Morgunblaðið - 09.09.2013, Síða 28

Morgunblaðið - 09.09.2013, Síða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2013 ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, HAUKUR HANNESSON frá Hækingsdal í Kjós, Lautasmára 5, Kópavogi, lést á dvalarheimilinu Ísafold mánudaginn 2. september. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 16. september kl. 13.00. Guðný Anna Eyjólfsdóttir, Rúnar Gils Hauksson, Jón Hjálmar Hauksson, Ike Tiora Hauksson, Hannes Hauksson, Hjördís Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Pétur Filippus-son fæddist í Reykjavík 20. nóv- ember 1926. Hann andaðist á Landa- kotsspítala 28. ágúst 2013. Foreldrar hans voru Filippus Guð- mundsson, f. 13.3. 1894, d. 26.8. 1981, múrarameistari í Reykjavík, og kona hans Kristín Jóhannesdóttir, f. 17.8. 1895, d. 22.2. 1979. Pétur var þriðji í röðinni af fimm systkinum. Systkini hans eru: a) Helgi, f. 1919, d. 1982, b) Hulda Guðrún, f. 1924, d) Þór- hallur, f. 1930, d. 2010, e) Þóra Kristín, f. 1935. Hinn 2.8. 1947 kvæntist Pétur Guðjónu Guðjónsdóttur, f. 25.6. 1927, og áttu þau því 66 ára brúðkaupsafmæli í síðasta mán- uði. Foreldrar hennar voru þau Þuríður Guðmundsdóttir, f. 1893, d. 1981, og Guðjón Jóns- son úrsmiður, f. 1896, d. 1927. Pétur og Guðjóna eignuðust tíð mikinn áhuga á flugi. Þrett- án ára byrjaði hann að æfa svif- flug og kenndi hann það á Sand- skeiði, einnig hafði hann einkaflugmannsréttindi og hafði mikla ánægju af að fljúga, og flaug hann á mörgum tegundum flugvéla. Pétur vann mikið með föður sínum í byggingarvinnu á sínum yngri árum. Hann var maður athafna, og lék flest í höndum hans. Hann hannaði og framleiddi á skömmtunarárunum leikföng, flugmódel, húsgögn, lampa og lampagrindur, svo eitthvað sé nefnt, í fyrirtæki sínu Flugmó í Selásnum. Einnig stofnaði hann árið 1953 Tómstundabúðina. Þau Pétur og Guðjóna störfuðu ætíð saman við reksturinn ásamt fjölskyldunni, og er fyrir- tækið enn í dag rekið af þriðja ættlið. Pétur var einn af stofn- endum Lionsklúbbsins Freys og starfaði lengi í honum. Hann hafði gaman af ferðalögum og ferðaðist mikið innanlands, bæði með klúbbfélögum og fjöl- skyldunni. Einnig ferðuðust þau hjón mikið erlendis. Pétur verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju í dag, 9. sept- ember 2013, kl. 13. þrjú börn. Börn og afkomendur þeirra eru: 1) Jón Víglund, f. 1947, kona hans er Elísabet Árna- dóttir, f. 1947, dæt- ur þeirra eru a) Bryndís, f. 1977, gift Elíasi Rúnari Elíassyni, börn þeirra eru Þóra Rán, Matthías Máni og Jón Zakarías, b) Sigríður María, f. 1980, gift Jóni Dan Kristbjörnssyni, börn þeirra eru Sara Dal og Ísak Dal. 2) Kristinn Filippus, f. 1949, kona hans er Kristný Björns- dóttir, f. 1951, þau eiga tvíbura- synina Björn og Birgi, f. 1978. 