Morgunblaðið - 09.09.2013, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 09.09.2013, Blaðsíða 32
32 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2013 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú hefur víðfeðmar hugmyndir um hvernig þú getur bætt umhverfi þitt. Ekki treysta aðstöðu þar sem peningarnir skipta meira máli en vinnan. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú hefur byrinn með þér til að klára þau verkefni sem setið hafa á hakanum. Hlustaðu vel því að öðrum kosti áttu á hættu að missa hluti frá þér. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú nýtur svo mikillar velgengni í fjármálunum þessa dagana að þú átt erfitt með að treysta því að hún sé varanleg. Vertu ekki ósanngjarn. Varastu bara að tefla of djarft. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það hefur ekkert upp á sig að fresta málum sem verður að vinna. Það er ekki allt- af rétta ráðið að grípa inn í líf annarra þótt aðstæður séu til þess. Haltu bara ró þinni. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Ekki eru allir viðhlæjendur vinir. Hafðu samt allan vara á þér og ljóstraðu engu upp við fyrstu kynni. Ræddu málin við félaga þinn þótt það sé ekki sársaukalaust. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þurfirðu að gera eitthvað sem er þér á móti skapi skaltu lofa þér því að það verður í síðasta sinn. Farðu strax í frí. 23. sept. - 22. okt.  Vog Leitin að vellíðan er eilíf og maður þarf að æfa sig. Ekki vera of fljót/ur að afskrifa hlutina. Leitið ráða til þess að verja ykkur og sinnið aðeins því sem hugur ykkar stendur til. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú ættir að gera þér glaðan dag með einhverju móti, svona bara til þess að vera góður við sjálfan þig. Stórhuga ráða- gerðir krefjast athygli þinnar. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú færð tækifæri til að aðstoða einhvern í fjölskyldu þinni. Treystu gróða- vænlegum hugmyndum sem þú færð í dag, þær gætu borgað sig. Gættu þess þó að brenna ekki allar brýr að baki þér. 22. des. - 19. janúar Steingeit Stundum finnst þér að ef þú ferð út fyrir þinn nánasta vinahóp til að biðja um ráð, sértu að svíkja vinina. Kannski finnst þér sem einhver leyni þig einhverju. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú elskar fólk og fólk bregst vel við þeirri afslöppuðu athygli sem þú veitir því. Sjaldan veldur einn þá tveir deila. 19. feb. - 20. mars Fiskar Taktu með þér heilsusnakk og forð- astu skyndibitastaði til þess að halda orku- flæðinu jöfnu. Reyndu að halda aftur af þér. Ég hitti karlinn á Laugaveg-inum uppi á Barónsstíg við Landspítalann þar sem hann virti fyrir sér sjúkraflugvél í aðflugi. „Það er ómetanlegt að hafa spítal- ann svona nálægt flugvellinum. Þeir eru að nálgast 70 þúsund sem hafa skrifað undir stuðning við flugvöllinn,“ sagði hann. „En það skilja ekki allir,“ bætti hann við og gerði sig „gnarralegan“ í framan: Brúnum lyftir, öxlum ypptir, allir þekkja hann og kenna: „Engu skipta undirskriftir utanbæjar manna og kvenna!“ Sigrún Haraldsdóttir yrkir: Í borgarstjórn allt er í bullandi plús, þar búum við marga Gnarra sem reistu við götuna Hofsvalla-hús um heimilislausa starra. Ármann Þorgrímsson um „fugla- hús við Hofsvallagötu“: Vesalinga sorg og sút sefar skrautleg flóra þarna verður ungað út eggjum borgarstjóra. Þetta þóttu karlinum á Lauga- veginum tíðindi svo að hann skrapp vestur á Mela: Í kvöld er sól var sest í Vesturbænum við skrýtna fugla varð ég varr þeir vögguðu og sögðu: „gnarr, gnarr, gnarr!