Morgunblaðið - 09.11.2013, Side 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013
BAKSVIÐ
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Bækur í formi rafbóka eru gefnar
út í auknum mæli erlendis. Stígandi
er í sölu rafbóka hér á landi en enn
sem komið er fer rafbókavæðingin
hægt af stað. Unnið er að því að
finna hentuga leið til að miðla raf-
bókum til lesenda. Innan tíðar
koma á markað íslenskar raf-
bókaveitur með úrval rafbóka þar
sem lesendur geta keypt sér að-
gang. Að minnsta kosti eru í
vinnslu tvær slíkar rafbókaveitur.
Módelið kannast margir við sem
nota t.d. tonlist.is, netflix.com eða
spotify.
„Streymið er lausnin. Bækur eru
ekki ólíkar tónlist eða öðru staf-
rænu afþreyingarefni að þessu
leyti. Við erum að skoða lausnir í
formi rafbókaveitu sem er eins-
konar Spotify bókanna,“ segir Stef-
án Hjörleifsson, framkvæmdastjóri
eBóka. Hann vísar til Spotify sem
er ein af stærstu rafrænu tónlist-
arveitum í heimi. Þar er borgað
áskriftargjald og notandinn getur
hlustað á tónlist í gegnum netið.
Stefán vinnur að því að búa til
slíka rafbókaveitu með innlendum
og erlendum aðilum. Áherslan verð-
ur á íslenskt efni til að byrja með.
Verðið verði líklega í kringum ís-
lenskt kiljuverð á mánuði. Hann
segir að þróun á tilteknum mód-
elum sé að fara af stað í heiminum
og býst við að dragi til meiri tíðinda
eftir áramót. Þegar eru komnar
rafbókaveitur í öðrum löndum, m.a.
Danmörku, Finnlandi og Banda-
ríkjunum. Þar er ýmist borgað
mánaðargjald og aðgangur að öllu
efni sem þar er í boði. Aðrar veitur
hafa þann háttinn á að hægt er að
leigja tiltekinn fjölda bóka.
„Erfiðast hefur reynst að glíma
við útgefendur og finna tækni-
lausn,“ segir Stefán. Nú sé verið að
finna lausn á því hvernig aðgang-
urinn verður. Hann segir að vissu-
lega megi líkja bókinni við tónlist
og hvernig t.d. tónlistavefurinn ton-
list.is hafi virkað. Hins vegar er
rétthöfum greitt fyrir hvern smell á
tiltekið lag. „Þetta er ekki alveg
jafn einfalt og með bækurnar, t.d.
ef lesandi les hluta af bók en ekki
alla, á að borga eftir flettingum eða
alla bókina?“ segir Stefán. Ýmsu er
enn ósvarað en hann segir lausnina
vera í sjónmáli.
Vefbókakerfið Hillan
Snara ehf. er að þróa vef-
bókakerfi sem hefur fengið heitið
„Hillan“. Það er veflægur hugbún-
aður sem hægt er að setja upp í
fartölvum, spjaldtölvum, snjall-
símum eða öðrum tækjum með
snertiskjá sem tengst geta netinu.
„Við gefum ekki út hvenær það
kemur á markað en vonandi fljót-
lega,“ segir Marinó Njálsson hjá
Snöru og einn af hönnuðum kerf-
isins.
„Með þessari streymislausn er
skráarsnið og afritunarvarnir ekki
vandamál,“ segir Egill Örn Jó-
hannsson, útgefandi hjá Forlaginu
og einn af samstarfsaðilum Hill-
unnar.
Rafbækur í dag eru ýmist með
skráarsniðinu epub eða mobi. Hægt
er að skiptast á slíkum skrám á
netinu á svokölluðum skrár-
skiptasíðum sem margar hverjar
hafa fengið lögbann.
Nú er verið að vinna að tækni-
legri útfærslu á því hvernig best sé
að haga aðgangi notenda. Hvort
fólk kaupi sér aðgang að einstaka
verkum eða mánaðaráskrift og fái
þá aðgang að „hlaðborði bóka.“
„Hvernig skiptast höfundalaun í
slíku kerfi? eru spurningar sem við
erum að glíma við núna,“ segir Eg-
ill en bætir við að búið verði að
leysa úr því áður en slík raf-
bókaveita fari í loftið.
Útgefendur verða að
tryggja rétt höfunda
„Útgefendum ber skylda til að
tryggja rétt höfundarins,“ segir
Ragnheiður Tryggvadóttir, fram-
kvæmdastjóri Rithöfunda-
sambandsins, spurð hver réttur
höfunda væri þegar efninu væri
streymt í gegnum netið.
Hún segist þó gera sér grein fyr-
ir því að rithöfundar sé ekki und-
anskildir því að efnið þeirra gæti
orðið fyrir því að efni þeirra sé not-
að á ólöglegan hátt eins og t.d. tón-
listarmenn.
Hún bendir þó á að flestir líta á
streymi bókar sem einu gáfulegu
lausnina. Undanfarið hafi mikið
verið rætt um hvernig best væri að
snúa sér í þessum efnum eins.
Finna þurfi jafnvægið á milli þess
að miðla efninu til lesenda, en ekki
hefta aðgang þeirra að því, sam-
hliða að tryggja rétt höfunda.
„Við þurfum að vanda okkur.
Passa að efnið flæði ekki óheft, þá
erum við búin að tapa baráttunni,“
segir Ragnheiður. Í þessu sam-
hengi vísar hún til Svíþjóðar þar
sem rafbækur voru lánaðar út á
bókasöfnum sem ekki voru afrit-
unarvarðar. Eftir það seldist ekki
rafbók.
Tvær rafbókaveitur væntanlegar
Jafnvel hægt að kaupa aðgang að „hlaðborði bóka“ Módel með svipuðum hætti og á tonlist.is og
kvikmyndaleigunni netflix Unnið að því að semja við útgefendur og finna hentugar tæknilausnir
Marinó
Njálsson
Stefán
Hjörleifsson
Hillan Skjáskot af vefbókakerfinu Hillunni sem fer fljótlega í loftið.
Þú ert í leit að ævintýrum, við erum í leit að tæknilegri fullkomnun. Allar aðstæður eru
kjöraðstæður fyrir BMW XDrive fjórhjóladrifskerfið. Þótt veðrið sé óútreiknanlegt er
akstursánægjan í X línunni eitthvað sem þú getur treyst á.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
0
0
8
3
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
ÆVINTÝRALEGUR.
BMW X1 - xDRIVE 4x4 - 1,8 DÍSIL - 143 HESTÖFL
5,5 L/100 KM Í BLÖNDUÐUM AKSTRI. OPIÐ Í DAG FRÁ 12-16