Morgunblaðið - 07.09.2013, Blaðsíða 38
✝ Guðrún Sigríð-ur Andrésdótt-
ir fæddist á Eski-
firði 15. september
1929. Hún andaðist
á Heilbrigð-
isstofnun Sauð-
árkróks 16. ágúst
2013.
Foreldrar Guð-
rúnar voru Andrés
Eyjólfsson, f. 28.
október 1887, d. 19.
desember 1961, og Guðný Stef-
ánsdóttir, f. 18. október 1888, d.
18. ágúst 1967. Guðrún átti tvo
albræður; Jón, f. 1.2. 1931, d.
10.6. 2009, kona hans var Guð-
rún Egilsdóttir, f. 27.7. 1934, d.
10.5. 2005. Elís, f. 11.9. 1932, d.
1.6. 2007, kona hans er Að-
alheiður Ingimundardóttir, f.
27.5. 1933. Guðrún átti fjögur
hálfsystkin samfeðra. Þau voru:
Árnmar, Eyjólfur, Sigurborg og
Jóhann. Guðrún átti einnig fjög-
ur hálfsystkin sammæðra, en
þau létust öll í æsku. Þau voru:
Drengur, f. andvana, Þórður,
Jóhann og Elín.
Guðrún giftist 6. júlí 1951
Birni Jónssyni, f. 28.8. 1923, d.
26.4. 2011.
Guðrún og Björn eignuðust
Einarssyni, f. 1965. Börn þeirra
eru: Víðir Snær, Áslaug Dóra og
Birkir Máni. b) Birna Guðrún, f.
1974, gift Sverri Þór Stein-
grímssyni, f. 1970. Börn þeirra
eru Elísa Dimmey og Elvar Jök-
ull. c) Ólöf Lára, f. 1977, í sam-
búð með Daníel Gunnarssyni, en
sonur hennar er Hlynur Ísak
Hákonarson. 4) Rúnar Páll, f.
1955, kvæntur Eyrúnu Ósk Þor-
valdsdóttur, f. 1956. Börn þeirra
eru: a) Ingi Þór, f. 1973, kvænt-
ur Fjólu Bjarnadóttur, f. 1979.
Dóttir þeirra er Inga Lea, en
Ingi Þór á auk þess tvö börn,
Rakel Hebu og Jóhannes Rúnar,
og Fjóla á Rebekku Rós. b) Þór-
dís Ósk, f. 1978, í sambúð með
Yngva Yngvasyni, f. 1976. Son-
ur þeirra er Kristófer Rúnar. 5)
Birna Guðbjörg, f. 1965, gift
Björgvini Þorgeiri Haukssyni, f.
1966. Börn þeirra eru: a) Guðni
Þór, f. 1987, b) Arnar Þór, f.
1994.
Guðrún og Björn bjuggu all-
an sinn búskap á Sauðárkróki
og var Guðrún heimavinnandi.
Þó vann hún af og til utan heim-
ilis, m.a. á saumastofu, í fisk-
vinnslu og við ræstingar á Bæj-
arskrifstofunum. Hún var
meðlimur í Kvenfélagi Sauð-
árkróks. Hún var mikil hann-
yrðakona og eftir hana liggja
margir munir.
Útför Guðrúnar fer fram frá
Sauðárkrókskirkju í dag, 7.
september 2013, og hefst
athöfnin kl. 11.
fimm börn: 1) Unn-
ur Guðný, f. 1951,
gift Stefáni Valdi-
marssyni, f. 1948.
Börn þeirra eru: a)
Margrét Ólöf, f.
1971, gift Víði
Sveini Jónssyni, f.
1969, og eiga þau
fjögur börn,
Söndru Guðnýju,
Nínu Karen, Stefán
Inga og Jón Loga.
b) Smári Björn, f. 1977, í sambúð
með Jóhönnu Pétursdóttur, f.
1977, en börn þeirra eru Oddný
Sara Laxdal og Atli Björn. Dótt-
ir Stefáns er Berglind, f. 1969.
2) Jóhanna Sigrún, f. 1952, gift
Finni Þór Friðrikssyni. Börn
þeirra eru: a) Steina Margrét, f.
1978, gift Sorin Lazar, f. 1967.
Börn þeirra eru: Victoría, Finn-
ur Alexander og Haraldur Ar-
on. Baldur Steinar, sonur
Steinu, lést við fæðingu. b) Rúna
Birna, f. 1979, í sambúð með
Helga Páli Jónssyni, f. 1977.
