Morgunblaðið - 02.10.2013, Side 25
25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013
Sjötugur Nokkrir gesta í afmæli Þristsins, Páls Sveinssonar, á Akureyri, flugstjórar og aðrir „vinir“ þekkja afmælisbarnið öðrum fremur Frá vinstri: Árni Sigurbergsson, Jóhannes Fossdal, Arn-
grímur Jóhannsson, Eyþór Baldursson, Erling Andreassen, Hallgrímur Jónsson, Tómas Dagur Helgason, Björn Thoroddsen og Haraldur Snæhólm, Björn Bjarnarson og Hannes Thorarensen.
Skapti Hallgrímsson
„Við erum alltaf á
sama aldri innra með
okkur,“ er haft eftir
bandaríska rithöfund-
inum Gertrude Stein og
er það án efa tilfinning
sem flestir ef ekki allir
upplifa þótt árunum
fjölgi. Þess vegna er svo
mikilvægt að hafa þetta í
huga þegar rætt er um
málefni eldri borgara.
Því miður einkennist umræðan um of
af „vandamálum“ þar sem dregin er
upp dökk mynd af stöðu þessa mik-
ilvæga þjóðfélagshóps í samfélaginu,
hvort sem rætt er um líf, kjör eða val-
frelsi eldra fólks.
Það er gott að eldast
Þó svo að sannarlega megi margt
betur fara er engu að síður mikilvægt
að halda því til haga sem vel er gert og
sýna því jákvæða meiri áhuga. Það er
nefnilega gott að eldast. Samfara al-
mennt betri heilsu hafa valmöguleikar
hinna eldri aukist í lífinu, til tómstunda
og iðkunar annarra áhugamála. Tæki-
færin eru í raun óteljandi. Í dag hefur
„gamla fólkið“ svo mikið að gera að
það skýtur mörgum okkar sem yngri
erum ref fyrir rass þegar kemur að lík-
amlegri og andlegri virkni. Það er ekki
tiltökumál lengur að mæta eldri borg-
urum í hlíðum Esjunnar eða á skokki
eftir Sæbrautinni, svo dæmi séu tekin.
Það er vert að hafa þetta í huga, en í
gær, 1. október, var alþjóðlegur dagur
aldraðra.
Baráttunni hvergi lokið
Í umræðunni um aldur og aldraða er
vert að minnast þess að aldur er af-
stæður. Á það benti Satchel Page þeg-
ar hann sagði: „Hversu gamall værir
þú ef þú vissir ekki aldur þinn?“ Þess
vegna er það ef til vill miður að tileinka
þurfi öldruðum sérstakan alþjóðlegan
dag, svo sjálfsagður og samofinn sem
aldurshópurinn er í samfélagi þjóð-
anna. Ef til vill er ástæð-
an sú að baráttunni fyrir
málefnum eldra fólks er
hvergi nærri lokið. Ár
eftir ár skerða stjórnvöld
framlög til málaflokksins
og nú er svo komið að lík-
legt er að margt sem án-
unnist hefur tapist á nýj-
an leik haldi fram sem
horfir. Afturför í mála-
flokknum blasir því við sjái stjórnvöld
ekki að sér.
Við lifum æ lengur
Samfara hækkandi lífaldri fólks í
þróuðum ríkjum eykst hlutfall eldri
borgara í heiminum. Hér á landi er
hlutfall þeirra sem náð hafa 67 ára
aldri um 10 prósent landsmanna. Um
þessar mundir er gert ráð fyrir að Ís-
lendingum fjölgi um 33% á næstu 46
árum og verði um 430 þúsund árið
2060. Við karlarnir getum nú vænst
þess að verða 81 árs og konurnar enn
eldri, eða 84 ára að meðaltali. Börnin
okkar munu ef að líkum lætur verða
enn eldri árið 2060, karlarnir 87 ára og
konurnar 88. Það dregur saman með
kynjunum.
Okkar að taka við keflinu
Það er verkefni okkar sem yngri er-
um að leggja öldruðum lið, taka við
boltanum í baráttunni fyrir bættum
hag eldra fólks. Ef rétt verður á mál-
um haldið er ég viss um að við getum
gert okkar góða land ennþá betra.
Vonandi upplifi ég þann dag að allt
eldra fólk njóti þeirra lífsgæða sem
það á skilið.
Eftir Pétur
Magnússon
» Tækifærin
eru í raun
óteljandi. Í dag hefur
„gamla fólkið“ svo mikið
að gera …
Pétur Magnússon
Höfundur er formaður
Öldrunarráðs Íslands.
Hversu gamall
værir þú ef þú vissir
ekki aldur þinn?Sterkt og sam-
keppnishæft atvinnu-
líf byggist á mörgum
stoðum; stoðum sem
snerta ekki eingöngu
skýra efnahags-
stefnu, ábyrg rík-
isfjármál eða einfald-
ara regluverk. Öflugt
og sveigjanlegt
menntakerfi sem
mætir þörfum at-
vinnulífsins og ýtir undir mögu-
leika einstaklinganna til að auka
við sig hæfni og færni í leik og
starfi er ein af grunnstoðum þess
að við getum byggt upp fjölbreytt
og öflugt atvinnulíf. Það sama
gildir um sterka rannsóknar- og
tæknisjóði þar sem grunnreglan
við veitingu fjármagns byggir á
samkeppni. Margt hefur verið
gert í þá veru á umliðnum árum
og áratugum en betur má ef duga
skal.
