Morgunblaðið - 07.09.2013, Síða 52
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 250. DAGUR ÁRSINS 2013
Pálmi Gunnarsson, einn af ástsæl-
ustu söngvurum þjóðarinnar, heldur
tónleika í kvöld í Eldborg í Hörpu en á
þeim mun hann leika lög af ferli sín-
um, perlur á borð við „Þorparann“,
„Hvers vegna varstu ekki kyrr?“ og
„Þitt fyrsta bros“. Tónlistarstjóri er
Þórir Úlfarsson og sérstakir gestir á
tónleikunum verða Magnús Eiríksson
og Ellen Kristjánsdóttir, samstarfs-
menn hans úr Mannakornum til fjölda
ára. Einnig er komin út þreföld plata
á vegum Senu sem hefur að geyma
57 lög frá ferli Pálma og ber hún titil
eins af hans vinsælustu lögum af
löngum ferli, „Þorparinn“.
Morgunblaðið/Eggert
Pálmi fer yfir glæst-
an feril á tónleikum
í Eldborg í Hörpu
Hljómsveitin Kimono mun í dag
leika stuttskífu sína, Aquarium, sjö
sinnum í plötuversluninni Lucky Re-
cords, Rauðarárstíg 10 í Reykjavík.
Stuttskífan hefur að geyma tæplega
20 mínútna lag, samnefnt plötunni.
Lagið verður flutt á klukkustundar
fresti, fyrst kl. 11 og síðast kl. 17 og
mun það breytast með hverjum flutn-
ingi þar sem ýmsir hljóðfæraleikarar
munu veita hljómsveitinni lið yfir
daginn. Kimono skipa Alison Mac-
Neil, Gylfi Blöndal og Kjartan Bragi
Bjarnason.
Kimono flytur
Aquarium sjö sinnum
Um þessar mundir eru 16 mánuðir
þangað til heimsmeistaramót karla í
handknattleik fer fram í Doha í Katar.
Í fyrsta sinn fara allir leikir fram í
sömu borginni. Reistar hafa verið fjór-
ar glæsilegar íþróttahallir í olíu-
borginni sem eiga að rúma frá 6-17
þúsund áhorfendur. Þeim fjölgar stöð-
ugt sem óttast að íþróttahallirnar
verði meira og minna tómar á flestum
eða öllum leikjum mótsins. »4
Hálftómar glæsihallir
á HM í Katar?
Jóhann Berg Guðmundsson
varð í gærkvöld fyrstur
Íslendinga til að skora
þrennu í undankeppni stór-
móts í karlaflokki þegar
hann skoraði mörkin stór-
glæsilegu gegn Svisslend-
ingum í undankeppni HM í
Bern. Átta landsliðs-
menn höfðu þó áður
gert 3 eða 4 mörk í vin-
áttulandsleikjum. »1
Fyrsta þrennan í
mótsleik Íslands
Viðhorf á laugardegi er nýr og viku-
legur íþróttapistill. Í dag skrifar
Tómas Þór Þórðarson: „Eins mikið
og ég elska handbolta get ég
stundum alveg gefist upp á hand-
bolta. Ekki íþróttinni sjálfri, hún er
vanalega alltaf jafnfögur, okkar
þjóðaríþrótt. Í
gegnum tíðina
hefur amatör-
ismi í
um-
gjörð
hand-
boltans
verið afar mikill þó
að ýmis félög og
handknattleiks-
sambandið hafi
undanfarin misseri
reynt að sporna við
því og hysjað upp
um sig buxurnar.“
»4
Mikill amatörismi í
umgjörð handboltans
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Fræðasetur um forystufé er nú í
undirbúningi í Svalbarðshreppi í
Þistilfirði. Stefnt er á að opna það í
júní 2014 og þar verður íslensku
forystukindinni gert hátt undir
höfði.
Það er Daníel Hansen, skóla-
stjóri í Svalbarðsskóla, sem átti
hugmyndina að setrinu og er for-
maður stjórnar Fræðaseturs um
forystufé. „Eftir að ég kom hingað
kynntist ég forystufé og sá það
vinna. Ég varð hugfanginn af þess-
um skepnum og fór að hugsa hvort
ekki væri hægt að gera eitthvað í
kringum þær,“ svarar Daníel
spurður út í upphafið.
