Morgunblaðið - 07.09.2013, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.09.2013, Blaðsíða 16
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Skipulagið gerir ráð fyrir að á svæð- inu rísi þétt þriggja til fimm hæða byggð með íbúðar- og skrifstofuhús- næði sem nær fram á hafnarbakkann. Það mun að mínu viti loka höfnina frá miðborginni. Ég vil taka mið af þeirri góðu reynslu sem við höfum af gömlu grænu verbúðunum við Geirsgötu og tengja saman það svæði og Miðbakk- ann,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykja- vík, um afstöðu sína til fyrirhugaðrar byggðar við Reykjavíkurhöfn. Leggur Júlíus Vífill til að þess í stað taki fyrirhuguð byggð mið af byggingararfleifð miðborgarinnar, þannig að hámarkshæð húsa verði tvær hæðir og ris. Miðpunktur Mið- bakkans verði fjölbreyttur matvöru- markaður með ferska matvöru, líkt og t.d. við höfnina í Seattle, og að tvö verslunarhús/pakkhús á Árbæjar- safni, Ullarhúsið og Kornhúsið, verði flutt á bakkann og opnuð til útleigu eða í tengslum við Sjóminjasafnið. Hann leggur til að Faxaflóahafnir byggi yfir matvörumarkaðinn og leigi út líkt og félagið gerir með ver- búðir í þess eigu. Húsið verði svo selt Lágreist hús rísi á byggð við höfnina  Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykja- vík leggur til markað á Miðbakka  Telur að fyrirhuguð 3-5 hæða byggð muni loka höfnina af frá miðborginni Ljósmynd/Júlíus Vífill Árbæjarsafn Júlíus Vífill vill flytja hús frá safninu niður á höfn. 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013 Einn bátur á strandveiðum sum- arsins kom með meira en 40 tonn að landi. Það var Örn II SF 70, sem reri á D-svæði, frá Hornafirði til Borgarbyggðar, sem varð afla- hæstur á strandveiðunum 2013 og kom með 43,6 tonn að landi. Skip- stjóri og eigandi Arnar er Elvar Unnsteinsson á Höfn. Á C-svæði frá Húsavík til Djúpa- vogs var Gunnar KG ÞH 34 með mestan afla, 39,8 tonn, sem tryggði honum annað sætið meðal strand- veiðibáta. Á svæði B frá Norður- firði til Grenivíkur varð Hrafn- tinna ÍS 150 aflahæst með 30,7 tonn. Aflahæstur þeirra 250 báta sem réru á svæði A frá Arnarstapa til Súðavíkur varð Gugga ÍS 63 með 24,6 tonn. Meðatalsafli tíu efstu bátanna á svæði D og C er nánast sá sami, 31,8 tonn á D og 31,7 á C. Þegar skoðaðir eru 10 efstu bátarnir á hverju svæði kemur í ljós að þeir fóru í alls 1.645 sjóferðir sem er nálægt 10% af heildarfjölda róðra á strandveiðum 2013, en nánar er fjallað um afla strandveiðibáta á smabatar.is. Alls lönduðu 675 bátar á strand- veiðunum í sumar, en þeim lauk í lok ágúst. Örn SF með yfir 40 tonn og aflahæstur á strandveiðunum Heildsöludreifing: Oddi Höfðabakka 7, S: 515 5000 m ag gi @ 12 og 3. is 21 .8 52 /0 1. 13 sem brotna auðveldlega niður í náttúrunni Lífrænir maíspokar Pokarnir henta vel við flokkun á lífrænum eldhúsúrgangi sem fer til jarðgerðar. Þeir eru fram- leiddir úr maíssterkju og samlagast moltunni við jarðgerðina á nokkrum vikum. Þessir pokar eru allt öðru vísi en hefðbundnir plastpokar sem eyðast afar hægt og geta verið skaðlegir náttúrunni. Fást í öllum helstu verslunum. 42"= 159.900,- 42" LED ÞRÍVÍDDARTÆKI LET42A700P · 1920x1080p – Full HD · 6.000.000:1 Dynamic Contrast · 400 Hz endurnýjunartíðni · Net@TV:HbbTV & You Tube · Sjálfvirk uppfærsla hugbúnaðar gegnum netið · TimeShift USB upptaka · USB afspilun á myndböndum, tónlist og kvikmyndum · DLNA innbyggð WiFi tenging · Hótel stilling · Orkunokun: A 6 stk. 3D gleraugu fylgja „Haier – The #1 Global Major Appliances Brand For 4th Consecutive Year.“ – Euromonitor International SKEIFAN 11· SÍMI 530 2800 / 550 4444 · WWW.ORMSSON.IS · WWW.BT.IS 39"= 99.900,- 50"= 169.900,- 39"/50" LED SJÓNVARP · 1920x1080p – Full HD · 4.000.000:1 Dynamic Contrast · 200Hz endurnýjunartíðni · DVB-T og DVB-C sjónvarpsmóttakarar · 2xHDMI, SCART, USB, VGA · USB afspilun á myndböndum, tónlist og ljósmyndum C800HF 32"= 79.900,- 32" LED SJÓNVARP G610CF · 1920x1080 – FULL HD · 4.000.000:1 Dynamic Contrast · 100Hz endurnýjunartíðni · DVB-T og DVB-C sjónvarpsmóttakarar · 2xHDMI, SCART, Optical, USB, VGA, heyrnartól · USB afspilun á myndböndum, tónlist og ljósmyndum Eygló Harðar- dóttir, félags- og húsnæðismála- ráðherra, hefur ákveðið að skipa nefnd til að ljúka heildarendur- skoðun almanna- trygginga og gera drög að frum- varpi til nýrra laga um lífeyris- réttindi. Miðað er við að starfsgetu- mat komi í stað örorkumats og að skoðaðir verði kostir og gallar þess að auka möguleika fólks til sveigj- anlegra starfsloka ásamt einföldun á lífeyriskerfinu. Verkefni nefndarinnar verður tví- þætt, segir í frétt á heimasíðu vel- ferðarráðuneytis. Það felst annars vegar í innleiðingu starfsgetumats í stað örorkumats og hins vegar er nefndinni ætlað að fjalla um fjárhæð- ir lífeyrisgreiðslna til aldraðra og ör- yrkja og skila drögum að frumvarpi að nýjum lögum um lífeyrisréttindi almannatrygginga. Haft er eftir ráðherranum að mikilvægt sé að ljúka heildarendur- skoðun laga um almannatryggingar: „Almannatryggingar eiga að vera bæði öryggisnet og um leið stuðn- ingsnet til að hjálpa fólki til sjálfs- ábyrgðar, bættrar heilsu og virkrar þátttöku í samfélaginu. Vonast ég til að við getum á næsta ári lagt fram frumvarp sem felur í sér betra fyrirkomulag þessara mála,“ segir ráðherrann m.a. í fréttinni. Starfsgetumat í stað örorkumats Eygló Harðardótir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.