Morgunblaðið - 07.09.2013, Síða 31
UMRÆÐAN 31Bréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013
Til Japanans Tomoo Sumi kom tölvupóstur af tilviljun frá Brasilíu. Í honum var ljóð á portúgölsku eftir
ónafngreindan höfund. Tomoo varð yfir sig snortinn af ljóðinu. Hann þýddi það yfir á japönsku og sýndi
það síðan vini sínum Ryoichi Higuchi, tónlistarmanni. Hann hreifst ekki minna en Tomoo og samdi lag við
þetta ljóð, sem ég hef þýtt yfir á íslensku.
Bréf til minna kæru barna
Ég bið ykkur að skilja mig eins og ég verð,
þegar ég eldist og
haga mér öðru vísi en ég var vanur.
Ég bið ykkur að gæta mín
eins og ég hef kennt ykkur,
þótt ég missi matarbita á fötin mín og
gleymi að reima skóna mína.
Ég bið ykkur að kinka kolli og
leyfa mér að ljúka við söguna,
þótt ég segi hana aftur og aftur.
Munið að þið báðuð mig
að lesa sömu myndabókina oft.
Þótt endalok hennar hafi alltaf verið endurtekin,
fylltu þau hjarta mitt friði.
Það er ekki sorglegt, þótt ég eldist.
En þá bið ég ykkur að líta uppörvandi til mín.
Ef ég verð of hugfanginn,
verða nærföt mín ósjálfrátt rök
eða ég vil ekki fara í bað,
bið ég ykkur að muna eftir
góðu gömlu dögunum
þegar mér tókst að lokum að baða ykkur
eftir að elta ykkur marga hringi.
Tennurnar mínar verða lasnar og
ég get ekki kyngt,
fætur mínir verða máttlitlir og
ég get ekki staðið einn.
Viljið þið rétta mér hendur og
styðja mig, þegar ég hrasa.
Eins og þið lituð til mín og
báðuð mig að hjálpa ykkur á fætur.
Ég bið ykkur að vera ekki sorgbitin
að sjá mig eins og ég er,
og hugsa ekki að þið séuð hjáparvana.
Ég finn að það er þungt fyrir ykkur
að vita að ég hef ekki nægan kraft
til að umfaðma ykkur.
En það er dásmlegt að hjarta ykkar skilji og styðji mig.
Það mun veita mér hughreysti.
Þið eigið ekki að vera sorgmædd.
Ég er að búa mig undir Ferðalagið.
Ég bið um blessun ykkar.
Eins og ég verndaði ykkur fyrstu árin,
bið ég ykkur að vera í nálægð um stund.
þegar ég hef gengið síðustu sporin.
Ég mun svara ykkur með brosi,
fyrir þá ómældu gleði að eiga ykkur og
hinn eilífa kærleika til ykkar sem mun aldrei bregðast.
Til barna minna.
Til minna kæru barna.
MIYAKO ÞÓRÐARSON,
fv. prestur heyrnarlausra.
Bréf til minna kæru barna
Frá Miyako Þórðarson Siglingaþjóð í þúsund ár en á, þegar
hér er komið, ekkert farþegaskip á
heimshöfunum. Mörgum þykir þetta
miður og finnst
eins og eitthvað
vanti í þá mynd af
landi okkar sem
við viljum eiga og
láta við blasa þeg-
ar mönnum verður
til okkar hugsað
vítt um heiminn.
Það mundi lyftast
brúnin á mörgum í
borginni ef mynd-
arlegt mannflutningaskip málað í lit-
um Eimskipafélagsins birtist hér
„Við Fjarðasund og Eyjaband“ með
íslenska fánann blaktandi við
siglutré og í skut.
