Morgunblaðið - 02.10.2013, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013
Þótt Robert nokkur Wade hafifallið fyrir gríni um „fjölskyld-
urnar fjórtán“ sem var yfirfært án
talningar frá Rómönsku-Ameríku á
Ísland hefur hann ekki enn svarað
spurningunum fimmtán frá Hann-
esi H. Gissurarsyni eins og Vef-
Þjóðviljinn minnir á:
Ef marka má þaðsem Hannes
vitnar til greinar
þeirra, og svo
spurninga hans, þá
virðist vera ótrú-
lega mikið af bein-
um rangfærslum og
órökstuddum full-
yrðingum í grein
þeirra. Hvers vegna
ætli fjölmiðlar
minnist ekki einu
orði á spurning-
arnar og það að
ekkert svar muni
hafa komið við
þeim? Ekki hefur
alltaf skort áhugann á þeim Wade
og Sigurbjörgu.
Og ef spurningar Hannesar erutómur misskilningur og rang-
færslur, þá væri það auðvitað nei-
kvætt fyrir hann og ekki vantar eft-
irspurnina eftir slíku. Samt minnast
fjölmiðlar og álitsgjafar ekki á
spurningarnar.
En fjölmiðlar sögðu hins vegar
frá því um daginn að Sigurbjörg
hefði beðið Hannes afsökunar á því
að hafa ranglega fullyrt opinber-
lega að hann hefði sagt eitthvað,
sem hann hafði aldrei sagt. Senni-
lega var sú frétt óskiljanleg í eyrum
flestra, og hugsanlega hafa ein-
hverjir haldið að þar með hefði ver-
ið svarað spurningunum til Wades.
Þær hefðu þá bara snúist um ein-
hverja vitlausa tilvitnun í Hannes.
En þetta mál var alls ekki meðalspurninganna til Wades. Þeim
hefur aldrei verið svarað opinber-
lega svo vitað sé, en enginn fjölmið-
ill hefur áhuga á því.“
Robert Wade
Veit ekki svörin?
STAKSTEINAR
Hannes H.
Gissurarson
Veður víða um heim 1.10., kl. 18.00
Reykjavík 7 súld
Bolungarvík 5 skýjað
Akureyri 5 alskýjað
Nuuk 5 súld
Þórshöfn 10 alskýjað
Ósló 10 léttskýjað
Kaupmannahöfn 12 léttskýjað
Stokkhólmur 7 léttskýjað
Helsinki 5 skýjað
Lúxemborg 15 léttskýjað
Brussel 17 heiðskírt
Dublin 15 þoka
Glasgow 15 léttskýjað
London 17 skýjað
París 17 heiðskírt
Amsterdam 15 heiðskírt
Hamborg 12 heiðskírt
Berlín 12 léttskýjað
Vín 12 skýjað
Moskva 2 skýjað
Algarve 22 skýjað
Madríd 23 léttskýjað
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 28 léttskýjað
Róm 23 léttskýjað
Aþena 25 léttskýjað
Winnipeg 12 heiðskírt
Montreal 17 léttskýjað
New York 23 heiðskírt
Chicago 20 alskýjað
Orlando 28 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
2. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:41 18:54
ÍSAFJÖRÐUR 7:48 18:57
SIGLUFJÖRÐUR 7:31 18:40
DJÚPIVOGUR 7:11 18:23
Borgarstjórn samþykkti í gær
samhljóða tillögur borgarstjóra
um aðgerðir gegn kynbundnum
launamun sem byggðar eru á
áætlun aðgerðahóps um kynbund-
inn launamun. Aðgerðirnar eru í
nokkrum liðum. Meðal annars að
birta tölfræðiskýrslur ársfjórð-
ungslega, framkvæma úttekt á
launamun árlega og skylda
stjórnendur til að sitja fræðslu-
fundi. Fjöldi kvenna sem starfa
hjá Reykjavíkurborg mætti á
fundinn til að þrýsta á borgaryf-
irvöld að leiðrétta kynbundinn
launamun.
Morgunblaðið/Júlíus
Fjöldi krafðist útrýmingar
kynbundins launamunar
Illugi Gunnarsson menntamála-
ráðherra leikur hér fyrsta leikinn
fyrir hönd Sergeis Fedorchuks í
skák gegn Arnari E. Gunnarssyni í
fyrstu umferð stórmeistaramóts
Taflfélags Reykjavíkur sem fram fór
í gær. Mótið stendur til 8. október og
þar tefla meðal annarra þrír stór-
meistarar og fimm alþjóðlegir meist-
arar. Úkraínumaðurinn Fedorchuck
er stigahæsti keppandinn á mótinu
með 2.667 stig en næstur er sam-
landi hans, Mikhailo Olaksienko,
með 2.596 stig. Arnar er stigahæstur
Íslendinganna og sá sjötti stiga-
hæsti á mótinu með 2.441 stig.
Morgunblaðið/Ómar
Ráðherra leikur fram
Auglýst eftir
umsóknum um
Eyrarrósina
Byggðastofnun, Listahátíð í Reykjavík
og Flugfélag Íslands standa saman að
Eyrarrósinni, viðurkenningu sem árlega er veitt
afburða menningarverkefni á starfssvæði
Byggðastofnunar. Umsækjendur geta m.a.
verið stofnun, tímabundið verkefni, safn eða
menningarhátíð. Verndari Eyrarrósarinnar er
Dorrit Moussaieff, forsetafrú.
Þrjú verkefni eru tilnefnd og hlýtur eitt þeirra Eyrar-
rósina, peningaverðlaun að upphæð 1.650.000 kr.
og flugferðir hjá Flugfélagi Íslands. Hin tvö hljóta
300.000 kr. auk flugferða.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2013 og verður
öllum umsóknum svarað. Eyrarrósin verður afhent
í febrúar 2014.
Umsóknir skal senda rafrænt til Listahátíðar í
Reykjavík á netfangið eyrarros@artfest.is.
Umsókn skal fylgja greinargóð lýsing á verkefninu,
tíma- og verkáætlun, upplýsingar um aðstandendur
og fjárhagsáætlun.
Allar nánari upplýsingar á vef Listahátíðar í Reykjavík:
www.listahatid.is og í síma 561-2444.