Morgunblaðið - 02.10.2013, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 02.10.2013, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013 ✝ Anne MieNiiuchi Nilsen fæddist í Nishi- nomia, Japan 24. desember 1971. Hún lést á Land- spítalanum 23. september 2013. Foreldrar henn- ar: Svein Nilsen, f. 25.8. 1942, d. 30.1. 1998 og Hiroko Niiuchi-Nilsen, f. 5.10. 1947. Systkini Anne eru Liv Akie Niiuchi Nilsen, f. 16.5. 1969, Nina Lie Niiuchi Nilsen, f. 19.8. 1970 og Karl Toshinaka Niiuchi Nilsen, f. 23.4. 1974. Eftirlifandi maki Anne er Ölvir Karl Emilsson, f. 9.4. 1972. Synir Anne og Ölv- is eru Jonas Rafn, f. 10.3. 1995, Tobias Már, f. 1.7. 1999, og Mathias Bragi, f. 23.9. 2000. Anne ólst upp í Kragerø, Noregi til ársins 1982, en þá flutti fjölskyldan til Porsgrunn. Árið 1993 réði Anne sig í vinnu í Garði, Hrunamannahreppi, þar sem hún kynntist eiginmanni sínum, og bjuggu þau á Flúðum síðan. Útför Anne Mie fer fram frá Skálholtsdómkirkju í dag, 2. október 2013, kl. 14. Ég bið þig ljósið fagra, að lýsa mína leið. Því dimman milli dægra, nú virðist djúp og breið. Minningarnar vefa, um hjörtun okkar fast. Og sorgina mun sefa, þín ást sem öllum gafst. (FS.) Elsku Ölli, Jónas, Tobias og Mathias. Við sendum ykkur all- an okkar styrk á þessum erfiðu tímum. Kristinn, Fríður og Ragnheiður. Elsku Anne, ég get ekki trú- að því að þú sért ekki lengur hérna með okkur og vona ég að næsti heimur taki vel á móti þér. Mig langar að minnast þín með örfáum orðum og þakka fyrir allan stuðninginn í gegn- um árin, sama hvar ég hef verið staddur þá varstu alltaf til stað- ar, mikið er ég þakklátur fyrir allt. Ég man alltaf eftir því þeg- ar þú passaðir mig sem smá polla og hvað ég gat verið erf- iður en þú lést ekkert buga þig. Við áttum margar góðar stundir saman og rosalega er ég glaður að hafa komið í mat til ykkar í júlí og átt æðislega stund með ykkur. Ég mun sakna þín óendan- lega mikið og þú munt alltaf eiga stað í huga mér og ég varðveiti allar góðu minning- arnar og hlýja mér við þær. Ég votta fjölskyldu þinni mína dýpstu samúð. Þinn Unnar Þór. Hvers vegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði.) Sú sorgarfrétt barst okkur síðastliðinn mánudag að hún Anne okkar hefði látist þá um morguninn í blóma lífsins. Sorg- in er óbærileg og erfitt að vera langt í burtu á svona stundu. Hugurinn er á Flúðum hjá ást- vinum Anne og við rifjum upp allt það skemmtilega sem við upplifðum saman í gegnum ár- in, yljum okkur við minning- arnar og brosum gegnum tárin. Anne kom til Íslands fyrir um það bil 20 árum til að vinna tímabundið við garðyrkju, fjörug og falleg stelpa með allt lífið framundan. Okkar happ er að hún dvaldi áfram á Flúðum eignaðist fjölskyldu og undi sér vel í sveitinni okkar, með strák- ana sína, hestana og hundana. Við höfum eytt mörgum stund- um með henni og fjölskyldunni við leik og störf, oft var glatt á hjalla og margt brallað saman í gegnum árin, grill, hestaferðir, Sellandsferðir, jeppaferðir, svo eitthvað sé nefnt. Takk fyrir allt sem þú gafst okkur, alla hjálpina gegnum árin og minn- ingarnar sem við eigum og munu lifa hjá okkur um ókomna tíð. Elsku Ölli, Jonas, Tobias, Mathias og fjölskyldan öll ykk- ar missir er mikill og við send- um okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Sólveig og Birgir Þór. Elsku Anne mín. Það er ótrúlegt til þess að hugsa að þú sért ekki hérna hjá okkur lengur. Margar góðar minningar hafa flogið um huga minn síðustu daga og er ég þakklát fyrir að hafa átt þig að. Ég man það svo vel þegar þú komst til Íslands með Jónas ný- lega fæddan, 10. maí 1995. Ég var 13 ára og þið bjugguð hjá okkur á Grafarbakka. Ég var heppin þá strax að fá að kynn- ast þér, elsku Anne, því þú leyfðir mér að taka þátt í öllu því sem þið voruð að gera, eins og að fara í ungbarnasund með Jónas og ferðast með þér hér í kring að skoða landið. Fyrsta utanlandsferðin mín var með þér og Jónasi þar sem við fór- um til Noregs að heimsækja fjölskylduna þína. