Morgunblaðið - 09.11.2013, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.11.2013, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013 SVIÐSLJÓS Egill Ólafsson egol@mbl.is „Okkur fannst þessi greiðsla sér- kennileg,“ sagði Jóhannes Rúnar Jó- hannsson lögmaður sem átti sæti í slitastjórn Kaupþings, þegar hann var spurður út í greiðslu frá félaginu Brooks vegna skuldar félagsins Ser- val, við vitnaleiðslur í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Bæði félögin voru í eigu Sheikh Mohammed Bin Kha- lifa Bin Hamad Al-Thani. Al-Thani taldi sig hafa verið blekktan í við- skiptunum. Eins og komið hefur fram fyrir héraðsdómi keypti Al-Thani 5,01% hlut í Kaupþingi í gegnum félag sitt Q Iceland Finance. Kaupin voru fjár- mögnuð í gegnum þrjú félög, Brooks og Serval, sem voru í eigu Al-Thani og félagsins Gerlands, sem var í eigu Ólafs Ólafssonar. Láninu til Brooks fylgdi sjálfskuldarábyrgð. Jóhannes sagði að þegar Kaupþing féll 8. október 2008 hefði slitastjórnin átt 50 milljóna dollara kröfu á Bro- oks. Þeir peningar voru á reikningi í Lúxemborg og Jóhannes hefði því talið að möguleikar slitastjórnar til að endurheimta peningana hefðu verið nokkuð góðir. Daginn eftir voru peningarnir á reikningi Brooks hins vegar notaðir til að greiða skuld Ser- val við bankann. Um 400 milljónir vantaði upp á að Serval væri skuld- laust, en Jóhannes sagði að Ólafur Ólafsson hefði greitt þá skuld upp síðar. Þar með var Serval búið að gera upp skuldir sínar en skuldin stóð eftir við Brooks. Jóhannes sagði að með þessum gjörningi hefðu möguleikar slit- astjórnar til að fá upp í kröfur sínar versnað verulega. Hann sagði að í framhaldinu hefðu hafist viðræður við lögmenn Al-Thanis. Þeir hefðu hafnað kröfum slitastjórnar og talið að hún ætti enga kröfu á Al-Thani. Í framhaldinu hefði honum verið stefnt til greiðslu skuldarinnar. Það leiddi síðan til þess að gert var sam- komulag við Al-Thani í febrúar á þessu ári um að hann greiddi 26,5 milljónir dollara eða um 3,5 milljarða króna. Jóhannes sagði aðspurður að í við- ræðunum við lögmenn Al-Thani hefði komið fram að Al-Thani teldi að hann hefði verið blekktur í viðskiptunum. Jóhannes sagði aðspurður að aldr- ei hefði komið til álita að rifta við- skiptunum við Al-Thani sem gerð voru um miðjan september 2008. Slitastjórn hefði litið svo á að um raunveruleg viðskipti væri að ræða. Stefnan á Al-Thani hefði hins vegar byggð á riftunarákvæði laga. Einnig kom fram hjá Jóhannesi að ekkert hefði verið greitt af láninu til Gerlands. Engir peningar úr bankanum Guðný Arna Sveinsdóttir, fjár- málastjóri Kaupþings samstæð- unnar, sagði fyrir héraðsdómi í gær að engir peningar hefðu farið út úr Kaupþingi þegar Al-Thani keypti hlut í bankanum í september 2008. Guðný Arna sagði engan vafa leika á að þessi kaup Al-Thani hefðu bætt eiginfjárstöðu bankans og dregið úr áhættu hans. Hún sagðist hafa fagn- að þessum viðskiptum á sínum tíma. Engu breytti þó að bankinn hefði sjálfur fjármagnað kaupin. Þetta mat hennar á viðskiptunum er í samræmi við það sem mörg önn- ur vitni hafa sagt í réttarhaldinu, m.a. Helgi Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri lögfræðisviðs og Bjarki Diego, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri útlána Kaupþings. Viðskiptin hafi verið bankanum hag- stæð og bætt stöðu hans. Í réttarhaldinu í gær var skýrsla tekin af Steingrími Kárasyni, fram- kvæmdastjóra áhættustýringar Kaupþings. Hann sat lánanefnd- arfundi og sagði að hlutverk sitt þar hefði verið að koma með gagnrýnar spurningar og gæta að áhættu lána. Hann sagði að á fundinum þar sem lán til félaga Al-Thani voru afgreidd hefði ekki verið fjallað um lán til Ger- lands, félags Ólafs Ólafssonar. Hann sagðist því ekki hafa vitað um að Ólafur kæmi að viðskiptunum með beinum hætti. Fyrirspurn frá Moodys Matsfyrirtækið Moodys óskaði eft- ir að fá upplýsingar um hvernig Al- Thani hefði staðið að fjármögnun á kaupum á 5,01% hlut í Kaupþingi í bankanum í september 2008. Þetta kom fram þegar skýrsla var tekin af Jónasi Sigurgeirssyni, fram- kvæmdastjóra samskiptasviðs Kaup- þings, í héraðsdómi. Jónas bar ábyrgð á gerð frétta- tilkynningar um viðskiptin, en hann sagði að vinna við gerð fréttatilkynn- ingar um viðskipti Al-Thani hefði verið samvinnuverkefni. Drög að til- kynningunni hefðu verið lesin yfir af nokkrum starfsmönnum bankans. Ólafur Ólafsson hefði einnig fengið hana til yfirlestrar. Jónas sagði að Hreiðar Már hefði sagt sér að vera í sambandi við Magnús Guðmundsson varðandi upplýsingar um Al-Thani. Verjandi