Morgunblaðið - 09.09.2013, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2013
Viðskiptavinir Kjaran
eru lítil og stór
fyrirtæki, stofnanir og
prentsmiðjur sem eiga
það sameiginlegt að
gera kröfur um gæði
og góða þjónustu.
bizhub C35 er sannkallað fjölnotatæki
bizhub C35 er prentlausn sem hentar flestum fyritækjum.
Prentari, ljósritunarvél, faxtæki og skanni í einu nettu tæki sem
prentar 30 blaðsíður á mínútu, hvort sem er í svart-hvítu eða lit.
Kynntu þér rekstrarkostnaðinn því hann kemur á óvart. Þú þarft
ekki annað tæki en bizhub C35.
Verð: 379.900 kr.
Konica Minolta fjölnotatækin eru margverðlaunuð fyrir
hönnun, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
Reykjavík
Skútuvogur 1
Sími 562 4011
Akureyri
Draupnisgata 2
Sími 460 0800
Gorenje frystiskápur
Áður 179.900 kr.
Hausttilboð 129.900 kr.
Gorenje frystiskápur F6151AW • Nýtanlegt rými frystihólfs 206 lítrar • Frystigeta 18kg/dag
Hljóðstyrkur 40 dB • Orkunýtni A+ • Breidd 60 cm, hæð 145 cm, dýpt 64 cm • 6 skúffur • 5 ára ábyrgð
PI
PA
R\
TB
W
A
·
SÍ
A
·
13
23
6
6
Þú sparar
50.000 kr.
Matsveppurinn ullblekill vex bíða á láglendi hér á landi en hann er nokkuð
áberandi vegna hæðar sinnar og litar. Að sögn Guðríðar Gyðu Eyjólfs-
dóttur, sveppafræðings hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, er sveppurinn
þekktur fyrir að aldinin vaxa stundum í gegnum bundið slitlag og lyfta upp
malbiki þar sem hann vex meðfram vegum. Aldinin eru oft í þyrpingum, en
þó ekki alltaf jafn þétt og þessir ullbleklar sem urðu á vegi ljósmyndara
Morgunblaðsins sem átti leið um Seltjarnarnes um helgina.
Ullblekill á Seltjarnarnesi
Morgunblaðið/Ómar
Matsveppina er víða að finna þessa dagana
„Ég tel að allt sem leggur stein í
götu upplýsingamiðlunar sé af hinu
vonda og þessar breytingar séu
skref til baka,“ segir Hjálmar Jóns-
son, formaður Blaðamannafélags Ís-
lands, um breytingar sem koma
fram í nýjum
reglum dómstól-
aráðs sem áttu að
taka gildi hinn 1.
september sl.
Morgunblaðið
fjallaði um breyt-
ingarnar síðast-
liðinn föstudag en
samkvæmt
nýju reglunum
verða færri dóm-
ar birtir. Dómar í
einkamálum verða
ekki birtir þar sem ekki er haldið
uppi vörnum og í nýju reglunum er
tekið fram að ekki skuli birta dóms-
úrlausnir ef mál varða lög um barna-
vernd, hjúskaparmál eða barnalög.
Þá verða nöfn annarra en ákærðu í
sakamálum ekki birt, s.s. þeirra sem
kærðu eða báru vitni í málinu. Að
beiðni Héraðsdóms Reykjavíkur var
ákveðið að fresta gildistöku laganna
til 1. janúar 2014.
„Eitt af lykilatriðum í lýðræðis-
samfélagi er að dómþing séu fyrir
opnum tjöldum,“ segir Hjálmar.
„Það þýðir að upplýsingamiðlun frá
þeim sé án hindrana og rök þurfi
fyrir því að nöfn séu ekki birt.“
Hann segir að skoða þurfi hvert
mál fyrir sig þegar kemur að því að
birta ekki nöfnin.
„Ég held að fjölmiðlum sé treyst-
andi fyrir því að birta þetta af
smekkvísi og það sé eðlilegra að það
sé lagt á herðar fjölmiðla að fjalla
um þessi mál en yfirvald setji reglur
um málið,“ segir Hjálmar.
Réttur fjölmiðla verði óskertur
Aðspurður segir hann að forsvars-
menn Blaðamannafélags Íslandi
muni fylgjast grannt með stöðu
mála. „Við munum standa af fremsta
megni vörð um rétt fjölmiðla um að
birta almenningi upplýsingar sem
skipta máli,“ segir Hjálmar. „Við
fylgjumst með þessu máli og reyn-
um að hafa áhrif á þetta, að réttur
fjölmiðla verði ekki skertur.“
Ekki náðist í Jónas Þór Guð-
mundsson, formann Lögmanna-
félags Íslands, við vinnslu fréttar-
innar í gær. larahalla@mbl.is
„Leggja stein í
götu upplýsinga-
miðlunar“
Formaður Blaðamannafélags Íslands
gagnrýnir nýjar reglur dómstólaráðs
Hjálmar Jónsson,
formaður BÍ.