Morgunblaðið - 09.11.2013, Síða 29

Morgunblaðið - 09.11.2013, Síða 29
FRÉTTIR 29Viðskipti | atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013 Rekstrartekjur N1 hf. á þriðja árs- fjórðungi 2013 voru 17,8 milljarðar samanborið við 18 milljarða á sama tímabili í fyrra. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 1,16 millörðum króna samanborið við 1 milljarð á sama tímabili 2012. Heild- arhagnaður þriðja ársfjórðungs nam 690 milljónum króna samanborið við 473 milljónum í fyrra. Þetta kemur fram í afkomutilkynningu frá N1. Rekstrartekjur N1 hf. á fyrstu níu mánuðum ársins 2013 voru 45 millj- arðar samanborið við 46,7 milljarða á sama tímabili í fyrra. Rekstr- arhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 1,7 milljörðum sam- anborið við 2,3 milljarða á sama tímabili 2012. Heildarhagnaður tímabilsins var 794 milljónir en á sama tímabili árið áður var hann 1,1 milljarður. Á fyrstu níu mánuðum ársins féll til kostnaður vegna undirbúnings skráningar félagsins á markað og vegna sölu á Bílanausti að fjárhæð 117 milljónir. Félagið stefnir að skráningu í Kauphöll Íslands fyrir áramót. N1 Eggert Benedikt Guðmundsson, er forstjóri olífélagsins N1. Góður 3. fjórðungur hjá N1 ● Kristinn ehf. hefur keypt meirihluta hlutafjár í Kvos ehf., móðurfélagi Odda, en seljendur eru einkum fjölskyldur nokkurra erfingja stofnenda Odda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Odda. Þar segir einnig að kaupverðið sé trúnaðarmál og að eignarhluti Þorgeirs Baldurssonar, forstjóra Kvosar, sé óbreyttur. Þá kemur fram í tilkynning- unni að kaupin hafi verið borin undir Samkeppniseftirlitið á grundvelli sam- keppnislaga og að eftirlitið hafi heim- ilað kaupin með nánar tilgreindum skil- yrðum sem fram komi í samkomulagi aðila. „Kvos býr að sterkri markaðsstöðu hér á landi í prentun og umbúðum úr pappír og plasti. Starfsemin er fjöl- breytt og byggist á traustum grunni. Sýn Kristins ehf. á framtíð Kvosar og Odda er í góðum samhljómi við áherslur stjórnenda og annarra eigenda félagsins. Við væntum mikils af sam- starfinu,“ segir Þorgeir. Kristinn ehf. eignast meirihluta í Kvos ● Sif Cosmetics setti á markað í gær EGF Augna- blik, sjöttu vöruna í EGF húðvörulínu fyrirtækisins. Í fréttatilkynningu frá Sif Cosmetics kemur fram að EGF Augnablik sé end- urnærandi gel sem vís- indamenn Sif Cosmetics hafi þróað sérstaklega fyrir húðina í kringum augun. EGF Augnablik er sjötta EGF húðvaran sem Sif Cosmetics setur á markað hér á landi, sam- kvæmt því sem fram kemur í tilkynningunni – en óhætt sé að segja að vörur fyrirtækisins hafi slegið í gegn á Íslandi og erlendis á síðustu árum. EGF Augnablik var sett á markað í gær Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Íslenska hátískuhönnunarmerkið KARBON by Boas Kristjanson sem hannar fatnað fyrir karlmenn hefur selt vörur í 16 hátískuverslanir vítt og breitt um heiminn. Bóasi Kristjánssyni, stofnandi fyrirtækisins, þykir óeðlilegt að bankar veiti ekki lán til að fram- leiða flíkurnar þrátt fyrir að búið sé að selja varninginn. „Það eru alvar- leg tíðindi fyrir skapandi greinar á Íslandi ef fjármálafyrirtæki lána ekki til að framleiða vörur sem búið er að selja, en ný fyrirtæki þurfa fjármagn til að geta framleitt,“ seg- ir hann og lætur þess getið að styrkir til nýsköpunar hér á landi séu einungis fyrir minniháttar verk- efni. Fyrirtækið leitar nú að auknu hlutafé til þess að fjármagna fram- leiðsluna. Á sama tíma fyrir ári var fyr- irtækið hans að stíga sín fyrstu skref við að framleiða prufulínu sem sýnd var í París síðastliðinn vetur. Bóas framleiðir m.a. ýmiskonar fatnað úr íslensku laxaroði, t.d. leð- urjakka. Hann segir að þeirri nýj- ung hafi verið sérstaklega vel tekið. Skapandi greinar skorti lán Morgunblaðið/Kristinn Fatahönnuður Bóas Kristjánsson  Hátískumerkið KARBON leitar að auknu hlutafé Jól 2005 Jól 2007 Jól 2008 Jól 2009 Jólin 2010 Jól 2011 Morgunblaðið gefur út stórglæsilegt jólablað laugardaginn 23. nóvember Jólablað Morgunblaðsins SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA: fyrir kl. 16 mánudaginn 18. nóvember. Í jólablaðinu í ár komum við víða við, heimsækjum fjölda fólks og verðum með fullt af spennandi efni fyrir alla aldurshópa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.