3) Þuríður, f. 1951, hennar maður var Magnús Guðmundsson, f. 1949, d. 2008, þau eignuðust þrjú börn, a) Pétur, f. 1970, b) Evu Björk, f. 1978, börn hennar eru Aron Bjarki og Anja Sigur- rós, c) Guðjón Þór, f. 1985. Pétur lagði stund á nám í flugvélaverkfræði í Svíþjóð á ár- unum 1945-1949, og hafði alla Fallinn er frá á 87. aldursári tengdafaðir minn, Pétur Filipp- usson. Kynni okkar hófust fyrir rúmum 40 árum síðan, er við Kristinn sonur hans felldum hugi saman. Mér var tekið vel af fjölskyldunni, og höfum við Kristinn búið með þeim hjónum í sama húsi og unnið með þeim stóran hluta þessa tímabils. Það lék flest allt í höndunum á honum Pétri. Hann var maður athafna, hannaði og framleiddi á skömmtunarárunum leikföng, flugmódel, húsgögn, lampa- og lampaskermagrindur í fyrirtæki sínu Flugmó, svo eitthvað sé nefnt. Einnig stofnaði hann Tómstundabúðina fyrir um 60 árum. Þá kom hann að stofnun Tjaldborgar á Hellu sem fram- leiddi tjöld. Hann var stórtækur í innflutningi á leikföngum, úti- legubúnaði, gjafavöru og hrein- lætisvörum. Pétur hafði mikið yndi af ferðalögum, bæði innanlands og erlendis. Hann breytti bílum og innréttaði sem húsbíla til að njóta á ferðalögum og söluferð- um um landið. Einnig notaði hann tjöld mikið í ferðalögum. Hann var félagi í Lions-klúbbn- um Frey. Við ferðuðumst mikið með þeim félögum á sumrin, þegar þeir fóru í hinar svoköll- uðu skiltamerkingarferðir, sem voru u.þ.b.vikuferðir eftir því hvar var verið að merkja. Klúbburinn stóð fyrir skiltamerkingum á hálendinu og víða um landið, svo sem ferða- leiðum, fjöllum og ám, og var gaman að kynnast landinu með þeim þannig. Pétur byrjaði 13 ára að fljúga svifflugum og kenndi hann svif- flug á sumrin uppi á Sandskeiði, einnig hafði hann einkaflugs- réttindi, og hafði mikla ánægju af að fljúga. Pétur fór utan til Svíþjóðar og nam flugvélaverk- fræði þar í um fjögur ár. Hann hafði alltaf mikinn áhuga á flug- tækjum og hannaði og smíðaði líkön af ýmsum flugtækjum og flugvélum. Pétur vann mikið með föður sínum á yngri árum í bygging- arvinnu. Foreldrar Péturs, þau heiðurshjónin Kristín og Filipp- us, voru ein af frumbyggjum í Árbæjar- og Seláshverfi. Fyrst með sumarbústað, en síðan byggði Filippus þar stórt og myndarlegt hús fyrir fjölskyld- una. Kristín sá um póst- og síma- þjónustu fyrir þessa efri byggð á fyrstu árum hennar. Þá sá hún um undirbúning á umgjörð á barnamessum í Árbæjarskóla, meðan hún var haldin þar fyrir byggingu Árbæjarkirkju. Einn- ig voru messur í stofunni hjá þeim, því var oft mjög gest- kvæmt á Selásheimilinu. Pétur og Guðjóna störfuðu alltaf saman við reksturinn, ásamt fjölskyldunni. Um síðstu verslunarmannahelgi áttu þau sitt 66 ára brúðkaupsafmæli. Ég vil þakka Pétri fyrir sam- fylgdina og votta Jónu og öðr- um aðstandendum hans mína innilegustu samúð við fráfall hans. Hvíl í friði, kæri Pétur, þín mun vera sárt saknað. Kristný Björnsdóttir. Miðvikudagurinn 28. ágúst stefndi í að vera venjulegur dagur, að vísu skutlaði ég ömmu til afa vegna þess að pabbi sem vanalega keyrði ömmu var veikur með kvef og hita og hann vildi ekki smita þau gömlu. Þegar við amma komum á Landakot til afa voru systur hans afa, Hulda og Þóra í heim- sókn, eftir smá spjall fór ég aft- ur í vinnuna. Eftir vinnu náði ég í ömmu, amma vildi ómögu- lega