Morgunblaðið - 09.09.2013, Page 4

Morgunblaðið - 09.09.2013, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2013 Ferðamálaskóli Íslands • www.menntun.is • Sími 567 1466 Opið 8-22 Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá, sem vilja kynnast Íslandi í máli og myn- dum. Námið er opið öllum þeim, sem áhuga hafa á að læra hverning standa skal að leiðsögn erlendra og innlendra ferðamanna um Ísland. Stuðst er við námsskrá menntamálaráðuneytisins um viðurkennt leiðsögunám. Helstu námsgreinar: • Helstu viðkomustaðir ferðamanna í máli og myndum. • Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta. • Mannleg samskipti. • Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðarverkefni og margt fleira. Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar á hinum ýmsu sviðum. Boðið er uppá dag- og kvöldnám, auk þess sem farið er í vettvangsferðir. Umsögn: „Síðasta haust hóf ég leiðsögunám við Ferðamálaskóla Íslands. Námið fór fram úr mínum björtustu vonum. Ég hef ferðast mikið um landið frá barnsaldri, en þrátt fyrir það öðlaðist ég nýja sýn á landið í skólanum. Námið er hnitmiðað og að auki mjög skemmtilegt, reyndar svo skemmtilegt að ég vil helst fá framhald- snám. Þetta nám kemur mér að miklu gagni í starfi mínu sem kennari og vonandi sem leiðsögumaður í framtíðinni“. Martha Jensdóttir kennari. - Nemendur geta að ná i loknu gengið í Leiðsögufélagið - Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyri þá sem vilja kynnast Íslandi í máli og myndum. Námið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á að læra hvernig standa skal að lei sögn erlendra og innle dra fe ðamanna um Ísland. -Flest stéttarfélög styrkja neme dur til náms. -Nemendur geta að námi loknu gerst félagsmenn í Leiðsögufélaginu Helstu námsgreinar: - Helstu viðkomustaðir ferðamanna á Íslandi í máli og myndum. - Mannleg samkipti, leiðsögutækni, hestar, fuglar og flóra. Framsaga. - Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta. - Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðaverkefni o margt fleira. Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar hver á sínu sviði. Boðið er uppá dag – og kvöldnám, auk þess er farið í fjölda vettvangsferða. Umsögn: Leiðsögunámið í Ferðamálaskóla Íslands bætti miklu við þekkingu mína á landinu sem og sögu og menningu þjóðarinnar. Þessir þættir voru ofnir saman á einkar áhugaverðan og skemmtilegan hátt og kryddað margs konar fróðleik og frásögnum. Auk þess spannaði námið allt frá leiðsögutækni til laxveiðáa, frá skyndihjálp til skógræktar og frá hvalafræðum til hverasvæða svo nokkuð sé nefnt. Skipulag námsins var sveiganlegt en með ákveðnu aðhaldi stjórnenda sem skapaði gott andrú sloft í þessum alþjóðlega hópi nemanda. Þessum tí a var mjög vel varið hvort sem maður hyggur á fer aleiðsögn e a ekki. LEIÐSÖGUNÁM VIÐURKENNT STARFSNÁM AF ATVINNULÍFINU Opið 8- 2 Magnús Jónsson fv. veðurstofustjóri Lára Halla Sigurðardóttir larahalla@mbl.is Ekki er vitað af hverju hátt í 70 grindhvalir syntu í vöðu inn í höfnina í Rifi á Snæfellsnesi síðdegis á laug- ardag. Reynt var að koma hvölunum út úr höfninni en vegna veðurs gekk það illa. Marga tugi hvala rak einnig upp í fjörur í Rifi og við Bug, rétt við Ólafsvík, og drápust margir þeirra í fjörunni. Ýmsar tilgátur hafa verið settar fram um þessa óvenjulegu hegðun hvalanna en þó virðist ekki vera hægt að slá neinu föstu varðandi hana. Að sögn Jóhanns Sigurjónssonar, for- stjóra