Morgunblaðið - 09.11.2013, Side 4

Morgunblaðið - 09.11.2013, Side 4
Upprennandi listamenn fóru blys- för frá Norræna húsinu að Ægisíðu í gær og kveiktu þar í elds- kúlptúrum til að fagna myrkrinu að fornum sið. Um var að ræða há- punkt námskeiðs sem tvær finnskar listkonur héldu fyrir nemendur list- kennsludeildar Listaháskólans og níu ára nemendur Hjallastefn- unnar, þar sem þeir lærðu að búa til eldskúlptúra með aldagamalli að- ferð frá Lapplandi. Myrkrinu fagnað að fornum sið Morgunblaðið/Kristinn Eldskúlptúrar við Ægisíðu Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Rannsóknaskipið Dröfn var í gær við síldarleit í norðanverðum Breiðafirði og er fyrirhugað að skip- ið haldi áfram leit þar í dag, en fregnir bárust nýlega um mikið hvalalíf og síld suður af Flatey. Ljóst þykir að meginhluti stofns ís- lenskrar sumargotssíldar hefur ekki gengið inn á svæði í grennd við Stykkishólm og í Kolgrafafjörð þar sem hún hefur haldið sig síðustu vetur. Vangaveltur eru um hvort síldin hafi fundið sér nýjar vetr- arstöðvar, sem hefur gerst mörgum sinnum á síðustu áratugum. Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri nytjastofnasviðs Hafrannsókna- stofnunar, segir að við mælingar í síðustu viku hafi lítið fundist af síld á sunnan- verðum Breiða- firði í grennd við Stykkishólm og Grundarfjörð. Afli skipanna hafi ekki verið mikill á þessum slóðum í haust, þó svo að góð köst hafi feng- ist á milli. Dröfninni, sem var á leið í mæl- ingar á smásíld fyrir Norðurlandi, hafi því verið snúið við til leitar að síld í Breiðafirði, m.a. á svæðum sem eru erfið fyrir stóru skipin. Dröfnin byrjaði leitina í gær undan Barðaströnd, Vatnsfirði, Kerlingar- firði og Kjálkafirði. Á næstunni verður farið í hefð- bundna leiðangra til rannsókna á Bjarna Sæmundssyni og Dröfn fer til rannsókna á smásíld að lokinni leitinni í Breiðafirðinum. Að þessum verkefnum loknum ætti að hafa skýrst hvar síldin heldur sig. Vísbendingar hafa verið um að yngri síldin hafi í auknum mæli haft vetursetu við Suðausturland, en eldri árganga væri frekar að finna í Breiðafirði. Síldveiðar í haust renna stoðum undir þessa kenningu því mest hefur fengist af stærri og eldri síld í Breiðafirðinum. Í fyrravetur var talið að um fjórð- ungur stofnsins hefði haldið sig utan Breiðafjarðar. Við síldarleit í Breiðafirði  Vangaveltur um hvort síldin hafi fundið sér nýjar vetr- arstöðvar  Fregnir um hvali og síld nálægt Flatey Þorsteinn Sigurðsson SVIÐSLJÓS Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Kaffihúsið Stofan, sem nú er við Að- alstræti, flytur inn í húsnæði antik- verslunarinnar Fríðu frænku við Vesturgötu í vor. Fríða frænka mun hætta rekstri í apríl og segir Haukur Ingi Jónsson, eigandi Stofunnar, að þau stefni á að opna kaffihúsið þar í maí. Haukur er einn eigandi Stofunnar sem stendur en Vilborg Ása Dýra- dóttir kemur inn í reksturinn með honum á nýja staðnum. Stofan er nú með sæti fyrir fimm- tíu gesti en húsnæði Fríðu frænku er um 250 fermetrar og á tveimur hæðum. Það getur tekið við 148 gestum samkvæmt skipulagi, en Haukur segir að þau ætli að hafa kaffihúsið á báðum hæðunum. „Stofan hefur ekki annað öllum sem vilja koma inn, það eru margir sem þurfa frá að hverfa á degi hverj- um,“ segir Haukur spurður hvort það sé ekki stórt stökk að auka sætafjöldann um hundrað á einu bretti. Haukur áætlar fimm vikur í und- irbúning á húsnæðinu eftir að versl- unin er farin úr því í vor. Öll tilskilin leyfi eru komin og verið er að klára teikningar hjá byggingarfulltrúa. Sama rekstrarform Stofan er veitingastaður í flokki tvö, þar er opnað klukkan átta á morgnana og er opið til eitt eftir miðnætti. Haukur segir að þau ætli ekkert að breyta rekstrinum í nýju húsnæði, rekstraformið verði áfram það sama. „Við höldum sama rólega fyrirkomulaginu, verðum með kósí- umhverfi og þægilegt andrúmsloft. Þetta verður áfram eingöngu kaffi- hús en við munum bæta við úrvalið sem við erum með í brauði og kökum og vera góð í morgunmatnum, vín- og bjórúrvali.“ Eins og sjá má á meðfylgjandi korti verður Stofan tíundi veitinga- staðurinn við Grófartorg, í miðju Reykjavíkur. Samkvæmt upplýs- ingum frá lögreglunni eru 290 staðir með vínveitingaleyfi í Reykjavík nú. Spurður hvort ekki sé komið nóg af veitingastöðum og kaffihúsum í mið- bænum svara Haukur neitandi. „Það eru of fáir staðir yfir sum- artímann til að anna eftirspurn. Það eru margir veitingastaðir en ekki svo mörg kaffihús. Ferðamennirnir streyma nú þegar til okkar og við sjáum fyrir okkur straum af Íslend- ingum yfir vetrartímann. Staðsetn- ingin er góð, alveg við Vesturbæinn og svo á að fara þétta byggð við höfnina og þetta er við tengigötuna í Kvosinni á milli hafnarinnar og mið- bæjarins.