Morgunblaðið - 02.10.2013, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.10.2013, Blaðsíða 2
SVIÐSLJÓS Björn Már Ólafsson bmo@mbl.is Viðbrögð stjórnarandstöðunnar við fjárlögum ársins 2014, sem kynnt voru í gær, eru að mestu leyti nei- kvæð. Flestir eru á því að banka- skatturinn sé rétt skref en finnst fjárframlögin til heilbrigðis- og menntamála of lág. Röng forgangsröðun „Í eðlilegu árferði þætti þessi niðurskurður til heilbrigðismála ekki endilega mikill, en vegna þess niðurskurðar sem hefur orðið í málaflokknum á undanförnum ár- um er þetta of mikið,“ segir Oddný Harðardóttir, fyrrverandi fjármála- ráðherra og fulltrúi Samfylkingar- innar í fjárlaganefnd. „Fyrir árið 2013 gerði síðasta ríkisstjórn ekki ráð fyrir neinum niðurskurði í rekstri heilbrigð- isstofnana eins og gert er nú. Okkur finnst for- gangsröðunin vitlaus, sérstak- lega þegar búið er að gefa eftir tekjur vegna veiðileyfagjalds- ins og virðis- aukaskatts á gistingu en samt heldur niður- skurðurinn áfram.“ Oddný segir einnig fyrirhugað gjald fyrir inn- lögn á sjúkrahús óréttlátt. „Þetta er legugjald fyrir okkar veikasta fólk, því eina fólkið sem leggst inn á sjúkrahús í dag eru þeir allra veik- ustu.“ Vantar sókn í fjárlögin „Mér finnst töluvert ójafnvægi í þessu frumvarpi,“ segir Guðmund- ur Steingrímsson, formaður Bjartr- ar framtíðar. „Það er í raun boðuð alger stöðnun og í raun niðurníðsla á Landspítalanum þar sem er mikil þörf á nýju húsnæði eða viðhaldi á því gamla.“ Hann hefur áhyggjur af því að ekki sé boðuð nægilega skýr stefna til framtíðar. „Það eru dregnar til baka fjárfestingar sem hafa legið fyrir í rannsóknum, hug- verkaiðnaði og skapandi greinum sem ég tel að hefðu getað skapað miklar tekjur í framtíðinni. Það vantar einhverja sókn til framtíð- ar,“ segir Guð- mundur. „Þetta lítur ekkert sérstak- lega vel út, þetta er stöðnunar- frumvarp og aug- ljóslega töluverð- ur niðurskurður sem boðaður er,“ segir Bjarkey Gunnarsdóttir, þingmaður VG í fjárlaganefnd. „Það sem stingur helst í augu er sjúklingaskattar sem á að leggja á, bæði á Landspítalanum og Sjúkra- húsinu á Akureyri, sem og að tækjakaup eru skorin niður,“ segir Bjarkey. Hún kveðst ósátt við að auðlegðarskattur og orkuskattur verði ekki framlengdir og segir það kosta ríkið um tíu milljarða. „Þau virðast ætla að slá af alla rann- sókna- og þróunarstyrki meira og minna, hvort sem það tilheyrir skapandi greinum eða ferðaþjón- ustunni. Boðorðið er auðvitað að minnkandi skattheimta skili meiri tekjum, en það teljum við ekki. Við töldum að með því að slá ekki af sköttunum hefðum við getað haldið þessu til streitu. En ég er ánægð með bankaskattinn ef það verður framkvæmanlegt,“ segir Bjarkey. Bjartsýni að stefna á afgang „Það sem stendur upp úr finnst mér vera forgangsröðunin sem gerð var á sumarþingi þar sem verið er að skera niður í tekjustofnunum,“ segir Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata. Hann segir það mikla bjartsýni að stefna á afgang af rekstri ríkissjóðs á næsta ári. „Það er göfugt markmið, en ég ótt- ast að þeir muni reyna að ná þessu markmiði alfarið með niðurskurði og tekjuskerðingu. Ég sé það ekki ganga yfirhöfuð, hvað þá að það verði réttlátt,“ segir Helgi. Hafa áhyggjur af skertum tekjum  Stjórnarandstaðan setur spurningarmerki við forgangsröðun  Skortir fjárfestingu og framtíðarsýn  Gjald fyrir legu á sjúkrahúsi óréttlátt  Telur litlar líkur á að áform um rekstrarafgang gangi eftir Bjarkey Gunnarsdóttir Helgi Hrafn Gunnarsson Oddný Harðardóttir Guðmundur Steingrímsson Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Þing kom saman að nýju í gær. Að venju hélt for- seti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, setningar- ræðu. Lagði hann áherslu á mikilvægi þess