Morgunblaðið - 09.11.2013, Qupperneq 39
UMRÆÐAN 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013
Okkur hættir öllum
til að líta svo á að við
gerum hlutina betur
eftir því sem við gef-
um okkur lengri tíma
til þeirra. En það er
ekki alltaf svo. Það er
t.d. engan veginn
sjálfgefið að stöðugt
lengri tími fyrir til-
tekið námsefni bæti
alltaf námsárang-
urinn. Í sumum tilfellum hefur of
langur námstími haft þveröfug
áhrif og kallað fram námsleiða.
Á undanförnum áratug hefur
skólaár grunnskólans verið lengt
umtalsvert án þess að sú viðbót
sýni bættan námsárangur og án
þess að námsefnið hafi verið aukið.
Þegar gerðar voru tilraunir fyrir
nokkrum árum á því að hleypa
hópi nemenda eftir 9. bekk beint
upp í framhaldsskóla gekk það
vonum framar.
Frá árinu 2007 var nemendum í
efri bekkjum grunn-
skóla gefinn kostur á
því að stunda nám við
framhaldsskóla, sér
að kostnaðarlausu,
samhliða námi sínu í
grunnskólanum.
Þetta nýttu sér marg-
ir grunnskólanemar
og spöruðu með því
umtalsverðan tíma
þegar grunn-
skólanámi þeirra
lauk. En í ríkis-
stjórnartíð Jóhönnu
Sigurðardóttur lokaði mennta-
málaráðuneytið á þennan valkost.
Þá benda nýlegar rannsóknir til
þess að námsefni skarist umtals-
vert milli leikskóla og grunnskóla
og síðan grunnskóla og framhalds-
skóla.
Af þessu má ráða að flestir
grunnskólanemar geti með góðu
móti útskrifast úr grunnskóla ári
fyrr en þeir gera nú. Ég tel því að
stytta eigi leikskólann um eitt ár,
hefja grunnskólakennslu við fimm
ára aldur og útskrifa grunn-
Nýtum tímann
betur í skólakerfinu
Eftir Mörtu
Guðjónsdóttur »Ég tel að stytta
eigi leikskólann
um eitt ár, hefja
grunnskólakennslu
við fimm ára aldur og
útskrifa grunnskóla-
nema ári fyrr, öllum
til hagsbóta.
Marta Guðjónsdóttir
Höfundur er varaborgarfulltrúi og
frambjóðandi í 3. sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
skólanema ári fyrr en nú er gert –
öllum til hagsbóta.
Slíkar breytingar hafa í för með
sér umtalsverðan sparnað. Þær
spara nemandanum heilt ár.
Reykjavíkurborg myndi spara um
tvo milljarða á ári og við öll
myndum við njóta þess á marg-
víslegan hátt að einstaklingar
hefja verðmætasköpun með
vinnuframlagi sínu að meðaltali
ári fyrr en ella.
Þegar framtíðin er
rædd er gott að líta
til fortíðar. Seltirn-
ingar geta verið stolt-
ir af þeim árangri
sem náðst hefur í
bæjarfélaginu á und-
anförnum áratugum.
Sjálfstæðisflokkurinn
hefur verið í forystu í
uppbyggingu á góð-
um bæ. Framsýni og
fyrirhyggja hafa verið leiðarstefin
og bæjarfulltrúar flokksins verið
langt á undan sinni samtíð með
farsælu og árangursríku samstarfi
við fulltrúa annarra flokka.
Að öðrum ólöstuðum á Sig-
urgeir Sigurðsson stærstan þátt í
hvernig til hefur tekist, en hann
var bæjarstjóri á Seltjarnarnesi í
áratugi.
Á þeim tíma var þess jafnan
gætt að uppbyggingin væri mark-
viss og metnaðarfull án þess að
bæjarfélagið væri skuldsett upp í
rjáfur. Með íhaldssemi í bestu
merkingu þess orðs hefur bæj-
arfélagið staðið af sér lægðir,
stórar og smáar, sem ganga
reglulega yfir í hinu sveiflukennda
íslenska efnahagslífi.
