Morgunblaðið - 09.11.2013, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 09.11.2013, Qupperneq 1
L A U G A R D A G U R 9. N Ó V E M B E R 2 0 1 3  261. tölublað  101. árgangur  VILL GLEÐJA AÐRA OG KOMA Á ÓVART FERLIÐ FRÁ DAUÐA TIL GRAFAR LILJA LIND BEST Í ÓLYMPÍSKUM LYFTINGUM SUNNUDAGUR MEISTARI ÍÞRÓTTIRTÖFRAMAÐUR 10 ÁRA STOFNAÐ 1913 Framkvæmdir standa nú yfir á Þingvöllum við gerð útsýnispalls við Öxarárfoss. Hætta er talin á að troðningur og álag spilli svæðinu að óbreyttu og því var farið í þetta verkefni sem starfsmenn verktaka- fyrirtækisins Pálmtrés hafa með höndum. Að verkstaðnum er hins vegar nokkuð torfært. Þurfti að flytja tíu tonn af timburfjölum og því var gripið til óvenjulegra ráða. Leigð var þyrla frá Norð- urflugi til flutninga og tók ekki nema um hálftíma að flytja tæplega tíu tonn af timbri. „Það hefði eiginlega verið ógjörningur að koma timbrinu inn í gjána nema með því að bera það inn og það hefði tekið langan tíma og fjölda manns hefði þurft til,“ segir Einar Á.E. Sæmundsen, fræðslu- fulltrúi í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Á döfinni eru ýmsar fleiri framkvæmdir eystra sem eru taldar mjög aðkallandi vegna álags. Er talið að á bilinu 500- 600 þúsund gestir komi á Þingvelli á ári hverju eða 80-90% erlendra ferðamanna sem til landsins koma. sbs@mbl.is Flogið með tíu tonn af timbri Ljósmynd/Einar Á.E. Sæmundsen Þyrla notuð í timburflutninga á Þingvöllum Rúnar Pálmason Guðni Einarsson Ríkissjóður mun á þessu ári inn- heimta 17 milljarða í skatta af ferða- þjónustu og fær 10 milljarða í viðbót ef allt er talið með, að sögn Önnu Dóru Sæþórsdóttur, dósents í ferða- málafræði við Háskóla Íslands. Samt áformi stjórnvöld að leggja á nýjan skatt – náttúrupassa – til að standa straum af viðhaldi og uppbyggingu ferðamannastaða, án þess að láta fyrst kanna hvaða áhrif passinn hafi á ferðamennina, ferðaþjónustuna og ferðalög Íslendinga. að náttúrupassi sé vænlegasta leiðin en stjórnvöld hyggjast byggja á þeirri skýrslu þegar ákveðið verður hvernig standa á að gjaldtöku næsta sumar. Athugasemdir til ráðherra Í skýrslu BCG sé lagst gegn komu- eða brottfarargjaldi, m.a. á þeirri for- sendu að ósanngjarnt sé að ferða- menn á leið á ráðstefnur borgi fyrir uppbyggingu við náttúruperlur. Um leið sé litið fram hjá þeirri staðreynd að viðskiptaferðamenn noti ýmislegt sem íslenskir skattgreiðendur hafa borgað, svo sem vegi og ráðstefnusali í Hörpu. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, málstofustjóri í málstofu um sjálf- bæra landnýtingu á umhverfisþingi í gær, sagði að allir sem tóku til máls í almennum umræðum hefðu lýst efa- semdum um náttúrupassa. Í þeim hópi var m.a. fólk sem starfar á vernduðum svæðum. „Margir stóðu upp og töldu þetta ekki réttu leiðina. Enginn mælti með þessu,“ sagði Guðmundur Ingi. Því var beint til umhverfisráðuneytisins að koma þessum athugasemdum á framfæri við iðnaðarráðherra. Varað við því að stjórnvöld æði af stað með náttúrupassa  Enginn mælti með upptöku náttúrupassa í umræðum á umhverfisþingi í gær Anna Dóra var- ar eindregið við því að stjórnvöld æði af stað með náttúrupassa, án þess að áhrifin hafi fyrst verið rann- sökuð. Í raun séu stjórnvöld þó fallin á tíma því ferða- þjónustufyrirtæki séu þegar búin að gefa út verðskrár, án þess að geta gert