Morgunblaðið - 09.11.2013, Síða 32

Morgunblaðið - 09.11.2013, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þriðji alls-herjar-fundur mið- stjórnar kínverska kommúnista- flokksins hefst um helgina. Líklega eru fáir fund- ir sem hafa jafn óspennandi yfirskrift. Að sama skapi eru þeir fundir fáir sem geta leitt af sér róttækari breytingar en einmitt þriðji allsherjarfund- urinn. Samskonar fundur árið 1978 leiddi til þess að Deng Xiaoping tók við stjórn lands- ins og lagði drögin að nýrri efnahagsstefnu, þeirri sömu sem hefur í dag breytt Kína í eitt af drifkerfum heimsbú- skaparins. Xi Jinping, leiðtogi Kína, hefur verið iðinn við kolann að undanförnu við að styrkja stöðu sína innan flokksins, samanber réttarhöldin yfir Bo Xilai og ýmsar aðrar hreins- anir sem einkum hafa beinst að vinstri armi komm- únistaflokksins. Xi og for- sætisráðherrann Li Keqiang hafa því gott tækifæri til þess að koma á frekari umbótum á kínverska hagkerfinu. Engin leið er að segja til um hvað muni gerast á fundinum en vilji Kínverjar tryggja efnahag sinn sem best er ljóst að þeir þurfa að ganga lengra í því að leysa einkaframtakið úr læðingi og draga úr umsvifum ríkisins í samkeppnisrekstri. Annað atriði sem gæti skipt höfuðmáli er hvað ákveðið verður að gera fyrir dreif- býlishéruð Kína, þar sem um helmingur Kínverja býr enn. Í aðdraganda fundarins hafa verið framin tvö hryðju- verk í Kína, fyrst var bíl keyrt á hóp fólks á Torgi hins himneska friðar og hann sprengd- ur í loft upp, og síðan varð sprenging við höf- uðstöðvar kommúnistaflokks- ins í Shanxi-héraði, þar sem einn lét lífið og átta særðust. Hryðjuverkin nú eru ekkert nýmæli því að á síðasta áratug hafa um þrjátíu hryðjuverk verið framin í landinu, flest þeirra í Xinjiang-héraði í vest- urhluta Kína. Þar býr fjöl- mennur minnihlutahópur sem vill helst kljúfa sig frá Kína, en sú krafa verður skiljanlegri þegar haft er í huga að við- snúningurinn á efnahag Kín- verja hefur skilað sér lítt til sveitahéraðanna í vestri og norðri. Orsakanna að ódæð- isverkunum gæti þó einnig verið að leita í því að Kínverj- ar séu hægt og bítandi að gef- ast upp á járnhæl komm- únistaflokksins. Vilji þeir Xi og Li bregðast við þessu, óánægju fólks á landsbyggðinni og vaxandi óánægju með ofríki komm- únista, verða þeir í fyrsta lagi að finna leiðir til þess á fund- inum sem tryggi að hagsældin nái til sveitaþorpa landsins ekki síður en til stórborganna á austurströndinni. Tækifærið til þess gefst um helgina á allsherjarfundinum. Mun ólík- legra er hins vegar að þar verði í nokkru aflétt þeirri stjórnmálalegu ánauð sem felst í stjórn kommúnista- flokksins, nema síður verði. Herði þeir tökin of mikið gæti þó stefnt í enn frekari ólgu. Kínverjar lifa á áhugaverðum tímum} Hverju breytir þriðji allsherjarfundurinn? Sparnaður ílöggæslu hef- ur leitt til þess að skráðum umferð- arlagabrotum hefur fækkað verulega. Í Morgunblaðinu í gær segir frá því að hjá lög- reglunni í Borgarfirði og Dölum hefur þeim fækkað um rúmlega helming, voru 1.110 árið 2008, en 507 í fyrra. Þetta þýðir því miður ekki að ökumenn á Íslandi séu farnir að aka eins og englar, heldur hefur akstur lögreglu- bíla dregist saman um 60%. Lögreglan hefur áhyggjur af því að minna eftirlit ýti undir glannaskap í umferð- inni. „Alltaf heyr- ist af stöku öku- mönnum sem aka langt yfir leyfi- legum hámarks- hraða, sem auð- vitað skapar ekki aðeins hættu fyrir þá heldur aðra í umferðinni,“ segir Hlynur Hafberg Snorrason, yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum, við Morgun- blaðið í gær. Umferð um Dalina hefur snaraukist með breyttum samgöngum og