Íhaldssemi í bestu merkingu
þess orðs hefur mótað starf Sjálf-
stæðisflokksins á Seltjarnarnesi –
að halda í gömul og góð gildi og
stíga varlega til jarðar. Um leið
er bæjarfélagið framsækið. Og í
þessu felst engin þversögn. Það
má segja að í þessu kristallist
skilgreining Sigurgeirs á hlut-
verki bæjarsins, en hann sagði í
viðtali fyrir 35 árum að það fælist
í því „að hlynna sem best að bæj-
arbúum, ungum sem öldnum“.
Þetta er ekki eins augljóst og
það hljómar. Í þessu felst að hlut-
verk bæjarstjórnar er fyrst og
fremst að þjónusta bæjarbúa sem
best. Það er að mínum dómi mis-
skilningur að það kalli á meira
landrými eða steinsteypu. Þetta
þýðir fyrst og fremst að gera það
besta úr því sem við höfum.
Ég hef talað fyrir stórauknum
metnaði í skólastarfi á Seltjarn-
arnesi. Víst er samfelldur vinnu-
dagur barna í skóla, íþróttum og
tómstundum til fyrirmyndar og
árangur nemenda í góðu með-
allagi á landsvísu.
En það er sláandi
í annars metn-
aðarfullri skóla-
stefnu að þar er lítið
fjallað um eig-
inlegan, mælanlegan
árangur af námi sem
kostar bæjarfélagið
13 milljónir á hvert
barn. Gera verður
mun betur í því að
undirbúa börnin á
Seltjarnarnesi undir
frekara nám eftir
grunnskólann og þar
getum við Seltirningar leyft okkur
að hugsa stórt. Börnin eiga að
vera í fyrsta sæti.
En Sigurgeir talaði líka fyrir
því að veita öldnum góða þjón-
ustu. Sú þjónusta sem bæj-
arfélagið veitir eldra fólki er að
mörgu leyti til fyrirmyndar og á
að vera það. Mikilvægt er þó að
leita enn leiða til að gera betur í
þessum málum.
Við njótum öll góðs af því í dag
að bærinn skuldsetti sig aldrei til
að byggja upp þá innviði sem eru
forsenda þjónustu við bæjarbúa.
Og þessi staðreynd, sterkar eignir
og litlar skuldir, er helsti grund-
völlur allra tækifæra og sjálf-
stæðis sveitarfélagsins.
Ég vil ekki ráðast í kostnaðar-
samar framkvæmdir sem setja
rekstur bæjarfélagsins í uppnám,
en um leið er ég reiðubúinn að
lýsa því yfir að ég vil ekki lækka
útsvarið. Það kann að virðast und-
arlegt kosningaloforð. En ég tel
einfaldlega að bænum veiti ekkert
af fjármununum til að „hlynna
sem best að ungum sem öldnum“.
Í því felst sjálfstæðisyfirlýsing
okkar litla sveitarfélags.
Sjálfstæðisyfir-
lýsing Seltjarnarness
Eftir Karl Pétur
Jónsson » Íhaldssemi í bestu
merkingu þess
orðs hefur mótað starf
Sjálfstæðisflokksins
á Seltjarnarnesi
Karl Pétur Jónsson
Höfundur er íbúi á Seltjarnarnesi og
fimm barna faðir.
TWIN LIGHT
GARDÍNUR
Betri birtustjórnun
MEIRA ÚRVAL
MEIRI GÆÐI
ÍSLENSK
FRAMLEIÐSLA
EFTIR MÁLI
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Hringdu og bókaðu tíma í máltöku
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. Sími: 588 5900 ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík. Sími: 421 2061
Glerárgötu 32, Akureyri. Sími: 462 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán.-fös. 11-18