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig, sama hvort eitthvað kom upp á hjá mér eða þegar eitt- hvað markvert gerðist. Þegar ég varð ólétt að Ingunni Lilju varst þú ein af þeim fyrstu sem ég sagði frá því. Þú studdir mig í gegnum alla meðgönguna og þegar kom að fæðingunni hætt- ir þú við að fara til Noregs í af- mæli mömmu þinnar til að vera hjá mér. Þú varst viðstödd fæð- inguna og veittir mér allan þinn stuðning sem ég svo innilega þurfti. Við mæðgur bjuggum hjá ykkur Ölla og strákunum fyrstu mánuðina sem var dýr- mætt. Ykkar dyr hafa alltaf staðið opnar fyrir okkur og þökkum við fyrir það. Í gegnum tíðina höfum við unnið saman á ýmsum stöðum, síðast í Vínbúðinni hérna á Flúðum. Þú varst mikil hesta- kona og dróst mig með á bak. Ingunn Lilja fékk svo hesta- áhugann frá okkur og varst þú alltaf boðin og búin að taka inn hross fyrir hana og hvattir hana til að fara á reiðnámskeið. Elsku Anne, það verður erfitt að læra að lifa án þín því dag- lega gerist eitthvað sem ég vil segja þér frá eða ég þarf ráð frá þér. Ég ætla að gera mitt besta í að standa með Ölla þín- um og strákunum, vera til stað- ar fyrir þá eins og þú varst allt- af fyrir okkur Ingunni Lilju. Takk fyrir allt Anne mín, minningarnar um þig lifa áfram. Þín Katrín Ösp og Ingunn Lilja. Elsku Anne okkar. Þau eru mörg tárin sem hafa runnið nið- ur kinnar undanfarna daga. Það er svo ósanngjarnt að ung kona sé hrifsuð burtu frá fjölskyldu sinni og vinum. Þú ætlaðir svo sannarlega að sigra óvininn sem sótti að þér. Af einstakri ákveðni tókstu á við hann og lengi vel voru allir vongóðir um að þú hefðir betur. Á kveðjustund hugsum við til allra góðu stundanna sem við áttum saman, barnaafmælanna þar sem fjölskyldur okkar sam- einuðust, nú síðast þegar haldið var upp á afmæli júlístrákanna okkar. Við hugsum til skötu- veislnanna þar sem við vinkon- urnar fitjuðum bara upp á nefið og átum okkar saltfisk. Við hugsum til yndislegu jóladags- veislanna, þar sem þú varst bú- in að töfra fram dýrindis veit- ingar, í ótrúlegu magni, snemma dags. Við hugsum til sólbaðsdaganna þegar við kerl- urnar sátum í marga klukku- tíma á pallinum þínum og sól- uðum okkur. Önnur okkar varð eins og freknóttur karfi en hin, þú, fallega súkkulaðibrún. Fyrir allar þessar stundir og svo margar, margar fleiri erum við svo ótrúlega þakklát. Þegar einhver fellur frá fyllist hjartað tómi en margur síðan mikið á í minninganna hljómi. Á meðan hjörtun mild og góð minning örmum vefur þá fær að hljóma lífsins ljóð og lag sem tilgang hefur. Ef minning geymir ást og yl hún yfir sorgum gnæfir því alltaf verða tónar til fsem tíminn ekki svæfir. (Kristján Hreinsson.) Elsku Ölli, Jónas, Tóbías, Mathias og aðrir ástvinir, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Við kveðjum vinkonu okkar með virðingu, þakklæti og mikl- um söknuði. Helena, Sigmundur og börn. Mér er þungt um hjartaræt- ur er ég skrifa þessar línur. Orrustan er töpuð. Hún Anne neyddist til þess að lúta í lægra haldi fyrir hinum illvíga sjúk- dómi krabbameini. Í blóma lífs- ins og þrátt fyrir ötula baráttu. Aldrei datt mér neitt annað í hug en að hún Anne hefði sigur að lokum, svo sterkur var bar- áttuviljinn. Ég er lánsöm að hafa kynnst Anne Nilsen og fengið að njóta nærveru hennar, hjálpsemi og góðmennsku sem nágranna og vinkonu í gegnum árin okkar hér á Flúðum. Nú síðastliðna 