Morgunblaðið - 02.10.2013, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013
Úrkomudagar að sumri í Reykja-
vík hafa aðeins tvisvar sinnum
verið fleiri en á liðnu sumri frá
árinu 1920. Þetta kemur fram í
pistli Sigurðar Þórs Guðjónssonar
veðursagnfræðings (nim-
bus.blog.is).
Sigurður segir að mánuðirnir
júní til september séu hinir hefð-
bundnu sumarmánuðir að mati
Veðurstofunnar. Úrkomudagarnir
á nýliðnu sumri voru 89, sumarið
1969 voru þeir 97 en 95 sumarið
1955. Miðað við úrkomumagn var
síðastliðið sumar það tíunda úr-
komumesta í Reykjavík síðan 1920
þegar Veðurstofan var stofnuð.
Úrkoman í sumar var 314 milli-
metrar. Sumrin 2007 og 2008
mældist meiri úrkoma að magni til
en nú. Úrkomudagar voru þó færri
en í sumar. Áður en Veðurstofan
var stofnuð var úrkoman í Reykja-
vík athuguð á árunum 1885-1907.
Sumarið 1887 mældist úrkoman
vera 407 mm og sumarið 1899 var
hún 405 mm. Á fyrrnefndu tímabili
voru því þessi sumur og eins árin
1900 og 1901 úrkomusamari en
sumarið sem er nýliðið.
Sigurður fjallar einnig um sól-
skinsstundir. Í sumar urðu þær
540 samkvæmt mælingum. Alls
hefur 21 sumar verið sólarminna í
Reykjavík frá árinu 1911 ef Vífils-
staðir eru taldir með (1911-1917).
Frá því Veðurstofan var stofnuð
1920 hafa 17 sumur verið sól-
arminni.
Meðalhiti sá minnsti frá 1995
Meðalhitinn í Reykjavík í sumar
var 9,5 stig og sá minnsti frá árinu
1995. Þá var meðalhitinn nánast sá
sami og nú. Frá því Veðurstofan
var stofnuð árið 1920 hafa 36 sum-
ur verið kaldari í Reykjavík, þar
af voru 23 á árunum 1966-1995,
samkvæmt pistli Sigurðar Þórs.
Meðalhitinn á liðnu sumri var 0,2
stigum yfir meðaltalinu 1961-1990
og 0,6 stigum undir meðalhitanum
á hlýindatímabilinu 1931-1960 og
1,2 stigum undir meðallagi þess-
arar aldar. Fram að þessu verður
hún „að kallast gullöld reykvísks
veðurfars,“ að mati Sigurðar Þórs.
gudni@mbl.is
Margir úrkomudagar í sumar
Aðeins tvisvar
verið fleiri í
Reykjavík frá 1920
Morgunblaðið/RAX
Votviðri Regnhlífarnar hafa verið á lofti marga daga á þessu sumri.
Íslenska vitafélagið – félag um ís-
lenska strandmenningu er að hefja
vetrarstarfið. Fyrsti fundurinn
verður 2. október, kl. 20.00 í Vík-
inni við Grandagarð. Örlygur
Kristfinnsson fjallar fyrst um
Siglufjörð og norræna samvinnu
en Siglufjörður var miðstöð síld-
veiða fyrr á árum og öldum. Loks
verður fjallað um trébátinn Húna
II sem vakti mikla athygli í sumar
þegar hann sigldi kringum landið
og skipverjar fluttu tónleika og
skemmtidagskrá.
Siglufjörður og Húni
II á fræðslukvöldi
Málþing um kynferðisofbeldi gegn
fötluðu fólki verður haldið á
Grand Hóteli í Reykjavík á morg-
un, fimmtudag, frá klukkan 13 til
17.
Aðgangur að málþinginu er
ókeypis en skráning fer fram á
vefnum throskahjalp.is.
Rit- og táknmálstúlkar verða á
staðnum.
Málþing um
kynferðisofbeldi
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Hiti í nýliðnum september var nærri
meðallagi áranna 1961 til 1990, en
víðast hvar rúmlega einu stigi undir
meðallagi síðustu tíu ára.
Þetta kemur fram í yfirliti Trausta
Jónssonar veðurfræðings um mán-
uðinn.
Úrkomusamt var á landinu og
þurrkar víða daufir, segir Trausti.
Mikið norðanillviðri gerði um miðjan
mánuðinn og olli skaða á nokkrum
stöðum og setti niður talsverðan snjó
á heiðar og í fjöll.
Meðalhiti í Reykjavík var 7,1 stig í
september, 0,2 stigum neðan með-
allags áranna 1961 til 1990, en 1,6
stigum undir meðallagi síðustu tíu
ára. Þetta er kaldasti september síð-
an 2005, en hiti var mjög svipaður í
september í fyrra. Telst mánuðurinn
sá 96. hlýjasti af þeim 143 árum sem
mælingar hafa staðið. Í Stykkishólmi
var meðalhitinn 6,7 stig og er það í
meðallagi. Á Akureyri mældist með-
alhiti 6,4 stig og er það 0,1 stigi ofan
meðallags 1961 til 1990 en 1,4 stigum
undir meðallagi síðustu tíu ára. Á
Höfn í Hornafirði var meðalhitinn
7,3 stig og 1,9 stig á Hveravöllum.
