Morgunblaðið - 09.09.2013, Page 1
M Á N U D A G U R 9. S E P T E M B E R 2 0 1 3
209. tölublað 101. árgangur
SKÁLD LESA UPP
Á FIMM STÖÐUM
Í MIÐBORGINNI
HÆGI
HARÐ-
FISKURINN
MINNISVARÐI UM ÞRÁ
EFTIR FRELSI, SJÁLF-
STÆÐI OG LÝÐRÆÐI
FLATEYRI 16 MINNINGARSAFN 34BÓKMENNTABORGIN 37
ÁRA
STOFNAÐ
1913
Lára Halla Sigurðardóttir
larahalla@mbl.is
Fjölmargir lögðu leið sína í fjöruna
við Rif á Snæfellsnesi og Bug
skammt frá Ólafsvík í gær, þar sem
tugir grindhvala strönduðu síðdegis
á laugardag, og virtu dýrin fyrir sér.
Margir sáu sér leik á borði og
náðu sér í kjöt af hvölunum en hval-
skurðurinn hófst þegar í stað á laug-
ardagskvöldið eftir að hvalina hafði
rekið upp á fjörur. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins sýndu fisk-
salar á höfuðborgarsvæðinu kjötinu
strax áhuga í gær. Einhverjir
heimamanna brugðust við beiðninni
og átti að senda grindhvalakjötið
suður.
Að sögn Floru-Josephine Hagen
Liste, héraðsdýralæknis í Vestur-
umdæmi, gerir Matvælastofnun
ekki athugasemd við að almenn-
ingur nýti kjötið af hvölunum, svo
framarlega sem það sé aðeins nýtt
til einkanota en ekki til sölu eða fóð-
urs fyrir dýr sem gefa af sér afurðir.
Eigi að selja kjötið, þurfi að skera
það á viðurkenndum stað.
Gagnrýnir aðgerðir
Róbert Arnar Stefánsson, líffræð-
ingur á Náttúrustofu Vesturlands,
gagnrýnir aðgerðir á vettvangi.
„Ég held að verklagsreglum hafi
ekki verið fylgt í mörgum atriðum,“
sagði hann í samtali við Morgun-
blaðið. Hann telur að dýrin hafi ekki
endilega verið dauð þegar hval-
skurðurinn hófst á laugardaginn og
fagaðili hefði þurft að meta stöðuna.
Fisksalar sýndu hvalkjötinu strax áhuga
Aðeins má nota kjöt sem skorið er af
dauðum hvölum í fjöru til einkanota
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Skurður Ólafsvíkingar og nærsveitamenn voru snöggir til eftir hvalrekann
og hófu að skera sér kjöt í matinn. Unga kynslóðin fékk að fylgjast með. MFjöldi fólks náði sér í … »4
Mikil ljósadýrð var á himni yfir Reykjanesbæ í gærkvöldi þegar flugeldum
var skotið á loft. Þar með lauk bæjarhátíðinni Ljósanótt en vegna illviðris á
laugardagskvöld var flugeldasýningu frestað um einn dag. Útitónleik-
unum „Fyrsti kossinn - Hljómar í 50 ár“ var einnig frestað en ákveðið hefur
verið að þeir fari fram í Andrews Theatre nk. miðvikudagskvöld. Tvennir
tónleikar verða, kl. 19 og 21, og frítt verður inn.
Ljósadýrð á Ljósanótt
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Gleði Suðurnesjamanna framlengd vegna veðurs
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Rætist spár um 15% árlegan vöxt í
ferðaþjónustu út þennan áratug mun
það hafa mikla efnahagslega þýð-
ingu og gera greinina að leiðandi at-
vinnuvegi í landinu. Án þessa vaxtar
yrðu hagvaxtarhorfur mun lakari.
Þetta er mat Ingólfs Bender, for-
stöðumanns Greiningar Íslands-
banka, sem segir greinina orðna leið-
andi grein í sköpun gjaldeyristekna.
„Ferðaþjónustan er orðin lykil-
grein í íslenska hagkerfinu og sú
grein sem leiðir hagvöxt. Við sjáum á
nýjum tölum um hagvöxt að ferða-
þjónustan knýr áfram vöxtinn. Ef
spár um 15% árlegan vöxt ferðaþjón-
ustunnar fram til 2020 rætast yrðu
það stórtíðindi fyrir íslenskt efna-
hagslíf,“ segir Ingólfur.