11 mánuði efldust kynni okkar og höfum við varið mörgum stund- um saman í veikindum hennar. Þetta voru lærdómsríkar og kærleiksríkar gleðistundir. Anne var heilsteypt og vönd- uð manneskja, með sterkar skoðanir. Hún var náttúrubarn, dýravinur, hestakona, dugnað- arforkur, ástfangin eiginkona og móðir. Ég tek orð sonar míns mér í munn er hann lýsti mömmunni Anne: „snilldar- mamma og það vita nú allir“. Þess bera fagurt vitni synir hennar, Jónas Rafn, Tobias Már og Mathias Bragi. Svo var hún Anne mikill fag- urkeri. Það vantaði nú ekki neitt upp á það. Ófáar veislur töfraði hún fram þrátt fyrir þróttleysið og bagalega heilsu. Hún naut þess að hafa gesti á heimilinu. Við fjölskyldan feng- um þess oft að njóta. Það eru afar dýmætar minningar. Framundan var „gourme“- kvöld okkar stelpnanna, það var Anne búin að skipuleggja. Við hlökkuðum til. En lífið er und- arlegt ferðalag. Við Maja mun- um matreiða humarinn og gera okkur glaðan dag. Það verður ólýsanlega sárt að hafa þig ekki með okkur, elsku vinkona. Við munum lyfta glösum þér til heiðurs, þú fylg- ist með af himnum ofan. Þar höldum við veislur fyrir fagur- kera síðar. Þangað ert þú núna komin, á vit nýrra ævintýra. Hún Ásdís Hrönn hefur tekið á móti þér með útbreiddan faðm- inn. Þér þótti ofur vænt um hana og saknaðir hennar. Við hin sem höldum áfram lífsgöng- unni ættum að tileinka okkur kærleika og að lifa í núinu. Það var ljúft fyrir mig að eiga þig að. Þínum anda fylgdi glens og gleði. Gamansemin auðnu þinni réði. Því skaltu halda áfram hinum megin. Með himnaríkisglens við mjóa veginn. Ég vona að þegar lífi mínu lýkur, ég líka verði engill gæfuríkur og þá við skoðum skýjabreiður saman og skemmtum okkur, já, það verður gaman. (Lýður Ægisson.) Ég bið góðan Guð um styrk fyrir fjölskyldu Anne Mie Niiuce Nilsen. Hvíl í friði. K. Kristín Daníelsdóttir. Kær vinkona er fallin frá langt fyrir aldur fram og eftir sitja eiginmaður, þrír ungir synir og ástvinir í yfirþyrmandi sorg. Minningar streyma fram í hugann um ótal samverustundir liðinna ára. Allar heimsóknirnar á Smiðjustíginn þar sem ávallt voru kræsingar á borðum og vel veitt og allir ávallt velkomnir. Allar hestaferðirnar sem Anne átti veg og vanda að þar sem hún naut sín best, úti í nátt- úrunni með hestunum sínum í góðra vina hópi þar sem kvöld- unum var varið við söng og gleði fram á nótt. Allar stund- irnar í Vesturbænum sem við áttum saman. Allir frænkuhitt- ingarnir. Anne var sterkur persónu- leiki, ákveðin með ríka réttlæt- iskennd og stórt hjarta. Henni var mjög umhugað um þá sem minna máttu sín og hún var alltaf reiðubúin til að rétta hjálparhönd ef eitthvað bjátaði á hjá sínu samferðafólki. Hún var gestrisin með eindæmum og einstaklega barngóð enda heim- ilið gjarnan yfirfullt af börnum sem undu sér vel hjá Anne og sóttu í nærveru hennar og hlýju. Anne var alla tíð með for- gangsröðunina á hreinu á með- an hún lifði, fjölskyldan var númer eitt. Strákunum sínum unni hún svo ofurheitt og þreyttist aldrei á að tala um hversu óendanlega stolt hún væri af þeim. Hún var yndisleg móðir, svona súpermamma sem var heima með strákana sína á meðan þeir voru litlir því hún vildi hugsa um þá sjálf og hún talaði oft um hversu ómetanlegt það væri að hafa haft tök á því og hversu yndislegur tími það hefði verið. Hún saknaði oft móður sinnar og fjölskyldu í Noregi og talaði alla tíð um þau af miklum kærleika. En Anne var ánægð með það líf sem hún og Ölli höfðu skapað sér saman og ræddi það oft hversu heppin þau væru í lífinu að eiga strák- ana sína og auðvitað Rósu, Skellu og hestana. Þegar Ölli gekk í gegnum erfið veikindi stóð Anne eins og klettur við hlið hans, studdi