ráð fyrir kostnaði við náttúru- passa. Hún gagnrýnir niðurstöðu Boston Consulting Group (BCG) um Anna Dóra Sæþórsdóttir MPassinn hvorki í sátt … »6  Ingvar Unnsteinn Skúlason, fram- kvæmdastjóri íslenska félagsins Klappir Development, segir Kín- verska þróunarbankann reiðubúinn að fjármagna uppbyggingu 120.000 tonna álvers á iðnaðarsvæðinu á Bakka við Húsavík. Gert er ráð fyrir að heildar- fjárfesting verkefnisins nemi um 43 milljörðum íslenskra króna og hefur Landsvirkjun undirritað viljayfirlýs- ingu um að fyrirtækið sé tilbúið að hefja viðræður við forsvarsmenn Klappa vegna afhendingar á 100 MW fyrir árið 2016. »28 Vilja reisa 120.000 tonna álver á Bakka  Kaffihús verður opnað í húsnæði antikverslunarinnar Fríðu frænku á Vesturgötu í vor. Það er kaffi- húsið Stofan, sem er nú við Aðal- stræti, sem flytur í húsið og þar verður rekið kaffihús á tveimur hæðum sem verður með sæti fyrir 150 gesti. Stofan verður tíundi veit- ingastaðurinn við Grófartorg en á þeim litla miðdepli Reykjavíkur- borgar virðist vera vinsælt að vera með veitingarekstur. Ekki verður farið í miklar breyt- ingar á húsnæðinu, sem er sögu- frægt. „Því verður ekkert breytt utanhúss og það er margt fallegt og skemmtilegt innanhúss sem fær að njóta sín. Þetta hús hefur mikið sögulegt gildi og hefur sett sterkan svip á svæðið,“ segir Haukur Ingi Jónsson, eigandi Stofunnar, en ásamt honum mun Vilborg Ása Dýradóttir reka Stofuna á nýjum stað. »6 150 manna kaffihús opnað í vor í hús- næði Fríðu frænku Verslun Fríða frænka hættir rekstri í apríl. Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Aukinnar bjart- sýni og tiltrúar á landshlutann gætir meðal Sunnlendinga. Stöðugleiki ein- kennir atvinnu- vegi og afkomu fólks. Ferða- þjónusta er helsti vaxtar- sproti atvinnulífsins og það er henni að þakka að lítil og til- tölulega fámenn byggðarlög sem átt hafa í vök að verjast hafa náð viðspyrnu. Þetta er meðal þess sem fram kom í hringborðsumræðum um málefni Suðurlands sem Morgun- blaðið efndi til í tengslum við 100 daga hringferð blaðsins um landið. Greint er frá umræðunum á tveimur opnum í blaðinu í dag. Þátttakendur í umræðunum lögðu m.a. áherslu á að arður af ferðaþjónustu héldist innan lands- hlutans og nýttist til frekari upp- byggingar. »20-27 Ferðaþjón- ustan vaxt- arbroddur  Bjartsýni og tiltrú meðal Sunnlendinga Geysir í Haukadal.  Fimm tilboð hafa borist í Bern- höftstorfuna í Reykjavík en um er að ræða húseignirnar Bankastræti 2, Lækjargötu 3 og Amtmannsstíg 1. Að sögn Kjartans Hallgeirssonar, fasteignasala hjá Eignamiðlun, eru tilboðsgjafar fagaðilar og fjárfestar. Unnið verður úr tilboðunum yfir helgina og ætti niðurstaða að liggja fyrir á allra næstu dögum. Eign- irnar, sem allar eru í útleigu, verða seldar í einu lagi en séreignarflat- armál þeirra er 1.812 fermetrar. Morgunblaðið/Þorkell Til sölu Bernhöftstorfan í Reykjavík. Fimm tilboð borist í Bernhöftstorfuna  Unnið er að tveimur íslenskum rafbókaveitum þar sem hægt verð- ur að streyma rituðu máli. Fram- kvæmdastjóri eBóka segir að horft sé til lausna á borð við tónlistarveit- una Spotify en enn eigi eftir að ganga frá samningum við útgef- endur. Áhersla verði lögð á íslenskt efni til að byrja með. »19 Íslenskar rafbóka- veitur í undirbúningi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.