fjölgun ferða- manna. Því ætti frekar að vera ástæða til að auka eftir- lit en draga úr því. Það getur verið hættulegt ef ökumenn fá á tilfinninguna að þjóðveg- irnir séu án eftirlits. Það getur verið hættulegt ef öku- menn fá á tilfinn- inguna að þjóðveg- irnir séu án eftirlits } Öryggi ógnað Þ að færi vel á því að borgaryfirvöld útnefndu Jón Gnarr sérstakan viðhafnarfulltrúa Reykjavíkur þegar hann stígur úr embætti borgarstjóra. Það hlutverk fór honum vel og hann á hrós skilið fyrir að hafa staðið á og flaggað sannfæringu sinni í þágu mannréttinda og ekki síst fyrir að hafa gert það á skemmtilegan hátt, í dragi eða jedi- búningi. Hann gaf litlausum viðburðum líf, ekki síst þegar það glitti í grínistann Gnarr. En hver verður arfleifð fráfarandi borg- arstjóra? Besti flokkurinn kom, sá og sigraði í borg- arstjórnarkosningunum 2010 með loforðum um að uppræta spillingu með því að viðhafa hana fyrir opnum tjöldum, bjóða aumingjum ókeypis tannlæknaþjónustu og opna Kvenna- stofu „þar sem konur geta komið og fengið sér allskonar kaffi með bragðefnum eins og vanillu og kanil“. Stærsta kosningaloforðið var auðvitað að það stæði alls ekki til að standa við gefin loforð. Þetta reyndust langþreyttir borg- arbúar hæstánægðir með. Jón Gnarr var helsta tromp Besta flokksins, spaðaásinn. Það er erfitt að ímynda sér að flokknum hefði vegnað jafn vel án hans. En það væri ofsagt að segja að hann hafi verið helsti málsvari stefnu flokksins og ákvarðana. Jón Gnarr fór sjaldan mikinn í fjölmiðlum til að verja pólitískar hugsjónir Besta flokksins en hann hafði heldur ekki gefið nein fyrirheit um að vera til svara né hafði flokkurinn sett fram hefðbundna stefnuskrá sem hægt var að hanka hann á. Það kemur því kannski ekki sérlega á óvart að Besti flokkurinn haldi kosningafylgi sínu samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum. Flokk- ur sem lofar að svíkja öll loforð axlar enga ábyrgð og verður því seint látinn sæta ábyrgð. En Besti, í samfloti við Samfylkinguna, hefur líka siglt lygnan sjó á kjörtímabilinu, eftir fár- viðri og hráskinnaleik áranna á undan. Kjós- endur virðast almennt sáttir við aðgerðir meiri- hlutans, að skólasameiningum og flugvallarmálum undanskildum. Besti flokkurinn var listaverk, tilraun, frat í argaþras flokkastjórnmálanna. Hann sýndi fram á vanþörfina á atvinnupólitíkusum í borg- inni; það er nóg að kjósa vel meinandi fulltrúa með stefnu, eða enga, og þetta reddast, enda ógrynni af vel hæfum borgarstarfsmönnum að vinnan vinnuna á bak við tjöldin. Stóra spurningin er hins vegar hvort þetta ástand hefði varað, hvort borgarbúar hefðu að lokum misst þolinmæðina gagnvart stefnuleysi Besta flokksins, innantómum kosningaloforðunum eða fá- læti borgarstjórans í pólitískum hitamálum. Það verður fátt um svör, því nú er hann hættur, búinn og bráðum farinn. Pólitíkin lagði listamanninn Jón Gnarr að velli og við fáum aldrei að vita hvernig gjörningi hans hefði vegnað á öðru kjörtímabili. Þrátt fyrir að skoð- anakannanir bendi til þess að stórum hluta kjósenda þyki framúrstefnuleg stjórnmálahreyfing Jóns enn Besti kost- urinn, þá fetar flokkurinn nú troðnar slóðir inn í Framtíð- ina. holmfridur@mbl.is Hólmfríður Gísladóttir Pistill Hvað er eftir þegar tjaldið fellur? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Einvígi Indverjans Viw-anathan Anands ogNorðmannsins MagnusarCarlsen um heimsmeist- aratitilinn í skák hefst í borginni Chennai á Indlandi í dag. Hafi hinn tæplega 23 ára gamli Carlsen sigur verður það í fyrsta skipti sem Norð- urlandabúi verður heimsmeistari í skák. Anand gæti hins vegar tryggt sér sjötta heimsmeistaratitil sinn en Indverjinn hefur haldið honum frá árinu 2007. Tefldar verða tólf skákir á næstu rúmu tveimur vikunum og stendur sá uppi sem heimsmeistari sem fyrr nær sex og hálfum vinningi. Einvígið er sögulegt meðal annars fyrir þær sakir að þetta er í fyrsta skipti frá árinu 1921 sem Rússi eða Sovétmaður er ekki í úrslitum þess. Auk þess hefur áskorandinn nokkra yfirburði yfir ríkjandi meistara. „Þetta er óvenjulegt einvígi því nú er heimsmeistarinn klárlega sá sem minna má sín. Anand er í 8. sæti á stigalista [alþjóðaskáksambands- ins] FIDE en Carlsen er stigahæsti skákmaður allra tíma. Ég held að fyrirfram hafi sjaldan hallað eins mikið á heimsmeistarann,“ segir Gunnar Björnsson, forseti Skák- sambands Íslands um einvígið. Anand þaulreyndur Þetta er þó ekki einsdæmi því fyrirkomulag einvígisins, sem fer fram á tveggja ára fresti, er þannig að ríkjandi heimsmeistari teflir gegn áskoranda sem hefur unnið sér rétt til að skora hann á hólm. Heims- meistarinn er því ekki endilega stigahæsti skákmaður heims. Þann- ig var Bobby Fischer til dæmis stigahærri en Boris Spasskí þegar þeir mættust í einvígi sínu í Reykja- vík. Á móti þessum mun á stigum andstæðinganna tveggja benda menn á að Anand sé þaulreyndur einvígismaður sem hefur varið tit- ilinn þrisvar sinnum í röð. Carlsen hafi hins vegar aldrei teflt alvöruein- vígi. Íslenski stórmeistarinn Þröstur Þórhallsson hefur teflt við bæði An- and og Carlsen. Indverjanum kynnt- ist hann á heimsmeistaramóti ung- linga í Noregi árið 1986 en þeir Þröstur eru jafngamlir. Hafði Anand betur. Ári síðar tefldu þeir aftur á móti á Filippseyjum þar sem Anand varð heimsmeistari unglinga yngri en 20 ára. Þar segir Þröstur að stjarna hans hafi fyrst byrjað að skína. „Hann var þekktur fyrir það á yngri árum að vera gríðarlega fljót- ur að leika. Hann átti oft klukkutíma eftir af sínum tíma þegar andstæð- ingurinn var kominn í tímahrak,“ segir Þröstur. Þetta hafi Anand út- skýrt sem svo að aðeins eitt taflborð hafi verið í heimaþorpi hans og hafi drengirnir þar beðið í röðum eftir að fá að tefla. Carlsen mætti Þröstur á Norð- urlandamóti í Bergen árið 2000 þeg- ar Norðmaðurinn var aðeins 11 ára gamall og gerðu þeir jafntefli. Stíll þeirra Anands og Carlsens er ólíkur að sögn Þrastar. Anand sé annálaður sóknarskákmaður, þó að hann sé varkárari í seinni tíð, og gríðarlega vel undirbúinn fyrir ein- vígi sem þessi. Carlsen leggi minna upp úr byrjunarfræðum en sé af- burðagóður í mið- og endatafli. „Hann þarf lítið frumkvæði til að gera sér mat úr og ýta andstæð- ingnum út af borðinu,“ segir Þröstur um Carlsen. Hann treystir sér ekki til að spá hvor standi uppi sem sigurvegari í ein- víginu. Aldrei hallað eins mikið á meistarann AFP Meistarar Heimsmeistarinn Anand (t.v.) og áskorandinn Carlsen (t.h.) á blaðamannafundi í gær fyrir einvígi þeirra í Chennai á Indlandi. „Mín fyrstu kynni af Carlsen voru að ég var paraður á móti honum [á Norðurlandamóti í Bergen árið 2000]. Ég vissi ekk- ert hver hann var og hann rétt náði upp á borðið. Ég var með svart og skildi ekkert í því að ég var alltaf að rembast við að ná jafnri stöðu,“ segir Þröstur um kynni sín af Magnusi Carlsen. Skákin endaði með jafntefli og segist Þröstur hafa verið óánægður með það. Hann marði svo sigur gegn Carlsen í hrað- skák og áttaði Þröstur sig á hversu góður Carlsen var í raun. Hægt er að fylgjast með einvíginu á heimasíðu móts- ins sem m.a. er hægt að nálgast í gegnum vefinn skak.is. Þá verður bein útsending í norska rík- issjónvarpinu NRK. Rétt náði upp á borðið SKÁKIN VIÐ CARLSEN Þröstur Þórhallsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.