hann í hví- vetna og saman komust þau í gegnum erfiða tíma. Framtíðin var björt, Anne var svo ánægð í vinnunni sem hún sinnti af miklum metnaði og hlaut mikið lof fyrir og síðastliðið haust hóf hún nám í Reiðmanninum og var full tilhlökkunar. Alvarleg veikindi knúðu svo dyra öllum að óvörum og við tóku erfiðir tímar. En Anne var ákveðin eins og henni einni var lagið og hún ætlaði sér að sigra þessa baráttu með Ölla sér við hlið sem veitti henni ómældan styrk og einstaka umhyggju. Í ágúst síðastliðnum áttum við saman yndislega daga í Vesturbænum og uppi á Heið- arvatni með krökkunum, Kötu og Ingunni þinni sem þú áttir svo mikið í. Þér leið svo vel, tal- aðir um framtíðina og að þú ætlaðir með Ölla til Bora Bora þegar þessi veikindi væru að baki. Við gleðjumst yfir því að hafa átt saman þessa góðu daga því þetta voru okkar hinstu dagar saman. Samverustundirn- ar verða ekki fleiri að sinni, sorgin og söknuðurinn er sár en minning um kæra vinkonu lifir og þær munum við ávallt geyma í huga okkar. Elsku Ölli, Jonas, Tobias og Mathias megi kærleikurinn sem Anne umvafði ykkur ávallt með veita ykkur styrk nú og leiða ykkur áfram um lífsins veg. Lucinda og Guðbrandur. Ég heyrði því einhvers staðar haldið fram að ef fiðrildi blakaði vængjunum í lognmollu austur í Asíu gæti það komið af stað hreyfingu sem leiddi til veðra- brigða og jafnvel óveðurs. Með áframhaldandi keðjuverkun gæti þessi vængjasláttur meira að segja haft áhrif hér norður í höfum. Þetta er ekki vitlausari kenning en margar aðrar. Fiðr- ildin eru jú alltaf að blaka vængjunum og lægðirnar ganga yfir okkur ein af annarri. Segja má að þetta eigi líka við um lífið sjálft. Smáir hversdagslegir at- burðir nær og fjær hafa áhrif á líf okkar í hrærigraut tilviljana og eitt leiðir af öðru. Norskt flutningaskip kemur til viðgerðar í Kobe í Japan. Skipverji hittir þar fyrir stúlku sem honum líst vel á. Þau fella hugi saman og ákveða síðar að ganga í hjónaband og stofna fjölskyldu. Þetta voru foreldrar Anne, þau Svein og Hiroko. Anne fæddist í Japan á að- fangadag árið 1971. Fjölskyldan var þá flutt til Noregs en þegar Anne var í móðurkviði sigldu foreldrar hennar og eldri systir til Japans þar sem hún fæddist. Sex mánaða gömul flutti Anne með fjölskyldunni aftur til Nor- egs þar sem hún ólst upp til fullorðinsára. Kynni mín af Anne hófust haustið 1993. Við Ingibjörg höfðum þá nýlega flutt að Garði og vantaði aðstoð við garðyrkju- störfin. Á þeim tíma var nokkuð algengt að norskar stúlkur, lík- lega í ævintýraleit, réðu sig í vinnu á garðyrkjustöðvum á Flúðum og í nágrenninu. Þann- ig æxlaðist það að Anne, sem í raun hafði ætlað sér til Japans í eitt ár, stóð einn góðan veð- urdag hjá okkur í Garði með stóra ferðatösku. Hún kom sér fyrir í vinnukonuherberginu og var tilbúin til starfa. Það að bjóða bláókunnugri stúlku að búa með bláókunnugri fjöl- skyldu felur í sér ákveðna áhættu. Þolum við hana og þolir hún okkur? Í tilfelli Anne var þetta aldrei vafamál. Hún hafði sérstaklega þægilega nærveru, strákarnir okkar, þá litlir, hændust strax að henni og sér- staklega varð kært með henni og heimilishundinum, enda Kát- ur mikill mannþekkjari. Til stóð að Anne yrði á Íslandi í eitt ár en dvölin varð jú miklu lengri. Það voru fleiri en við fjölskyld- an í Garði sem kunnu vel við Anne. Við tókum eftir því að ungur maður frá næsta bæ, Ölvir Karl, fór að venja komur sínar í vinnukonuherbergið. Ástin hafði gripið í taumana og leiðir Anne og Ölla lágu saman upp frá því. Þau fóru að búa saman hér á Flúðum og strák- arnir komu í heiminn einn af öðrum, þrír mannvænlegir pilt- ar. Hér hafði Anne fest rætur og var komin til að vera. Anne hafði mikinn