Morgunblaðið - 02.10.2013, Síða 27

Morgunblaðið - 02.10.2013, Síða 27
UMRÆÐAN 27 Bréf til blaðsins MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013 Legugreining Frí legugreining Heilsurúm rafmagnsrúm Stillanleg Rúmgott er eini aðilinn á Íslandi sem býður upp á legugreiningu. 20-50% afsl. af öllum heilsurúmum ÞÉR ER BOÐIÐ Í FRÍA LEGUGREININGU Betri svefn - betri heilsa Smiðjuvegi 2 (við hliðina á Bónus), Kópavogi • sími 544 2121 Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-16 • www.rumgott.is Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum (Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum. Er á Facebook Kvef eða flensa? Ég er asma- og ofnæmissjúklingur og viðkvæm fyrir kvefi, hálsbólgu, eyrnabólgum og ennis- og kinnholusýkingum. Mér finnst tinktúran Sólhattur og hvönn svínvirka fyrir mig og það skemmir ekki hversu einfalt er að nota hana. – Inga Harðardóttir www.annarosa.is Tinktúran Sólhattur og hvönn er talin styrkja ónæmiskerfið. Hún hefur m.a. reynst afar vel gegn kvefi, hálsbólgu, flensu, hósta og ennis- og kinnholusýkingum ásamt því að örva blóðflæði. Ja hérna, grein mín „Mál að linni“ hefur aldeilis farið fyrir brjóstið á þeim sem tjá sig á vef DV. Ég gaf DV aldrei leyfi til notkunar á henni og hvað þá að tæta hana í sund- ur. Ég get ekki gert að því að þið sem þetta sáuð hafið ekki les- skilning, en greinin fjallar um þrjá þrýstihópa. Það er ennþá mál- og ritfrelsi hér á landi, svo að ég má láta í ljósi mínar skoðanir, og það þarf enginn að vera mér sammála. En að rökin frá háskólafólkinu sem tjáir sig á vef DV skuli vera þau, að ég sé snar- rugluð, fáfróð, hafi ekki komið út fyrir Sauðárkrók og ekki áorkað neinu í lífinu (þið ættuð bara að vita) og sé bara fúl kerling, vá, þið sannið svo sannanlega skrif mín um það fólk, sem er í raun ekki háskólahæft. Þið kaupið nefnilega ekki vitið með því að vera í háskóla. Menntun er góð, hef ég skrifað áð- ur, og við eigum fjöldann allan af vel menntuðu fólki, en að flestum skuli stýrt inn í háskóla er misnotkun. Þjóðin þarf fólk með allskonar menntun, verkmenntun, og einnig er pláss og þörf fyrir fólk sem er ómenntað, svo að þjóðin dafni. Þið sem farið mikinn á vefnum, eruð þið meðvituð um það að æ færri vinn- andi hendur standa undir bákninu og mjög líklega er þjóðin gjaldþrota, svo að hver á borga allt það sem þið farið fram á og teljið rétt ykkar ásamt öllum hinum? Þið segið að það sé fjárfest í menntun ykkar, ja hérna, þið meinið ef til vill menntun þeirra sem skila sér heim eftir nám erlendis. En hér kemur önnur sprengja, og til stjórnvalda, – ráðið erlenda lækna og hjúkrunarfræðinga, þeir yrðu margir ánægðir með aðstöðuna hér. Stór hluti verkafólks þessa lands er útlendingar, svo af hverju ekki í öðr- um störfum? – En þakkir til þeirra lækna okkar sem völdu og vilja vera um kyrrt og hjálpa þjóð sinni. STEFANÍA JÓNASDÓTTIR, Sauðárkróki. Vefur DV Frá Stefaníu Jónasdóttur Stefanía Jónasdóttir Sighvatur Björg- vinsson gerði nýlega að umtalsefni (í Frétta- blaðinu) að stór hópur Evrópusinna hefði op- inberað skringilegan skilningsskort á skil- yrtum loforðum. Nú er svo sem ekki hægt að krefja með- almenn um slíkan skiln- ing, svo lengi sem þeir eru ekki að trana sér mikið fram í stjórnmálaumræðunni. En þegar þingmenn opinbera van- getu sína til að skilja skilyrtar yrð- ingar, vekja þeir einnig spurningar um hæfni sína til að sitja á þingi, og aldrei hefði ég ætlað jafn greindum manni og Benedikt Zoëga að svona yrðingar gætu ruglað hann í ríminu. Ég svæfi rólegar á nóttunni ef ég gæti treyst því að loforð mitt um að bjóða einhverri persónu í utanlands- ferð, ef ég ynni meira en milljarð í Víkingalottóinu, leiddi ekki til þess að þessi persóna hermdi