Morgunblaðið - 02.10.2013, Síða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 2013
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Rokkhátíðin Rokkjötnar II verður
haldin í íþróttahúsinu í Kaplakrika
í Hafnarfirði á laugardaginn, 5.
október. Tíu hljómsveitir koma
fram á hátíðinni og þær ekki af
verri endanum: Bubbi Morthens og
Jötnarnir, Sólstafir, Agent Fresco,
Dimma, The Vintage Caravan, Leg-
end, Kontinuum, Ophidian I,
Strigaskór Nr. 42 og Saktmóðígur.
Kristinn Thorarensen, skipu-
leggjandi hátíðarinnar, segir Rokk-
jötna hafa heppnast afskaplega vel
í fyrra og að hljómsveitirnar verði
tveimur fleiri í ár. Boðið verði upp
á það besta í íslensku rokki af
þyngri gerðinni. „Það er líka okkar
stefna að heiðursmenn eins og
Bubbi Morthens, sem er aðalatriðið
í ár, fái sinn sess líka því hann á
stóran þátt í rokksögunni, alveg
gríðarlega stóran,“ segir Kristinn.
Jötnana skipa gítarleikararnir
Beggi Morthens og Ingó Geirdal,
Flosi Þorgeirsson bassaleikari og
trommuleikarinn Björn Stefánsson.
„Þetta er algjör monster-grúppa.
Þeir ætla að spila Utangarðs-
manna, Egó og Das Kapital kata-
lóginn. Kassagítarinn verður skil-
inn eftir heima, það er allt brjálað,
bullandi „Hiroshima“,“ segir Krist-
inn um Bubba og Jötnana. Það hafi
verið magnað að fylgjast með þeim
á æfingum og ljóst að Bubbi sé í
fantaformi. Þeir hafi auk þess farið
í hljóðver og gert nýja útgáfu af
laginu „Loksins loksins“ af plötu
Bubba, 3 heimar, frá árinu 1994.
„Það er búið að djúsa það vel upp
og það er brjálæðislega flott,“ segir
Kristinn um lagið.
Af öðrum sveitum sem hafa
marga rokkfjöruna sopið má nefna
Strigaskó nr. 42 sem gaf út plötu
fyrir skömmu. „Það er líka okkar
stefna að reyna aðeins að sparka
mönnum fram úr rúminu sem hafa
verið lengi í dvala. Það verður gam-
an að sjá þá,“ segir Kristinn um þá
ágætu sveit. Af öðrum spennandi
megi svo nefna tríóið The Vintage
Caravan sem samið hafi nýverið við
eitt stærsta útgáfufyrirtæki heims í
þungarokksgeiranum, hið þýska
Nuclear Blast. „Svo verður Tóna-
búðin með sýningu á gíturum og
mögnurum, Tattóstofan er að tattó-
vera, að taka pantanir í tattó, Ham-
borgarafabrikkan fyrir utan að
selja hamborgara. Þetta er bara
gleði,“ segir Kristinn.
Saktmóðígur stígur fyrst á svið í
Kaplakrika, kl. 15 og Bubbi og
Jötnarnir ljúka hátíðinni, hefja leik
um miðnætti. Miðasala fer fram á
midi.is.
Ljósmynd/Bowen Staines
Rokkveisla Bubbi og Jötnarnir, aðalatriði Rokkjötna II, á æfingu.
Kassagítarinn
skilinn eftir heima
Tíu rokksveitir á Rokkjötnum II
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Önnur sólóplata Daníels Bjarnason-
ar tónskálds, Over Light Earth, kom
út á mánudaginn var á vegum
Bedroom Community. Fyrri plötur
hans, Sólaris (2012) og Processions
(2010), hlutu afbragðs dóma og
óhætt er að segja að þessi nýi diskur
sé unninn af miklum metnaði. Á hon-
um eru þrjú verk. Titilverkið „Over
Light Earth“ var frumflutt í lok síð-
asts árs af Fílharmóníuhljómsveit-
inni í Los Angeles undir stjórn
Johns Adams, og hlaut afar góðar
viðtökur; „Emer-
gence“ var frum-
flutt á Myrkum
músíkdögum í
fyrra en Loka-
verkið „Soli-
tudes“ er eldra,
en það er fyrsti
píanókonsert Daníels. Platan er
sögð unnin á nýstárlegan hátt með
aðstoð Valgeirs Sigurðssonar og
Pauls Evans upptökustjóra, og hinn-
ar nýstofnuðu Reykjavík Sinfónía.
