Morgunblaðið - 09.11.2013, Side 24
SUÐURLAND
DAGA
HRINGFERÐ
SELFOSS
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
„Ég hef bara heyrt góða hluti, fólk
er ánægt með að það sé aftur komið
bíó í bæinn og að það sé svona vel
staðið að því,“ segir Axel Ingi Við-
arsson, ungur bíóstjóri, sem á og
rekur Selfossbíó.
Kvikmyndasýningar á Selfossi
eiga sér langa sögu. Síðast ráku
Sambíóin kvikmyndahús í sama hús-
næði og Selfossbíó er nú í, en hættu
þeim rekstri á síðasta ári. Fyrsta
sýning á vegum Axels var um miðjan
júlí og óhætt er að segja að hinu nýja
Selfossbíói hafi verið vel tekið, en frá
opnuninni hafa um 13.000 gestir sótt
bíóið heim. Það er um tvöfaldur
íbúafjöldi á Selfossi.
Bíóið er sérlega vel tækjum bú-
ið, en Axel keypti nýjan sýning-
arbúnað og leggur sérstaka áherslu
á þrívíddarsýningar. „Allur bún-
aðurinn er 2013-módelið og þrívídd-
artæknin sú nýjasta,“ segir Axel.
„Selfyssingar eru ekki þeir einu sem
eru ánægðir með bíóið, því fólk kem-
ur líka af höfuðborgarsvæðinu til að
sjá myndir með nýjustu tækni.“
Í Selfossbíó eru tveir salir, sá
stærri er 118 sæta og sá minni tekur
52 í sæti. Myndirnar koma frá rétt-
höfum þeirra hér á landi og þær fara
í sýningu á sama tíma og á höf-
uðborgarsvæðinu. Hver mynd er yf-
irleitt viku til tíu daga í sýningu. „Í
svona litlu bæjarfélagi virkar það al-
veg að skipta svona ört út.“
Morgunblaðið/Ómar
Ungur bíóstjóri Axel Ingi Viðarsson tók við rekstri Selfossbíós um miðjan júlí og segir viðtökurnar vonum framar.
Hef alltaf haft bullandi
áhuga á kvikmyndum
Ungur og metnaðarfullur bíóstjóri rífur upp bíómenninguna á Selfossi
„Okkur langaði til að auðga matarmenninguna, gera eitthvað sniðugt og
okkur fannst vanta svona verslun hér á Selfossi,“ segir Elín Una Jónsdóttir,
sem rekur sælkeraverslunina Fjallkonuna á Selfossi ásamt mágkonu sinni, Sig-
rúnu Óskarsdóttur. Verslunin var opnuð í sumar og hefur hlotið afbragðs-
viðtökur, að sögn Elínar Unu. „Við höfðum aldrei áður verið í rekstri, ég er
framhaldsskólakennari og Sigrún er prestur.“
Fjallkonan býður upp á bæði innlenda og erlenda matvöru og mikið af henni
kemur beint frá býlum í nærsveitum Selfoss. Þá er þar framleitt ýmislegt úr ís-
lensku hráefni, t.d. pestó, kryddlegnir tómatar og þurrkað grænkál sem snætt
er sem nasl. „Ostarnir og nautakjötið er vinsælast hjá okkur og viðskipta-
vinirnir eru aðallega Selfyssingar og nærsveitungar,“segir Elín Una. „Svo kem-
ur sumarbústaðafólk líka mikið hingað, við heyrum það á fólki að það er virki-
lega ánægt með búðina okkar.“ annalilja@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Góðgæti Hjá Fjallkonunni má meðal annars fá osta frá ýmsum heimshornum.
Kennari og prestur opnuðu
sælkerabúð á Selfossi
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Einar Björnsson á og rekur sunn-
lensku útvarpsstöðina Suðurland
FM – Útvarp Suðurlands. Hann rek-
ur nokkur önnur fyrirtæki á Selfossi
og segir helsta markmið sitt að
auðga mannlíf á Suðurlandi.
Fyrstu kynni Einars af störfum
við útvarp voru á unglingsaldri. „Ég
fór í starfskynningu hjá Bylgjunni
þegar ég var um 15 ára. Ég hafði
ekkert endilega hugsað mér að
vinna í útvarpi, þetta var aðallega
gert af forvitni. En þarna kviknaði
einhver neisti,“ segir Einar.