“ Hús með mikla sögu Húsið Vesturgata 3 hefur löngum sett svip sinn á miðbæinn, það var byggt árið 1842 og í því var lengi rekin rakarastofa og enska búðin Liverpool. Fríða frænka hefur verið í húsinu í um þrjátíu ár. Ekki verður farið í miklar breyt- ingar á húsnæðinu að sögn Hauks. „Því verður ekkert breytt utanhúss og það er margt fallegt og skemmti- legt innanhúss sem fær að njóta sín. Þetta hús hefur mikið sögulegt gildi og hefur sett sterkan svip á svæðið. Húsið verður áfram með þessu gamla þema, fólk fílar kósístemn- ingu auk þess sem ekki væri hægt að setja Stofuna inn í steypta nútíma- byggingu.“ Haukur segir að þau hafi þurft að rýma húsnæðið sem Stofan er í núna vegna framkvæmda fyrir Landssím- areitinn. En það á að taka það í gegn og aðlaga nýjum reit. Haukur leigði húsið undir reksturinn en hann kaupir hús Fríðu frænku. Stofan kemur í stað Fríðu frænku  Kaffihús sem getur tekið 150 gesti opnað í Grófinni í vor  Verður tíundi veitingastaðurinn á litlum bletti  Búast við stöðugum straumi  Útlit hússins Vesturgötu 3 fær að halda sér Veitingastaðir og kaffihús við Grófartorg Vesturgata Vesturgata Gró fin Að al st ræ ti Hafnarstræti Tryggvagata Hlölla bátar Ingólfstorgi Rub23 Aðalstræti 2 Geysir (bistro bar) Aðalstræti 2 Tapas Barinn Vesturgötu 3b Fríða frænka Vesturgötu 3 Stofan flyst þangað Restaurant Reykjavík Vesturgötu 2 Uno Hafnar- stræti 1-3 Tabasco´s Hafnar- stræti 1-3 Iða Zimsen bókakaffi Vesturgötu 2a Fiskfélagið Vesturgötu 2a Loftmyndir ehf. Morgunblaðið/Árni Sæberg Kaffihús Haukur Ingi Jónsson við afgreiðsluborðið í Stofunni sem er nú í Aðalstræti og tekur fimmtíu manns í sæti. Alltaf er fullt út úr dyrum. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013 Sigurborg Kr. Hannesdóttir, forseti bæjarstjórnar Grundarfjarðar- bæjar, segir brýnt að grípa til að- gerða í Kolgrafafirði sem allra fyrst til að reyna að koma í veg fyrir að síld drepist í firðinum. Hún tekur undir með Huga Ólafssyni, formanni tengiliðahóps um verkefnið, þess efnis að raunhæfasti kosturinn í vet- ur sé trúlega girðing utan við brú til að fæla síldina frá. Þó að óvissa sé um hvar síldin heldur sig núna geti hún í ár eða á næstu árum þjappað sér saman inni á Kolgrafafirði. Vilji hefur komið fram í bæjar- stjórninni þess efnis að firðinum verði lokað varanlega með stálþili eða á annan hátt. Sigurborg segir að hún hafi skilning á að slík fram- kvæmd taki langan tíma og þurfi að undirbúa vel. Tilraun með fæling- argirðingu með hvítum fjölum sé hugmynd sem sé þess virði að prófa og virðist vera vel framkvæmanleg. Fyrstu áætlanir bentu til þess að slík girðing myndi kosta 60- 80 milljónir, en Sigurborg segir að nánari skoðun bendi til þess að sá kostnaður sé mun lægri. „Þessir atburð- ir í Kolgrafafirði í fyrra sitja mjög í fólki í sveitarfé- laginu sem er eðlilegt því í raun var um náttúruhamfarir að ræða,“ segir Sigurborg. „Við höfum áhyggjur af því hversu langan tíma þetta tekur í stjórnsýslunni, en það skýrist að ein- hverju leyti af því að málið er bæði stórt og snúið og engar augljósar lausnir sem við höfum tryggingu fyrir að skili árangri. Það þarf samt að stíga skref, þrátt fyrir þessa óvissu. Girðing með skiltum og eftir atvik- um ljós, hljóð og loftbólur eru góð byrjun og árangurinn myndi skila sér inn í ákvarðanatöku fyrir lausn til lengri tíma, sem þarf að koma til framkvæmda fyrir næsta vetur. Mér finnst gríðarlega mikilvægt að við sjáum sem fyrst einhverjar aðgerðir til þess að reyna að koma í veg fyrir að síldin komist inn fyrir brú. Við megum ekki gefast upp fyrir við- fangsefninu heldur verður að gera allt í mannlegu valdi til að koma í veg fyrir að svona gerist aftur.“ Sigurborg segir að vissulega kosti allar aðgerðir peninga, en ekki megi gleyma því að tjón þjóðarbúsins í síldardauðanum í fyrravetur hlaupi á milljörðum og hreinsunarstarfið hafi kostað tugi milljóna. Þá hafi verið hægt að grafa mikið af síldinni í fjörunni við Kolgrafafjörð, en slíkt verði ekki mögulegt gerist sambæri- legir atburðir aftur. aij@mbl.is Sigurborg Kr. Hannesdóttir Brýnt að grípa til aðgerða

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.