Morgunblaðið - 07.09.2013, Qupperneq 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Dagurinn í dag er kjörinn til að ræða
langtímaáform við maka. Niðurstaðan verður
þér í hag. Gerðu þitt til að efla slíkan áhuga
hjá sjálfum þér og öðrum.
20. apríl - 20. maí
Naut Hikaðu ekki við að setja þínar eigin
þarfir í forgang í dag. Aðeins með því að gera
hreint í eigin ranni getur þú haldið áfram.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Leggðu þitt af mörkum til að bæta
heiminn. Ef þú ert spenntur fyrir því sem þú
ert að gera, vilja aðrir leggja sitt af mörkum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Með þeirri samskiptatækni sem til er
eiga boð milli vina ekki að dragast úr hömlu
eða detta upp fyrir. Skilningsríkt fólk býðst til
að hjálpa þér og það kemur þér á óvart.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er miklu skemmtilegra að vinna
þegar þú treystir á félagana. Vel orðaðar rök-
semdir þínar munu láta hlutina gerst, svo
láttu í þér heyra.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Flest okkar eiga það til að falla í þá
gryfju að taka okkar nánustu sem sjálfgefna.
Hugsanlega gengur hann/hún svo langt að
heimta hluti sem hann vantar ekki.
23. sept. - 22. okt.
Vog Frelsið er dýrmætt en það kostar líka
sitt því öllu frelsi fylgir ábyrgð sem ekki er
hægt að horfa framhjá. Ráð frá einhverjum
sem er þér eldri og reyndari munu reynast
vel í dag.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú skalt gera plön um að bjóða
vinum eða fjölskyldu í heimsókn síðar í vik-
unni. Þú getur ekki stjórnað því hvað öðrum
finnst um þig.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Svo gæti virst sem að maður
ætti að leysa hagnýt verkefni fyrst, en hið
gagnstæða er rétt. Notfærðu þér hæfileika
þinn til að geta skoðað tvær hliðar málsins.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Mundu að ekki er allt sem sýnist
og hlutirnir eru stundum aðrir en við höldum
við fyrstu kynni. Beindu frekar athyglinni að
björtu hliðum lífsins en mundu að fæst orð
hafa minnsta ábyrgð.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú gengur með margar djarfar
hugmyndir í maganum. Líklega muntu eyða
peningum í eitthvað fallegt handa þér og ást-
vinum þínum á næstunni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það eru oft einföldustu hlutir sem
vefjast mest fyrir manni. Stilltu þig um að
rasa um ráð fram, fyrir vikið nærðu frábær-
um árangri í verkefni sem þú hefur baksað
við upp á síðkastið.
Ég sá einhvers staðar um daginnað minna væri um hagyrðinga
nú en fyrr meir. Ekki veit ég það,
en líflegt hefur verið á Leirnum síð-
ustu daga hvað sem öðru líður. 1.
september orti Hjálmar Frey-
steinsson vegna fréttar í Rík-
isúrvarpinu:
Veslinga sem varla skrimta
víst það gleðja kann:
Bráðlega við fáum fimmta
framsóknarráðherrann.
Árni Björnsson segist 2. sept-
ember hafa verið beðinn að spyrj-
ast fyrir hjá vísnafróðum mönnum,
hvort þeir gætu lappað upp á með-
fylgjandi vísu, sem í vantar aðra
línuna og hvorki er heldur vitað um
höfund né tilefni:
Höklaverinn hálærður
(hér vantar vísuorð)
undan skeri alvaldur
yður, séra Þorlákur.
Það sýnir, hversu vakandi Leir-
inn er, að þegar upphófust miklar
bréfaskriftir. Ólafur Stefánsson
sendi línu kl. 16.22:
„Ekki þekki ég þessa vísu, en ein-
hvern veginn leiðir hún hugann að
„iðrunarvísu“ sr. Jóns Þorláks-
sonar eftir barneign:
Lukkutjón þá að fer ört
ekki er hægt að flýja,
betur hefði Guð minn gjört
að gelda mig en vígja.“
Enn skrifar Ólafur um föður Jóns
síra Þorlák í Selárdal, sem var
hrakinn og dæmdur frá kjóli og
kalli, en um hann orti Jón þessa
landfleygu vísu:
Minn var faðir monsíur
með það var hann síra
síðan var hann sinníur
og seinast tómur Þorlákur.