tefja mig þó að ég segði að mér lægi ekkert á að komast heim, talaði aðeins við afa og kvaddi hann. Seint um kvöldið hringdi amma og sagði að lækn- irinn hans afa hefði hringt, hann afi væri mjög veikur. Biggi bróðir og ég flýttum okk- ur niður í bæ til að ná í ömmu. Þegar á Landakot var komið tók læknirinn hans afa okkur þrjú til hliðar í herbergi, hann tjáði okkur að fyrr um kvöldið hefði afi byrjað að veikjast og hann væri látinn. Við þessi orð fékk ég sting í hjartað og mig langaði ekki að trúa því að afi minn væri farinn, ömmu var mjög brugðið við tíðindin, að eiginmaður hennar til 66 ára og lífsförunautur væri ekki lengur meðal vor. Aldrei hvarflaði það að mér að 28. ágúst yrði þinn síðasti dagur, elsku afi minn, einmitt vegna þess að amma hafði það á orði eftir veruna með þér að þú hefðir verið svo hress. Sakna þín sárt, afrek þín í líf- inu munu veita mér innblástur um ókomna tíð. Hvíldu í friði afi minn. Björn Kristinsson. Mikið mun ég sakna þín afi minn. Ferðalögin með þér um landið endilangt í Lionsferðun- um voru það sem gerði sumrin skemmtileg og þau lifa með manni um ókomna tíð. Gaman var að hlusta á gömlu sögurnar þínar frá skólaárunum í Svíþjóð við flugvélaverkfræðina og flug- sögurnar þínar. Frægust er frá- sögnin af atvikinu á See Bee- flugbátnum á Hafravatni þar sem vélinni hlekktist á í lend- ingu og sætið undir þér losnaði með þeim afleiðingum að þú hentist út úr flugvélinni, enn bundinn við sætið en slappst samt við öll meiðsli, eina tjónið var að annar skórinn glataðist þann dag og er líklega enn á botni vatnsins. Margar voru líka sögurnar frá ferðalögum um Evrópu í gamla daga og hæst ber ferðina á Volvo Ama- zon-inum um Alpana og kappið við fína karlinn á Porsche-num um beygjurnar og brekkurnar. Þú varst alltaf virðulega til fara, jafnvel í jakkafötum í ferðalögum uppi á hálendi eða þeysandi um á öfluga Maver- icknum. Þau ár sem ég bjó í sama húsi og þið amma eru einhver þau bestu sem ég þekki, gott var að hafa ykkur undir sama þaki. Það er sérlega ánægjulegt að hafa varið síðasta aðfanga- dagskvöldi með þér og ömmu, það minnti á gamla tíð úr Ár- bænum. Framtaks- og útsjónarsamur varstu, hannaðir og smíðaðir leikföng þegar ekki fékkst gjaldeyrir fyrir innflutningi á sjötta áratugnum. Stofnaðir á þeim tíma leikfangabúð sem fjölskyldan þín rekur enn og mun áfram gera. Smíðaðir bíla, húsgögn og líkön sem enn eru til. Það mun margt standa eftir þig til lengri tíma. Hvíldu í friði, afi minn. Birgir Kristinsson. Pétur Filippusson ✝ Ásta Nína Sig-urðardóttir fæddist í Reykjavík 14. febrúar 1937. Hún lést á líknar- deild LSH í Kópa- vogi 30. ágúst 2013. Foreldrar henn- ar voru Ingibjörg Úlfarsdóttir, f. 1908, d. 1992, og Sigurður Friðrik Jóhannesson, f. 1898, d. 1980. Hálfsystkin Ástu samfeðra voru Anna Ósk, f. 1921, d. 2012, Sigurður, f. 1925, d. 1997, og Unnur, f. 1928. Al- systkin Ástu voru Bjarnína Kristrún, f. 1934, d. 1935, og Bragi Hrafn, f. 1938. Á æsku- og unglingsárum Ástu bjó fjöl- skyldan á Hverfisgötu í Reykja- vík