Morgunblaðið - 02.10.2013, Page 22

Morgunblaðið - 02.10.2013, Page 22
BAKSVIÐ Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Eru bandarísk stjórnvöld algerlega gengin af göflunum? spurði öld- ungadeildarþingmaðurinn Claire McCaskill, demókrati frá Missouri, í ræðu í öldungadeild Bandaríkja- þings eftir að deildin hafnaði fjár- lagafrumvarpi repúblikana sem hafði verið samþykkt í fulltrúadeild- inni. „Það er mjög erfitt að átta sig á því úr fjarlægð hverjir hafa misst vitið. Annar flokkurinn, hinn flokk- urinn, við öll, forsetinn?“ spurði McCaskill. Öldungadeildin hafnaði frumvarpi til bráðabirgðafjárlaga sem var háð því skilyrði repúblikana að gildis- töku nýrra laga um sjúkratrygg- ingar yrði frestað. Demókratar, sem eru í meirihluta í öldungadeildinni en minnihluta í fulltrúadeildinni, höfnuðu þessu skilyrði. Pattstaðan á þinginu í deilunni um fjárlögin varð til þess að fjárheim- ildir hins opinbera runnu út í gær og starfsemi bandarískra ríkisstofnana stöðvaðist að miklu leyti í fyrsta skipti í sautján ár. Flokkarnir á þinginu kenndu hvor öðrum um. Barack Obama Banda- ríkjaforseti og þingmenn demókrata sögðu að repúblikanar ættu einir sök á því að starfsemi stofnananna stöðvaðist vegna þess að þeir hefðu notað fjárlagafrumvarpið til að reyna að hindra gildistöku nýju lag- anna um sjúkratryggingar, sem nefnd hafa verið Obamacare. Repúblikanar skelltu hins vegar skuldinni á Obama og Harry M. Reid, leiðtoga meirihlutans í öld- ungadeildinni, vegna þess að þeir hefðu neitað að semja um málið og ekki léð máls á neinum tilslökunum. Skoðanakönnun, sem The Was- hington Post birti í fyrradag, bendir til þess að almenningur í Bandaríkj- unum hafi fengið sig fullsaddan á karpi flokkanna og óánægjan beinist einkum að repúblikönum. Aðeins 26% sögðust vera ánægð með fram- göngu repúblikana í málinu, 34% voru ánægð með demókrata og 41% með Obama forseta. Könnun Quinnipiac-háskóla, sem birt var í gær, bendir til þess að 72% Bandaríkjamanna séu andvíg því að starfsemi ríkisstofnana sé stöðvuð með það að markmiði að hindra gildistöku sjúkratryggingalaganna. Peter Foster, fréttaskýrandi The Telegraph, telur líklegt að Obama hafi betur í rimmunni við repúblik- ana um fjárlögin. Þótt kannanir bendi til þess að meirihluti Banda- ríkjamanna sé andvígur nýju sjúkra- tryggingalögunum séu tveir þriðju þeirra á móti því að ríkisstofnunum sé lokað vegna Obamacare. „Eins og John McCain, öldunga- deildarþingmaður repbúblikana, tók mæðulega fram þegar þetta ferli hófst þá voru Obamacare-lögin sam- þykkt á Bandaríkjaþingi, staðfest af hæstarétti Bandaríkjanna og tekist var á um þau í kosningunum 2012 – þegar Obama sigraði örugglega,“ skrifar Foster. Hann bendir einnig á að repúblikanar eru taldir hafa farið halloka síðast þegar starfsemi bandarískra stofnana lamaðist vegna deilna um fjárlög, veturinn 1995-1996. Skuldinni var þá einkum skellt á repúblikana, sérstaklega Newt Gingrich, sem var þá forseti fulltrúadeildarinnar. Bill Clinton sakaði repúblikana á þinginu um of- stæki og var endurkjörinn forseti í nóvember 1996. „Heimskuleg“ tenging Sem forseti er Obama í betri að- stöðu en þingmenn repúblikana til að sannfæra þjóðina um að andstæð- ingar hans eigi sök á því að starf- semi ríkisstofnana lamaðist. Að sögn The New York Times er ágreiningur meðal þingmanna repúblikana um hvort rétt hafi verið að tengja fjár- lögin við sjúkratryggingalögin. „Það er heimskulegt að loka ríkisstofn- unum út af þessu máli,“ hefur