Morgunblaðið - 09.11.2013, Qupperneq 26
SELFOSS
DAGA
HRINGFERÐ
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Í vikunni lauk uppsetningu nýrrar
framleiðslulínu í mjólkurbúi Mjólk-
ursamsölunnar á Selfossi. Unnið
hefur verið að þessu verkefni síð-
asta eitt og hálft ár og er þetta hluti
af víðtækum áherslubreytingum í
starfsemi MS, þar sem hagræðing í
rekstri er leiðarljósið. Með fram-
kvæmdunum sem nú er að ljúka
hefur öll mjólkurvinnsla og -pökkun
verið flutt úr Reykjavík á Selfoss og
með því eflist starfsemin eystra til
muna. „Við erum núna að fínstilla
alla framleiðslu og ferla og þetta
rúllar vel af stað,“ segir Guð-
mundur Geir Gunnarsson mjólk-
urbússtjóri.
Uppstokkun í mjólkuriðnaði
Samanlagður kostnaður við
breytingarnar í mjólkurbúinu á Sel-
fossi er um einn og hálfur millj-
arður króna. Meira hangir raunar á
spýtunni, fjárfestingar vegna upp-
stokkunar í mjólkuriðnaðinum í
landinu á sl. sex árum nema alls
átta milljörðum króna. Selfossbúið
hefur verið eflt og sömuleiðis starf-
semin á Akureyri, en þar er osta-
framleiðslan í öndvegi.
„Á degi hverjum er innvegið
magn hráefnis sem kemur til
vinnslu hér á Selfossi um 200 þús-
und lítrar, sem er algeng ársfram-
leiðsla á meðalstóru kúabúi. Unnin
er mjólk frá bændum allt vestan af
Snæfellsnesi og austur á Horna-
fjörð. Síðustu árin höfum við verið
að vinna úr 48 millj. lítrum yfir árið
en með því að vinnslan í Reykjavík
er lögð niður fara hér í gegn um 60
milljónir lítra á ári,“ segir mjólk-
urbússtjórinn.
Starfsdagurinn í mjólkurbúinu
á Selfossi hefst milli klukkan sex og
sjö á morgnana. Þá er byrjað að
pakka mjólkinni og öðrum vörum.
Þegar klukkan nálgast átta renna
svo fyrstu fernur og dósir af færi-
böndunum, þar sem róbótar grípa
og raða í grindur og kassa. Þeim er
rennt í flutningabíla sem flytja vör-
urnar suður til Reykjavíkur og er
þaðan dreift frá MS á Bitruhálsi í
Reykjavík. Vara sem er pakkað á
Selfossi er oft komin í verslanir í
Reykjavík um hádegi.
„Framleiðslan hér er í gangi
fram til klukkan þrjú á daginn en
síðari hluta vikunnar erum við leng-
ur að. Gjarnan fara flutninga-
bílarnir frá okkur þetta tíu og tólf
ferðir á dag og nú á mánudaginn
voru ferðirnar alls fjórtán,“ segir
Guðmundur Geir.
Tólf þúsund fernur á
klukkustund
Frá árinu 2010 hafa á Selfossi
verið settar upp sjö mjólkurpökk-
unarvélar og í gegnum þá sem af-
kastar mest renna um tólf þúsund
einingar eða fernur á klukkustund.
Mjólkurbúið eystra var byggt um
1960, en þótt margvíslegar breyt-
ingar hafi verið gerðar á húsakynn-
um síðan er grunngerðin hin sama.
Húsnæðið er þannig gert að vél-
arnar þurfa beinlínis að passa inn í
húsnæðið. Menn hafa þurft að leita
lausna og útfærsla og uppsetning
véla tekur mið af aðstæðunum.
Fyrir utan vinnslu og pökkun á
almennri drykkjarmjólk er á Sel-
fossi öll framleiðsla á G-vörum, t.d.
kakómjólk. Þar eru sýrðu vörurnar
einnig framleiddar, til dæmis jógúrt
í ýmsum útgáfum, sem og smjör og
viðbit. Allt skyr Mjólkursamsöl-
unnar er nú framleitt á Selfossi, á
vordögum þessa árs var byrjað að
vinna og pakka KEA-skyri en fyrir
var Skyr.is.
