Morgunblaðið - 09.11.2013, Qupperneq 47
MESSUR 47á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Bríetartún 6, 200-9607, Reykjavík, þingl. eig. Hreinn Ágústsson,
gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., miðvikudaginn 13. nóvember 2013
kl. 10:00.
Gerplustræti 25, 231-2288, Mosfellsbæ, þingl. eig. Ingibjörg Sigríður
Skúladóttir, gerðarbeiðandi Vörður tryggingar hf., miðvikudaginn
13. nóvember 2013 kl. 13:30.
Rauðagerði 58, 203-5580, Reykjavík, þingl. eig. Hallur Magnússon
og Ingibjörg Ósk Guðmundsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður,
miðvikudaginn 13. nóvember 2013 kl. 11:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
8. nóvember 2013.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Brautarholt 8, 201-0540, Reykjavík, þingl. eig. þb. Brautarholts 20 ehf.,
gerðarbeiðandi skiptastjóri þb. Brautarholts 20 ehf., fimmtudaginn
14. nóvember 2013 kl. 10:00.
Brautarholt 8, 201-0541, Reykjavík, þingl. eig. þb. Brautarholts 20 ehf.,
gerðarbeiðandi skiptasjóri þb. Brautarholts 20 ehf., fimmtudaginn
14. nóvember 2013 kl. 10:15.
Brautarholt 18, 201-0740, Reykjavík, þingl. eig. þb. Brautarholts 20
ehf., gerðarbeiðandi skiptasjóri Brautarholts 20 ehf., fimmtudaginn
14. nóvember 2013 kl. 10:30.
Brautarholt 18, 223-7598, Reykjavík, þingl. eig. þb. Brautarholts 20
ehf., gerðarbeiðandi skiptastjóri Brautarholts 20 ehf., fimmtudaginn
14. nóvember 2013 kl. 10:45.
Brautarholt 18, 223-7599, Reykjavík, þingl. eig. þb. Brautarholts 20
ehf., gerðarbeiðandi skiptastjóri Brautarholts 20 ehf., fimmtudaginn
14. nóvember 2013 kl. 11:00.
Brautarholt 20, 201-0742, Reykjavík, þingl. eig. þb. Brautarholts 20
ehf., gerðarbeiðandi skiptastjóri Brautarholts 20 ehf., fimmtudaginn
14. nóvember 2013 kl. 11:15.
Brautarholt 20, 201-0743, Reykjavík, þingl. eig. þb. Brautarholts 20
ehf., gerðarbeiðandi skiptastjóri Brautarholts 20 ehf., fimmtudaginn
14. nóvember 2013 kl. 11:30.
Brautarholt 20, 223-6954, Reykjavík, þingl. eig. þb. Brautarholts 20
ehf., gerðarbeiðandi skiptasjóri Brautarholts 20 ehf., fimmtudaginn
14. nóvember 2013 kl. 11:45.
Brautarholt 20, 223-6955, Reykjavík, þingl. eig. þb. Brautarholts 20
ehf., gerðarbeiðandi skiptastjóri Brautarholts 20 ehf., fimmtudaginn
14. nóvember 2013 kl. 12:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
8. nóvember 2013.
AÐVENTKIRKJAN:
Aðventkirkjan Reykjavík | Sam-
koma í dag, laugardag, kl. 11 hefst
með biblíufræðslu fyrir alla. Boðið er
upp á biblíufræðslu á ensku. Guðþjón-
usta kl. 12. Indro Candi prédikar.
Aðventkirkjan Vestmannaeyjum |
Samkoma í dag, laugardag, kl. 11.
Biblíufræðslu fyrir alla. Guðþjónusta kl.
12. Manfred Lemke prédikar.
Aðventsöfnuðurinn Akureyri | Sam-
koma í Gamla Lundi í dag, laugardag,
hefst kl. 11 með biblíufræðslu fyrir
alla. Guðþjónusta kl. 12.
Aðventsöfnuðurinn Suðurnesjum |
Samkoma í dag, laugardag, kl. 11 í
Reykjanesbæ hefst með biblíu-
fræðslu. Guðþjónusta kl. 12. Einar Val-
geir Arason prédikar.
Aðventsöfnuðurinn Árnesi | Sam-
koma í dag, alla. Guðþjónusta kl. 11.
Björgvin Snorrason prédikar.
Aðventsöfnuðurinn Hafnarfirði |
Samkoma í Loftsalnum í dag, laug-
ardag, hefst með fjölskyldusamkomu
kl. 11. Stefán Rafn Stefánsson prédik-
ar. Biblíufræðsla fyrir alla kl. 11.50.
