Morgunblaðið - 09.11.2013, Side 44

Morgunblaðið - 09.11.2013, Side 44
44 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013 ✝ Halldór Sig-urbjörn Hall- dórsson fæddist í Vonarholti í Tungusveit, nú Strandabyggð, 23. júní 1925. Hann lést á Heilbrigð- isstofnuninni á Hólmavík 29. októ- ber 2013. Foreldrar Hall- dórs voru Halldór Steinþór Sigurðsson frá Geir- mundarstöðum við Steingríms- fjörð, f. 6.8. 1895, d. 5.11. 1925 og Sigurbjörg Bjarnadóttir frá Bólstað við Steingrímsfjörð, f. 23.4. 1894, d. 5.8. 1975. Halldór var yngstur fimm bræðra sem allir eru látnir. 1) Björgvin, f. 19.4. 1920, d. 15.4. 2010. 2) Sig- urður, f. 8.5. 1921, d. 31.8. 2011. kvæntur Jóhönnu Guðrúnu Þor- steinsdóttur, þau eiga fjögur börn og fimm barnabörn. 4) Ragnheiður Hanna, f. 1.9. 1954, í sambúð með Þorbirni Val Þórðarsyni, þau eiga tvo syni og tvö barnabörn. 5) Jón Hall- freður, f. 8.12. 1955, var í sam- búð með Ingibjörgu Rebekku Valdimarsdóttur, þau eiga tvö börn. Einnig eignuðust Halldór og Svava tvo drengi sem létust eftir fæðingu. Halldór var átta fyrstu ár ævi sinnar hjá móður sinni og næstu sex sumur hjá föð- urömmu sinni og afa á Stakka- nesi við Steingrímsfjörð. Hann naut ekki langrar skólagöngu, var í barnaskólanum á Hólma- vík og síðan tók lífsbaráttan við, sjómennska á Hólmavík og víðar. Halldór bjó á Hrófbergi með eiginkonu sinni frá vorinu 1949. Áður bjuggu þau fimm ár á Hólmavík. Útför Halldórs fer fram frá Hólmavíkurkirkju í dag, 9. nóv- ember 2013, og hefst athöfnin klukkan 13. 3) Þórhallur, f. 11.8. 1922, d. 24.10. 1989. 4) Bjarni, f. 25.10. 1923, d. 2.6. 1989. Eiginkona Hall- dórs var Svava Pétursdóttir, bóndi á Hrófbergi, f. 12.10. 1924, d. 28.9. 2000. Hinn 12.2. 1949 voru þau gef- in saman í hjóna- band, á Hrófbergi, af séra Andrési Ólafssyni. Börn þeirra eru: 1) Pétur Hoffmann, f. 5.9. 1946, var kvæntur Ásu Maríu Hauksdóttur, þau eiga þrjú börn og tíu barnabörn. 2) Sig- urbjörg Halldóra, f. 9.12. 1947, gift Friðgeiri Höskuldssyni, þau eiga tvö börn og fimm barna- börn. 3) Hreinn, f. 3.3. 1949, Jæja, pabbi minn, þá er bið- inni lokið, heil þrettán ár en þá misstir þú móður mína, stoð þína og styttu og gast ekki í raun á heilum þér tekið eftir það. Mig langar til að rifja upp fáeinar minningar liðinna ára. Sú fyrsta er frá því að ég var kannski þriggja ára og elti þig í fjárhúsin. Frá svipuðum tíma man ég eftir bílum sem þú smíðaðir fyrir okkur Pétur. Þú varst mjög handlaginn og gast smíðað nánast hvað sem var. Á þessum tíma var gólfið í eld- húsinu í gamla húsinu á Hróf- bergi þannig að annar helm- ingur þess var farinn að síga þannig að smá halli myndaðist, sem litlir pjakkar notuðu sem brekku fyrir bílana sína. Þá man ég eftir ferð með þér í leit að kindum um haust, en þá var ég á áttunda ári. Ætl- unin var að fara í heimalandið. Við fórum upp frá bænum á Hrófbergi og sem leið liggur upp á Vatnadal. Þessi ferð varð heldur lengri en ætlað var og ekki stoppað fyrr en hjá vörð- unni á Gluggavörðuhrygg. Þar léstu mig bíða meðan þú fórst niður að Hrútagili til að gá að kindum. Þegar heim kom var sá stutti orðinn allþreyttur en stoltur yfir að vera treyst í að fara með þér. Upp frá þessu má segja að ég hafi elt þig meira og minna við öll útistörf. Þegar ég var átta ára þá út- bjóstu orf fyrir mig og kenndir mér að slá, sem ég gerði síðan í mörg sumur, eða þar til ég fór alfarinn að heiman fyrir tví- tugt. Markmið mitt var að verða eins fljótur að slá og þú, en sum markmið nást ekki og hvað þá að leggja á og brýna þannig að ljárinn bíti helst all- an daginn. Eitt þótti mér alltaf merki- legt en það var hvað þú varst þolinn og fljótur þó að þú reyktir í mörg ár. Afleiðingar þeirra létu þig svo ekki í friði hin seinni árin. Ég