áhuga á hestum og fljótlega eftir að hún kom hingað fór hún að spyrja hvort hún kæmist ekki á hest- bak. Það var auðsótt mál og upp frá því áttum við margar góðar stundir saman í hesta- mennskunni, við útreiðar, í hestaferðum og ýmsu stússi kringum hrossin. Anne kom sér sjálf upp hrossastofni í félagi við tengdaforeldra sína á Graf- arbakka og var alltaf mikill hugur í henni þegar hrossin voru annars vegar. Hún hóf nám í reiðmennsku fyrir rúmu ári og ætlaði sér að ná meiri færni á því sviði, en veikindi hennar stöðvuðu þau áform, í bili, sagði hún sjálf. Það er sárt þegar góður vin- ur er tekinn frá manni í blóma lífsins. Ég og fjölskylda mín minnist Anne með söknuði en um leið þakklæti fyrir að hún skyldi koma við hjá okkur á sinni lífsleið, að því er virðist fyrir hreina tilviljun. Helgi Jóhannesson. Elsku Anne, ég get ekki lýst því hvað mér brá þegar ég frétti að þú værir dáin. Ég var hættur að hafa áhyggjur af þér, eftir seinni hestaferðina í sumar var ég sannfærður um að veik- indin hefðu gefist upp á að vinna þér meira mein. Þú varst svo ákveðin í að láta ekkert buga þig, og bjartsýni þín á framtíðina hafði smitandi áhrif á alla sem voru í kringum þig. Þegar ég grufla í minningar- brotunum frá því ég kynntist þér fyrst, fyrir eitthvað um tuttugu árum þegar þig rak hér á land, finn ég bara góðar minn- ingar. Af stelpunni sem hann Ölli Kalli var eitthvað að stjákla í kringum, af stelpunni sem var svo lífsglöð, annaðhvort bros- andi eða hlæjandi, af stelpunni sem gerði vin minn svo ham- ingjusaman, af konunni sem fæddi í heiminn þessa þrjá fyr- irmyndar drengi sem þú unnir svo heitt, af konunni sem var alltaf tilbúin að hjálpa þeim sem þurftu á hjálp að halda, af kon- unni sem gerði heiminn betri með því einu að vera til. Elsku Anne, það er svo óend- anlega sárt að horfa á eftir þér, en ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst þér og kallað þig vin, takk fyrir að hafa verið til. Þórarinn Valgeirsson. Kær vinkona er látin langt fyrir aldur fram. Fyrstu kynni okkar af Anne var þegar Ölli kynnti hana fyrir ættinni á stóru ættarmóti. Alltaf er nú erfitt að takast á við svo stóran hóp af ókunnugu fólki en það vafðist ekki fyrir henni. Kom þar strax í ljós að hún naut sín í hópnum. Fljótt náði Anne sterkum tengslum við þennan hóp og tók oft að sér að verða límið sem hélt okkur saman. Hún var ein af upphafsmönnum frænkuklúbbsins sem reyndi að hittast reglulega, borða, hlæja og skiptast á sögum. Jafnframt var hún forvígismaður og að- alskipuleggjandi árlegrar hesta- ferðar sem við vorum svo hepp- in að fá að taka þátt í. Anne var mikil hestakona og vafðist það ekki fyrir henni að leiða hóp af fólki með sér upp á hálendið, skipuleggja, stýra og stjórna okkur öllum. Þrátt fyrir veik- indi sín hélt Anne sínu striki og fórum við undir hennar stjórn í ferð síðastliðið sumar og fyrir það erum við ævinlega þakklát. Anne hafði gaman af því að hafa fólk í kringum sig og var mikill gestagangur á heimili hennar og Ölla. Hún bjó drengj- unum sínum gott og glaðvært heimili þar sem alltaf var tekið vel á móti fólki, hvort sem það voru vinir drengjanna, ættingj- ar eða vinir. Anne hafði búið sér heimili á Íslandi en hélt þó allt- af í sínar norsku rætur sem hún var stolt af. Enda gleymdist það stundum að hún var ekki borin og barnfædd hér á landi enda hafði hún náð afburðatökum á íslensku. Við kveðjum góða vinkonu með þakklæti fyrir góðar stund- ir og vináttu. Við sendum Ölla, sonunum, móður, systkinum og öðrum fjölskyldumeðlimum okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Kristín og Ari. Anne Mie Niiuchi Nilsen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.