Morgunblaðið - 09.11.2013, Page 31
FRÉTTIR 31Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013
Smástirnið, sem splundraðist yfir borginni Tsjeljabinsk í
Rússlandi 15. febrúar síðastliðinn, var 19 metrar að
þvermáli og hreyfiorka þess samsvaraði orku tuga
kjarnorkusprengna á stærð við þá sem varpað var á
Hiroshima. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu tékkneskra
og kanadískra vísindamanna sem rannsökuðu þennan
stórbrotna atburð.
Vísindamennirnir áætla að smástirnið hafi verið um
það bil 12.000 tonn á þyngd og hreyfiorka þess hafi sam-
svarað 500.000 tonnum af sprengiefninu TNT, að því er
fram kemur í vísindatímaritinu Nature. Þetta samsvarar
orku 27 til 41 kjarnorkusprengju á stærð við þá sem
Bandaríkjaher varpaði á borgina Hiroshima í Japan árið
1945.
Áður hafði verið talið að smástirnið hefði verið um 17
metrar að þvermáli og 10.000 tonn á þyngd áður en það
splundraðist í lofthjúpnum.
Um 1.200 manns slösuðust vegna höggbylgjunnar og
þúsundir brota dreifðust yfir Tsjeljabinsk og nágrenni.
Heildarmassi brotanna sem voru þyngri en 100 grömm
var þó minni en talið var í fyrstu, að sögn vísindamann-
anna. bogi@mbl.is
19
m
20 km
Smástirnið splundraðist yfir borginni Tsjeljabinsk 15. febrúar sl. og olli
höggbylgju sem fór yfir tiltölulega þéttbýlt svæði
Smástirnið sem splundraðist yfir Rússlandi
Byrjaði að
splundrast
í smærri steina í
45-30 km fjarlægð
frá yfirborði
jarðar
Þegar
smástirnið
splundraðist
rigndi brotum
úr því yfir
Tsjeljabinsk
og nágrenni
Lofthjúpur jarðar
2
Tsjeljabinsk
Meginbraut smástirnisins
Brot úr loftsteininum
Hæð yfir sjávarmáli í km
Braut
Steinn sem
mælist 4 cm
Tsjebarkúl-
vatn
Vötn
RÚSSLAND
Þegar smástirnið kom í lofthjúpinn1 1
2
Þyngd: 12.000 tonn
Hraði: 19 km á sekúndu
Hæð: 95 km
Orkan samsvaraði
500.000 tonnum af TNT
Heimildir: Roskosmos, NASA
Tsjebarkúl
MOSKVA
Timirjazevskí
Timirjazevskí
Korkino20
25
30
35
8 m breiður
gígur
5 km
Þúsundir lítilla loftsteina dreifðust um landsvæðið
1.200 manns slösuðust, um 300 byggingar skemmdust
Rúður brotnuðu vegna höggbylgjunnar
Tsjebarkúl
Tsjeljabinsk
Cratère
4
Brot eftir
frekari sundrun
3
Brot sem mynduðust
þegar sundrunin var mest
Var á við allt að 41 kjarnorkusprengju
Margir gyðingar í Evrópu telja að
gyðingahatur fari vaxandi í álfunni
og það komi einkum fram á netinu,
ef marka má niðurstöður könnunar
Evrópustofnunar grundvallarmann-
réttinda (FRA).
Könnunin náði til 5.847 gyðinga
og 66% þeirra sem svöruðu töldu að
gyðingahatur væri vandamál í Evr-
ópu. Um 76% þeirra töldu að gyð-
ingahatur hefði aukist á síðustu
fimm árum, að því er fram kemur á
fréttavef breska ríkisútvarpsins.
Könnunin var gerð í fyrra í átta
löndum; Belgíu, Bretlandi, Frakk-
landi, Ítalíu, Lettlandi, Svíþjóð,
Ungverjalandi og Þýskalandi. Í
þessum löndum búa um það bil 90%
allra gyðinga í aðildarríkjum Evr-
ópusambandsins.
29% íhuguðu að
flytja úr landi
Þátttakendurnir höfðu einkum
áhyggjur af gyðingahatri á netinu.
Um þrír af hverjum fjórum þeirra
sögðust telja það vandamál sem
færi vaxandi.
Um 29 af hundraði þátttakend-
anna sögðust hafa íhugað að flytja
úr landi vegna þess að þeir hefðu
áhyggjur af öryggi sínu. Hlutfallið
var hæst í Ungverjalandi, þar sem
48% sögðust hafa íhugað að flytja
þaðan, í Frakklandi (46%) og Belgíu
(40%).
Um einn af hverjum fimm kvaðst
hafa orðið fyrir árás eða þurft að
sitja undir svívirðingum vegna þess
að hann væri gyðingur síðustu tólf
mánuðina áður en könnunin var
gerð. Af þeim sem gerðu alvarleg-
ustu árásirnar voru 27% öfgamenn
úr röðum múslíma, 22% voru
vinstrimenn og 19% hægrimenn að
mati gyðinganna sem urðu fyrir
árásunum.
Þátttakendurnir voru einnig
spurðir um algengustu athugasemd-
irnar sem þeir hefðu heyrt um gyð-
inga. Um 35% þeirra sögðu algeng-
ustu athugasemdirnar þær að
Ísraelar hegðuðu sér „eins og nas-
istar“ gagnvart Palestínumönnum
og að gyðingar misnotuðu samúðina
sem þeir nytu vegna útrýmingar-
herferðar nasista.
Um 73% gyðinga í Frakklandi og
28% í Þýskalandi sögðust telja að
deilur Ísraela og araba hefðu mikil
áhrif á öryggi gyðinga. Þetta hlut-
fall var lægra í austanverðri álfunni
og lægst í Lettlandi þar sem aðeins
8% töldu að deilurnar hefðu mjög
slæm áhrif á öryggi þeirra.
bogi@mbl.is
Gyðingahatur fer
vaxandi í Evrópu
76% gyðinga telja hatrið hafa aukist
Lækjargötu og Vesturgötu