Hafrannsóknastofnunar og hvalasérfræðings, eru kenningar um að hvalir nýti meðal annars segulsvið jarðar til áttunar. „Segulsvið jarðar er síbreytilegt og það eru tilgátur um að breytingarnar geti haft áhrif á dýrin, það er að segja ef þau nota seg- ulsviðið til áttunar,“ segir Jóhann. Þá er einnig möguleiki á því að hegðun- ina megi rekja til veðurfars eða veik- inda forystuhvalsins. Gagnrýnir verklag Róbert Arnar Stefánsson, líffræðingur á Náttúru- stofu Vesturlands, gagn- rýnir aðgerðir á vettvangi og segir óvíst hvort dýrin sem skorin voru á laugardagskvöldinu hafi verið dauð. Ekki hafi verið fagaðili á vettvangi á laugardagskvöld sem gat metið hvort dýrin væru dauð. Skýrt er kveðið á um hvernig aflífa skuli hvali María Margrét Jóhannsdóttir mariamargret@mbl.is Fjármagnsskortur stendur í vegi fyrir að hægt sé að fara í nauðsyn- legar framkvæmdir og viðhald á Innra-Hólmskirkju í Saurbæjar- prestakalli í Hvalfirði. Ástand kirkjunnar er talið slæmt en engin áform eru um fram- kvæmdir. „Það vilja allir gera eitt- hvað í þessu máli en það skortir fjármuni,“ segir Ragnheiður Guð- mundsdóttir, formaður sóknar- nefndar. „Gert var við kirkjuna ár- ið 1963 en síðan þá hefur lítið verið gert. Það var gerð úttekt fyrir tíu árum og þá var rætt um 18 milljóna króna kostnað en síðan þá hefur talan hækkað og ástandið versnað. Sóknargjöldin og þær tekjur sem kirkjan fær dugar varla fyrir dag- legum rekstri og minni sóknir og kirkjur eru að ég held almennt látnar mæta afgangi.“ „Innra-Hólmskirkja er friðlýst bygging og heimild er fyrir því í lögum að láta gera við byggingar á kostnað eigenda. Ekki hefur reynt á þá heimild en frekar er sóst eftir því að ná samkomulagi,“ segir Magnús Skúlason, formaður Húsa- friðunarnefndar. „Menn geta feng- ið styrki til viðgerða sé lögð fram áætlun. Þessi kirkja er úr timbri og steypt að utan og það getur aldrei gengið til lengdar.“ Forn kirkja liggur undir skemmdum  Lítið verið gert við hana í hálfa öld Skemmdir Miklar skemmdir eru í steyptri klæðningu kirkjunnar. Ljósmyndir/Hilmar Sigvaldason Forn Einn elsti kirkjustaður landsins en um hann er getið í Landnámu. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Til skoðunar er að skera útgjöld ríkisins til Kvikmyndasjóðs á næsta ári niður um 40% þannig að þau fari úr um milljarði í 600 milljónir króna. Morgunblaðið hefur þetta eftir áreiðanlegum heimildum en á fjár- festingaáætlun síðustu ríkisstjórnar var gert ráð fyrir 488 milljóna við- bótarframlagi til sjóðsins 2014. Gilti áætlunin fyrir árin 2013-2015. Guðlaugur Þór Þórðarson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, á sæti í hagræðingarhópi ríkisstjórnarinn- ar. Hann segir fjárfestingaáætlun fyrri ríkisstjórnar í endurskoðun. Eigi ekki fyrir útgjöldunum „Ég efast ekki um að ríkisstjórn- in fari yfir þessi útgjöld eins og önnur með gagnrýnum hætti. Fjár- festingaáætlunin bar þess merki að það var skammt til kosninga og því miður eigum við ekki fyrir þessum útgjöldum, heldur eru þau tekin að láni með ærnum tilkostnaði. Það þarf ekki aðeins að líta til fjárfest- inga heldur líka rekstrarkostnað- ar,“ segir Guðlaugur Þór sem gagn- rýnir m.a. áform um að ríkið leggi til samtals um 3,6 milljarða króna vegna náttúruminjasafns í Perlunni á næstu 15 árum. Vigdís Hauksdóttir, þingmað- ur Framsóknarflokksins, á sæti í hagræðingarhópnum. „Ég get staðfest að við erum að skoða fjárfestingaáætlunina. Við erum að skoða alla póstana. Þetta er jafnframt til skoðunar í fjár- málaráðuneytinu. Það ligg- ur allt undir.