Mekka forystufjárins á Íslandi er
í Norður-Þingeyjarsýslu að sögn
Daníels. „Það er mikið af forystufé
hér, flestir bændur eiga eina til
tvær forystukindur og þær nýtast
vel. Stofninum hefur verið vel við
haldið hér og héðan hafa menn ver-
ið að selja kindur út um allt land
því þetta er riðulaust svæði.“
Til um tólf hundruð
forystufjár
Í Svalbarðshreppi er gamalt fé-
lagsheimili sem hætt er að nota og
sá Daníel tækifæri í að byggja það
upp og hafa setrið í því. Vinna við
að endurgera félagsheimilið hófst
þarsíðasta vetur og er langt komin.
Heimamenn hafa unnið við húsið í
sjálfboðavinnu og segir Daníel góða
stemningu hafa myndast í kringum
verkið. Í vetur á svo að setja upp
sýninguna. „Við fengum hönn-
uðina Þórarin Blöndal og Finn
Arnar Arnarson til að hanna sýn-
inguna. Það verður ýmislegt til
sýnis eins og uppstoppað
forystufé, ljósmyndir,
sögur og myndir. Þá
verður útlit og ein-
kenni forystufjár tekið
fyrir. Svo erum við að
safna öllu hugsanlegu sem tengist
forystufé þannig að þetta geti allt
verið á einum stað.“
Fræðasetrið fékk forystusauðinn
Foringja frá Ytra-Álandi gefins síð-
asta haust. Foringi hefur nú verið
stoppaður upp og mun fá viðhafn-
arsess á setrinu en um einstaklega
glæsilega skepnu var að ræða, að
sögn Daníels.
Hellingur er til af sögum um for-
ystufé enda um einstakar kindur að
ræða. „Það er búið að viðurkenna
það í vísindaheiminum að íslenska
forystuféð er einstakur stofn í
heiminum, það er enginn annar
stofn með þetta gen í sér. Það eru
bara til um 1.200 einstaklingar hér
á landi og þeir eru allir upprunnir
úr Norður-Þingeyjarsýslu.“
Varð hugfanginn af forystufé
Fræðasetur um
forystufé sett upp
í Svalbarðshreppi
Ljósmynd/Daníel Hansen
Fræðasetur Forystusauðurinn Foringi er í forgrunni en hann fær viðhafnarsess á setrinu. Í bakgrunni má sjá
uppstoppaða hausa af forystufé sem Fræðasetur um forystufé hefur fengið að gjöf og verða þeir þar til sýnis.
Daníel segir að hann hafi orðið var við almennan áhuga á verkefninu á
landinu öllu og borist fyrirspurnir víða að. „Okkur dreymir um að hafa
kind mánaðarins á heimasíðunni okkar og ef fólk á í fórum sínum
frásagnir og myndir af forystukindum má það endilega senda
okkur efnið.“ Heimasíða Fræðaseturs um forystufé er: www.for-
ystusetur.is. Þá er setrið einnig með síðu á Facebook og net-
fangið; forystusetur@forystusetur.is.
En hvað er sérstakt við forystufé? Það vill vera í forystu í fjár-
hópnum og leiða hann. Til eru margar sögur um forystukindur
sem finna á sér veðrabrigði, þá þykja þær ratvísar og geta leitt
fjárhópinn heim í vondum veðrum og myrkri. Forystufé er yfir-
leitt mislitt, hávaxið, þunnbyggt og með vakandi augnaráð.
Þá eru sauðirnir oft vaninhyrndir.
Óskar eftir sögum og myndum
FRÆÐASETUR UM FORYSTUFÉ
Daníel
Hansen
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Sláandi kynlífsmyndband
2. Rut Káradóttir hannaði eldhúsið
3. Stór geislasteinn á Teigarhorni
4. Vildi ekki vera bara í Nike-skóm
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan og suðaustan 15-23 m/s með talsverðri rigningu vestan-
lands. Dregur úr vindi og úrkomu vestast undir miðnætti. Hiti 7 til 17 stig.
Á sunnudag Sunnan og suðvestan 8-13 m/s og rigning fyrir suðaustan en annars hæg-
ari og skúrir. Hiti víða 9-14 stig.
Á mánudag Suðvestan og vestan 5-10 m/s og skúrir, úrkomulítið A-lands. Hiti 8 -13 stig.
Á þriðjudag Vaxandi suðaustanátt 13-20 m/s með rigningu fyrir sunnan og vestan.