Sonur þeirra er Rúrik. 3) Jón,
lagerstjóri hjá Jarðborunum, f.
1954, kvæntur Svanhildi B.
Ólafsdóttur, hótelstarfsmanni, f.
1948. Börn þeirra eru: a) Bryn-
dís Ósk, f. 1967, gift Svanbirni
Nú næðir vindur og nóttin kemur
og nú er friður í hjarta þér,
þú átt að vita það öðru fremur
að englar Drottins þeir vaki hér.
Úti vindurinn vex og dvínar,
hann vekur öldur við kalda strönd
og ber um himininn bænir þínar
þær berast áfram um draumalönd.
Á meðan birta í brjósti lifir
þá bið ég Guð minn að vernda þig,
ég bið um ást fyrir allt sem lifir
og englar Drottins þeir styðji mig.
Í myrkri finnur þú máttinn dofna
á meðan vindur um landið fer.
Þín augu lokast, þú ert að sofna
og englar Drottins þeir fylgja þér.
(Kristján Hreinsson)
Með þessu ljóði kveðjum við
þig elsku mamma og þökkum þér
allt sem þú varst okkur. Nú eruð
þið pabbi og Bæsi sameinuð á ný.
Guðný, Jóhanna, Jón, Rúnar,
Guðbjörg og fjölskyldur.
Nú horfin ertu amma úr þessum heimi,
og hvíld þú hefur fengið þrautum frá.
Við biðjum þess að Guð þig ávallt geymi,
að fara til hans var þín innsta þrá.
Með söknuði við berum harm í hjarta,
en vitum öll að þér mun líða vel
og minningu við eigum um þig, bjarta,
því lífið það mun alltaf sigra hel.
Alltaf var jafn gott til þín að leita,
og oft varst þú að strjúka tár af brá.
Við vissum að þú myndir aldrei neita,
að taka þátt í okkar von og þrá.
Með klökkum huga þökkum gæsku þína,
og allt sem að þú sýndir okkur hér.
Við biðjum góðan Guð með mildi sína
að blessa og vaka ávallt yfir þér.
(Óli Fossberg)
Takk fyrir allt elsku amma –
við söknum þín, en vitum líka að
Guðrún S.
Andrésdóttir
nú líður þér vel, afi og Bæsi hafa
tekið á móti þér og þið töltið sam-
an í gönguferð.
Steina, Rúna, Ingi og Þórdís.
Elsku Rúna amma.
Ég sit hér og hugsa og læt
hugann reika til baka, til ykkar
afa og alls þess sem við áttum
saman. Það eru svo ótal margar
minningar sem ég á og mun ég
geyma þær vel í hjarta mínu.
Það er erfitt að hugsa til þess
að maður fái ekki að sjá þig og afa
aftur í þessu lífi, en nú eru afi og
Bæsi búnir að taka á móti þér.
Hólavegurinn var eins og fé-
lagsmiðstöð, stórfjölskyldunni
fannst gott að koma til ykkar afa
og ég tala nú ekki um áramótin
en þá hittumst við öll og áttum
góða stund saman. Ég á eftir að
sakna þess að geta ekki komið á
Hólaveginn eins og ég gerði en
þessi tími er liðinn og við sem eft-
ir sitjum munum halda áfram að
njóta samveru hvert annars og
halda minningu ykkar á lofti.
Þú varst mjög flink í höndun-
um við að sauma og mála. Það
liggja mörg listaverk eftir þig og
afa og eiga flestir fjölskyldumeð-
limir dýrgripi eftir ykkur.
Þú talaðir oft um Eskifjörð og
fórst hlýjum orðum um æsku
þína. Sagðir mér oft sögur þegar
þú varst ung og ein þeirra er mér
ofarlega í huga, en það er þegar
þú varst lítil stelpa og þið krakk-
arnir fóruð að vaða í læknum uppi
í fjalli en það var vinsælt leik-
svæði hjá ykkur krökkunum.
Ég er þakklát fyrir allar góðu
stundirnar sem við áttum saman
og kveð þig með söknuð í hjarta.
Hitti ykkur afa síðar í Sumar-
landinu.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Þín
Þórdís Ósk.
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013
✝ Gunnar Frið-riksson mynd-
listarmaður fædd-
ist á Sauðárkróki
9. maí 1942. Hann
lést á heimili sínu
29. ágúst 2013.
