Morgunblaðið - 09.11.2013, Page 10
Ímyndunarafli mannsins eru stund-
um engin takmörk sett. Svo er það
annað mál hvort ímyndunarafli og
hugarflugi sé gefinn laus taumurinn
og hugmyndirnar fari í framkvæmd.
Það er ekki endilega þannig.
Á vefsíðunni www.incredible-
things.com er hægt að skoða ótrú-
lega hluti og suma þeirra má kaupa.
Hárkolluhúfa er sannarlega eitthvað
sem ekki sést oft í klæðaburði
landsmanna en hún getur verið dul-
argervi á vissan hátt um leið og hún
heldur hita á þeim sem hyggst fela
sig.
Brauðrist sem lítur út eins og VW
rúgbrauð getur glatt einhvern og
það sama má eflaust segja um sjálf-
lýsandi ís og risastóran hamborgara-
stól. Allt er þetta eitthvað sem
kryddar tilveruna en vel má komast
af án þessara hluta.
Hér hafa ýmsir hugmyndasmiðir
og listamenn gefið hugarfluginu
rækilega lausan tauminn og sem
betur fer var einhver til í að hlutgera
hugmyndirnar. Búningur úr blaðsíð-
um bókarinnar Fimmtíu gráir skugg-
ar og kjóll úr Subway-umbúðapappír
eru þar á meðal. Skemmtileg síða
sem kætir og gleður.
Vefsíðan www.incrediblethings.com/
Húfa Hér er ein-
staklega gott og
hagnýtt dulargervi
sem þó er hægt að
lifa án.
Ótrúlega furðulegir hlutir
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013
Morgunblaðið/Malin Brand
Ófeiminn Það getur verið gott fyrir börn að læra að töfra. Þau öðlast sjálfstraust við að stíga fram og leika listir
sem gleðja aðra. Sjálfur hefur Einar Míkael aldrei verið feiminn en hann hefur séð börn sigrast á feimni með töfrum.
Malín Brand
malin@mbl.is
Einar Míkael er lærðursmiður en kemur fólkifrekar á óvart sem töfra-maður en smiður og nýtur
hann þess að töfra sem oftast fyrir
aðra.
„Það vantar fleiri töframenn á
Íslandi. Sérstaklega stelpur sem
töfra,“ segir Einar Míkael. Hann hef-
ur glatt marga með töfrabrögðum
síðastliðin ár en skemmtilegast þykir
honum að gleðja börn og hann kennir
þeim töfrabrögð. Þetta er eitthvað
sem allir geta lært upp að vissu marki
og það að sýna hópi fólks töfrabrögð
gerir mikið fyrir þann sem töfrar.
Hann þarf að standa frammi fyrir
hópi, sýna hvað hann getur og koma
öllum í opna skjöldu. Nánast und-
antekningarlaust vekur slíkt kátínu á
meðal áhorfanda og í augum Einars
Míkaels er þetta það besta við að
kenna börnum að töfra, jah, eða
galdra. Niðurstaðan er sú sama og
sömuleiðis merkingin.
Aldrei verið feiminn
Einar Míkael hitti töframann í
fyrsta sinn augliti til auglitis þegar
hann var þrettán ára gamall. „Ég
hafði heyrt um þá en aldrei séð slík-
an.“ Þá lærði hann sitt fyrsta töfra-
bragð og síðan þá hefur hann aldrei
skorast undan að leika listir sínar op-
inberlega. Hann er langt frá því að
vera feiminn svo sviðsframkoman er
ekkert stórmál.
„Ég hef aldrei verið feiminn og
hef það frá mömmu minni. Hún hefur
sagt mér að ég hafi fæðst glaður,
fæðst brosandi og það hefur bara ein-
hvern veginn haldist þannig. Ég hef
bara alltaf verið þannig,“ segir Einar
Míkael sem fæddist í Keflavík en sé í
rauninni bæði úr Keflavík og Vest-
mannaeyjum. Það segir hann að sé
töfrablanda.