Efling iðn- og starfsnáms,
sveigjanleiki í námi,
stytting námstíma
Áherslur nýs menntamálaráð-
herra og vilji til mikilvægra
breytinga á menntakerfinu eru
fagnaðarefni enda brýnt að haldið
verði áfram með þær fyrirætlanir
sem hin heildstæða skólalöggjöf
frá árinu 2008 felur í sér. Hafði
þá lengi verið kallað eftir auknu
vægi og virðingu iðn- og verk-
náms sem og aðgerða gegn brott-
falli auk sveigjanleika í námi.
Markmið löggjafarinnar frá 2008,
sem allir stjórnmálaflokkar sam-
þykktu, er að að auka sveigj-
anleika í skólastarfi m.a. milli
skólastiga, efla iðn- og starfsnám
og stytta námstíma til stúdents-
prófs eins og kostur er. Allir
þessir þættir eiga síðan að geta
stuðlað að minna brottfalli úr
námi. Svo ekki sé minnst á fjár-
hagslegan ávinning nemenda og
þjóðhagslegan fyrir samfélagið að
nemendur útskrifist fyrr úr fram-
haldsskóla en nú er. Þessum
brýnu málum var því miður slegið
á frest í nokkur ár á síðasta kjör-
tímabili en nú er lag;
nú er tími fyrir frek-
ari breytingar á
fræðslu- og skóla-
kerfinu. Ef mönnum
er alvara með að
styrkja og efla ís-
lenskt atvinnulíf
verður ekki litið
framhjá því mik-
ilvæga tæki sem
menntakerfið er.
Að breyta
hugsunarhætti
og nálgun
Ákall er um breytingar og það
róttækar. Mörg skref er hægt að
taka í þá veru. Eitt er að ýta við
framkvæmd skólalöggjafarinnar,
hitt er að skoða fleiri kosti er
hjálpa til við að stokka upp í kerf-
inu og gera okkur samkeppn-
ishæfari til lengri tíma. Við erum
að sjá sveitarfélögin mörg hver,
framhaldsskóla og sjálfstæða
fræðsluaðila taka mikilvægar
ákvarðanir í þágu skólamála þar
sem svigrúm er veitt fyrir breytt-
an hugsunarhátt og nálgun.
Reykjavíkurborg ákvað t.d. á
sínum tíma að tryggja að sama
fjármagn fylgdi barni í leikskóla.
Hjallastefnan tók við rekstri
Laufásborgar, fjölgaði börnum úr
91 í 127 með því að breyta skrif-
stofum í skólasvæði fyrir börnin.
Nú eru um 500 börn á biðlista.
Menntaskólinn á Akureyri hefur í
samvinnu við Akureyrarbæ gert
krökkum, sem það kjósa, kleift að
hefja nám fyrr í menntaskóla.
Frá Kvennaskólanum í Reykjavík
útskrifast nú um 70% stúdenta á
þremur árum. Mosfellsbær hefur
farið af stað með Krikaskóla sem
er samþættur leik- og grunnskóli
fyrir börn á aldrinum 2-9 ára.
Önnur bæjarfélög hafa einnig
sýnt mikinn metnað við fram-
kvæmd skólastefnu. Garðabær
hefur um árabil haft forystu þeg-
ar kemur að fjölbreytni og val-
frelsi í skólastarfi. Nú hefur sveit-
arfélagið óskað eftir því við ríkið
að taka yfir rekstur Fjölbrauta-
skólans í Garðabæ til reynslu með
það í huga að geta m.a. boðið upp
á heildstæða skólastefnu frá 18
mánaða til 18 ára aldurs. Þessari
breyttu nálgun er vert að veita
athygli og helst framgang.
Umræða nauðsynleg,
breytingar óumflýjanlegar
Umræða um nýjungar og
breyttar aðferðir í skólamálum,
bæði í kennsluháttum sem
rekstri, kemur alltaf upp reglu-
lega. En slíkar umræður eru líka
nauðsynlegar svo hægt sé að kall-
ast á við nýtt og betra kerfi. Þar
er ekkert undanskilið. Getur t.d.
ávísanakerfi þar sem fé fylgir
barni óháð því hvaða skóla það
velur stuðlað að betra og skilvirk-
ara skólastarfi? Í Svíþjóð hefur
það gefið góða raun en þar hefur
fjölbreytni og samkeppni á sviði
skólamála frekar stuðlað að efl-
ingu menntakerfisins en hitt.
Breytingar á skólakerfinu eru
óumflýjanlegar, þær kalla á um-
ræður og hugsanlega tímabundn-
ar vindkviður af hálfu einstakra
aðila, en þær mega ekki bíða ef
taka á tillit til samfélagsins alls
og samkeppnisstöðu landsins.
Ávinningurinn er augljós. Efl-
ing menntakerfis, hins óformlega
sem formlega, eykur hagvöxt til
lengri tíma og rennir styrkari
stoðum undir fjölbreytt og eft-
irsóknarvert atvinnulíf. Þannig
verður samfélagið allt blómlegra.
Í því samhengi er rétt að undir-
strika að Samtök atvinnulífsins
styðja þessi markmið laganna og
áform menntamálaráðherra til
frekari menntasóknar enda eru
þau í samræmi við ályktanir sam-
takanna um árabil.
Á þessu sviði sem öðrum er
varðstaða um kyrrstöðu ekki val-
kostur.
Eftir Þorgerði
Katrínu
Gunnarsdóttur
»Umræða um nýj-
ungar og breyttar
aðferðir í skólamálum,
bæði í kennsluháttum
sem rekstri, er nauð-
synleg. Þar er ekkert
undanskilið.
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Höfundur veitir mennta- og
nýsköpunarsviði SA forstöðu.
Tími breytinga