upp á mig ferðaloforðið, þótt ég hefði engan vinning hlotið í Víkingalottóinu. Á sama hátt er það ósanngjarnt að ESB- sinnar heimti þjóð- aratkvæðagreiðslu af stjórnarflokkunum, sem stjórnarflokkarnir lofuðu eingöngu í því tilfelli að þeir breyttu núverandi stefnu sinni, og svikju kjósendur sína með því að sækja um aðild að ESB. Fólk sem er svo skyni skroppið að það skilur ekki hvað skilyrt loforð innifela ætti ekki að vera fjalla mikið um stjórnmál. Reyndar innihalda loforð núver- andi stjórnarflokka það að ESB- umsóknin gæti tekið undir með Sig- hvati Björgvinssyni um að ESB- sinnar væru með þessu að gera sig að athlægi og einnig með karlanganum í íslensku þjóðsögunnni: „Nú skyldi ég hlæja væri ég ekki dauð.“ Vitræn óheilindi En getum við skrifað þessa furðu- legu vangetu til að skilja skilyrtar yrðingar á heimsku eða einfeldni eins og Sighvatur getur sér til? Ég óttast þvert á móti að við þurfum að skrifa þetta á vitræn óheilindi, en óheilindi og blekkingar eru þau tæki sem ESB-sinnar hafa beitt til að innlima hvert ríkið á fætur öðru í ESB á und- anförnum árum. Hins vegar var skotið yfir markið þegar aðildarviðræður voru sam- þykktar á liðnu þingi, en með því var gert samsæri um að beita svikum og blekkingum til að hafa fullveldið af þjóðinni, en slíkt athæfi kallast land- ráð í refsilöggjöf landsins, þó að enn hafi þeir sem svikum þessum beittu ekki verið sóttir til saka fyrir þetta refsiverða afbrot. Dómsvaldið þarf aðeins að svara þremur spurningum til að sakfella: Var blekkingum/svikum beitt? Var reynt að koma fullveldinu til annarra en löggiltra íslenskra stjórnvalda? Var um samsæri um þetta að ræða? Öllum er ljóst hver svörin eru við þessum spurningum. Hlýtur það að verða hlutverk nú- verandi utanríkisráðherra og innan- ríkisráðherra að hefja saksóknina gegn afbrotamönnunum sem voru reyndar margir hverjir þingmenn þegar brotin áttu sér stað. Sök bítur sekan Það hlýtur að hjálpa þeim við þetta verkefni, að ESB-sinnarnir eru (með blekkingarkrossferð sinni) að reyna að þvinga þá í þá stöðu að saksókn gegn landráðamönnunum sé fljótleg- asta aðferðin til að staðfesta dauða aðildarumsóknarinnar og ólögmæti hennar. Bregðist núverandi ráðherrar ekki við með tafarlausri saksókn, taka þeir þá áhættu að þeir sjálfir standi frammi fyrir slíkri saksókn í framtíð- inni, því aðgerðarleysi þeirra má túlka sem þátttöku í svikasamsæri fyrri ríkisstjórnar. En vissulega er núverandi rík- isstjórn í vandasamri stöðu. Efna- hagsárásin sem fólst í EES- samningnum, og ætlað var að tryggja að Ísland kæmi á hnjánum til að sækja um aðild að ESB (eins og Norðmenn höfðu gert eftir að EES- framkallaði fjármálakreppu hjá þeim), hefur verið fylgt eftir með sí- felldum ákærum og hótunum um efnahagslegar stríðsaðgerðir eins og makríldeilan ber með sér. Þessar stríðsaðgerðir og tengdar hótanir hafa stórskaðað efnahag landsins og veikt krónuna. Og gleymum ekki hryðjuverkalögum Breta. Aðeins verður svarað með því að segja upp EES og Schengen og heimta stríðs- skaðabætur frá ESB ekki minna en 3.000 milljarða ef greitt er fyrir lok þessa árs. Það er ekki ráðlegt fyrir ESB að mynda sér óvin í Norður-Atlantshafi, sem verður í aðstöðu til að loka bæði fyrir skipaflutninga og flugumferð á norðurhveli jarðar innan tveggja ára- tuga sökum þróunar sem nú á sér stað í hernaðartækni. Kínverjar eru löngu búnir að gera sér grein fyrir þessu; Drekinn hans Napóleons er vaknaður, en hvenær vaknar Evrópunátttröllið? ESB-umsóknin: „Nú skyldi ég hlæja væri ég ekki dauð!“ Eftir Árna Thoroddsen »Hins vegar var skot- ið yfir markið þegar aðildarviðræður voru samþykktar á liðnu þingi. Árni Thoroddsen Höfundur er kerfishönnuður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.