Eins og rakið var í Morgunblaðinu
í síðustu viku spáir Gunnar Valur
Sveinsson, verkefnastjóri hjá Sam-
tökum ferðaþjónustunnar, því að
greinin muni vaxa um 15% að jafnaði
fram til ársins 2020. Ferðaþjónustan
skapaði 238 milljarða í gjaldeyris-
tekjur árið 2012 en mun skapa 759
milljarða árið 2020 ef spáin rætist.
Þá mun ferðamönnum fjölga úr um
800.000 í ár í um 2,14 milljónir árið
2020, gangi spáin eftir.
Hjálpar til við afnám hafta
Styrmir Guðmundsson, sjóðsstjóri
Júpíters rekstrarfélags, segir að-
spurður að svo mikil fjölgun ferða-
manna muni leiða til styrkingar
krónunnar og hjálpa til við að af-
nema höftin. „Ef þetta raungerist
verður staða krónunnar allt önnur
en hún er í dag. Ef svo mikið flæði
gjaldeyris verður inn í landið verður
Ísland sjálfkrafa dýrara fyrir ferða-
menn í gegnum sterkari krónu.
Ef ráðist verður í fjárfestingu í
innviðum og tækjum til að þjónusta
þennan mikla fjölda ferðamanna
mun undirbúningurinn fyrir þann
vöxt einn og sér skila okkur upp-
gangi í þjóðarbúinu, sem ekki hefur
verið gert ráð fyrir til þessa.“
„Stórtíðindi
fyrir íslenskt
efnahagslíf“
Sérfræðingar telja fyrirhugaðan vöxt
í ferðaþjónustu munu hafa mikil áhrif
Allir útgjalda-
liðir í fjárfest-
ingaáætlun síð-
ustu ríkisstjórn-
ar eru til endur-
skoðunar og
kemur til greina
að skera niður
framlög til
þeirra allra.
Samkvæmt
áætluninni, sem
nær til áranna 2013-2015, verða
lagðar tæplega 1.500 milljónir
króna til Kvikmyndasjóðs til við-
bótar við fyrri framlög.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er til skoðunar að skera
niður framlag ríkisins til sjóðsins
um 40% á næsta ári sem þýddi að
viðbótarframlag það ár félli niður.
Guðlaugur Þór Þórðarson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, segir
ríkið ekki eiga fyrir áætluninni. »4
Fjárfestingaáætlun
verður endurskoðuð
Guðlaugur Þór
Þórðarson
„Tilfinning mín er sú að okkur
miði áfram og að okkur sé að takast
að binda enda á þrátefli og hefja
diplómatískar viðræður. Þótt ég sé
bjartsýnn að eðlisfari er ég líka
raunsæismaður hvað varðar samn-
ingaviðræður um skiptingu makr-
íls,“ sagði Herluf Sigvaldsson, for-
maður samninganefndar Færeyja í
makríldeilunni, um stöðuna eftir
fund um deiluna í Reykjavík.
Fundað var um helgina og herma
heimildir Morgunblaðsins að engin
tilboð hafi verið lögð fram og að
ekki hafi verið reynt að semja um
prósentutölur í skiptingu aflans.
Litið hafi verið á fundinn sem
undirbúning fyrir næstu fundi. »15
Þrátefli í makríl-
deilunni að ljúka
Í Reykjavík Fundað í makríldeilunni.
Morgunblaðið/Golli
Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir
að mikill vöxtur af ferðaþjónustu myndi breyta miklu.
„Við höfum sagt að við núverandi kringumstæður og jafn hægan hag-
vöxt sé lítið svigrúm til launabreytinga. Ef við fengjum hins vegar svona
kröftugan vöxt í ferðaþjónustu, og væntanlega talsvert mikla
fjárfestingu sem henni fylgdi, þá gefur auga leið að
það myndi breyta myndinni talsvert hvað varð-
aði verðmætasköpun í landinu og þar með
svigrúm til launabreytinga,“ segir
Þorsteinn ennfremur.
Yki svigrúm til launahækkana
FRAMKVÆMDASTJÓRI SA METUR ÁHRIFIN