Morgunblaðið - 09.11.2013, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013
ÚR BÆJARLÍFINU
Albert Eymundsson
Hornafjörður
Bæjarstjóraskipti urðu á Horna-
firði 1. nóvember. Hjalti Þór Vign-
isson, sem verið hefur bæjarstjóri
frá árinu 2006 og hefur átt farsælan
starfsferil, lét af störfum að eigin
ósk og við tók Ásgerður Kristín
Gylfadóttir hjúkrunarfræðingur og
forseti bæjarstjórnar. Hjalti Þór fer
til annarra starfa á Höfn við sölu á
fiskafurðum til útlanda.
Gullverðlaun komu í hlut Horn-
firðinga á sýningu og Norð-
urlandakeppni í smáframleiðslu
matvæla sem haldin var í október í
Svíþjóð. Ómar Fransson trillusjó-
maður fékk fyrstu verðlaun fyrir
makríl sem bestu vöruna í flokki
heitreykts fisks. Ómar veiðir og
verkar makrílinn á Höfn.
Silfurverðlaun hlaut Klaus
Kretzer í Skaftafelli í sömu keppni
fyrir Hnjúk sem er þurrverkaður og
reyktur kindahryggvöðvi.
Bronsverðlaun fékk Klaus
sömuleiðis fyrir Jöklabita sem er öl-
pylsa unnin úr kindakjöti. Allar af-
urðir sem Klaus framleiðir eru unn-
ar úr kindakjöti úr Öræfum. Þetta
verður að teljast athyglisverður ár-
angur hjá nýgræðingum en um 600
vörur frá öllum Norðurlöndunum
bárust í keppnina og veitt voru 40
verðlaun. Bæði Ómar og Klaus byrj-
uðu með tilraunaframleiðslu sína í
eldhúsi Matís á Höfn en Klaus hefur
nú komið sér upp aðstöðu heima í
Öræfum.
Fiskveiðar og -vinnsla hafa að
mestu leyti gengið vel í haust. Hum-
arveiðar hafa þó verið tregar á nýju
fiskveiðiári en nægur fiskur er hjá
humarveiðibátum. Uppsjávarskipin
hafa aflað vel undanfarið. Síldin úr
Breiðafirði er stór og markaðir í
Austur-Evrópu góðir. Verkefna-
staðan hjá fiskvinnslunni hefur verið
með ágætum í haust og útlit fyrir að
svo verði áfram fram undir hátíðar.
Sláturtíð er að ljúka og gekk
vel. Í sláturhúsi Norðlenska á Höfn
var rúmlega 35 þúsundum fjár slátr-
að sem er aðeins færra en á síðasta
ári og var meðalþyngd dilka auk
þess aðeins minni.
Ferðaþjónustan á Suð-
Austurlandi hefur verið í um-
ræðunni undanfarið vegna fjölgunar
ferðamanna og gistirýma. Nú þegar
eru tæplega 1600 gistirúm í sveitar-
félagi sem telur rúmlega 2000 íbúa.
Framkvæmdir standa yfir sem
munu bæta við 75 herbergjum (150
rúmum). Í undirbúningi er að
byggja yfir 300 herbergi til viðbótar.
Hér er um miklar fjárfestingar að
ræða samhliða öðrum fram-
kvæmdum í héraðinu.
Skemmtifélag Hornafjarðar
hefur á hverju hausti í 12 ár flutt
tónlistardagskrá með ákveðnu
þema. Að þessu sinni urðu „Sveita-
böll“ fyrir valinu og eins og und-
anfarin ár er uppselt á allar sýn-
ingar. Athyglisvert er að stór hluti
áheyrenda kemur úr öðrum hér-
uðum.
Morgunblaðið/ Albert Eymundsson
Verðlaunahafi Ómar Fransson með viðurkenningarskjalið fyrir heitreykta makrílinn um borð í trillunni sinni.
Gull, silfur og brons fyrir mat
Samkvæmt rannsóknum sérfræðinga á Náttúru-
fræðistofnun á aðfluttum plöntum í flóru Íslands er til-
vist 336 aðfluttra plöntutegunda í landinu staðfest.
Dreifingarmynstur tegundanna var skoðað og bent á
umhverfisþætti sem hafa áhrif á útbreiðslu þeirra á Ís-
landi. Fjallað er um rannsóknina og niðurstöður hennar
í grein sem birtist nýlega í alþjóðlega vísindaritinu
Flora, sem er elsta vísindaritið í grasafræði og hefur
verið gefið út óslitið síðan 1818, að því er segir á vef
Náttúrufræðistofnunar.
Aðfluttar plöntur, einnig þekktar sem framandi
plöntur, erlendar plöntur eða slæðingar, eru tegundir
sem borist hafa með manninum, annaðhvort viljandi
eða óviljandi, inn á svæði þar sem þær eru ekki upp-
runalegar. Margar aðfluttar tegundir eru vel þekktar
nytjaplöntur í akuryrkju og garðyrkju.