“ Skorið niður til kvikmynda  Til skoðunar að draga úr framlögum til Kvikmyndasjóðs  Fjárfestingaáætlun síðustu ríkisstjórnar endurskoðuð  Þingmaður í hagræðingarhópi segir allt undir Fleiri verkefni í sigtinu » Til greina kemur að skera niður fleiri menningartengd verkefni í fjárfestingaáætlunni sem gildir fyrir árin 2013-15. » Þar er gert ráð fyrir að Kvik- myndasjóður fái 1.464 milljónir í viðbótarframlag á tímabilinu og 2,4 milljarðar eru eyrna- merktir Húsi íslenskra fræða. Aftakaveður var á svæðinu á síðdegis á laugardag og fram eftir nóttu. Þrátt fyrir veðurofsann söfnuðust um 15 manns saman í fjörunni við Rif um kvöldið og hófust þegar handa við að skera hvalina. „Það var snarvit- laust veður en við skárum til hálftíu um kvöldið,“ segir Vagn Ingólfsson, íbúi í Ólafsvík. Þegar veðrið hafði gengið niður í gærmorgun fjölgaði held- ur í fjörunni. Margir skáru kjöt af hvölunum og þá fylgdust einnig fjölmargir með, þar á meðal hópur erlendra ferða- manna. Þáðu þeir hrátt hvalkjöt og fengu einhverjir að reyna sig við skurðinn. „Þeir vildu vita af hverju hvalina rak á land en við gátum ekki gefið þeim neinar skýringar,“ segir Vagn. Aðspurður segist hann hafa verið fljótur að komast upp á lag með skurðinn og hann, vinir og vandamenn eigi nóg af kjöti fyrir veturinn. Skáru kjöt í aftakaveðri MARGIR DRÓGU BJÖRG Í BÚ ÚR FJÖRUNNI Vagn Ingólfsson í aðstæðum sem þessum í verklags- reglum um aðkomu opinberra aðila þegar hvali rekur á land. „Eðlileg öndunartíðni þessara hvala er einn blástur á mínútu og því getur vel ver- ið að dýrið sé lifandi þó að það liggi hreyfingarlaust í fjörunni,“ segir Ró- bert. „Ég held að verklagsreglum hafi ekki verið fylgt í mörgum atrið- um um helgina.“ Bendir hann á að hugsanlega þurfi að kynna reglur er varða hvalreka betur en þær séu til staðar. Róbert mælir ekki með því að fólk borði mikið af kjöti af grindhvölum og segir það sérstaklega hættulegt fyrir konur á meðgöngu og fólk með undir- liggjandi sjúkdóma. „Í kjötinu er nokkuð af þrávirkum, lífrænum mengunarefnum, skordýraeitri og fleiri efnum og geta þau valdið fóst- urskaða og heilsuvandamálum,“ segir hann. „Ég mæli sterklega gegn því að þetta sé borðað hrátt,“ segir Róbert og bætir við að kjötið geti einnig inni- haldið ýmis sníkjudýr. Róbert segir einnig óheppilegt að svo fljótt hafi verið gengið til verks á laugardegin- um. Hafrannsóknastofnun ber að koma á vettvang og taka sýni af hvöl- um sem rekur á land með þessum hætti en í gær var búið að skera kjöt- ið af flestum hvölunum og þá hafi einnig verið búið að urða mörg hræ og einhverjum hafi skolað út á flóði. Morgunblaðið/Alfons Finnsson Hvalreki Íbúar á Snæfellsnesi nýttu sér fljótt hvalrekann og hófu að skera kjötið í fjörunni í gær. Fjöldi fólks náði sér í kjöt af grindhvölum  Ekki vitað af hverju hátt í 70 hvalir syntu inn í höfnina Skannaðu kóðann til að sjá frétt og myndskeið af hval- skurðinum. Spurður hvaða áhrif það hefði á innlenda kvikmyndagerð, að skera niður framlög til Kvik- myndasjóðs um 40%, segir Hilmar Sigurðsson, formaður Sambands íslenskra kvik- myndaframleiðenda, SÍK, að ráðist yrði í gerð færri íslenskra kvikmynda en ella. Það sama muni ger- ast og 2010 þegar fram- lögin voru skorin úr 700 niður í 450 milljónir króna. Færri myndir yrðu gerðar MAT FORMANNS SÍK Hilmar Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.