man hvað þú varst stolt- ur þegar fyrsta dráttarvélin kom og ekki síður þegar þú renndir á fyrsta bílnum þínum í hlað, þá fyrir stuttu búinn að taka bílpróf. Með dráttarvélinni má segja að á Hrófbergi hafi byrjað nútímavinnubrögð við búskap. Eins og við vitum báðir þá ræddum við oft um búskapinn, hvernig þú vildir og ætlaðir að gera svo margt. Við vorum ekki alltaf sammála um leiðir en þegar upp var staðið tókstu oft tillit til minna sjónarmiða. Það er nú þannig að kappsfullir menn fara stundum fullhratt yfir. Síðustu ár hafa verið þér erf- ið síðan móðir mín dó og heils- unni hrakaði stöðugt. Samt reyndir þú að harka af þér og naust þess að semja lög og ljóð. Mörg þeirra voru um gamla, góða tíma og til móður minnar sem var þér í raun meira en hálf tilveran og fallið því mikið þegar hún lést. Þá varstu og drjúgur við að púsla eins og sjá má á Berginu. Ekki má gleyma hvað þú naust þess að spila á spil. Rakki var okkar spil, sá síðasti var í sept. sl. Þar sem ég bý í öðrum landshluta þá hef ég ekki getað aðstoðað sem skyldi en systkini mín hafa séð um það og fyrir það vil ég þakka. Án þeirra hefði ósk þín um að vera heima ekki gengið enda varstu þeim þakklátur fyrir alla aðstoðina. Að lokum þá vona ég að draumar þínir hafi ræst og þið mamma njótið endurfundanna. Með kærri þökk til ykkar beggja. Þinn Hreinn og Jóhanna. Meira: mbl.is/minningar Elsku afi, mikið erum við fjölskyldan glöð með að hafa tekið sunnu- dagsrúnt á Bergið og heimsótt þig daginn áður en þú veiktist. Þá spurðir þú hvort ég ætlaði ekkert að koma með agn í haust svo við gætum legið fyrir rebba í vetur og úr varð að ég kæmi með það eitthvert kvöldið í vikunni. Því miður fengum við svo símtal næsta morgun um að þú værir alvarlega veikur. Ég er svo heppinn að hafa átt mitt annað heimili hjá ykk- ur ömmu á Hrófbergi og voru það forréttindi að fá að alast upp með fólki af ykkar kynslóð og fá að taka þátt í leik og starfi á Berginu. Í nógu var að snúast, t.d. að girða, að fara með hagagirðing- unni, sauðburður og smala- mennska svo eitthvað sé nefnt. Ekki má gleyma skot- æfingunum sem iðulega voru iðkaðar fjarri bæ án vitundar ömmu. Á síðari árum eyddum við meiri tíma innivið á Bergi og það voru ófá kvöld sem Alla undraðist um mig þegar ég skilaði mér ekki heim af fót- boltaæfingum á Hólmavík. En þá hafði ég komið við og við sátum og púsluðum og spjöll- uðum án þess að vita hvað tím- anum leið. Áramótaheit okkar nafna var að hætta að nota nef- tóbak, það gekk þó misjafnlega hjá okkur. Elsku afi, takk fyrir allar stundirnar sem við áttum sam- an, þær eru okkur mikils virði. Nú kveðjum við þig og vitum að þú ert í góðum höndum hjá ömmu. Halldór Logi, Aðalbjörg og börn. Elsku besti afi okkar. Núna ertu kominn til ömmu Svövu sem var okkur öllum svo kær. Vitum við að það verða miklir fagnaðarfundir á himn- um. Hann afi okkar var flottasti afinn og eigum við systkinin bara góðar minningar sem tengjast afa, ömmu og Hróf- bergi. Þegar við vorum yngri snerust heimsóknirnar í sveit- inni mest um að leika sér í fjör- unni, rölta upp í fjall og veiða í pollinum. Í seinni tíð snérust þær meira um að ræða um lífið og tilveruna, koma með barna- barnabörnin, því það var nauð- synlegt að þau fengju að kynn- ast langafa sínum, og svo var líka alltaf farið í fjöruferð. Ekkert af okkur bjó nálægt Hrófbergi en við reyndum öll að koma við reglulega. Það var sama hversu langt leið á milli heimsókna, það var alltaf svo vel tekið á móti okkur og alltaf eins og við hefðum verið á Berginu fyrir nokkrum dögum. Það var alltaf svo gott að koma í sveitina til afa. Við spjölluðum endalaust um heima og geima, alltaf var afi tilbúinn til að spila við okkur, og þá helst Rakka, og svo var auðvitað alltaf