Dudamel stjórnar nýja verkinu
„Fyrri tvo verkin eru tiltölulega
nýleg en píanókonsertinn er hins
vegar að verða tíu ára gamall. Hann
var fyrsta verkið sem ég tók upp
með Valgeiri þegar við fórum að
vinna saman fyrir um fjórum árum,“
segir Daníel. „Verkið passaði ekki á
síðustu plötu en eftir að Valgeir og
Ben Frost höfðu fengið leyfi til að
bæta ofan á upptökuna einu elek-
trónísku lagi, þá var hann kominn í
gott samhengi við nýju verkin.“
Daníel segir þetta allt vera verk
fyrir stóra hljómsveit en hljóðrituð á
óvenjulegan hátt. Platan var tekin
upp í bútum, þar sem hljóðfæraleik-
ararnir léku hver í sínu lagi eða í
litlum hópum. „Fyrir vikið er hljóm-
urinn allt annar en ef hljómsveitir
eru hljóðritaðar „læf“,“ segir hann.
„Þetta var mjög spennandi upp-
tökuferli og meira í ætt við það sem
tíðkast við upptökur á allri annarri
tónlist en klassískri. Ég er skráður
sem hljómsveitarstjórinn en sveifl-
aði lítið sprota heldur sat í hljóð-
verinu og var meira eins og leik-
stjóri.
Þetta var tímafrekt ferli og eftir-
vinnslan mjög flókin, þetta voru svo
margar rásir. Það var ekki fyrr en
frekar seint í ferlinu að við gátum
heyrt öll hljóðfærin saman, annars
hefðum við sprengt kerfið. Þetta
voru hátt í tvö hundruð rásir.“
Aðstandendur plötunnar mega
vera ánægðir með afraksturinn, sem
hljómar afar vel og verkin eru seið-
mögnuð og hrífandi. En Daníel seg-
ist stefna að því að hafa færri hljóð-
færi á næstu plötu.
„Ég er þegar með hana í mag-
anum þótt ég eigi eftir að skrifa tón-
listina,“ segir hann. „Það væri
áhugavert að vera með verk á henni
sem væri auðveldara að leika á tón-
leikum og fylgja þannig eftir.“
Fyrst þarf hann þó að leggja loka-
hönd á nýtt verk sem Fílharm-
óníuhljómsveitin í Los Angeles pant-
aði og verður flutt á fernum
tónleikum undir stjórn hins heims-
fræga Dudamels, í efnisskrá með
verkum eftir Rachmaninoff og Stra-
vinsky. „Þetta er um tíu mínútna
langt hljómsveitarverk. Hljóm-
sveitin mun einnig flytja það á tón-
leikaferð um Bandaríkin, meðal ann-
ars í New York og í San Francisco.“
Þá bíður Daníels að skrifa verk fyrir
Kammerkór Hollands og blásara-
kvintettinn Calefax. „Eftir það get
ég farið að huga að nýrri plötu,“ seg-
ir hann.
„Þetta var mjög spenn-
andi upptökuferli“
Ný sólóplata Daníels Bjarnasonar Hátt í 200 rásir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tónskáldið „Það var ekki fyrr en frekar seint í ferlinu að við gátum heyrt
öll hljóðfærin saman, annars hefðum við sprengt kerfið,“segir Daníel.
LifunTíska og förðun
–– Meira fyrir lesendur
:
Morgunblaðið
gefur út glæsilegt
sérblað um
Tísku og förðun
föstudaginn
11. október 2013.
SÉ
RB
LA
Ð
Tíska & förðun
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16,
mánudaginn 7. október.
Í blaðinu verður
fjallað um tískuna
haust/vetur 2013
í förðun, snyrtingu og
fatnaði, fylgihlutum
auk umhirðu
húðarinnar, dekur
og fleira
Sunnuhlíð 12, Akureyri, sími 462 1415
www.tonabudin.is
Síðumúla 20, Reykjavík, sími 591 5340
www.hljodfaerahusid.is
Yamaha píanó og flyglar
með og án “silent” búnaðar.
Áratuga góð reynsla gerir
Yamaha að augljósum kosti
þegar vanda skal valið.
Veldu gæði,
veldu