Morgunblaðið - 09.11.2013, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013
Aldís Hafsteinsdóttir
’
Það þarf að hugsa um tekjur af ferðaþjónustu frekar en fjölda
ferðamanna. Flutningafyrirtækin einblína á fjölda ferða-
manna en ekki hvað hver og einn gefur af sér.
Ásgeir Magnússon
’
Engum sem kemur úr iðnnámi dettur í hug að ætlast til þess
að aðrir skaffi þeim vinnu, þeir skapa sér hana sjálfir. En úr
háskólunum kemur fólk og spyr: Hver ætlar að útvega mér vinnu?
Eygló Kristjánsdóttir
’
Hvorki háskólarnir né framhaldsskólarnir nýta sér fjarnáms-
tæknina nægilega vel. Það þekki ég af eigin reynslu. Mögu-
leikar til fjarnáms eru lífinu á landsbyggðinni mikil lyftistöng.
Þótt ferðaþjónustan hafi eflt mjög byggðirnar á
Suðurlandi ræða menn við hringborðið um nauð-
syn þess að breyta áherslum. Í stað þess að
leggja allt upp úr fjöldanum með tilheyrandi
álagi á náttúru, vegakerfi og opinbera þjónustu
eigi að horfa á tekjurnar sem skapist. Óviðunandi
sé að það séu fyrst og fremst flutningafyrirtækin,
flugfélög og akstursfyrirtæki, sem ráði stefn-
unni, en ekki heimamenn og hagsmunir þeirra.
„Þetta snýst um tekjur en ekki atvinnu,“ segir
Eyþór Arnalds. Undir það tekur Aldís Hafsteins-
dóttir. Flutingafyrirtækin eru sögð einblína á
fjölgun ferðamanna, í stað þess að áherslan ætti
að vera á hvað hver og einn gefur af sér. „Áður en
haldið er áfram að fjölga ferðamönnum verðum
við að staldra við og spyrja hvert við stefnum,“
segir Eygló Kristjánsdóttir.
Gjaldtaka nauðsynleg
Þau eru sammála um að taka þurfi gjald af
ferðamönnum til að tryggja uppbyggingu og um-
hverfi vinsælustu ferðamannastaðanna. Skiptar
skoðanir eru um það hvort sé betra gjaldtaka á
staðnum eða miðlægur „grænn passi“.
Í Hveragerði var hverasvæðið vinsæla girt af
og ákveðið að taka 200 króna gjald af öllum sem
þangað komu. Ferðamönnum fækkaði mikið, en
ekki er víst að það sé eingöngu vegna gjaldtök-
unnar heldur kann veðurfar á síðasta sumri að
spila inn í.
„En upp úr stendur að við öfluðum tekna
þarna sem engar voru áður,“ segir Aldís bæj-
arstjóri. Hún segir að gjaldtökunni verði haldið
áfram. En beðið er eftir því að stjórnvöld marki
stefnu í þessum efnum.
„Ölmusuvæðing“?
Elvar Eyvindsson bendir á að það sé of al-
gengt að stórar keðjur ráði atvinnurekstri úti á
landi. Arður af starfsemi þeirra fari burt. Þetta
eigi til dæmis við um smásöluverslunina. Í sí-
auknum mæli sé ferðaþjónustan að færast á
sama stig telur hann. „Ég kalla þetta ölm-
usuvæðingu landsbyggðarinnar,“ segir Elvar.
Fólkið úti á landi sé aðeins í verst launuðu störf-
unum við afgreiðslu og þjónustu. Það uppskeri
ekki nægilega vel úr auðlindum sinna heima-
byggða.
„Ölmusuvæðing“
landsbyggðarinnar
Vilja að arður verði eftir í heimabyggð
Morgunblaðið/Kristinn
Við Gullfoss. Á Suðurlandi eru nokkrir fjölsóttustu ferðamannastaðir landsins.
Við hringborðið þykir mönnum sem
mjög skorti skýra og sjálfri sér sam-
kvæma stefnu þegar ríkið sker niður
opinbera þjónustu.
„Það er verið að draga úr heilsu-
gæsluþjónustu á Hellu og Hvolsvelli
og senda fólk á Selfoss. Þetta á að
spara, en það er ekki litið á heild-
ardæmið. Aksturinn og tíminn sem í
þetta fer, felur í sér stóraukin útgjöld
hjá almenningi,“ segir Þorgils Torfi
Jónsson.
Boðað hefur verið að minnka eigi
sjúkraflutningaþjónustu á starfssvæði
Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Að-
eins einn bíll verður á vakt að næt-
urlagi og sjúkraflutningamönnum
verður fækkað. Nú eru tveir bílar með
fjórum sjúkraflutningamönnum á
næturvöktum og sinna þeir allri Ár-
nessýslu.
Með lokun skurðstofu á Selfossi er
aðeins hægt að sinna eðlilegum fæð-
ingum á sjúkrahúsinu. Fjöldi kvenna
þarf því að fara í sjúkrabíl til Reykja-
víkur. „Á sama tíma er verið að skerða
þessa flutninga,“ segir Eyþór Arnalds.
Þetta gangi ekki upp. Og ekki sé boð-
legt að þurfa að fara yfir fjallveg að
vetrarlagi með fæðandi konur.
Morgunblaðið/Arnaldur
Sjúkraflutningar Aðeins einn bíll verður til sjúkraflutninga í Árnessýslu ef
boðaður niðurskurður kemur til framkvæmda.
Horft framhjá heildarmynd-
inni í niðurskurðinum
HRINGBORÐSUMRÆÐUR SUÐURLAND
DAGA
HRINGFERÐ
Arctic Root (Burnirót) er náttúruefni sem við tímabundið andlegt eða líkamlegt álag getur
hjálpað líkamanum að aðlagast; skerpa á einbeitingu, vinna gegn streitu og sleni og stuðla
að betri svefni.
Arctic Root frá THE BROCCOLI er sérlega kröftugt. Hver tafla inniheldur 200 mg staðlaðan
kraft úr Burnirót (Rhodiola Rosea), unnið úr 2000 mg af ferskri rótinni. Það er fljótvirkt og
getur hentað vel þegar þú þarfnast aukinnar orku og einbeitingar.
Þreyta, kvíði, stress eða slæm einbeiting ?
Sölustaðir: Fjöldi apóteka og heilsubúða víða land s.s. Lyf og heilsa, Lyfjaver, Heilsuver, Apótekarinn, Lifandi markaður ofl. brokkoli.is
ARCTIC ROOT
Burnirót
Extra kraftmiklar - 200 mg staðlaður
kraftur úr Burnirót (Rhodiola Rosea)
60 töflur í pakka