talað aðeins um hana ömmu, enda var hún amma okkar alveg frá- bær. Takk fyrir frábærar sam- verustundir, góð ráð og allt það sem þú hefur kennt okkur, elsku afi. Knúsaðu hana ömmu vel og lengi frá okkur öllum. Sindri, Lovísa, Geisli, Bjarmi og fjölskyldur. Nú er Dóri á Hrófbergi far- inn á vit feðra sinna, yngstur 5 bræðra frá Ströndum, sem allir hafa kvatt þetta líf. Líf sem var þeim oft erfitt í æsku, en þeir misstu föður sinn ungir. Þeir voru rólegir, ljúfir og harðdug- legir allir sem einn, sem reynd- ist þeim vel á lífsleiðinni. Dóri var svo heppinn að kynnast heimasætunni á Hróf- bergi, henni Svövu sinni og saman eignuðust þau 7 börn, þar af eru 5 á lífi og bjuggu þau allan sinn búskap á Hróf- berginu en Svava lést árið 2000. Það hefur alltaf verið punkturinn yfir i-ið að koma við á Hrófbergi í heimsókn á Strandirnar, fá fréttir af fólk- inu og spjalla um ættina en Svava var mjög ættfróð og að heyra einhverja tónlist spilaða og sungna af Dóra, en hann var mjög mikið fyrir tónlistina. Honum var margt til lista lagt þó ekki væri hann mikið að flíka því og hverjum hefði líka á áttræðisaldri dottið í hug að smíða sólpall við húsið sitt nema Dóra á Hrófbegi, en þannig var hann. Við fjölskyldan höfum alla tíð verið í góðu sambandi við hjónin á Hrófbergi, en mað- urinn minn var bróðursonur Dóra og nafni. Ekki hefði mig grunað að það yrðu aðeins 8 mánuðir á milli andláts þeirra, en Halldór minn lést 25. febr- úar. Dóri á Hrófbergi hafði átt við veikindi að stríða í nokkur ár, en það er víst komið að leið- arlokum hjá okkur að sinni. Kæri Dóri, hafðu þökk fyrir góð kynni. Jóna Þorkelsdóttir, Grindavík. Ég var ung að árum er ég var send í sveit norður á Hróf- berg í Strandasýslu og dvaldi þar sumarlangt mörg sumur. Sú ferð átti eftir að marka djúp spor í ævi mína en alla tíð síðan hef ég átt miklar og góðar taugar þangað. Og í dag kveð ég kæran vin sem ég leit mikið upp til og reyndist mér eins vel og hann væri minn eigin faðir, enda kallaði ég hann oft pabba og drengirnir mínir alltaf afa. Í öllum ferðum og heimsókn- um norður á Hrófberg mætti okkur alltaf mikil hlýja og góð- vild. Bros á vör og útbreiddur faðmur voru ávallt móttökurnar sem við fengum. Við Dóra gat ég rætt um allt, allt milli himins og jarðar og aldrei komið að tómum kofa. Allt sem mér lá á hjarta, ég fékk alltaf leiðsögn og ráð. Hann gaf sér alltaf tíma til að hlusta á mig og ég naut þess að hlusta á hann. Ég á eftir að sakna þess að fá ekki lengur að njóta leiðsagnar hans, en met mikils allt það sem ég naut. Þegar kemur að leiðarlokum hrannast upp allar góðu minn- ingarnar og söknuðurinn verð- ur sár. Við fjölskyldan eigum eftir að sakna þín og minnumst þín með gleði í hjarta. Þökkum þér fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman, allan þann tíma sem þú gafst mér og mínum strákum og þær dýr- mætu minningar sem við eigum í hjörtum okkar. Með þessum orðum vil ég kveðja þig, Svo viðkvæmt er lífið sem vordags- ins blóm er verður að hlíta þeim lögum að beygja sig undir þann allsherj- ardóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson.) Guðrún Þórarinsdóttir og fjölskylda. Halldór Sigurbjörn Halldórsson ✝ Margrét Krist-jánsdóttir fæddist á Eyr- arbakka 10. apríl 1924. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Ljósheimum, Selfossi, 2. nóv- ember 2013. Hún var dóttir hjónanna Mar- grétar Þóru Þórð- ardóttur frá Hóls- húsum í Gaulverjabæjarhreppi, f. 15.12. 1887, d. 10.4. 1951 og Kristjáns Guðmundssonar frá Iðu í Biskupstungum, f. 1.6. 1885, d. 26.10. 1961. Margrét ólst upp á Eyrarbakka og var hún næstyngst fimm systkina. Aldís Hugbjört, f. 14.9. 1912, d. 9.8. 1990, drengur fæddur and- vana, Magnús f. 22.2. 1918, d. 3.8. 