og gekk Ásta í Austurbæj- arskólann. Ásta giftist Sigurði G. Theo- dórssyni, f. 1929, d. 1986, raf- virkja og verkstjóra árið 1956 og Margrét Ingólfsdóttir, f. 1983, gift Jani Borgenström og eiga þau dæturnar Svövu og Elvu, Sigrún Thea Ingólfsdóttir, f. 1990, og Sandra Björk Ingólfs- dóttir, f. 1992. Ellert kvæntist Díönu Ármannsdóttur árið 1983 og eiga þau synina Arnar Sigurð Ellertsson, f. 1984, og Birki Frey Ellertsson, f. 1990. Hlynur kvæntist Sari Maarit Cedergren árið 1998 og eiga þau synina Ró- bert Ristó Hlynsson og Daníel Hlynsson. Ásta sótti námskeið í leiðsögn ferðamanna 1969 og hóf störf sem leiðsögumaður sumarið 1970. Ásta var einn af stofn- endum Félags leiðsögumanna árið 1972. Hún var mjög virk í félaginu og var m.a. formaður þess um tíma. Einnig var hún ein fimm heiðursfélaga félagsins. Ásta starfaði við leiðsögn ferðamanna innanlands sem og fararstjórn íslenskra hópa er- lendis alla sína starfsævi. Mest starfaði hún í dagsferðum út frá Reykjavík fyrir Kynnisferðir. Ásta var virkur félagi í Rebekku- stúku nr. 1, Bergþóru IOOF. Útför Ástu fer fram frá Frí- kirkjunni í Reykjavík í dag, 9. september 2013, kl. 13. hófu þau búskap sinn á Njálsgötu, fluttu síðar í Hólm- garðinn og bjuggu þar til ársins 1964 þegar þau fluttu á Háaleitisbraut 51. Börn þeirra eru Börkur Helgi Sig- urðsson, f. 1954, Ingibjörg Þórdís Sigurðardóttir, f. 1957, d. 2005, Ellert Helgi Sigurðsson, f. 1960, Hlyn- ur Helgi Sigurðsson, f. 1962, og Auður Herdís Sigurðardóttir, f. 1970. Ingibjörg giftist Ingólfi Torfasyni árið 1976 og eign- uðust þau fimm börn. Ingibjörg og Ingólfur fluttust til Svíþjóðar 1989. Börn þeirra eru Torfi Ing- ólfsson, f. 1977, í sambúð með Susönnu Svenningsson og eiga þau soninn Theo, Ásta Nína Ing- ólfsdóttir, f. 1978, í sambúð með Per Anders Pettersson og eiga þau börnin Milton og Selmu, Ekki veit sú sem þetta ritar hversu lengi íslensk ferðaþjón- usta verður enn að bisa við að slíta barnsskónum og komast í það minnsta á gelgjuskeið. Í umfjöllun um ferðaþjónustu er viðkvæðið oft að hún sé „ung og upprennandi grein“ eða að hún sé „atvinnugrein í örum vexti“. Núna er talað um nýliða í ferða- þjónustu sem „gullgrafara“ og að það ríki „gullgrafaraæði“ og annað í þeim dúr. Umfjallanir af þessu tagi hljóma undarlega í eyrum þeirra sem hafa varið starfsævinni í að þjóna erlend- um ferðamönnum og taka þátt í því að byggja upp stórveldi í ferðaþjónustu, sem er til fyr- irmyndar og fremst meðal jafn- ingja í þau rúmlega 40 ár sem það hefur verið starfrækt. Ásta Nína Sigurðardóttir var einn af fyrstu fastráðnum leið- sögumönnum Kynnisferða, ásamt úrvali annarra mann- kostakvenna og -manna. Þetta góða fólk lagði sig allt fram um að þjóna og hafa ofan af fyrir er- lendum ferðamönnum með Ásta Nína Sigurðardóttir fræðslu um landið, sögum og umfjöllun um samtímann. Þekk- ingar um efnið var leitað í bók- um og á námskeiðum á vegum Félags leiðsögumanna, en þetta var fyrir tíma upplýsingamiðla og internets. Fyrr á þessu ári lést Kristín S. Njarðvík leiðsögu- maður, en