Hann fer oft til Eyja, þótt hann
hafi ekki búið þar. Ekki ennþá en
hann er sannfærður um að hann eigi
það eftir. „Ég er súperstjarna í Eyj-
um. Alltaf þegar ég er með sýningu
þá bara mætir öll eyjan,“ segir hann.
Þegar Ísland fór á hvolf
Það gerist varla af sjálfu sér að
einhver fari að starfa sem töframað-
ur. Þegar Einar Míkael rennir yfir
síðustu árin er ljóst að margir þættir
spiluðu inn í. „Töfrabrögðin voru allt-
af bara áhugamál hjá mér og ég fór
ekki að vinna við þetta fyrr en Ísland
fór á hvolf. Ég er lærður húsasmiður
og elska að smíða. Að gera eitthvað
með höndunum og skapa eitthvað.
Ég hafði stefnt markvisst að því að
Börn elska að gera
eitthvað ótrúlegt
Hann fæddist brosandi og hefur alla tíð haft einstakt jafnaðargeð. Töframaðurinn
og smiðurinn Einar Míkael hefur einstakt lag á að koma öðrum til að brosa og
gleyma bæði stund og stað. Köllun hans í lífinu er að gleðja aðra og koma þeim á
óvart, sérstaklega börnum. Þegar hann var lítill átti hann sér fyrirmynd og hann
ætlaði að verða eins og hún. Fyrirmyndin var sterki smiðurinn, pabbi.
Í kvöld klukkan 18 verður haldin sér-
stök dansmessa á Dansverkstæðinu,
Skúlagötu 30. Messan nefnist Dans-
Andi og er fyrsti þáttur hennar jóga
til að undirbúa líkamann fyrir dans-
inn síðar um kvöldið.
Helga Kristín Gunnarsdóttir jóga-
kennari við Jógastúdíó heldur utan
um jógatímann. Því næst tekur við
svokallað kiirtan, eða möntrusöngur
og dans. Dansinn leiðir Ásgeir Jóel
Jacobsson úr Ananda Marga. Næst er
jógadans þar sem dansað er í gegn-
um orkustöðvar líkamans í frjálsu
flæði. Við tekur tveggja klukkustunda
jóga-„reif“ við tónlist Terrordisco
(Sveinbjörn Pálsson).
Dansmessan endar á hugleiðslu og
slökun klukkan 23.
Að sögn aðstandenda messunnar
opnar DansAndi leið fyrir fólk til að
skemmta sér án áfengis og fá útrás
auk þess að kynnast fólki í svipuðum
hugleiðingum og tengja inn í sinn
innsta kjarna.
Endilega ...
... dansaðu
í dansmessu
Skartgripa-
hönnuðurinn
Hansína Jens
hefur um ára-
bil hannað
undir nafninu
HJ. Hún er
komin af
miklu lista-
fólki en for-
eldrar hennar, Ingibjörg Ólafsdóttir
og Jens Guðjónsson stofnuðu
skartgripa- og gjafavöruverslunina
Jens árið 1965. Fyrirtækið hefur
alla tíð verið rekið af fjölskyldunni
og strax í upphafi tóku þau Jón
Snorri og Hansína þátt í að hanna
og smíða skartgripi ásamt for-
eldrum sínum.
Nú selja þau systkin muni sína í
Kringlunni þar sem verslunin er.
Auk þeirra systkina starfa dætur
Jóns Snorra hjá fyrirtækinu sem
brátt fagnar hálfrar aldar afmælinu.
Hansína Jens í samstarf
Systkini selja
saman skart
Íslenskt Hálsmen
eftir Hansínu Jens.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími: 534 9600 · heyrn.is
Erum með allar gerðir
af heyrnartækjum
Fáðu heyrnartæki til reynslu
og stjórnaðu þeim með
ReSound Appinu
Komdu í
greiningu hjá
faglærðum
heyrnar-
fræðingi
Heyrðu umskiptin og
stilltu heyrnartækin
í Appinu
Finndu okkur á facebook
Frí heyrnargreiningog ráðgjöfí nóvember