Í fyrrasumar var bundið hér við
miðbakkann í gömlu höfninni skipið
Hanseatic, álitlegt farþegaskip rúm-
lega átta þúsund smálestir, með ká-
etur fyrir tæplega tvö hundruð
manns. Ef Eimskipafélagið ræður
við að kaupa skip af þessari stærð
og að finna því verkefni er bætt við
fallegri blaðsíðu í siglingasögu þjóð-
arinnar. Ég sé fyrir mér að sum-
armánuðina færi skipið vikulega
hringferð sem lægi fyrst til Edin-
borgar (Leith Harbour) en síðan til
Lundúna og að lokum til Dyflinnar,
höfuðborgar Írlands. Í þessum ferð-
um myndu Íslendingar blanda geði
við fólk frá Bretlandseyjum og Ír-
landi sem verður að teljast góður
kostur. Erkibretinn er sagður vera
oftar en ekki yfirlætislegur hræsn-
ari og dálítið teprulegur (Stephen
Fry, Tony Robertson, Michael Pal-
in) en hann er jafnoft opinskár og
hreinskilinn eins og má sjá innan
um kraðakið í þáttunum um lög-
reglumanninn Barnaby. Þetta væru
merkileg kynni millum Íslendinga
og móðurþjóða hins enskumælandi
hluta heimsins.
Vetrarmánuðina væri nóg að gera
í Karíbahafinu með höfn að heiman
á Flórídaskaganum. Þeir munu vera
margir sem ekki kæra sig um að
týnast innanum þúsundir farþega og
þjónustuliða á einhverju risaskipinu,
sem nú eru svo áberandi, en líður
vel á minna skipi þar sem allt er
með meiri kyrrð og manneskjurnar
um borð koma brátt kunnuglega
fyrir sjónir. Viðdvöl í þremur sögu-
frægum borgum á Bretlandseyjum
er tækifæri til upprifjunar á göml-
um og nýjum tengslum við mennta-
stofnanir og aðrar mannlífshreyf-
ingar hjá þessum nágrönnum okkar;
margt er þar forvitnilegt að skoða.
Bresku farþegunum gefst vænt-
anlega sólarhringsviðstaða í Reykja-
vík og við verðum að sjá til þess að
þeim hafi þótt sú heimsókn nokkurs
virði.
Líkt og sendiráð Íslands víða um
heim eru skip okkar á erlendum
slóðum áminning um tilveru okkar
og vísbending um ástand siðmenn-
ingar í heimalandinu. Hún færi vel í
hinni almennu vitund landsmanna
vitneskjan um virðulegt farþegaskip
í höndum íslenskrar áhafnar og
kæmi mönnum í erlendum höfnum
til að nema staðar og gefa því gaum.
Leynist ekki þessi draumur í
brjósti margra Íslendinga? Þarf
ekki hver og ein þjóð að umgangast
sjálfsmynd sína eins og listamaður
sem er í sífelldri leit að fegurra og
sannara sköpunarverki?
EMIL ALS,
læknir.
Verum sýnileg á höfunum
Frá Emil Als
Emil Als
Blindrammar
ótal stærðirAlltaf eitthvað nýtt
Allt til listmálunar
Strigar, penslar, olíulitir,
acryllitir, trönur, pallettur,
spaðar, svampar, lím,
íblöndunarefni, varnish,
þekjulitir, teikniblokkir,
pappír og arkir
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Mikið úrval
af listavörum
Þekjulitir/
Föndurlitir
Trönur á gólf
Acryllitir
75 ml
555
845
7.995
frá 595
2.995
frá 795
695
4.995
14.995
frá 1.995
frá 595
995
frá 1.495 6.995 3.995
frá 195
frá 395
2.495
2.495
frá 4.995
9.895
frá 9.999
frá 795
frá 595
6.995
frá 3.995
Hjólkoppar
Ljósabretti á kerrur
Startkaplar
Vasaljós
Hengilásar
Slípirokkur
Loftheftibyssa
Skrúfstykki
Ryksuga
1200W
Strekkibönd/Bensli
VerðmætaskáparAirbrush sett
Fjölslípari
Viðvörunar-
þríhyrningur
Bílsápa 1L
Hjólatjakkur 2T
Hleðslu-
tæki
LED ljósahundur
hleðslu
Bílamottu-
sett
Fjöltengi
12V
Þurrku-
blöð
Mössunarvél
Bílaþvottakústar
framlengjanlegir