Morgunblaðið - 09.11.2013, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013
Þorsteinn Eggertsson textahöf-
undur var í gær sæmdur gullmerki
Félags tónskálda og textahöfunda
(FTT) og jafnframt gerður að heið-
ursfélaga. Athöfnin fór fram á veit-
ingahúsinu Nauthóli.
Gunnar Þórðarson tónlistar-
maður flutti lag sitt „Ástarsæla“ við
texta Þorsteins en þeir hafa lengi
unnið saman þar sem Þorsteinn
gerði texta og Gunnar lagið. Marg-
ir félagar Þorsteins ávörpuðu hann
við athöfnina.
Jakob Frímann Magnússon, for-
maður FTT, sagði að Þorsteinn
hefði verið heiðraður fyrir ómet-
anlegt framlag sitt til textagerðar.
Þorsteini og konu hans, Fjólu Ólafs-
dóttur tónlistarkennara, var síðan
ekið í hvítri limmósínu, að hætti
Elvis Presleys, til Bessastaða. Þar
efndi Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands, til mótttöku í tilefni af
30 ára afmæli FTT á þessu ári.
Athöfnin í gær var síðasti lið-
urinn í hátíðahöldum sem staðið
hafa frá því í vor í tilefni af 30 ára
afmælinu. Afmælisveislan hefur
einkum einkennst af fjölbreyttu
tónleikahaldi. gudni@mbl.is
Þorsteinn Eggertsson
heiðursfélagi FTT
Ljósmynd/Rakel Gústafsdóttir
Heiðraður Þorsteinn Eggertsson textahöfundur var sæmdur gullmerki FTT í gær og gerður að heiðursfélaga.
Ný vörudreifingarmiðstöð Eim-
skips/Flytjanda á Reyðarfirði hefur
verið tekin í notkun. Þetta er fyrsta
sérhannaða miðstöðin fyrir vöru-
dreifingu sem Eimskip byggir utan
Reykjavíkur. Byggingin er 668 m² að
flatarmáli og með þremur hleðslu-
römpum og tveimur stórum vöru-
hurðum. Í slíku þykir felast hagræði.
Dreifingarmiðstöðin á Reyðarfirði
þykir vel staðsett á Austurlandi og
aðeins steinsnar frá Mjóeyri, þar
sem er önnur stærsta vöruflutninga-
höfn landsins
„Við höfum beðið lengi eftir þessu
húsi til að geta þjónað okkar við-
skiptavinum á Austurlandi enn bet-
ur. Með þessu húsi erum við að taka
stórt framfaraskref í vöruafgreiðslu
Eimskips á Austurlandi,“ segir Guð-
mundur Nikulásson, framkvæmda-
stjóri innanlandssviðs Eimskips.
sbs@mbl.is
Eimskip Umsvif á Austurlandi eru
mikil og nýja miðstöðin nýtist því vel.
Eimskip
byggir
eystra
Ný dreifingarmið-
stöð á Reyðarfirði
Þröstur Emilsson
hefur verið ráð-
inn fram-
kvæmdastjóri
ADHD samtak-
anna til tveggja
ára. Ellen Cal-
mon sem starfað
hefur sem fram-
kvæmdastjóri
samtakanna hef-
ur fengið tveggja
ára leyfi frá störfum eftir að hún
var kosin formaður Öryrkjabanda-
lags Íslands.
Frá því í apríl hefur Þröstur
starfað hjá ADHD-samtökunum.
Hann á fjölbreyttan feril að baki,
meðal annars sem fréttamaður og
fréttastjóri fjölmiðla.
Þröstur til ADHD
Þröstur
Emilsson
Kannabisræktun var stöðvuð í
Reykjanesbæ í fyrrakvöld eftir að
lögreglan á Suðurnesjum fór í hús-
leit í fjölbýlishúsi að fengnum
dómsúrskurði. Húsráðandi, karl-
maður á fertugsaldri, vísaði lög-
reglu á herbergi þar sem ræktun
var í fullum gangi. Þar hafði verið
komið fyrir gróðurhúsatjaldi og
fannst talsvert af kannabisplöntum.
Lögregla stöðvaði
kannabisræktun
GREIÐSLUR ÚR LÍFEYRISSPARNAÐI
HVAÐ BER AÐ HAFA Í HUGA?
Við bjóðum þér á fræðslufund í Arion banka, Borgartúni 19,
þriðjudaginn 12. nóvember kl. 17.30. Fyrirlesarar eru Arnaldur
Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins og
Inga Tinna Sigurðardóttir, sérfræðingur hjá Arion banka.
Meðal atriða sem farið verður yfir á fundinum:
Reglur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar
Skattaleg meðferð lífeyrissparnaðar
Samspil útgreiðslna Tryggingastofnunar og lífeyrissjóða
Fundurinn stendur yfir í rúmlega klukkustund og verður boðið
upp á léttar veitingar.
Allir velkomnir
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-3
0
6
1