Morgunblaðið - 09.11.2013, Síða 11

Morgunblaðið - 09.11.2013, Síða 11
verða smiður frá því ég var lítill. Pabbi hefur verið hetjan mín frá því ég man eftir mér og ég ætlaði bara að verða eins og pabbi. Hann er svona stór og sterkur smiður og sem strák- ur var ég sannfærður um að hann væri sterkasti maður í heimi og hann var bara Súperman fyrir mér. Þannig að ég lærði smiðinn og fór til Þýska- lands á Leonardo DaVinci starfs- þjálfunarstyrk og var þar í hálft ár að læra. Það var alveg mögnuð lífs- reynsla,“ segir Einar Míkael sem vann sjálfstætt sem smiður í sex ár. „Í þrjá mánuði eftir að Ísland fór á hvolf var lítið að gera og ég hugsaði með mér að ég nennti þessu ekki. Ég fór á Kaffi París og sýndi töfrabrögð öll kvöld, rölti á milli borða og þannig var það í tvö ár, eins mikið og ég gat. Þannig gat ég æft mig í að sýna töfra- brögð.“ Í eitt skipti þegar lokað var snemma á París rölti Einar Míkael yfir á Íslenska barinn og gerði nokk- ur töfrabrögð fyrir barþjónana. Við næsta borð sat norskur maður og fylgdist vandlega með. „Við spjölluðum smá og svo sýndi ég honum töfrabrögð í þrjár mínútur. Þremur tímum seinna var ég kominn með flugmiða til Noregs, hótelbókun á eitt flottasta hótel í Noregi og 180.000 krónur í vasann til þess að fara og sýna í óperuhúsinu í Osló þremur dögum síðar,“ segir Einar Míkael. Þetta var í nóvember árið 2010 og þarna fóru hjólin heldur betur að snúast. Fáðu þér vinnu Þegar Einar Míkael snéri sér al- farið að töfrabrögðunum leist for- eldrum hans ekki á blikuna. „Eisi, farðu og fáðu þér alvöruvinnu,“ sagði faðir hans við hann. Óánægjan risti þó ekki djúpt og eru þau fyllilega sátt við að sonur þeirra hafi það að at- vinnu að sýna töfrabrögð. „Það er svo furðulegt hvernig samfélagið ákveður hvað er eðlilegt og hvað ekki eða hvað er furðulegt og hvað ekki,“ segir hann. Ákvörðunin um að helga sig töfrabrögðunum hef- ur sannarlega reynst vel og hefur verið nóg að gera hjá þessum unga töframanni. Börnin og töfrabrögðin Eitt vinsælasta námskeiðið sem haldið hefur verið á síðustu árum er einmitt töfranámskeið Einars Míka- els. „Mér finnst svo gaman að hjálpa krökkum og það skilur miklu meira eftir sig að kenna þeim og sýna töfra- brögð heldur en að skemmta á árshá- tíðum, til dæmis.“ Markmið Einars Míkaels er að gera allt sem hann getur til að upp- hefja töfrabrögð og sjónhverfingar á Íslandi. Ástæðan er einföld: „Börn elska töfrabrögð og þetta gefur þeim það mikilvægasta í lífinu sem eru meðal annars mannleg samskipti, það að standa fyrir framan fólk, tala við það og gleðja aðra. Það gefur þeim svo mikið sjálfstraust því þeim líður svo vel af því að gleðja aðra og fá að gera eitthvað ótrúlegt. Það er það sem allir vilja geta gert sama hvort þeir eru tíu ára eða tuttugu og fimm. Allir vilja gera það sem skilur eitt- hvað eftir sig.“ Það er ljóst að Einar Míkael á fjölmarga vini sem eru ungir að árum og hefur hann gefið út ýmiss konar efni til að gleðja yngstu kynslóðina. Galdrasettið hans hefur notið mikilla vinsælda en það inniheldur eitt og annað sem auðveldar ungum töfra- mönnum að framkvæma galdra. Galdrabókin kom út á dögunum og með henni getur hver sem er galdrað, sama á hvaða aldri fólk er. Öll útgáfa Einars Míkaels miðar að því að gera fólk færara í töfrabrögðum og sjón- hverfingum. Í vikunni kom úr mynd- diskurinn Leyndarmál vísindanna. Þar kenna þau Sprengju-Kata og Einar Míkael krökkum alls kyns til- raunir sem gera má heima og koma öllum á óvart með. „Það þurfa ekkert allir að verða töframenn því það er alveg nóg að kunna þrjú töfrabrögð til að geta ver- ið ísbrjótur. Þú þarft ekki að vera í búningi og með dúfur til að geta kom- ið á óvart,“ segir töframaðurinn Ein- ar Míkael sem heldur ótrauður áfram að kenna börnum að gera ótrúlega hluti. Morgunblaðið/Kristinn Orka Einar Míkael er fullur eldmóðs og orku. Hann vill deila orku sinni með sem flestum og upphefja töfrabrögð og sjónhverfingar á Íslandi. Morgunblaðið/Styrmir Kári Töframaður Það getur verið gott fyrir töframann að eiga vel þjálfaðar dúf- ur. Einar Míkael á nokkrar vel tamdar og þær koma oft á óvart. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013 Um helgina verður hægt að skoða þjóðbúninga af ýmsum gerðum í Minjasafninu á Akureyri. Þjóðbún- ingadagarnir eru haldnir af Heim- ilisiðnaðarfélagi Íslands og Hand- raðanum, félagsskap fólks í Eyjafirði sem vinnur að því að við- halda þekkingu á íslenskum þjóð- háttum. Sérstakt námskeið í gerð undir- pilsa fyrir þjóðbúninga verður hald- ið en fjöldi kvenna vinnur nú í því „að koma sér upp búning“. Sýning á þjóðbúningum og tengdum mun- um stendur alla helgina og örnám- skeið haldið um meðhöndlun víra- virkisskarts. Ýmsir fyrirlesarar flytja erindi báða dagana en á sunnudaginn á milli klukkan 13 og 14 gefst al- menningi kostur á að koma í Minja- safnið með þjóðbúninga og muni til greiningar. Frítt er inn fyrir þá er mæta í þjóðbúningi. Þjóðbúningadagar á Akureyri Þekking á þjóðháttum www.volkswagen.is Fullkominn ferðafélagi Tiguan kostar aðeins frá 5.360.000 kr. Volkswagen Tiguan eyðiraðeins frá 5,8l /100 km Volkswagen Tiguan Í Volkswagen Tiguan sameinast fullkomið fjórhjóladrif, sparneytin dísilvél og einstakir aksturseiginleikar sem veita þér algjört ferðafrelsi. BlueMotion tæknin frá Volkswagen leggur áherslu á lágmarks eyðslu eldsneytis og hámarks umhyggju fyrir umhverfinu. Kynntu þér kosti Volkswagen Tiguan og veittu þér sannkallað frelsi til að ferðast. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði A uk a b ún a ð ur á m yn d :á lfe lg ur ,s va rt ir þ a kb og a r og ljó sk a st a ra r íf ra m st uð a ra .

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.