Hæstur var meðalhiti mánaðarins
á Garðskagavita, 8,1 stig, og 7,9 í
Surtsey. Lægstur var meðalhitinn á
Þverfjalli, 0,3 stig. Í byggð var með-
alhiti lægstur í Möðrudal, 3,0 stig.
Hæsti hiti mánaðarins mældist á
Hallormsstað hinn 7. september,
20,4 stig. Á mannaðri stöð mældist
hitinn hæstur 19,8 stig hinn 8. á
Skjaldþingsstöðum.
Lægsti hiti mánaðarins mældist
-13,4 stig á Brúarjökli hinn 28. Í
byggð mældist lægsti hitinn -7,3 stig
í Möðrudal hinn 19. Lægsti hiti á
mannaðri stöð mældist -5,0 stig á
Grímsstöðum hinn 28. Frostið á Brú-
arjökli hinn 28. er nýtt dægurmet
(lægsti lágmarkshiti 28. september).
Eldra met var frá Grímsstöðum á
Fjöllum árið 1969, -11,5 stig.
Úrkoman mældist 89,7 millimetr-
ar í Reykjavík í september. Það er
um 35% umfram meðallag áranna
1961 til 1990. Meiri úrkoma mældist í
Reykjavík í september í fyrra en nú.
Í Stykkishólmi mældist úrkoman
129,1 mm. Það er meira en tvöföld
meðalúrkoma septembermánaðar og
það mesta í september síðan 2008. Á
Akureyri mældist úrkoman 62,5 mm,
það er um 60% umfram meðallag.
Úrkoma á Stórhöfða í Vestmanna-
eyjum mældist 209,1 mm og er það
líka um 60% umfram meðallag.
Septembermánuður í meðallagi
Úrkomusamt var á landinu og þurrkar víða daufir Þetta er kaldasti september í höfuðborginni
síðan árið 2005 Úrkoman var yfir meðallagi á flestum veðurstöðvum Metfrost á Brúarjökli
Sólarlítið
» Sólskin í Reykjavík mældist
í 120,1 stund í september,
fimm stundum minna en í
meðalári.
» Í september í fyrra mæld-
ust rúmar 142 sólskinsstundir
í Reykjavík.
» Á Akureyri mældust sól-
skinsstundirnar 98,8. Það er
13 stundir umfram meðallag.
» Á Akureyri mældust sól-
skinsstundirnar 84,7 í sept-
ember í fyrra.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Rigning Septembermánuður var
blautur víða um land.
Við erum sérfræðingar
í prenturum fyrir
lítil og meðalstór
fyrirtæki
Otto B. Arnar ehf | Skipholt 17, 105 Reykjavík | Sími 588 4699 | www.oba.is | oba@oba.is
PRENTLAUSNIR
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Trúnaðarmaður hjúkrunarfræðinga
á Heilsugæslustöðinni á Akureyri
(HAK) segir að hjúkrunarfræðingar
hafi ekki fengið launahækkun í sam-
ræmi við jafnlaunaátak stjórnvalda,
þrátt fyrir að hinu gagnstæða hafi
verið haldið fram.
Vísar hún þar í ummæli Birgis
Gunnarssonar, forstjóra Reykja-
lundar, sem sagði í samtali við Morg-
unblaðið á laugardag og ítrekaði í
blaðinu í gær að hann hefði heimildir
fyrir því að heilsugæslunni á Akur-
eyri hefði verið „kippt inn“ í jafn-
launaátakið sem renna átti til ríkis-
stofnana á heilbrigðissviði.
Heilsugæslustöðin á Akureyri er
rekin á þjónustusamningi sem Akur-
eyrarbær og ríkið gerðu með sér og
flokkast HAK því ekki sem bein und-
irstofnun ríkisins.
„Hjúkrunarfræðingar á Heilsu-
gæslustöðinni á Akureyri hafa ekki
fengið þessa launahækkun,“ segir
Ingibjörg Sólrún Ingimundardóttir,
trúnaðarmaður hjúkrunarfræðinga
á HAK. Heilsugæslustöðvarnar á
Höfn í Hornafirði og á Akureyri eru
reknar á þjónustusamningi við ríkið.
„Með jafnlaunaátaki ríkisins er verið
að leiðrétta kynjamismun í launum
en á sama tíma er búin til annars
konar mismunun,“ segir Ingibjörg.
Verði leiðrétt hið snarasta
Hjúkrunarfræðingar á heilsu-
gæslum á höfuðborgarsvæðinu og á
Sjúkrahúsinu á Akureyri hafa fengið
launahækkun í kjölfar jafnlauna-
átaksins.
„Af hverju eigum við að gjalda
þess að Akureyrarbær er með þjón-
ustusamning við ríkið? Við fögnum
þessu jafnlaunaátaki og treystum
því að Akureyrarbær leiðrétti þetta
hið snarasta og fái svo framlög frá
ríkinu í samræmi við það,“ segir
Ingibjörg Sólrún.
Hafa ekki fengið
launahækkun
Akureyrarbær leiðrétti launin
Heilsugæsla Hjúkrunarfræðingar
hafa ekki fengið launahækkanir.