Gunnar var son-
ur hjónanna Fjólu
Jónsdóttur og
Friðriks Júl-
íussonar. Fjóla
fæddist á Bratta-
völlum, Árskógsströnd í Eyja-
firði og ólst upp á Siglufirði en
Friðrik fæddist á Akureyri og
bjó á Barði. Gunnar var yngst-
ur í hópi ellefu barna þeirra en
Rúnar Máni, f. 10.9. 1969,
kvæntur Eydísi Magnúsdóttur.
2) Davíð Snævar, f. 8.12. 1974,
kvæntur Ragnhild Svellingen,
þau eru búsett í Noregi. 3)
Tinna Dögg, f. 9.5. 1977, búsett
í Arizona, Bandaríkjunum.
Leiðir Ástu og Gunnars skildi.
Barnabörnin eru Daníel og
Anika, börn Tinnu, Snorri og
Sturla, synir Davíðs, og Magn-
ús Gunnar og Máni Baldur,
synir Mána.
Gunnar stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla Ís-
lands 1961-1964 og samhliða
því nám hjá Ásmundi Sveins-
syni myndhöggvara.
Hann hélt fjölda einkasýn-
inga á verkum sínum gegnum
árin.
Útför Gunnars fer fram frá
Sauðárkrókskirkju í dag, 7.
september 2013, og hefst at-
höfnin kl. 17.
þau eru Jón
Brands, Halldóra
Brands, Kristján
Júlíus, María Jak-
obína, Jón Halldór,
Kristín Ingibjörg,
Sigríður Lovísa,
Þórdís Sigurlaug,
Snorri Sveinn,
Haraldur, og upp-
eldisbræður og
systursynir Gunn-
ars, Hafþór Magn-
ússon og Einar Baldvin Sveins-
son.
Gunnar kvæntist Ástu Agn-
arsdóttur, f. 20. apríl 1951, og
eignuðust þau þrjú börn: 1)
vegna eru minningarnar of marg-
ar til að hægt sé að tíunda þær, en
þær lifa í hjartanu.
Gunnar var yngstur í röðinni,
rólegur og íhugull drengur. Hann
veiktist af berklum 12 ára gamall
og var sendur suður á Vífilsstaða-
hæli fjarri foreldrum og systkin-
um. Heilsan dafnaði á Vífilsstöð-
um og góðir vinir fylltu að
einhverju leyti skarð fjölskyldu.
Stór áhrifavaldur í lífi Gunnars á
þessum tíma var Veturliði Gunn-
arsson myndlistarmaður sem var
Gunnar Friðriksson er látinn
71 árs að aldri, margs er að minn-
ast og mikils að sakna. Bróðir er
kvaddur og minningarnar flæða
fram um kærleiksríkan og ljúfan
mann.
Bernskan og uppvöxturinn
voru í faðmi ástríkrar fjölskyldu á
Sauðárkróki, lífsskilyrði voru erf-
ið því fjölskyldan var mannmörg,
en þrátt fyrir það voru ánægju-
stundirnar endalausar og ævin-
týraheimurinn óþrjótandi og þess
sjúklingur á staðnum og var
kveikjan að myndlistaráhuga
Gunnars.
En veikindin ollu því að Gunn-
ar flosnaði upp úr hefðbundnu
námi. Síðar meir stundaði hann
nám í Handíða- og myndlistaskól-
anum í Reykjavík og þar með var
lagður grunnur að myndlistar-
manninum, en myndlist og högg-
myndalist voru samferða Gunnari
eftir það.
Hann málaði og teiknaði og
mótaði í sandstein og leir fjölda
fallegra verka unnin af afbragðs
handverki og innsæi, samhliða því
vann hann hin ýmsu störf.
Hann fór ekki varhluta af erf-
iðleikum lífsins því átök voru
innra með honum þar sem tókust
á lífsbaráttan og myndlistarmað-
urinn.
Veikindi, áföll og mótlæti
mættu honum síðari hluta ævinn-
ar. Honum tókst að fóta sig að
nýju og naut sín best með lista-
gyðjunni og í faðmi ástvina og
vina eftir það.
Persóna Gunnars var einstök
því þar fór lífsglaður maður með
mikla frásagnargleði án þess að
halla orðinu að nokkrum. Gunnar
var mikill húmoristi og sá spaugi-
legu hliðarnar á lífinu, en umfram
allt var á ferðinni kærleiksríkur
maður með jákvætt viðmót og
hlýju í umgengni, ljúfmennska
einkenndi hann að öllu leyti. Hann
var fagurkeri og félagsvera, elsk-
aði góðan mat og góðra vina fund.
