Morgunblaðið - 09.11.2013, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 09.11.2013, Blaðsíða 25
Selfoss er kaupstaður við Ölfusárbrú, stærsti þétt- býlisstaður á Suðurlandi og er hluti sveitarfé- lagsins Árborgar. Byggð tók að myndast þar þegar hengibrú var smíðuð yfir Ölfusá í lok 19. aldar, en hún var þá mesta mannvirki landsins. Íbúar á Selfossi eru um 6.500. Miðstöð verslunar, þjón- ustu og iðnaðar á Suðurlandi. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013 Bíósalur Úr stærri sal Selfossbíós, en sá er með 118 sæti. Það er búið nýj- ustu tækjum til kvikmyndasýninga. Jólabíó og klippikort Axel hefur bryddað upp á ýms- um nýjungum síðan hann tók við og segir mikla möguleika í rekstrinum. T.d. sýnir hann myndir sem hafa verið í sýningu um skeið kl. 10 á morgnana um helgar og segir það mælast vel fyrir. Þá hefur hann í hyggju að sýna vel valdar perlur kvikmyndasögunnar í minni sal bíósins og á næstunni gamlar og sígildar jólamyndir eins og t.d. National Lampoońs Christmas Vacation og fleiri slíkar. „Svo hef ég verið að velta fyrir mér að bjóða upp á klippikort í bíó, t.d. fimm skipta kort.“ Fyrsta vinnan 12 ára Axel er 24 ára og þrátt fyrir ungan aldur hefur hann verið í ýms- um fyrirtækjarekstri í nokkur ár. „Bíóið er reyndar fyrsta fyrirtækið sem ég stofna alveg frá grunni, en ég hef verið viðloðandi rekstur margra fyrirtækja. Þau hafa flest verið hérna á Selfossi. Ég hef alltaf verið óhræddur við að láta hug- myndirnar verða að veruleika og byrjaði ungur að vinna. Ætli ég hafi ekki verið 12-13 ára þegar ég fékk fyrstu vinnuna, það var í dýrabúð á Selfossi.“ Allt önnur upplifun Núna virðist annarhvor maður vera með aðgang að Netflix eða ein- hverjum öðrum síðum á netinu þar sem hægt er að horfa á kvikmyndir fyrir lítinn eða engan pening og hægt er að leigja myndir í gegnum afruglara sjónvarps. Fer fólk ennþá í bíó? „Já, heldur betur,“ segir Axel. „Og það er vegna upplifunarinnar. Allir vita að það er ekkert mál að ná í efni á netinu og horfa á það. En það er allt annað að fara út úr húsi, í bíó þar sem maður kaupir sér poppið, labbar inn í sal og sest niður og horf- ir á mynd í bestu hugsanlegu gæð- um. Þetta er bara allt önnur upp- lifun.“ Menntaður leikstjóri Axel er menntaður kvikmynda- leikstjóri frá Kvikmyndaskóla Ís- lands og hefur leikstýrt auglýs- ingum og myndböndum, auk þess að hafa komið að kvikmyndafram- leiðslu. „Ég hef alltaf haft bullandi áhuga á kvikmyndum,“ segir bíó- stjórinn ungi. Hver er uppáhalds- myndin þín? „Þetta er erfið spurn- ing. þær eru svo margar góðar. Ætli það sé ekki Clockwork Orange eftir Stanley Kubrick. Hún er rugluð, spes og svo öðruvísi.“ Popp og kók „Það er allt annað að fara út úr húsi, í bíó þar sem maður kaupir sér poppið og horfir á mynd í bestu hugsanlegu gæðum,“ segir Axel.  Á Fischersetrinu á Selfossi eru ýmsir munir tengdir skákeinvígi þeirra Bobbys Fischer og Boris Spassky í Reykjavík 1972 . Að auki eru þar ýmsir gripir sem tengjast Fischer og lífshlaupi hans. Setrið var opnað í sumar og starf- semi þess er þríþætt. „Hér erum við með skákkennslu fyrir börn, við erum með safn um Fischer og einvígið 1972 og svo er þetta félagsheimili Skák- félags Selfoss og nágrennis,“ segir Aldís Sigfúsdóttir, einn aðstandenda setursins. Fischer var búsettur hér á landi síðustu æviár sín og er grafinn í kirkjugarði Laugardælakirkju. Að sögn Aldísar sækja mörg þúsund ferðamenn leiði Fischers heim á ári hverju, „Við höfum orðið vör við að fólk vildi vita meira um Fischer og það er hægt hérna á Fischersetrinu.