Morgunblaðið - 07.09.2013, Síða 21

Morgunblaðið - 07.09.2013, Síða 21
Ég hef til dæmis aldrei skilið þá rætni sem sumir í núverandi minni- hluta hafa gagnvart Y-listanum fyr- ir að hafa farið í samstarf með okk- ur, það var búið að reyna allt annað.“ Ármann segir að verkefnin hafi verið brýn og nýjar áherslur komið strax fram. „Við í Sjálfstæð- isflokknum sögðum alltaf að end- urreisn byggingarmarkaðarins myndi hefjast í Kópavogi og það hefur svo sannarlega gengið eftir enda var forgangsverkefni að gera átak í sölu lóða í hverfum þar sem allir innviðir eru til staðar. Á næstu mánuðum munum við bjóða nýjar lóðir á góðum svæðum. Ég hef lagt mikla áherslu á Smárann því þar er miðja höfuðborgarsvæðisins og góð staðsetning fyrir fyrirtæki. Auk þess er svæðið eftirsóknarvert fyrir fjölskyldufólk. Í Kópavogsdal er flottasta íþróttasvæði landsins, einnig er stutt í góða skóla, sund- laug og golfvöll,“ segir Ármann. Lækkuðu skatta Annað sem nýi meirihlutinn gerði var að snúa af leið skattahækkana fyrri meirihluta. „Við lækkuðum skatta, fasteignaskatta, sorphirðu, vatnsgjaldið og við einsettum okkur að hækka engin gjöld umfram vísi- tölu, þrátt fyrir úrtöluraddir þar um.“ Ármann segir að áhrif þessara skattalækkana hafi verið jákvæð. Skuldastaða Kópavogsbæjar versnaði til muna eftir hrun og námu skuldirnar fljótlega um 250% af heildartekjum bæjarins. Hin aukna verðbólga og fall krónunnar vó þar þungt, en Ármann bendir einnig á aðra sök. „Við tókum strax þá ákvörðun að taka þær lóðir sem fólk vildi skila til okkar til baka án þess að mögla,“ segir Ármann. Þær lóðir séu nú að fara út aftur og þar með sé bærinn að ná sér á strik. „Við stefnum nú að því að ná 150% hámarkinu, þ.e.a.s. skuldum á móti tekjum, nokkru fyrr en eft- irlitsnefnd sveitarfélaganna gerir kröfu um, eða í síðasta lagi árið 2018.“ Ármann segir nauðsynlegt að lækka skuldirnar, því þar með sparist vaxtakostnaður og svigrúm myndast til að bæta þjónustu við íbúana. Hann gagnrýnir hins vegar kröfuna um skuldahlutfallið sem nú sé búið að lögfesta. „Þessi regla hamlar fjölgun félagslegs leiguhús- næðis. Það er til dæmis rangt að taka skuldir vegna íbúðakaupa, svo sem vegna félagslegra leiguíbúða, inn í skuldahlutfallið. Með þessari reglu vinnur ríkið gegn auknu fram- boði félagslegs leiguhúsnæðis sem allir eru sammála um að þurfi að eiga sér stað. Sveitarfélagið getur selt íbúðir hvenær sem er og fengið raunvirði til baka. Það á hins vegar ekki við um skólahúsnæði. Þess vegna ættu félagslegar íbúðir að standa fyrir utan skuldahlutfallið eins og hjúkrunarheimili. Þá skýtur skökku við að áhættusamari rekst- ur, samanber Orkuveita Reykjavík- ur, standi utan skuldahlutfalls. Sveitarfélögum er með öðrum orð- um gert erfitt fyrir að ná mark- miðum sínum og standast um leið kröfu ríksins. Á sama tíma svíkur ríkið gerða samninga og neitar að greiða skuld við sveitarfélagið upp á mörg hundruð milljónir króna.