Um kvöldið setti Símon Jón Jó-
hannsson á vefinn:
„Sæll Árni. Í Lögbergi 30. mars
1922 er greinarkorn um Hannes
stutta eftir Jón Einarsson og segir
þar m.a.: „Til séra Þorláks prests í
Hvammi í Hvammsveit, sem var
blóðtökumaður heppinn eins og
fleiri voru í þeirri tíð, kvað Hannes
þetta:
Hölda keri hrósverður
heiðurs féri blómgaður
yndi að bera alvaldur
yður séra Þorleifur.
(Á væntanlega að vera Þorlákur)
Saura-Gísli, sem þá var í
hrekkjablóma lífs síns og öllum Ís-
lendingum austan hafs og vestan
er kunnur, sneri oft vísum Hann-
esar og aldrei á helgari veginn.
Síðast nefndri vísu sneri hann
þannig, að 3. vísuorðið byrjaði með
orðunum „undan skeri“ alvaldur
og var stakan æ kveðin svo eftir
það.“
Halldór Blöndal.
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Það er líflegt á Leirnum
Í klípu
„MÉR FINNST GOTT AÐ KOMA SNEMMA
Í VINNUNA OG SIGRA MANNFJÖLDANN.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
VANTAR ÞIG FAR EITTHVAÐ? ÉG ER
BÚINN AÐ HRINGJA Á LEIGUBÍL!
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
...að hafa alltaf tíma í
smákossaflens.
VAKNAÐU
HRÓLFUR!
DR. SAXI SAGÐI AÐ ÞÚ MÆTTIR ALLS EKKI
SLEPPA ÞVÍ AÐ TAKA ÞESSA SVEFTÖFLU!!
HRJÓT
LOKSINS ER
HÚSIÐ HREINT.
AHH. HRINGRÁS
LÍFSINS.Í dag er Víkverji í brúðkaupi aðfagna ástinni með vinum sínum,
líkt og nokkuð stór hópur fólks sem
valdi þessa tilteknu dagsetningu: 7-
9-13. Og skal engan undra enda sam-
setning talnanna talin búa yfir töfra-
mætti. Ekki veitir af að hafa meiri
lukku en minni þegar gengið er í
hnapphelduna.
x x x
Talnaspeki er hins vegar nokkuðskemmtilegt fyrirbæri. Að vilja
hafa góðar og þjálar tölur í kringum
sig er nokkuð sem Víkverji skilur
upp að vissu marki. Hann hefur
nefnilega sjálfur alloft blótað kenni-
tölu sinni sem er með eindæmum
óþjál. Hvorki hrynjandi, endurtekn-
ingu né symmetríu er að finna í töl-
unum sem hann þarf oftar en ekki að
þylja upp í hvers kyns opinberum er-
indagjörðum. Víkverji batt vonir við
að afkvæmið fengi fína kennitölu en
nei, allt kom fyrir ekki. Hún er stirð
og ekki ein endurtekning á tölunum.
x x x
Systir Víkverja sem fagnar afmælisínu í Danaveldi í dag er með
einstaklega góða kennitölu. Hún
hreinlega greypist inn í heilann. Það
kom þó að mjög góðum notum fyrir
Víkverja þar sem hann er töluvert
yngri og þuldi kennitöluna upp og
framvísaði nafnskírteini systur sinn-
ar þegar hann var fyrir tilviljun
staddur á öldurhúsi bæjarins og ein-
hvers konar verðir urðu á vegi hans.
x x x
Annars verður Víkverji að víkja aðnokkrum orðum að neytenda-
málum. Hann varð fyrir miklum von-
brigðum þegar hann ákvað ásamt
betri helmingnum að leigja mynd á
„voddinu“ á Vodafone. Hann kýs
frekar að styrkja símafyrirtækin en
hlaða niður ólöglegu efni af netinu.
Gamaldags, má vera, en réttsýnn,
svei mér þá barasta. Ekki veitir af að
styrkja listamennina sem framleiða
hvert snilldarefnið á fætur öðru fyrir
okkur. En þetta kósý kvöld var ekki
jafn rómantískt og stefndi í því
myndin fraus í tvígang. Þolinmæðin
var á þrotum líkt og poppið og gosið.
Hvorki hægt að hringja og kvarta né
gera neitt, tíminn leið og nálgaðist
óþægilega mikið miðnætti. Bókin
sigraði tæknina … víkverji@mbl.is
Víkverji
Og þetta er vitnisburðurinn: Guð hef-
ur gefið okkur eilíft líf og þetta líf er í
syni hans. (Fyrsta Jóhannesarbréf 5:11)