“ Margir áhuga- samir um Bobby Fischer Í Fischersetrinu Aldís Sigfúsdóttir er einn aðstandenda setursins. Skannaðu kóðann til að sjá mynd- skeið á mbl.is. sérhæfir sig í leigu og sölu á hljóð-, ljós- og myndlausnum. Leiguna hef- ur hann rekið í tæp 22 ár, en hún varð til eftir að hann lagði gítarinn á hilluna eftir fimm ára hljómsveit- arstúss, eins og hann kemst að orði. Hann hefur séð um ýmis verkefni í gegnum tíðina, m.a. séð um tækja- leigu á öllum landsleikjum á Laug- ardalsvelli og á Þjóðhátíð í Vest- mannaeyjum undanfarin 17 ár. Að auki hafa öll helstu sveitaballabönd landsins notið þjónustu hans. Hvítahúsið opnaði Einar fyrir um sex árum, en á þeim tíma var enginn skemmtistaður starfræktur á Selfossi, að hans sögn. Það var svo fyrir fjórum árum sem hann lét annan draum verða að veruleika þegar hann setti af stað bæjarhátíðina Kótelettuna, þar sem íslensk matvælaframleiðsla, ýmsir skemmtikraftar og margt af fremsta tónlistarfólki landsins leggur saman krafta sína. „Kótelettan er margt; bæjar- , grill- og tónlistarhátíð og hefur verið haldin á Selfossi síðustu fjögur árin, alltaf annan laugardag í júní.“ Einar segir hátíðina orðna fasta í sessi, hún hafi vaxið ár frá ári og fengið frábærar viðtökur bæði hjá Selfyssingum og öðrum. Hvaða starfsheiti er hægt að nota yfir mann eins og þig, er at- hafnamaður nærri lagi? „Góð spurn- ing, en erfitt að svara. Kannski er hægt að segja að ég sé maður sem vinn að skemmtun á einn eða annan hátt. Mig langar til að auðga mann- lífið hérna á Suðurlandi og vonandi get ég lagt mitt af mörkum til þess.“ vera. A.m.k. bendir hlustunin til þess,“ segir Einar. Hann segir sér- stöðu stöðvarinnar aðallega felast í metnaðarfullri þáttagerð og fjöl- breyttri tónlist. „Við erum með um 12 starfsmenn í þáttagerð, auk fréttaritara um allt Suðurland og höfum verið óhrædd við að fara nýj- ar leiðir og leyfa ungu fólki að spreyta sig. T.d. vorum við að byrja með nýjan þátt, Raddir unga fólks- ins, þar sem ungmenni alls staðar af Suðurlandi fjalla um málefni ungs fólks.“ Heldur bæjarhátíð og leigir hljóðkerfi Einar er með ýmis járn í eld- inum og auk útvarpsstöðvarinnar rekur hann skemmtistaðinn Hvíta- húsið og tækjaleiguna EB kerfi, sem Suðurland FM Guðleifur W. Guð- mundsson, Gulli G., er á morg- unvaktinni alla virka daga.  „Við höfum aldrei gefið út fleiri bækur en á þessu hausti. Bækurnar eru hver annarri ólíkar, en mér er kært að gefa út bækur úr jarðvegi ís- lenskrar sveitamenningar,“ segir Bjarni Harðarson, bóksali á Selfossi. Þau Elín Gunnlaugsdóttir standa að Sunnlenska bókakaffinu og undir þess merkjum gefa þau út níu bækur fyrir jólin. Af mörgum góðum má þar nefna Sýnisbók safnamanns þar sem Þórður Tómasson safnvörður segir sögu merkra muna í Byggðasafninu í Skógum. Einnig vekur eftirtekt bókin Vettlingar frá Vorsbæ eftir þær mæðgur Emelíu Kristbjörnsdóttur og Valgerði Jónsdóttur ha frá Vorsabæ á Skeiðum. Þar er að finna uppskriftir að fallegum prjónavettlingum. Sveitabækur eru mér kærar Bækur Bjarni Harðarson með bæk- urnar sem hann er að gefa út. Lifandi samfélag í alfaraleið Selfoss Eyrarbakki Stokkseyri www.arborg.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.