„Já, auðvitað er þetta talsverð
viðbót við starfsemina hjá okkur.
Við munum væntanlega bæta ein-
hverjum við en markmið breyting-
anna er að ná fram hagræðingu í
starfseminni. Annars hefur fjöldi
starfsmanna hér á Selfossi verið
nokkuð jafn yfir langt tímabil eða
rétt um 100 manns. Aukin vélvæð-
ing skilar því að starfsmönnum hef-
ur ekki fjölgað þó svo magnið hafi
aukist,“ segir Guðmundur Geir sem
byrjaði að vinna í mjólkurbúinu árið
1972, þá fimmtán ára gamall. Í
framhaldinu fór hann til náms í
mjólkurfræði í Danmörku, en
löngum hafa verið gagnvegir milli
manna í mjólkuriðnaðinum hér á
landi og í Skandinavíu.
Viðbótin 60 milljónir lítra á ári
MS eflist Fjárfest fyrir 1,5 ma. kr. Fjórtán Reykjavíkurferðir á dag Sýrt, G-vörur og mjólk
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
AB-drykkur Sýrðar vörur eru framleiddar á Selfossi og ein þeirra sem þar standa vaktina er Dorota Ewa Zolich.
Næsti viðkomustaður 100 daga hringferðar Morgunblaðsins er Hveragerði.
Á mánudaginn
Hröð uppbygging og íbúafjölgun
Selfoss Horft yfir bæinn við brúna.
Fáir staðir á landinu hafa byggst jafn hratt upp og Selfoss. Það var um árið
1930 sem þar fór að myndast þéttbýli, sem óx fiskur um hrygg þegar fyrirtæki,
sem síðar urðu stórveldi á sína vísu, hófu þar starfsemi sína. Árið 1940 voru
Selfossbúar 234, en voru orðnir um 2.400 árið 1970. Árið 1990 voru bæjarbúar
3.915. Nærri aldamótum þegar farið var að brjóta lönd og byggja ný hverfi varð
sprenging í íbúafjölda; árið 1998 bjuggu 4.340 manns á Selfossi – en voru
2008 orðnir 6.572. Fjölgunin er 51%. Selfossbúar eru nú nánast jafn margir og
var á hrunárinu fræga.
„Þegar ég byrjaði að vinna hér
fyrir rúmum fjörutíum vorum
við í nánast allri þeirri fram-
leiðslu sem þá tíðkaðist í
mjólkuriðnaðinum. Ég gæti trú-
að að vörunúmerin þá hafi
kannski verið í kringum 150.
Framfarirnar á þessum tíma
hafa verið jafnar og stöðugar
og núna er íslenskur mjólk-
uriðnaður að framleiða vel á
fjórða hundrað vörunúmer.
Hefur það gerst með sérhæf-
ingu vinnslustöðvanna, þar
sem mönnum gefst kostur á að
einbeita sér að ákveðnum verk-
efnum,“ segir Guðmundur Geir
Gunnarsson.
„Vöruþróunarstarf MS skilar
því að fimm til tíu nýjar vöru-
tegundir koma á markaðinn á
hverju einasta ári og ýmislegt
áhugavert er í undirbúningi
sem kemur á markaðinn á
næstu mánuðum og misserum.
Undirbúningurinn tekur tíma.
Með aukinni þekkingu í mjólk-
urfræðinni skapast nýjar víddir.
Með tækninni er hægt að ein-
angra betur annars vegar pró-
teinið og hins vegar fituna. Er
próteinið og vörur úr því eft-
irsóttar, til uppbyggingar vöðva
og beina. Nú er viðhorf til fitu-
neyslu að breytast og því hefur
fylgt söluaukning í íslensku
smjöri sem við höfum aldrei
séð áður.“
FRAMFARIR OG FJÖLBREYTT
FRAMLEIÐSLA
Mjólkurmenn Sveinn Gústafsson og
Guðmundur Geir er til hægri.
Einangra
fituna og
próteinið