þær Ásta voru sam- starfsmenn og miklir mátar öll árin sem þær unnu saman og einnig eftir að báðar létu af störfum. Ásta var greind og fljót að læra og hún lagði sig fram um að þjóna farþegum sínum eftir bestu getu. Hún hafði gam- an af því að vera í góðra vina hópi og nutu samstarfsmenn gestrisni hennar og örlætis mörgum sinnum. Hún var glað- vær og góðviljuð og tók að sér verkefni sem voru utan verk- sviðs hennar, til dæmis var hún oft með í ráðum þegar nýjar ferðir voru prófaðar og línur lagðar í sambandi við bæklinga félagsins. Ásta Nína sagði skemmtilega frá og gat oft séð spaugilegar hliðar á málum sem komu upp og hún gerði óspart grín að sjálfri sér og öðrum. Hún var líka dugleg og vinnu- söm, lét vinnuna ganga fyrir öðru, enda eina fyrirvinna síns heimilis, en mann sinn missti hún 1986. Undanfarin ár hafa heldrikonur úr leiðsögumanna- stétt hist einu sinni í mánuði yfir vetrartímann, en hópurinn kallar sig Perlukonur. Þar var Ásta fremst í flokki, glöð og glæsileg. Hún hafði alltaf eitthvað til mál- anna að leggja og var áhugasöm um hvernig starfið á gamla vinnustaðnum gekk og hvernig gömlu vinnufélagarnir höfðu það. Nú er hún fallin frá, hún þurfti að láta í minni pokann fyrir vágestinum vonda – krabb- anum – sem heldur áfram að herja á unga og gamla. Hún kvartaði aldrei og bar sig alltaf vel. Samstarfsmenn minnast Ástu Nínu Sigurðardóttur með virðingu og væntumþykju. Fjöl- skyldu hennar eru sendar sam- úðarkveðjur. Sigríður Ásta Hallgríms- dóttir, Kynnisferðum ehf. Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, ÁSDÍS MAGNÚSDÓTTIR frá Orustustöðum, lést hinn 4. september á heimili sínu, Boðaþingi 5-7, Kópavogi. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 12. september kl. 13.00. Elsa Guðjónsdóttir, Jóhannes G.M. Vignisson, Svanhvít Guðjónsdóttir, Einar Ingi Einarsson, Magúns Guðjónsson, Hulda Ragnheiður Árnadóttir, Friðgeir Guðjónsson, Ragnheiður Gunnarsdóttir, Katrín Guðjónsdóttir, Þorvaldur Gunnlaugsson, Guðdís Guðjónsdóttir, Gunnar Karl Karlsson. Ástkær sambýliskona mín, móðir, tengdamóðir, amma og systir, HRAFNHILDUR ÞURÍÐUR INGÓLFSDÓTTIR, Klukkurima 93, Reykjavík, sem lést mánudaginn 2. september á líknardeildinni í Kópavogi, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 11. september kl. 15.00. Ásbjörn Sveinbjörnsson, Sigurður N. Þorleifsson, Hólmfríður Gestsdóttir, Eva Margrét Sigurðard, Hekla Sóley Sigurðard, Sóley Njarðvík, Eiríkur Jón, Ingólfur Njarðvík. Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT S. ISAKSEN, Hrísrima, Reykjavík, lést á Borgarspítalanum hinn 20. ágúst. Jarðarförin hefur farið fram og þakka aðstandendur veitta samúð. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Margrét Isaksen, Pétur Sverrir Gunnarsson, Íris Pétursdóttir, Gunnar Þór Pétursson, Tinna Björk Bryde, Pétur Már Pétursson, Kolbrún Margrét Finnsdóttir, og barnabarnabörn.  Fleiri minningargreinar um Pétur Filipisson bíða birt- ingar og munu birtast í blað- inu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.