blaðið eftir Phil Gingrey, fulltrúadeildar- þingmanni frá Georgíu. Repúblikanar í Teboðshreyfing- unni svonefndu láta þó engan bilbug á sér finna og nokkrir þeirra hafa sagt að ekki skipti öllu máli hvort repúblikanar hafi betur í rimmunni. „Stundum verða menn að fylgja sannfæringu sinni án þess að spyrja hvað það kosti, hvaða líkur séu á því að það beri árangur,“ hefur The New York Times eftir fulltrúa- deildarþingmanninum John Culber- son, repúblikana frá Texas. Gæti skaðað repúblikana  Talið líklegt að Obama hafi betur í rimmunni við repúblikana um fjárlagafrumvarpið eftir að starfsemi ríkisstofnana stöðvaðist að miklu leyti  Í betri aðstöðu til að fá þjóðina á sitt band AFP Í tímaþröng Harry M. Reid, leiðtogi demókrata í öldungadeildinni (t.h.), og þingmaðurinn Chuck Schumer, demó- krati frá New York, á blaðamannafundi í þinghúsinu í Washington áður en fjárheimildir hins opinbera runnu út. Röng ákvörðun? » Þingmenn repúblikana sögðust ekki ætla að gefa eft- ir í deilunni um fjárlögin en fram komu skýr merki um að þeir hefðu vaxandi áhyggjur af því að lokun ríkisstofnana myndi skaða repúblikana, að sögn The Wall Street Journal. » Blaðið hefur eftir Jeff Flake, repúblikana í öld- ungadeildinni, að þótt hann sé hlynntur því að repúblik- anar beiti sér gegn sjúkra- tryggingalögunum, Obama- care, telji hann að það hafi verið röng ákvörðun að tengja þau við fjárlagafrumvarpið. Demókratar séu vissir um að repúblikönum verði kennt um það að starfsemi ríkisstofn- ana lamist. 22 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013 Vesturvör 32, 200 Kópavogur, Sími 564 1600 islyft@islyft.is - www.islyft.is DísellyftararMest seldi dísellyftarinn á Íslandi• Hydrostatic drif• Gott ökumannshús• Dempun á mastri• Örugg og góð þjónusta• Fátt bendir til þess að starfsemi bandarískra ríkisstofnana hefjist að nýju á næstunni, að mati bandaríska stjórnmálaskýrandans Chris Krueg- ers. „Lokunin gæti haldið áfram þar til við komum að næsta þverhnípi, 17. október, sem verður miklu bratt- ara,“ hefur bandaríska dagblaðið The Wall Street Journal eftir Chris Krueger. Hann skírskotaði til þess að þenn- an dag rennur út frestur Banda- ríkjaþings til að hækka skuldaþak ríkisins sem er núna 16,7 billjónir Bandaríkjadala og var hækkað síð- ast í janúar. Jack Lew, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, hefur sagt að ef skuldaþakið verði ekki hækkað enn frekar geti ríkið ekki staðið við skuldbindingar sínar á borð við líf- eyrisgreiðslur, launagreiðslur til hermanna og greiðslur til Medicare, sem eru sjúkratryggingar fyrir þá sem eru 65 ára og eldri. Flokkarnir deila um sparnaðaraðgerðir Demókratar og repúblikanar hafa deilt harkalega á þinginu um sparn- aðaraðgerðir sem nauðsynlegar eru til að draga úr skuldasöfnuninni. Stjórn Baracks Obama vill að þingið hækki skuldaþak ríkisins til að hægt verði að taka fleiri lán og af- stýra greiðsluþroti sem myndi leiða til efnahagssamdráttar í Bandaríkj- unum, stærsta hagkerfi heimsins. Repúblikanar vilja ekki hækka skuldaþakið nema stjórnin fallist á stórfelldan niðurskurð á ríkis- útgjöldum og segja að skuldirnar séu þegar orðnar alltof miklar. Færast nær nýju hengiflugi  Reynt að afstýra greiðsluþroti Skuldir ríkja bornar saman Heimild: OECD Japan 228,4 Bandaríkin 109,1 109,1 Suður- Kórea 35,0 Grikkland 183,7 Ítalía 143,6 Spánn Bretland Þýskaland 87,997,8 Sem hlutfall af landsframleiðslu 100% Miðað við júní sl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.