Morgunblaðið - 09.11.2013, Side 36

Morgunblaðið - 09.11.2013, Side 36
36 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013 Eins og kunnugt er hefur bygg- ing verið reist ofan á svokallaðri Þorláksbúð, skáhallt á hina form- fögru Skálholtskirkju. Þessi yf- irbygging er ranglega sögð til- gátuhús, en Þorláksbúð hefur engin söguleg tengsl við Þorlák biskup helga. Þetta er skemmd á allri ásýnd Skálholtsstaðar og van- virða við þá sem stóðu að gerð þeirrar kirkju, sem átti hálfrar aldar vígsluafmæli á liðnu sumri. Fram hefur komið í umræðunni að kofinn við kirkjuvegginn er byggð- ur á ósannindum og rangfærslum. Þjóðkirkjan íslenska má ekki una því. Þögn hefur ríkt um málið að undanförnu. Mörgum spurningum er enn ósvarað. Við bygginguna ofan á Þorláks- búð hafa lög og reglugerðir ítrek- að verið brotin. 1. Hvers vegna leyfði Minja- stofnun Íslands að grafarró væri raskað í kirkjugarðinum í Skál- holti? Tilgátuhúsið er byggt ofan á grafir frá fyrri tímum. For- stöðumaður Minjastofnunar Ís- lands hefur aldrei svarað hvers vegna hún leyfði þessa for- dæmalausu framkvæmd. 2. Hvers vegna leyfði Minja- stofnun Íslands að byggt væri of- an á friðlýstar fornminjar við vegg dómkirkjunnar í Skálholti og þeim raskað? Forstöðumaður Minja- stofnunar Íslands hefur aldrei svarað því. 3. Byggingarleyfi Bláskóga- byggðar fyrir torfkofanum sem nú er risinn var gefið út þegar fram- kvæmdum var nánast lokið. Hvernig stóð á því? 4. Fjárveitingar komu til verks- ins úr ríkissjóði. Samtals 9,4 millj- ónir á árunum 2008 til 2011. Aldr- ei hefur verið gerð grein fyrir því hvernig þeim fjármunum úr vösum almennings var ráðstafað. Bað Al- þingi aldrei um endurskoðaða árs- reikninga? Hversvegna hefur Ríkisendurskoðun ekki gengið eft- ir svörum um það hvernig þessum fjármunum var varið? 5. Hefur kirkjuráð gert grein fyrir því hvernig fjármunum kirkj- unnar sem runnu til byggingar Þorláksbúðar var varið? Það voru 3 milljónir króna á árunum 2008 til 2011. Hefur kirkjuráð óskað eftir uppgjöri eða endurskoðuðum ársreikningum fyrir árin 2011 og 2012? 6. Hve mikið fé hefur runnið samtals til Þorláksbúðarfélagsins frá Alþingi og frá Kirkjuráði fyrir og eftir 2012? 7. Í bréfi Ríkisendurskoðunar til forseta Alþingis 28. júní 2012 kom fram að Þorláksbúðarfélag ætti von á reikningum „upp á nokkrar milljónir“ vegna þegar unninna verka. Hefur Ríkisendurskoðun fylgt því máli eftir? 8. Hefur sá sem byggði húsið fengið greitt fyrir sína vinnu og efnisframlag? 9. Í skýrslu stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis (141. lög- gjafarþing, 2013) segir orðrétt: „Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hvetur Ríkisendurskoðun til að ljúka því verki að upplýsa um hvernig skattfé sem runnið hefur til þessa verkefnis hefur verið var- ið. Nefndin telur það ekki varpa ljósi á ráðstöfun fjárins að nokkr- ar milljónir króna séu útistandandi og að óvissa ríki um fjárhagsstöðu félagsins eins og fram kom í bréfi Ríkisendurskoðunar, dags. 28. júní 2012. Telur nefndin að í því efni skipti engu þó að byggingin verði ekki af- hent Skálholts- stað fyrr en skuldir hennar hafa verið gerð- ar upp. Nefndin hvetur Ríkis- endurskoðun til að ráðast í þetta verkefni hið fyrsta.“ Hvað hefur Ríkisendurskoðun gert í þessu máli? Hefur Ríkisend- urskoðun sinnt þessum tilmælum Alþingis? Af hverju þessi þögn? Ríkisendurskoðun, Minjastofnun Íslands og kirkjuráð þurfa að rjúfa þögnina sem ríkt hefur um þetta mál áður en það verður enn óþægilegra fyrir biskup Íslands og íslensku þjóðkirkjuna. Þjóðin á rétt á því að vita hvernig fé úr op- inberum sjóðum er ráðstafað. Yfir því á ekki að vera neinn leynd- arhjúpur. Ekki er nóg að svör fáist við þessum spurningum, heldur verð- ur að bæta fyrir þessi staðarspjöll með því að finna hinu meinta til- gátuhúsi annan stað. Grafarþögn um Þorláksbúð Eftir Eið Svanberg Guðnason, Hörð H. Bjarnason, Jón Hákon Magnússon, Vilhjálm Bjarna- son og Þorkel Helgason »Hvers vegna hefur Ríkisend- urskoðun ekki gengið eftir svörum um það hvernig þessum fjár- munum var varið? Höfundar eru áhugamenn um velferð Skálholtsstaðar. Ljósmynd/Eiður Svanberg Guðnason Við viðbyggingu nýrisinnar Þorláksbúðar í Skálholti var bæði notað báru- járn og steinsteypa. Þess vegna er þetta ekki tilgátuhús. Bárujárn og stein- steypa voru ekki til í húsagerð á Íslandi á miðöldum. Eiður Svanberg Guðnason Jón Hákon Magnússon Hörður H Bjarnason Vilhjálmur Bjarnason Þorkell Helgason Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi um- ræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höf- unda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar eru á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morg- unblaðslógóinu efst í hægra horni for- síðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birt- ist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn grein" er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ viðarparket Verðdæmi: Eik 3ja stafa kr. 4.590 m2 Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 Nýtt 2-lock endalæsing LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383 SPÖNGIN GRAFARVOGI - SÍMI 577 1660 Hálsmen 14K hvítagull, 8 punkta demantur 55.000,- Hálsmen 5 punkta demantur 57.000,- Eyrnalokkar 10 punkta demantur 48.000,- Hálsmen 14K gull, Zircon 22.000,-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.