1948, Þórir, f. 17.2. 1922, d. 17.4. 1969, Guðmundur Jónatan, f. 2.8. 1929, d. 17.12. 2010. Þann 16.10. 1943 giftist Mar- grét Gísla Ragnari Gíslasyni, f. 31.1. 1922, d. 10.10. 1976, frá Nesi í Selvogi. Margrét og Gísli Ragnar eignuðust þrjú börn: Þórhildi, f. 18.3. 1943, Kristján, f. 30.4. 1946 og Hrafnhildi, f. 4.10. 1959. Þá ólu þau upp dótturdóttur sína Mar- gréti Bragadóttur, f. 21.10. 1961. Útför Margrétar fer fram frá Eyrarbakkakirkju í dag, 9. nóvember 2013, kl. 14. Með söknuði og þakklæti kveð ég þig, elsku amma mín. Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt þig sem ömmu því þú varst svo ein- stök kona. Þú hafðir svo fallega lífssýn, dæmdir aldrei neinn né hallmæltir neinum. Ávallt svo gefandi, gjafmild og hlý, með húmorinn í lagi. Þú varst fagur- keri fram í fingurgóma og alltaf svo smekkleg og smart. Þú varst mér svo kær og miklu meira en bara amma. Kenndir mér svo margt og varst mín fyrirmynd. Þú hvattir mig til dáða, alveg sama hvað ég tók mér fyrir hend- ur. Heimsóttir mig landshorn- anna á milli og alltaf til staðar fyrir mig. Það er svo sárt að kveðja þig, elsku amma, en ég veit að þú ert komin á betri stað og minning þín mun ylja mér um ókomin ár. Blessuð sé minning þín. Þín sonardóttir, Margrét Kristjánsdóttir. Hún Magga á Austurvelli hef- ur nú kvatt sína jarðvist en í minningunni er samt enn skært ljós á lampanum hennar Möggu. Hún fékk sinn skerf af gleði og sorg í lífinu en hún var alltaf sú sterka sem aðrir gátu leitað til. Ég man ekki eftir Möggu öðru- vísi en glaðværri og gefandi. Á hverju sem gekk var hún jákvæð og jafnlynd og vildi öllum vel. Hún var svo sannarlega ljós í sínu umhverfi. Ég minnist þess að þegar mamma var orðin há- öldruð kona vakti Magga mjög yfir velferð hennar. Hún var 20 árum yngri en mamma en þær urðu samt góðar vinkonur. Þegar ég var löngu fluttur frá Háeyr- arvöllum 44 og Kalli bróðir að heiman kom fyrir að mamma var ein í húsinu. Magga fylgdist þá með mömmu, heimsótti hana daglega og gisti gjarnan hjá henni þætti henni ástæða til. Svona minningar um góðvild og náungakærleika skjóta rótum og varðveitast. Magga var grandvör kona og bar með sér sterkan per- sónuleika. Þau voru glæsileg hjón Gísli heitinn og Margrét. Falleg í sjón og raun. Eyrarbakki átti í þeim góðan sjóð. Gísli var ljúflingur og sveitarstólpi sem öllum þótti vænt um enda tengdist atvinna hans jafnan ábyrgðarmiklum störfum. Heimilið á Austurvelli nýtur virðingar í minningu minni. Fáein kveðjuorð segja lítið, en lampinn hennar Möggu segir mikið og hann mun lýsa um ókomin ár með einstaklega góð- um minningum til eftirlifandi ættmenna hennar, afkomenda, sveitunga og vina. Drottinn Jesús blessi vista- skipti góðrar konu. Við Eygló, Anna systir og Gústi vottum börnum hinnar látnu og öðrum aðstandendum innilega samúð og biðjum þeim Guðs friðar. Ársæll Þórðarson. Margrét Kristjánsdóttir ✝ Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN JÓNSDÓTTIR, Borgarholtsbraut 45, Kópavogi, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð fimmtudaginn 7. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Ragnar J. Lárusson, Lárus P. Ragnarsson, Karlotta B. Aðalsteinsdóttir, Sigrún K. Ragnarsdóttir, Haraldur R. Gunnarsson, Halldóra B. Ragnarsdóttir, Þórður S. Magnússon, Ásdís L. Ragnarsdóttir, Sigurður Þ. Adolfsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, GÍSLI EYJÓLFSSON frá Bessastöðum, Vestmannaeyjum Hraunbraut 47, varð bráðkvaddur á heimili sínu fimmtu- daginn 7. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Hildur Káradóttir, Eyjólfur Gíslason, Kristín Guðmundsdóttir, Margrét Gísladóttir, Karl Ómar Jónsson, Gunnhildur Gísladóttir, Sigurður Karlsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.