Hann hefur rekið Suðurland
FM frá því í júlí 2008, en áður höfðu
svæðisbundnar útvarpsstöðvar sent
út á Suðurlandi, þar á meðal Enda-
stöðin og Útvarp Suðurland, og
ákvað hann að slá til þegar fyrri eig-
endur buðu honum að taka við
rekstrinum. „Svo hrundi allt tveim-
ur mánuðum síðar. Engu að síður er-
um við hér enn á sömu kennitölu og
reksturinn traustari en nokkru sinni
fyrr, þó gengið hafi á ýmsu.“
Hvernig hefur þú farið að
þessu? „Fyrst og fremst má þakka
góðum viðtökum fyrirtækja á svæð-
inu, mikilli hlustun og góðu starfs-
fólki,“ segir Einar sem segir Suður-
land FM vera einu útvarpsstöðina
utan höfuðborgarsvæðisins sem er
rekin allt árið.
Mikil hlustun á Suðurlandi
Samkvæmt hlustendakönn-
unum Capacent Gallup er Suðurland
FM með 45% hlustun meðal Sunn-
lendinga. Stöðin næst á Suðurlandi,
frá Hellisheiði í vestri til Skóga í
austri og frá Vestmannaeyjum í
suðri til Flúða í norðri. Að auki er
hægt að hlusta á hana á vefsíðunni
sudurlandfm.is. Sent er út á tíðninni
96,3 og hefur stöðin yfir tveimur
sendum að ráða, á Selfossi og í Vest-
mannaeyjum þar sem tíðni hennar
er 93,3.
Er þörf á sérstakri útvarpsstöð
fyrir Suðurland? „Já, svo virðist
Morgunblaðið/Ómar
Útvarpsstjóri og fleira Einar Björnsson er maður ekki einhamur. Hann rekur
útvarpsstöð, hljóðkerfaleigu og skemmtistað og heldur hátíðina Kótelettuna.
Mig langar til að auðga
mannlífið á Suðurlandi
„Þegar gerðar voru áætlanir fyrir
þetta ár, var í kortunum að sala á nýj-
um bílum yrði meiri en raunin hefur
orðið. Við erum með Suðurlands-
umboð fyrir bæði Heklu og Öskju og
erum á þessu ári búnir að selja alls
60 nýja bíla frá þeim umboðum. Ætli
árið endi ekki í um það bil 75 bílum.
Við bjuggumst við meiru,“ segir
Rögnvaldur Jóhannesson bílasali hjá
Bílasölu Selfoss.
Stundum er talað um Selfoss sem
bílabæinn. Þegar ekið er inn í kaup-
staðinn eru utan Ölfusár þrjár bíla-
sölur og er mikið umleikis hjá þeim
öllum. Á plönum er hvert stæði skip-
að notuðum bílum og er úrvalið tals-
vert. Í sýningarsölum eru nýir bílar.
Dæmigerðir kaupendur nýrra bíla í
dag eru fólk sem komið er yfir miðjan
aldur, kannski farið að nálgast sjö-
tugt, að sögn Rögnvaldar. Fólk á
þessu skeiði virðist eiga peninga og
hafa sloppið bærilega í hruninu.
„Stundum segir ég að þetta sé
kynslóðin sem var búin að koma sér
þaki yfir höfuðið fyrir verðtryggu,“
segir Rögnvaldur. „Eldra fólk hefur
svigrúm til þess að kaupa bíla sem
eru á verðbilinu 4-6 millj. kr. og borg-
ar á borðið. Þarf ekki að slá lán.
Skoda nýtur vinsælda og mér telst
svo til að helmingur allra nýrra bíla
sem við seljum sé af þeirri gerð, sem
fæst í mörgum útgáfum. Annars eru
aðstæður í dreifbýlinu þannig að fólk
þarf gjarnan öfluga fjórhjóladrifsbíla
eða jeppa, sveitafólki dugar sann-
arlega ekki lítill WV Polo eða Toyota
Yaris. Það er gagnrýnivert að þegar
vörugjöldum á nýjum bílum var
breytt og álögurnar látnar ráðast af
magni útblásturs gróðurhúsalofts
var ekki horft til þess að hve þarfir
fólks varðandi bíla séu misjafnar.“
En á meðan ládeyða er í sölu nýrra
bíla er ágæt sala í þeim notuðu.
„Okkur vantar sannarlega yngri ár-
gerðirnar en meira er til af bílum sem
eru þetta fimm til sjö ára og fást á
2-3 milljónir króna. Þegar slíkir bílar
koma á skrá eru þeir yfirleitt seldir
innan fárra daga. Netið skilar því að
viðskiptavinirnir geta verið hvor á
sínu landshorninu. Við leiðum svo
viðskiptin, enda í sjálfum bíla-
sölubænum en yfir árið erum við
gjarnan að selja um 500 notaða
bíla,“ segir Rögnvaldur bílasali að
síðustu. sbs@mbl.is
Eldra fólkið kaupir bílana
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bílar Rögnvaldur Jóhannesson bíla-
sali er gamalreyndur í faginu.
www.veidisport.is
Við veitum góða þjónustu á Selfossi