Magnúsar spurði Jónas nánar um þetta og Jónas staðfesti að þær upplýsingar sem Magnús gaf hefðu einvörðungu varðað almennar upplýsingar um Al-Thani, en ekki upplýsingar um sjálf viðskiptin. Jónas sagði það sama og önnur vitni í málinu, að það hefði aldrei tíðkast að gefa upplýsingar um fjár- mögnun hlutabréfaviðskipta í til- kynningu til Kauphallarinnar. Jónas sagði að venjan væri að láta Moodys vita stuttu áður en svona stór viðskipti væru tilkynnt. Hann sagðist hins vegar hafa fengið þau skilaboð frá Moddys, að fyrirtækið vildi fá að vita hvernig staðið hefði verið að fjármögnun viðskiptanna. Björn Þorvaldsson saksóknari spurði þá hvort upplýsingar um fjár- mögnun hefðu skipt máli fyrst Moo- dys hefði verið að spyrja um þetta. Jónas sagði að Moodys vildi vita um alla hluti og óskuðu gjarnan eftir ít- arlegri upplýsingum en kæmu fram í tilkynningunni. Tölvupóstar fóru milli Jónasar og Guðna Aðalsteinssonar, fyrrverandi starfsmanns Kaupþings, um hvernig ætti að svara Moodys, en Jónas sagð- ist ekki vita hvernig fyrirspurn þeirra var svarað. Hélt að féð kæmi erlendis frá Jónas sagðist ekki muna eftir því að hann hefði fengið fyrirspurnir frá íslenskum fjölmiðlum um hvernig kaup Al-Thani hefðu verið fjár- mögnuð. Í réttarhaldinu í gær var Þorbjörn Þórðarson blaðamaður kallaður fyrir sem vitni, en hann skrifaði frétt í Morgunblaðið eftir að viðskiptin voru tilkynnt. Þorbjörn talaði við Hreiðar Má Sigurðsson og Ólaf Ólafsson áður en hann skrifaði fréttina. Hann sagði aðspurður að hann hefði ekki spurt um fjármögnun viðskiptanna. Hann sagði að hann hefði ekki órað fyrir því að fjármögnun hefði verið með þessum hætti. Hann hefði skilið fréttatilkynninguna á þann veg að Al-Thani hefði sjálfur verið að koma með fjármagn til landsins. Taldi sig hafa verið blekktan  Greiðsla Brooks vegna skuldar Serval minnkaði verulega möguleika slitastjórnar á að fá upp í kröfur  Fagnaði kaupum Al-Thani  Ekki fjallað um lán til Gerlands, félags Ólafs Ólafssonar Morgunblaðið/Rósa Braga Dómsmál Vitnaleiðslur í Al-Thani-málinu héldu áfram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Ákvarðanir um að greiða 50 milljóna dollara skuld félags- ins Serval, félags í eigu Al- Thani, voru teknar í miklum flýti á sama tíma og Kaup- þing féll. Greiðslan hefur ver- ið harðlega gagnrýnd af vitn- um í Al-Thani-málinu. Þetta kom fram í vitna- leiðslum yfir Ólafi Frímanni Gunnarssyni, forstöðumanni á millibankaborði hjá Kaup- þingi, í gær en hann sagði að menn hefðu verið að flýta sér þegar gengið var frá greiðsl- unni á skuld Serval 8. október 2008. Ólafur sagði að sitt hlut- verk innan bankans hefði ver- ið að tryggja að bankinn ætti nægt laust fé. Lausafjárstaða bankans hefði verið erfið á þessum tíma. Hann sagði að haft hefði verið samband við sig frá dótturfélagi Kaupþings í Lúxemborg, þar sem tilkynnt var að þeir ættu 50 milljónir dollara í erlendum gjaldeyri. Hann sagði að á þeim tíma hefði hann ekki vitað að nota ætti peningana til að gera upp við félagið Serval. Aðspurður hverjir hefðu komið að ákvörðun um þessar greiðslur nefndi Ólafur Eggert J. Hilmarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra lög- fræðisviðs Kaupþings, og Steingrím Kárason, fyrrver- andi framkvæmdastjóra áhættustýringa. Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaup- þings, gagnrýndi þessar greiðslur harðlega þegar hann bar vitni í byrjun vikunnar. Með þessu hefði möguleikar bankans til að innheimta kröfur sínar stórlega versnað. Jóhannes Rúnar Jóhannsson, sem sat í slitastjórn Kaup- þings, tók undir þetta sjón- armið þegar hann bar vitni í gærmorgun. Eitt vitni sagði um þessi viðskipti að það gengi ekki upp að greiða skuldbindingar félags A með peningum frá félagi B. Lánið greitt í tímapressu GAGNRÝNA GREIÐSLUNA Sjóðfélagafundur 13. nóvember 2013 Kynningarfundur fyrir sjóðfélaga Gildis-lífeyrissjóðs verður haldinn miðvikudaginn 13. nóvember nk. kl. 17 á Grand Hótel, Reykjavík. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta. lífeyrissjóður Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs. Kynnt verður staða og starfsemi sjóðsins auk kynningar á nýjum vef lífeyrissjóðanna, Lífeyrisgáttinni, lifeyrisgattin.is þar sem sjóðfélagar geta nálgast upplýsingar um öll sín réttindi í samtryggingarlífeyrissjóðum. ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is lau. 10-18, sun. 12-18, mán. - fös. 11-18:30 living withstyle Við hlökkum til jólanna JÓLAVARAN ER KOMIN CANDLE 30 STK. Í PK. 1.995
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.