Morgunblaðið - 02.10.2013, Side 4
BAKSVIÐS
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Samanlagður hagnaður stóru við-
skiptabankanna þriggja frá ársbyrj-
un 2009 til loka júní á þessu ári er
um 223,4 milljarðar króna. Tímabilið
skiptist niður í fjögur og hálft ár, eða
54 mánuði, og er samanlagður hagn-
aður á mánuði því um 4,13 milljarðar
króna, hvern einasta mánuð.
Það gera 136 milljónir króna á dag
í um 1.642 daga, eða sem svarar 5,7
milljónum króna á klukkustund, frá
1. janúar 2009 til 30. júní 2013.
Hagnaðurinn er sýndur á mynd-
rænan hátt hér til hliðar en tölurnar
eru sóttar í ársreikninga, ársskýrslur
bankanna 2009-2012 og uppgjör
þeirra fyrir fyrri hluta þessa árs.
Sýnir grafið hvernig Íslandsbanki
hefur hagnast mest eða um tæplega
90.000 milljónir króna, þrátt fyrir
17,9 milljarða einskiptiskostnað árið
2011 vegna yfirtöku á Byr.
Væri 243 milljarðar á núvirði
Nokkur verðbólga hefur verið á
tímabilinu og má nefna að vísitala
neysluverðs var tæplega 16% hærri í
júní 2013 en í desember 2009. Sé
hagnaður hvers árs framreiknaður
miðað við breytingar á vísitölunni frá
desember ár hvert til júní 2013 er
hann alls um 20 milljörðum hærri á
núvirði, alls um 243.000 milljónir.
Fram kom í Morgunblaðinu í febr-
úar sl. að samanlagður heildarkostn-
aður við byggingu nýs Landspítala
væri þá metinn á 85 milljarða króna,
samkvæmt frumvarpi fjármálaráð-
herra um stofnun opinbers hluta-
félags um spítalann. Inni í þeirri tölu
var fjármagnskostnaður upp á 20
milljarða, ásamt því sem tekið var til-
lit til sölu eigna upp á 8,5 milljarða.
Myndi samanlagður hagnaður
bankanna þriggja frá 2009 því fara
langleiðina með að duga fyrir þrem
nýjum Landspítölum. Skal í þessu
efni tekið fram að hér er miðað við
hagnað banka eftir skatta.
Nokkur umræða skapaðist vegna
greinar Kára Stefánssonar, forstjóra
Íslenskrar erfðagreiningar, í
Morgunblaðinu sl. laugardag.
Setti forstjórinn þar fram þá hug-
mynd „að Alþingi setji inn í fjárlög
25% skatt á gróða bankanna sem
verði notaður til þess að fjármagna
endurreisn heilbrigðiskerfisins“.
Hefði skilað 55,8 milljörðum
Ef slíkur skattur hefði verið við
lýði frá ársbyrjun 2009 hefði hann
skilað 12,8 milljörðum fyrsta árið,
17,3 milljörðum 2010, 7,4 milljörðum
2011, 10,1 milljarði 2012 og 8,2 millj-
örðum á fyrri hluta þessa árs,
samanlagt um 55,8 milljörðum
króna.
Til samanburðar var rekstrar-
kostnaður Landspítalans um 40
milljarðar króna í fyrra.
Sem fyrr segir er samanlagður
hagnaður bankanna ríflega 223 millj-
arðar frá ársbyrjun 2009. Það gera
223.000.000.000 krónur eða milljón
sinnum meira en 223.000 króna mán-
aðartekur einstaklings eftir skatt,
svo dæmi sé tekið.
Annar samanburður er að laus-
lega áætlaður byggingarkostnaður
Hörpunnar er um 30 milljarðar
króna og myndi hagnaðurinn því
duga fyrir sjö slíkum tónlistarhús-
um. Skal tekið fram að deilt er um
kostnað við Hörpuna. Loks var áætl-
að fyrr á þessu ári að kostnaður við
Vaðlaheiðargöng yrði 8,7 milljarðar
króna og mætti því grafa 26 slík
göng fyrir hagnaðinn.