Bjarga sér utan ræktunar
„Aðfluttar tegundir hafa hins vegar einnig tilhneig-
ingu til að bjarga sér utan ræktunar og ílendast, og í
þeim tilfellum hafa þær oft mikil áhrif á náttúruleg
samfélög. Alræmdar eru þær aðfluttu plöntur sem
flokkast sem ágengar. Þær verða auðveldlega að plágu,
leggja undir sig grasflatir sem illgresi, útrýma inn-
lendum plöntum, spilla náttúrulegum búsvæðum og
breyta framvindu vistkerfanna.
Bæði hér á landi og annars staðar í heiminum hafa
ágengar, aðfluttar plöntur og dýr orðið hin mesta ógn
við innlendar tegundir, náttúruleg samfélög og fram-
vindu þeirra. Þau hafa einnig í för með sér verulegan
kostnað fyrir þá atvinnuvegi sem reiða sig á hráefni og
þjónustu sem háð eru heilbrigðum vistkerfum,“ segir á
ni.is
Niðurstöðurnar benda til að loftslagsbreytingar geti
haft veruleg áhrif á útbreiðslu aðfluttra plantna á Ís-
landi. Tegundir sem flokkaðar hafa verið sem ágengar
munu líklega hafa sterka tilhneigingu til að leggja und-
ir sig ný svæði við hlýnun loftslags.
Spár sýna að svæði með hentugu loftslagi fyrir
alaskalúpínu muni stækka mjög mikið til 2050, sem get-
ur stuðlað að landnámi tegundarinnar á stórum svæð-
um miðhálendisins.
Á sama hátt er því spáð að svæði með hentug lofts-
lagsskilyrði fyrir skógarkerfil muni vaxa verulega, þótt
í minna mæli sé. Það mun leiða til þess að hann leggur
undir sig ný svæði, sem hann nær ekki til við núverandi
aðstæður, að því er fram kemur á vef Náttúrfræðistofn-
unar. aij@mbl.is
336 aðfluttar tegundir
Ágengar, aðfluttar plöntur verða auðveldlega að plágu
Geta spillt náttúrulegum búsvæðum Ný svæði við hlýnun
Alaskalúpína
Heimild: Náttúrufræðistofnun
Forspá um breytingar á útbreiðslu Alaskalúpínu til 2050. Rauð-
ur litur táknar líklegt landnám við loftslagshlýnun. Guli liturinn
sýnir svæði, þar sem ekki er líklegt að lúpína festi rætur.
Hafnarfjarðarbær boðar til
upplýsingafundar um niðurstöður
sem fram komu í skýrslu Nátt-
úrufræðistofnunar Íslands um
þungmálma og brennistein í mosa.
Fundurinn verður haldinn laug-
ardaginn 9. nóvember kl. 10:30-12 í
Hraunvallaskóla. Flutt verða erindi
og á eftir verða umræður og fyrir-
spurnir.
Í skýrslunni kom fram að veruleg
mengun er í mosa við Straumsvík
og er hún aðallega rakin til iðn-
aðarstarfsemi austan við álverið.
Mosi Veruleg mengun hefur mælst í mosa
við iðnaðarsvæði í Hafnarfirði.
Upplýsingafundur
fyrir Hafnfirðinga
Í tilefni af átt-
ræðisafmæli
Harðar Berg-
mann efna
Landvernd og
Alda, félag um
sjálfbærni og
lýðræði, í dag
til málþings um
þjóðmálabækur
Harðar og ný
leiðarljós í sam-
félagsumræðunni.
Málþingið verður haldið í fyr-
irlestrasal Þjóðminjasafnsins í dag
klukkan 13-16.
Málþing um bækur
Harðar Bergmann
Hörður
Bergmann
Átta skólar keppa til úrslita í Box-
inu, framkvæmdakeppni fram-
haldsskólanna, sem fer fram í Há-
skólanum í Reykjavík í dag klukkan
10-16.
Markmið keppninnar er að
kynna og vekja áhuga á tækni,
tækninámi og störfum í iðnaði.
Framkvæmdakeppni
framhaldsskólanna
STUTT
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
HÁRBEITT
SKEMMTISAGA
„Launfyndin og víða
sprenghlægileg samfélags-
skoðun, uppfull af gæsku
og gamansemi ...“
PÁLL BALDVIN
BALDVINSSON
ÁSTIR, SLARK OG
AGALEGIR GLÆPIR.
ÚTRÁSARVÍKINGAR
OG BALDNIR
BÆNDUR Í NÝRRI
ÍSLENDINGASÖGU.
Evonia eykur hárvöxt með því að
veita hárrótinni næringu og styrk.
Evonia er hlaðin bætiefnum sem
næra hárið og gera það gróskumeira.
Bætiefni ársins í Finnlandi 2012.
Evonia
www.birkiaska.is