Morgunblaðið - 02.10.2013, Side 11

Morgunblaðið - 02.10.2013, Side 11
Hátíðardagskrá í Þjóðminjasafni 5. október kl. 13 um Hrafn Sveinbjarnarson:  Torfi H. Tulinius: Höfðingi nýrra tíma. Hrafn Sveinbjarnarson í samtíð sinni.  Guðrún Nordal: Undrin í skáldskap Hrafns sögu.  Ásdís Egilsdóttir: Lækningar og sáluhjálp. Við- horf til lækninga í Hrafns sögu.  Eiríkur Jónsson: Þvagfæraskurðlæknirinn Hrafn Sveinbjarnarson.  Jón Jóhannes Jónsson: Guðrún P. Helgadóttir og fræðivinna hennar.  Revía í tali og tónum: Dýrlingur á faraldsfæti: Óttar Guðmundsson og Diabolus In Me- dica; Jóhanna V. Þórhalls- dóttir, Aðalheiður Þor- steinsdóttir, Páll Torfi Önundarson, Jón Sig- urpálsson. Umræður á milli fyr- irlestra og kaffihlé. RÁÐSTEFNA Hrafn var m.a. þekktur fyrir að vinna á nýrnasteinum. 800 ára ártíð Hrafns Sveinbjarnarsonar Revía Frá Hrafnseyri í sumar þegar Óttar og Diabolus in Medica fluttu revíu um dýrling á faraldsfæti. Hrafn og Þorvaldur Örlög Hrafns urðu ill, hann lenti í deilum við hinn goðorðsmanninn á Vestfjörðum, Þorvald Vatnsfirðing, sem endaði með því að Þorvaldur drap Hrafn. „Þetta var stríð um yfirráð, en slíkar ættardeilur voru ekki óalgeng- ar á þeim tíma. Þarna tókust á Seldælir og Vatnsfirð- ingar, en Hrafn var foringi Seldælinga. Þorvaldi er í Hrafnssögu lýst sem miklu illmenni, en Hrafn hafði áður sýnt honum miskunn og vináttu. Hrafn hafði líf Þorvald- ar í hendi sér og hefði getað drepið hann, eins og aðrir höfðingjar Sturlungu gerðu gjarnan. En hann sýndi kristilega miskunnsemi og var drepinn fyrir vik- ið. Dauði hans minnir sumpart á dauða Krists, hann fyrirgefur óvinum sínum og er drepinn á hrottalegan hátt. Ýmis jarteikn urðu eftir þann atburð, til dæmis varð hóllinn þar sem Hrafn var hálshöggvinn, algrænn í miðju páskahreti.“ Mikið mannvit Óttar segir að mannvit og vísindi ráði för í skemmtilegum erindum sem flutt verða á laugardaginn, en í lok dagskrárinnar verður flutt revía með Óttari og hljómsveitinni Diabolus In Medica. „Þar tökum við ævi Hrafns í tali og tónum, ég segi söguna af hon- um en svo er það kryddað með dægurlögum og öðru skemmtilegu. Það er afskaplega óvís- indalegur léttleiki ráðandi í því atriði, grín og glens.“ Morgunblaðið/Ómar Þátttakendur Jóhanna og Óttar taka þátt í Revíunni. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013 Tríó Sunnu Gunnlaugs spilar í Edin- borgarhúsi á Ísafirði á morgun, fimmtudag, kl. 20. Sunna fagnar ný- útkomnum diski Tríós Sunnu Gunn- laugs, „Distilled“, sem fengið hefur góða umfjöllun erlendis. Djass- gagnrýnandi Rhapsody valdi „Dis- tilled“ sem einn af top 10 diskum septembermánaðar. Diskurinn fékk einnig nýlega umfjöllun hjá London Jazz News sem segir Sunnu vera „sérlega smekklegan píanista“ og diskinn vera „ferskan og óaðfinn- anlega fram settan af þéttu tríói, stútfullu af hugmyndum“. Jazznytt í Noregi mælir með diskn- um í nýjasta tölublaði sínu og Jazz Japan gefur honum einnig frábæra dóma og segir „stemningu disksins ná hæðum sem einungis topp-tónlist nær“. Tríóið fagnar nú útkomu disks- ins með tónleikum víða um land. Hefur fengið góða dóma í útlandinu Tríó Sunna píanó, Þorgrímur Jónsson bassi, Scott McLemore trommur. Tríó Sunnu Gunnlaugs fagnar Í dag kl. 15.30 verður málþing í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins þar sem fjallað verður um gildi menntunar og þekkingar í fjöl- menningarlegum heimi. Sérlegur gestur er Anjimile Oponyo, ráðu- neytisstjóri menntamálaráðuneytis Malaví. Erindi hennar ber yfirskriftina Menntun í Malaví og áskoranir í skólamálum. Hildur Blöndal Sveinsdóttir flyt- ur erindið Veröldin og við, mennt- un, margbreytileiki og hnattræn vitund. Kynntar verða niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar um við- horf til alþjóðlegrar þróunarsam- vinnu Íslands og þekkingu á mála- flokknum ásamt nýrri skýrslu um stöðu þróunarfræðslu hér á landi. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, mun opna formlega nýjan upplýsingavef: Til að auka skilning og þekkingu á málefnum þróunarlanda Sérlegur gestur Anjimile Oponyo. Hvers virði er menntun? komumheiminumilag.is, um þróunarfræðslu í grunn- og fram- haldsskólum þar sem safnað hefur verið saman gagnlegum upplýs- ingum. Næstkomandi föstudag, 4. október klukkan 17, verður opnuð sýning á ljósmyndum eftir Guðjón Róbert Ágústsson á Bókasafninu í Hvera- gerði. Flestar myndirnar eru teknar á síðustu þremur árum og sýna fjöl- breytileika í íslenskri náttúru. Ró- bert hefur unnið við ljósmyndun síðan í maí 1965 þegar hann hóf störf á ljósmyndadeild dagblaðsins Tímans við prentmyndagerð og blaðaljósmyndun. Hann vann á Tím- anum og NT fram í júní 1984. Frá þeim tíma hefur hann unnið sjálf- stætt sem ljósmyndari og blaða- maður. Róbert hefur búið í Hvera- gerði síðastliðin tvö ár. Sýningin verður opin á afgreiðslu- tíma bókasafnsins, virka daga kl. 13-18.30 og laugardaga kl. 11-14. Ljósmyndasýning Róberts á Bókasafninu í Hveragerði Ljósmyndari Guðjón Róbert hefur tekið margar myndir úti í náttúru Íslands. Fjölbreytileiki íslenskrar náttúru

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.