Sex milljónir á klukkustund
Samanlagður hagnaður stóru bankanna þriggja frá ársbyrjun 2009 er ríflega 223.000 milljónir króna
Myndi duga til að reisa þrjá nýja Landspítala Íslandsbanki hagnast mest eða um 90 milljarða
Hagnaður viðskiptabankanna frá hruni
í milljörðum króna
*Hagnaðurinn árið 2011 var 1,9 milljarðar, en þar gætti áhrifa vegna virðisrýrnunar á viðskiptavild í kjölfar sameiningar Íslandsbanka og Byrs sparisjóðs sem olli einskiptiskostnaði
upp á 17,873 milljarða króna. **Fyrstu sex mánuðir ársins. Heimildir: Ársreikningar og ársskýrslur bankanna 2009-2012, uppgjör bankanna fyrir fyrri hluta árs 2013.
90
80
70
60
50
40
30
20
10
0
59,53 ma.kr.
20
09
20
10
20
11
20
12
20
13
**
12
,8
7
12
,5
6
11
,1
0 17
,1
0
5,
90
74,02 ma.kr.
20
09
20
10
20
11
20
12
20
13
**
14
,3
3
27
,2
3
16
,9
6 2
5,
49
4
15
,5
0
89,83 ma.kr.*
20
09
20
10
20
11
20
12
20
13
**
23
,9
8 29
,3
7
1,
87
23
,4
0
11
,2
1
20
09
20
10
20
11
20
12
20
13
**
250
200
150
100
50
0
Samtals
223,37 ma.kr.
51
,1
9 69
,1
6
29
,9
2
40
,5
0
32
,6
1
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Icelandair hefur auglýst eftir flug-
mönnum til starfa vegna aukinna
umsvifa. Gert er ráð fyrir að nýir
flugmenn hefji störf næsta vor og
starfi til hausts. Umsóknarfrestur er
til 15. október nk.
Ráðnir verða „einhverjir tugir“
nýrra flugmanna, segir Guðjón Arn-
grímsson, upplýsingafulltrúi Ice-
landair. Hann vildi ekki tilgreina
fjöldann með meiri nákvæmni á
þessu stigi málsins. Guðjón sagði
fjölgun flugmanna tengjast fyrirætl-
unum Icelandair á næsta ári. Þá
bætast við þrír nýir áfangastaðir og
verða þeir því alls 38 talsins. Tíðni
flugferða á staði sem fyrir eru í áætl-
unarkerfi félagsins verður aukin.
Þrjár flugvélar bætast við flugflota
Icelandair og verður 21 þota í flot-
anum þegar mest verður. „Þetta er
um 18% vöxtur og við gerum ráð fyr-
ir að einhverjir tugir flugmanna
verði ráðnir,“ sagði Guðjón.
Betra atvinnuástand
„Atvinnuástand á meðal flug-
manna er betra nú en oft áður,“
sagði Sindri Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra at-
vinnuflugmanna. Hann sagðist ekki
hafa handbærar tölur um fjölda at-
vinnulausra flugmanna. „Það er allt-
af töluvert af ungum flugmönnum
sem bíða eftir því að komast í fast
flugmannsstarf. Margir hafa lokið
atvinnuflugmannsnámi og starfa
sem flugkennarar í hlutastarfi og
jafnvel í öðru starfi með. Það er að-
eins öðruvísi með flugmennina en
ýmsar aðrar stéttir.“
Sindri sagði að vöxtur íslenskra
flugfélaga væri ekki einungis já-
kvæður fyrir flugmannastéttina
heldur einnig fyrir atvinnulífið og
þjóðarbúið í heild.
Tugir flug-
manna ráðnir
Ljósmynd/Icelandair
Icelandair Félagið hyggst fjölga
flugvélum í flota sínum.
Aukning hjá Icelandair skapar störf
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Í gær varð hundrað ára Elísabet Jóhanna Sigurðar-
dóttir, alltaf kölluð Jóhanna. Hún fæddist 1. október
1913 í Hofsgerði á Höfðaströnd en ólst að mestu upp í
Hólakoti á Reykjaströnd í Skagafirði. Öll sín búskaparár
bjó hún á Akureyri og dvelur nú á Hjúkrunar- og dval-
arheimilinu Hlíð þar í bæ.
Heilsa Jóhönnu er góð miðað við aldur en hún heyr-
ir orðið mjög illa. Þegar blaðamaður hafði símasamband
við hana í gær gat Jóhanna þó rætt aðeins í símann.
Hvernig er að vera orðin hundrað ára?