“ Páll Jónasson í Hlíð yrkir um steinklöppuna: Klappstýru þessa ég þekki (þó að hún klappi mér ekki). Á kvöldin í leyni klappar hún Steini, ég fæ ekki „kökk heldur kekki“. Upp úr hádegi 4. september skrifar Hjálmar Freysteinsson: Obama hefur erfitt starf ýmislegt sem þarf að laga. Sífellt ráð hann sækja þarf til Sigmundar og Gunnars Braga. Og fyrir kvöldmat bætti Davíð Hjálmar Haraldsson við: Þeir sátu í Svíþjóð að snæðingi (saltkjöt af þarlendum gæðingi) og Óbami sagði við Simba er þagði: „Mér finnst hann betri með bræðingi.“ Ármann Þorgrímsson næsta dag: Illa ræður Obama við Austurlanda stríðin er nú dauður Osama en alltaf versnar tíðin. Halldór Blöndal. halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af sjúkraflugi, fuglinum starra og Bandaríkjaforseta Í klípu NÝÁRSHEITIÐ HANS BIBBA VAR AÐ PRÓFA EITTHVAÐ NÝTT OG TAKA ÁHÆTTU - BEST AÐ BYRJA Á MORGUN. eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ERTU AFTUR HÆTTUR AÐ REYKJA?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ...að taka ekki það sem er úti með þér inn. ÞEF ÞEF SKRÍTIÐ! ÞAÐ ERGÓÐ LYKT ÚT ÚR ODDA BLANDA AF TANN- KREMI OG RAK- SPÍRA HEFUR ÞAU ÁHRIF HELGA, ÉG ER FARINN Í VINNUNA! BÍDDU, ÞÚ GLEYMDIR SVOLITLU! FRÁBÆRT, ÞÚ HEFUR SMURT NESTI. SATT BEST AÐ SEGJA ÞÆTTI MÉR BARA FÍNT EF ÞÚ FÆRIR STUNDUM ÚT Í HÁDEGINU. Síðsumarblíðan leikur nú viðlandsmenn eftir hreint ömurlegt rigningarsumar. Víkverji getur þó varla kvartað enda er hann ekki mikill sólardýrkandi. Það kom þó fyrir í verstu lægðunum að D- vítamínskorturinn varð aðkallandi og íhugaði hann því á tímabili að kasta frá sér öllum grundvallar- prinsíppum sínum og fara til Beni- dorm. Af því varð þó ekki, þó að síð- ustu fregnir beri með sér að hann hefði verið í hópi með góðum mönnum. x x x Fyrir Víkverja dagsins skiptirsumarblíðan nú þó meira máli af öðrum ástæðum. Hann er nefnilega forfallinn KR-ingur og nú þegar hef- ur þurft að fresta tveimur leikjum liðsins. Síðasta törnin í Íslands- mótinu verður því strembin fyrir KR-ingana, og því má varla við því að fresta leikjum frekar vegna veð- urs. Hvað ætti þá að gera? Spila leikina í október? Eina bótin í máli er að hugsanlega munu frestuðu leikirnir ekki skipta eins miklu máli og ef þeir hefðu gert þegar þeir voru settir fyrst á. x x x Fyrir KR-hjartað skiptir líka máliað veðrið verði gott í september. Hjátrúarfullur Víkverji hefur nefni- lega sannfærst um það af langri reynslu að vera hans á vellinum geti skipt sköpum fyrir gengi liðsins inni á velli. Ekki nóg með það, heldur verður hann að geta staðsett sig nær því marki sem KR sækir á hverju sinni. Vissir staðir á KR-vellinum eru því helgir fyrir Víkverja og má hann hundur heita ef hann fer ekki á þá staði. x x x Í síðasta heimaleik stóð Víkverji þvíúti í kuldanum og mátti hund- blautur heita. Er ekki laust við að snertur af hálsbólgu hafi komið í kjölfar þessa. Í seinni hálfleik kom því fátt annað til greina en að beygja ögn af hjátrúnni og leita sér skjóls í stúkunni. Þrátt fyrir að Víkverji væri ekki staðsettur á réttum stað náðu KR-ingarnir að vinna leikinn. Víkverji klórar sér eðlilega í hausn- um yfir því hvers vegna liðið hafi náð árangri án hans. víkverji@mbl.is Víkverji Trúr er Guð sem hefur kallað ykkur til samfélags við son sinn Jesú Krist, Drottin vorn. (Fyrra Korintubréf 1:9)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.