisgildum, viðbragða sem senda skýr skilaboð um að aldrei megi fremja slík grimmdarverk aftur.“ Hvetja ekki til hernaðar Í yfirlýsingunni er þó ekki beinlín- is hvatt til hernaðaraðgerða í Sýr- landi. Á meðal ríkja sem styðja yfir- lýsinguna eru Frakkland, Bretland og Sádi-Arabía, auk Bandaríkjanna. Obama og Pútín ræddu deiluna á hálfrar klukkustundar fundi þegar hlé var gert á formlegri dagskrá leið- togafundar G20-ríkjanna. „Við sett- umst niður og töluðum saman… Þetta var uppbyggilegt, þýðingar- mikið og kurteislegt samtal,“ sagði Pútín en bætti við að hvorugur þeirra hefði hvikað frá afstöðu sinni í deilunni. Sýrlandsmálið var ekki formlega á dagskrá G20-fundarins en leiðtogar aðildarríkjanna ræddu það yfir kvöldverði í fyrrakvöld. Leiðtogar Bretlands, Frakklands, Kanada og Tyrklands studdu áform Obama um að gera loftárásir á skot- mörk í Sýrlandi til að refsa einræðis- stjórninni fyrir efnavopnaárásina, að sögn The Financial Times. Hermt er að leiðtogar annarra ríkja, meðal annars Þýskalands og Ítalíu, hafi ekki léð máls á hernaðaraðgerðum án samþykkis öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna. Pútín sagði að meiri- hluti leiðtoganna væri andvígur því að gerðar yrðu árásir á Sýrland án heimildar öryggisráðsins. Búa sig undir árásir Bandarískir embættismenn gáfu til kynna að þeir teldu útséð um að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna heimilaði hernaðinn vegna andstöðu Rússa og Kínverja sem eru með neit- unarvald í ráðinu og hafa þegar fellt þrjár ályktunartillögur sem lagðar voru fram til að auka þrýstinginn á stjórnina í Sýrlandi. Bandaríkja- stjórn gaf til kynna að hún myndi hefja lofthernaðinn án samþykkis öryggisráðsins. Bandaríska utanríkisráðuneytið hefur þegar gert varúðarráðstafanir vegna hugsanlegra árása á Sýrland, hvatt Bandaríkjamenn til að forðast að fara til grannríkjanna Líbanons og Tyrklands, auk þess sem flestir starfsmenn sendiráðs Bandaríkj- anna í Beirút hafa verið fluttir það- an. Obama hyggst ávarpa banda- rísku þjóðina á þriðjudag, daginn eftir að bandaríska þingið kemur saman eftir sumarhlé og tekur fyrir beiðni forsetans um heimild til loft- hernaðar í Sýrlandi. Óánægðir með klofning ESB-ríkja Obama þakkaði François Hol- lande, forseta Frakklands, fyrir stuðning á leiðtogafundinum. Frakk- land er eina ríkið sem hefur lofað að taka þátt í lofthernaðinum með Bandaríkjamönnum. Hollande sagði þó í gær að Frakkar myndu ekki gera neinar loftárásir á Sýrland fyrr en eftirlitsmenn Sameinuðu þjóð- anna legðu fram skýrslu um efna- vopnaárásina. Frönsk stjórnvöld létu í ljós óánægju með klofninginn í málinu meðal ríkja Evrópusambandsins sem hefur reynt að móta sameigin- lega stefnu í utanríkismálum. Utan- ríkisráðherrar aðildarríkjanna komu saman í Vilníus í gær til að ræða ágreininginn. Fyrr um daginn ræddu varnarmálaráðherrar ríkjanna Sýrlandsmálið í litháísku höfuðborginni. „Það eru mörg merki um að stjórnin hafi beitt efnavopn- um,“ sagði Juozas Olekas, varnar- málaráðherra Litháens, um niður- stöðu fundarins. Hann bætti við að allir varnarmálaráðherrarnir hefðu fordæmt efnavopnaárásina og vildu að þeir sem ættu sök á henni yrðu dregnir til ábyrgðar en ráðherrarnir hefðu aftur á móti deilt um hvernig bregðast ætti við árásinni. Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, varaði við því að loftárásir á Sýrland gætu kynnt undir borgarastríðinu í landinu og aukið á þjáningar íbúanna. „Ég verð að vara við því að vanhugsaðar hern- aðaraðgerðir gætu haft alvarlegar og hörmulegar afleiðingar og aukið hættuna á frekari átökum milli þjóð- ernishópanna,“ sagði Ban Ki-moon. Telja útséð um samþykki SÞ  Bandaríkjastjórn býr sig undir lofthernað í Sýrlandi án samþykkis öryggisráðsins  Ellefu af G20- ríkjunum telja stjórn Sýrlands eiga sök á efnavopnaárás og hvetja til „öflugra alþjóðlegra viðbragða“ AFP Klofningur á leiðtogafundi Vladímír Pútín, forseti Rússlands, gengur framhjá öðrum leiðtogum G20-ríkja á fundi þeirra í Pétursborg í gær. Undirbúa stórsókn » Uppreisnarmenn í Sýrlandi segjast vera að undirbúa sókn úti um allt landið samhliða hugsanlegum loftárásum Bandaríkjanna. Þeir segjast ætla að notfæra sér loftárás- irnar til að ráðast á stjórnar- herinn, einkum í grennd við Damaskus. » Nokkrir uppreisnarforingj- anna tortryggja þó Bandaríkja- menn og óttast að bandaríski herinn reyni að gera loftárásir á liðsmenn uppreisnarhreyf- inga sem tengjast al-Qaeda. Heimild: G20 G20 Argentína Ástralía Brasilía Bretland Kanada Kína Frakkland Þýskaland Indland Indónesía Ítalía Japan Mexíkó Rússland Suður-Afríka Suður- Kórea TyrklandBandaríkin Evrópusambandið á einnig aðild að G20 og fulltrúi þess á leiðtogafundum er forseti leiðtogaráðs ESB Samanlögð framleiðsla aðildarríkjanna nemur nær 90% af heimsframleiðslunni og íbúar þeirra eru um tveir þriðju mannkyns Sádi- Arabía Leiðtogafundur í Pétursborg 5. - 6. september

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.