„Ég finn engan mun á mér frá því í gær,“ svarar Jó-
hanna glettin.
Hvað á að gera í tilefni dagsins?
„Það verður kaffi í dag og veisla á laugardaginn. Ég
er vön að fá pönnukökur.“
Í þjóðskrá stendur að þú sért fædd 1. október en í
kirkjubókum 2. október, hvort er rétt?
„Það er ekkert að marka þetta,“ segir Jóhanna og
staðfestir að 1. október sé fæðingardagur hennar.
Hvað er eftirminnilegast á löngu æviskeiði?
„Líklega þegar ég sá fyrsta barnið mitt og heyrði
það gráta,“ svarar Jóhanna. Þá er símtalinu lokið og við-
eigandi að heyra í eldra barni Jóhönnu, Ástu Ein-
arsdóttur, sem búsett er á Dalvík.
„Miðað við aldur er hún ágætlega hress en skamm-
tímaminnið er orðið ógurlega dapurt, hún dvelur meira í
fortíðinni,“ segir Ásta um heilsu móður sinnar.
Árið 1946 fékk Jóhanna berkla og dvaldi á Kristnesi
í fjögur ár, Ásta segir mestu furðu hvað hún náði sér eft-
ir það.
Á fjögur barnabarnabarnabörn
Jóhanna stundaði nám í gagnfræðaskólanum á Ak-
ureyri og fór svo í MA. Hún þurfti að hætta þar námi og
snúa heim í Skagafjörð til að sjá um heimili foreldra
sinna eftir að móðir hennar lenti í slysi og varð rúmliggj-
andi í langan tíma. Jóhanna átti sjö bræður. Eftir það
sótti hún nám einn vetur í Kvennaskólanum í Reykjavík.
„Hún var heimavinnandi húsmóðir eftir að hún setti
saman heimili en áður starfaði hún meðal annars á
saumastofu, í verslun og var einn vetur farkennari í
Skagafirði,“ segir Ásta um starfsævi móður sinnar og
bætir við að fyrrverandi nemendur hennar hafi enn sam-
band við hana.
Jóhanna giftist Einari Guðmundssyni frá Grímsey
19. nóvember 1938. Þau bjuggu nær allan sinn búskap á
Klettaborg 2 á Akureyri en fluttu á hjúkrunarheimilið
Hlíð árið 2006. Einar lést 2008, 97 ára að aldri. Jóhanna
og Einar eignuðust tvö börn, Ástu og Sigurð Svein.
Barnabörnin eru níu, barnabarnabörnin tuttugu og fjög-
ur og barnabarnabarnabörnin eru orðin fjögur.
Hundrað ára og ágætlega
hress miðað við aldur
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Aldarafmæli Jóhanna Sigurðardóttir með afkomendum í fimm ættliði, börnin hennar tvö; Ásta Einarsdóttir og
Sigurður Sveinn Einarsson, eru fyrir aftan hana. Yngsta barnabarnabarnabarnið er 3ja mánaða, Hilmir Þór.
Landssamband íslenskra vélsleða-
manna (LÍV) lýsir yfir stuðningi við
þá ákvörðun umhverfisráðherra að
fara í endurskoðun þeirra laga um
náttúruvernd sem samþykkt voru á
síðasta þingi og taka áttu gildi
næsta vor. Að mati LÍV horfir
margt í hinum nýju lögum engu að
síður til framfara og geti þau verið
góður grunnur fyrir frekari vinnu.
„Líkt og við vinnslu svokallaðrar
„Hvítbókar“ á sínum tíma var þó
lítið tillit tekið til þeirra fjölmörgu
athugasemda sem bárust frá þeim
hópum sem einkum nýta hálendið
og óbyggðir til útivistar og dægra-
dvalar. Það er fjölmargt í hinum
nýju lögum sem orkar tvímælis og
þarfnast vandaðri yfirferðar,“ seg-
ir m.a. í yfirlýsingu LÍV. Fagna vél-
sleðamenn bættum vinnubrögðum
núverandi umhverfisráðherra og
að skapa eigi breiðari sátt um málið
með því að hlusta á raddir þeirra
aðila sem þekkja til á hálendinu.
LÍV muni koma að þeirri vinnu.
Vélsleðamenn styðja umhverfisráðherra
og endurskoðun laga um náttúruvernd