Gunnar giftist Ástu Agnars-
dóttur ungur maður en leiðir
þeirra skildu um miðbik ævinnar,
þau eignuðust saman þrjú börn,
Mána, Davíð og Tinnu og barna-
börnin eru orðin 6 talsins, en þau
sjá nú á bak kærleiksríkum föður
og afa. Við sendum þeim okkar
innilegustu samúðarkveðju og um
leið og við kveðjum einstakan
mann og góðan dreng þökkum við
vináttuna og umhyggjuna sem
hann gaf lífi okkar.
Haraldur og Vilborg.
Gunnar
Friðriksson
Mig langar að minnast elsku-
legrar systur minnar með
nokkrum orðum. Minningar
koma fram í hugann frá liðnum
árum þegar ég var heima í Flat-
ey á Breiðafirði hvað það var
gaman þegar þú komst í heim-
sókn. Þú hafðir alltaf frá svo
mörgu að segja sem okkur þótti
merkilegt, þú varst búin að fara
svo víða. Svo þegar ég fór að
fara suður þá fórst þú með mig í
búðir og keyptir á mig föt og
það var allt svo vandað. Svo eft-
ir að ég flutti austur þá sendir
þú mér stundum ýmislegt sem
kom sér mjög vel. Þú varst allt-
af svo hugsunarsöm.
Dagbjört G.
Þórðardóttir
✝ Dagbjört Guð-ríður Þórð-
ardóttir fæddist á
Granda í Ket-
ildalahreppi í Arn-
arfirði 10. október
1921. Hún lést á
Hrafnistu í Boða-
þingi í Kópavogi 17.
ágúst 2013.
Útför Dagbjartar
var gerð frá Digra-
neskirkju í Kópa-
vogi 28. ágúst 2013.
Þegar Dúna
dóttir mín fór fyrst
að heiman til að
vinna þá fór hún til
þín á Reykjalund
og fékk vinnu, og
þar fékk hún
áhuga á að fara í
nám, fyrst í
sjúkraliðann og
síðan í hjúkrun. Þú
varst svo ánægð
með það. Svo lét
hún dóttur sína heita í höfuðið á
þér og þú komst austur og hélst
henni undir skírn í litlu kirkj-
unni í Þingmúla. Þegar Sobbi
veiktist mikið og var fluttur
meðvitundarlaus suður og lá
þannig í langan tíma á LSP í
Fossvogi og ég var þá í skól-
anum og gat ekki farið suður þá
sást þú um að fylgjast með hon-
um og fá allar upplýsingar hjá
læknunum fyrir mig þangað til
ég kom suður. Það var alltaf
sjálfsagt hjá þér að hjálpa öll-
um.
Elski Dæja mín, minningin
um þig er okkur öllum svo kær.
Far þú í Guðs friði.
Þin systir,
Ingunn (Inga).
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför föður okkar, tengdaföður, afa og lang-
afa,
KONRÁÐS Ó. KRISTINSSONAR,
hjúkrunarheimilinu Eir,
áður Hvassaleiti 58,
Reykjavík.
Sigurður Konráðsson, Kristín Jóhanna Harðardóttir,
Halldór Konráðsson, Þóra Þórhallsdóttir,
Konráð Konráðsson, Bryndís Hinriksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
LILÝJAR KARLSDÓTTUR,
áður til heimilis í Stóragerði 14.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki
Maríuhúss, Dalbrautar 27 og Droplaugarstaða fyrir góða
umönnun og hlýhug.
Sigurður Geirsson, Steinunn Þ. Ólafsdóttir,
Karl Geirsson, Þyri E. Þorsteinsdóttir,
Margrét Geirsdóttir, Jóhann Másson,
barnabörn og fjölskyldur.
Davíð
úrfararstjóri
Jóhanna
guðfræðingur
útfararþjónusta
Óli Pétur
úrfararstjóri
Sími 551 3485,
svarað allan
sólarhringinn.
Vefsíða www.udo.is
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær
sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram. Þar mega
einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta
komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum.
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um ann-
að. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent má
senda myndina á netfangið minning@mbl.is og gera umsjónarfólki minningargreina viðvart.
Minningargreinar