að þjóðin kæmi að stórum ákvörðunum, veitti þinginu aðhald og að þingið endurheimti traust meðal almennings. Vísaði hann meðal annars í orð Jóns Sigurðssonar. „Hin mesta sæmd sem nokkur maður getur hlotið er að halda fullkomnu trausti samlanda sinna,“ sagði Ólafur Ragnar. Forseti ávarpaði þingheim í ræðu við setningu Alþingis í gær Morgunblaðið/Kristinn Þjóðin komi að stórum ákvörðunum Björn Már Ólafsson Viðar Guðjónsson „Við eigum eftir að sjá hvort fjárlögin standast allar þær væntingar sem við höfðum til þeirra, en ég er ánægð með að svo virðist sem ríkisstjórnin hafi séð sér fært að standa við loforðin sem gefin voru á sumarþinginu,“ seg- ir Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, formaður Landssambands eldri borg- ara, um frumvarp til fjárlaga ársins 2014. Í skýringum með frumvarpinu segir: „Frumvarpið felur í sér aukin útgjöld til elli- og örorkulífeyrisþega og félagslegrar aðstoðar sem nema fimm milljörðum króna vegna ýmissa breytinga á kjörum og réttindum þessa hóps.“ Jóna segir enn eiga eftir að leið- rétta margar skerðingar sem eldri borgarar fengu á sig, en það að staðið hafi verið við það sem kom fram á sumarþinginu sé ákveðinn áfangi fyr- ir eldri borgara. Óviðunandi gjald sjúklinga Guðmundur Magnússon, formaður Öryrkjabandalags Íslands, segir það jákvætt að útgjöld verði aukin til elli- og örorkulífeyrisþega. „Vonandi þýð- ir þetta að staðið sé við gefin loforð um auknar almannatrygginga- greiðslur og komið verði til móts við þær skerðingar sem þessi hópur hef- ur orðið fyrir,“ segir Guðmundur. Aftur á móti er hann afar mótfall- inn fyrirhuguðu gjaldi á sjúklinga sem þurfa að leggjast inn á sjúkrahús. „Þú átt ekkert að þurfa að greiða fyrir það að vera veikur og þetta gjald er óviðunandi.“ Ánægð með aukin útgjöld  Ákveðinn áfangi fyrir eldri borgara  „Þú átt ekki að þurfa að greiða fyrir það að vera veikur“  ÖBÍ ósátt við legugjaldið  Vonandi verður staðið við loforðin Guðmundur Magnússon Jóna Valgerður Kristjánsdóttir Fjárlögin » Útgjöld til elli- og örorkulíf- eyrisþega verða aukin. » Útgjöld almannatrygginga vaxa á næsta ári vegna fjölg- unar bótaþega og verðbóta á lífeyri. Frumvarp til fjárlaga 2014 Félag kvikmynda- gerðarmanna, FK, harmar í yf- irlýsingu sinni áform um nið- urskurð ríkis- stjórnarinnar til Kvikmyndasjóðs, sem fram kemur í fjárlagafrumvarp- inu. Vitnað er til orða Friðriks Þórs Friðrikssonar kvikmyndagerð- armanns, sem líkir fyrirhuguðum nið- urskurði við að „slátra mjólkur- kúnni“. Fara framlögin úr 1,1 milljarði niður í 735 milljónir kr. Segir félagið að niðurskurðurinn muni fyrst og fremst kippa fótunum undan innlendri kvikmyndagerð, „sem stóð mjög völtum fótum eftir þá atlögu sem var gerð þegar sjóðirnir voru skornir niður um 35% 2009“, segir í yfirlýsingunni. Nú eigi að skera fjármagnið niður um 42%, sem sé „hrein atlaga“ að greininni. Áætlar félagið að ríflega 200 ársstörf geti tapast. „Eins og að slátra mjólk- urkúnni“ Friðrik Þór Friðriksson Elín Björg Jóns- dóttir, formaður BSRB, segir að við fyrsta yfir- lestur fjárlaga- frumvarpsins sé útlit fyrir að breytingar rík- isstjórnarinnar hafi verið minni en búist var við. Saknar hún þess að sjá þá 12-13 milljarða innspýtingu sem lofað hafi verið þar fyrir kosn- ingar. Eins hefur hún áhyggjur af legugjaldi á þá sem leggjast inn á sjúkrahús. Þá telur hún að koma þurfi á samræmdum húsnæðisbótum svo að ekki skapist ósamræmi á milli þeirra sem leigja og þeirra sem búa í eigin húsnæði. Á móti fagnar hún því að barna- og vaxtabætur skuli ekki hafa verið lækkaðar auk þess sem hún telur að 0,8% skattalækkun á milliþrepi muni gagnast mörgum. Minni breyt- ingar en bú- ast mátti við Elín Björg Jónsdóttir MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.