“ Ármann vísar þarna til þess þeg- ar Kópavogsbær lánaði ríkinu fé til að flýta fyrir vegaframkvæmdum á Reykjanesbraut. Hann segir þetta gott dæmi um framgöngu rík- isvaldsins gegn sveitarfélögum. Reynslan undanfarin ár sé sú að sveitarfélög geti ekki treyst orðum eða samningum við ríkisvaldið. „Ég bind því vonir við að ný ríkisstjórn taki upp ný vinnubrögð að þessu leyti.“ Hann bætir því við að það sé athyglisvert að ríkið standist ekki einu sinni sjálft kröfuna sem það gerir til sveitarfélaga um skulda- hlutfall. Sömuleiðis sé fráleitt að ríkið færi ekki lífeyrisskuldbind- ingar inn í ríkisreikning en leggi þá kröfu á sveitarfélögin. Mörg tækifæri Ármann er stórhuga fyrir hönd bæjarfélagsins sem hann stýrir. „Ég sé mörg tækifæri fyrir Kópa- vog í framtíðinni.“ Hann nefnir sem dæmi uppbyggingu atvinnulífs í bænum, en verslun og þjónusta skipa þar stærstan sess. „Sú starf- semi er að sjálfsögðu mest í Smára- lindinni og svæðunum þar um kring, en einnig vestur í bæ og í Smiðju- hverfinu. Við sjáum mörg sókn- arfæri.“ Í því samhengi nefnir hann nýstofnaða Markaðsstofu Kópavogs, sem er samstarfsvettvangur bæj- arins og fyrirtækjanna í Kópavogi. Nú líður að sveitarstjórnarkosn- ingum næsta vor. Ármann segist ekki sjá neina ástæðu til þess að núverandi meirihluti og Sjálfstæðisflokkurinn muni ekki koma vel út úr þeim. „Ég tel að það sé full ástæða fyrir okkur til þess að stefna að því að vinna til baka manninn sem við misstum síð- ast.“ Myndi núverandi samstarf þá halda áfram? Ármann segir að allir gangi auðvitað óbundnir til kosninga en því sé ekki að neita að samstarfið hafi gengið mjög vel og því væri það fyrsti kostur að halda því áfram. Það muni hins vegar velta á úrslitum kosninganna hvað gerist. Morgunblaðið/Kristinn Bæjarstjóri „Við lækkuðum skatta, fasteignaskatta, sorp- hirðu, vatnsgjaldið og við ein- settum okkur að hækka engin gjöld umfram vísitölu, þrátt fyrir úrtöluraddir þar um,“ segir Ármann Kr. Ólafsson. FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013 Neytendur athugið! Múrbúðin selur al lar vörur s ínar á lágmarksverði fyr ir al la , al l taf . Gerið verð- og gæðasamanburð! Serpo 261 trefjamúr Fyrir múrkerfi Weber Milligróf múrblanda Weber staurasteypa (stolpebeton) Maxit Steiningarlím Hvítt og grátt Weberdur 120 (Ip 14) inni & útimúr Weber REP 980 þéttimúr grár Weber Gróf Múrblanda Deka Latexgrunnur Deka Acryl Hágæða múrefni frá Múrbúðinni Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Reykjavík Kletthálsi 7. Opið má-fö kl. 8-18, laug. 10-16 Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið má-fö kl. 8-18 Akureyri Óseyri 1. Opið má-fö kl. 8-18, laug. 10-14 Vestmannaeyjar Flötum 29. Opið má-fö kl. 8-18 Ný Polarolía Nýtt útlit-meiri virkni Selolía, einstök olía Meiri virkni Hátt hlutfall Omega 3 fitusýrur Minn læknir mælir með Selolíu, en þinn? Gott fyrir: Maga- og þarmastarfsemi Hjarta og æðar Ónæmiskerfið Kolesterol Liðina Selolían fæst í: apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og MelabúðSími 555 2992 og 698 7999 Nýtt! D-vítamínbætt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.