Boðið upp á biblíufræðslu á ensku.
AKURINN | Samkoma kl. 14 í Núpa-
lind 1, Kópavogi. Ræðumaður Jógvan
Purkhús. Söngur, bæn og fræðsla.
ÁRBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Gospelkór Árbæjar
syngur. Brúðuleikhús. Umsjón Ingunn,
sr. Kristín og Margrét Sigurðardóttir og
píanóleikari. Kaffi og safi á eftir.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl.
11. Sr. Sigurður Jónsson sókn-
arprestur prédikar og þjónar fyrir altari.
Kristný Rós Gústafsdóttir djákni leiðir
samveru sunnudagaskólans. Kór Ás-
kirkju syngur, organisti Magnús Ragn-
arsson. Formaður Safnaðarfélags
Ásprestakalls, Jóhanna Friðriksdóttir
kynnir starf félagsins, og kl. 12 hefst
árlegur kökubasar og nytjamarkaður
safnaðarfélagsins í efra safnaðarheim-
ili. Sjá askirkja.is.
ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11 á kristniboðsdaginn. Skúli Svav-
arsson kristniboði segir frá starfi
Kristniboðssambandsins og prédikar.
Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn
Matthíasar V. Baldurssonar. Börn úr
æskulýðsstarfinu syngja. Sr. Kjartan
Jónsson þjónar fyrir altari. Meðhjálpari
Sigurður Þórisson. Tekið á móti fram-
lögum til kristniboðsins. Bænadagur í
sunnudagaskólanum. Hressing á eftir.
BESSASTAÐAKIRKJA | Messa kl.
14. Dr. Gunnar Kristjánsson prófastur
prédikar og leiðir stundina ásamt sr.
Hans og sr. Friðriki. Margrét djákni sett
formlega inn í embætti djákna. Á eftir
fer fram kaffisala í safnaðarheimilinu
Brekkuskógum 1, innkoma rennur til
styrktar kaupa á línuhraðli Landspít-
alans. Álftaneskórinn og Bjartur Logi.
Guðsþjónusta kl. 20. Helga Vilborg
kristniboði segir frá starfi Íslendinga í
Afríku. Fermingarbörn syngja afrísk lög.
Sr. Hans Guðberg og Margrét djákni
þjóna í stundinni.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudaga-
skóli kl. 11 í Brekkuskógum 1. Umsjón
hafa Fjóla, Finnur og Þórunn Ágústa.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11 á kristniboðs-
daginn. Prestur sr. Gísli Jónasson. Kór
Breiðholtskirkju syngur, organisti Kjart-
an Sigurjónsson. Tekið við gjöfum til
Kristniboðsins. Sunnudagaskóli í
umsjá Steinunnar Leifsdóttur. Kaffi og
djús á eftir.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Félagar úr
kór Bústaðakirkju leiða sönginn undir
stjórn kantors Jónasar Þóris. Messu-
þjónar aðstoða og prestur er sr. Yrma
Sjöfn Óskarsdóttir. Molasopi á eftir.
DIGRANESKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Prestur sr.
Magnús B. Björnsson. Organisti Sól-
veig Sigríður Einarsdóttir og Kór Digra-
neskirkju. Þuríður Helga Ingadóttir leik-
ur á flygilinn. Tekið á móti
söfnunarbaukum fermingarbarna.
Súpa á eftir. Helgistund kl. 15. Hug-
leiðing, vitnisburðir og fyrirbænir. Tón-
list: E bandið. Sjá digraneskirkja.is
DÓMKIRKJAN | Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Sr. Hjálmar Jónsson
prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkór-
inn syngur og organisti er Kári Þormar.
Sunnudagaskóli í umsjón Ólafs Jóns
og Sigurðar.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudaga-
skóli kl. 11. Prestur sr. Jóhanna Sig-
marsdóttir. Saga, brúður og söngur.
EIÐAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14.
Prestur sr. Jóhanna Sigmarsdóttir.
Kaffi á eftir, frjáls framlög í söfnun
Þjóðkirkjunnar fyrir línuhraðli á LSH.
FELLA- og Hólakirkja | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Sigur-
jón Árni Eyjólfsson. Organisti Guðný
Einarsdóttir. Hreinn Pálsson og Pétur
Ragnhildarson verða með börnin. Vikt-
or kemur í heimsókn. Skólahljómsveit
Árbæjar og Breiðholts spilar, stjórn-
andi Snorri Heimisson.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Kvöldvaka kl. 20. Sr.
Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup í
Skálholti heimsækir söfnuðinn í tilefni
af 100 ára afmæli kirkjunnar. Kór og
hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn
undir stjórn Arnar Arnarsonar.
FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudaga-
skóli kl. 11. Hressing í lokin. Kerti seld
til styrktar barnastarfinu í verslun.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Kvöld-
stund kl. 20 með djasstónum við
kertaljós og hugleiðingar sr. Hjartar
Magna. Sönghópur Fríkirkjunnar leiðir
sönginn ásamt djasskvartett skipuð-
um þeim Ásgeiri Ásgeirssyni á gítar,
Tómasi R. Einarssyni á kontrabassa,
Matthíasi Hemstock slagverksleikara,
Gunnari Gunnarssyni á píanó. Umsjón
hefur sr. Hjörtur Magni Jóhannsson.
GLERÁRKIRKJA | Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Sameiginlegt upphaf.
Kór Glerárkirkju leiðir almennan söng.
Sr. Guðmundur Guðmundsson þjónar
og kynnir kristniboðsstarf. Guðsþjón-
usta um kristniboð og vinasöfnuð kl.
20. Krossbandið leiðir söng. Sr. Jakob
Hjálmarsson sýnir myndir frá Kenía og
prédikar. Sr. Guðmundur þjónar.
GRAFARVOGSKIRKJA | Hátíðar-
messa kl. 11. Sr. Ingólfur Hartvigsson
prédikar. Prestar Grafarvogskirkju
þjóna fyrir altari. Kór Prestbakkakirkju,
Ásakór og kór Grafarvogskirkju syngja.
Stjórnendur: Brian Rodger Haroldsson
og Hákon Leifsson. Sunnudagaskóli
kl. 11. Umsjón hefur Þóra Björg Sigurð-
ardóttir undirleikari: Stefán Birkisson.
Messa á Eir kl. 15.30. Sr. Vigfús Þór
Árnason prédikar og Þorvaldur Hall-
dórsson syngur. Þorvaldur spilar frá kl.
15. Dagur orðsins dagskrá tileinkuð
„Eldprestinum“ sr. Jóni Steingríms-
syni. Erindi kl. 9.30. Ávarp tileinkað sr.
Jóni. Jón Helgason, fyrrv. forseti Kirkju-
þings, flytur. Möguleikhúsið sýnir úr
einleik um sr. Jón. Höfundur Pétur Egg-
ertz. „Skáldsagan um Jón“ Höf. flytur
erindi.
Borgarholtsskóli | Sunnudagaskóli
kl. 11. Umsjón hefur Ásthildur Guð-
mundsdóttir.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl.
10, bænastund kl. 10.15. Afmæl-
ismessa kl. 11. Kristniboðsdagurinn.
Barnastarf í umsjón Lellu o.fl. Alt-
arisganga. Samskot til Kristniboðsins.
Kirkjukór Grensáskirkju syndur, org-
anisti er Árni Arinbjarnarson. Prestur er
sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi á eft-
ir. Myndasýning frá 50 ára sögu safn-
aðarins í forsal kirkjunnar. Hversdags-
messa með Þorvaldi Halldórssyni á
fimmtudag kl. 18.10.
GUÐRÍÐARKIRKJA | Guðsþjónusta
og barnastarf kl. 11. Prestur sr. Sigríð-
ur Guðmarsdóttir, organisti Ester
Ólafsdóttir og kór Guðríðarkirkju syng-
ur. Barnastarf í umsjá Aldísar R. Gísla-
dóttir og Ruth Rúnarsdóttir. Meðhjálp-
ari er Kristbjörn Árnason og kirkju-
vörður Rögnvaldur Guðmundsson.
Kaffisopi á eftir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Yngri
barnakórinn syngur, stjórnandi er
Helga Loftsdóttir. Píanóleikari er Anna
Magnúsdóttir og organisti er Guð-
mundur Sigurðsson. Prestar eru sr.
Jón Helgi Þórarinsson og sr. Þórhildur
Ólafs. Kaffi á eftir. Messa á miðviku-
dag kl. 8.10. Organisti Guðmundur
Sigurðsson, prestur er sr. Þórhildur
Ólafs. Morgunverður í Odda.
HALLGRÍMSKIRKJA | Fjöl-
skyldumessa á kristniboðsdegi kl. 11.
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum
og starfsfólki barnastarfsins. Bogi
Benediktsson segir sögu frá kristni-
boðsakrinum. Drengjakórinn syngur
undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar.
Organisti er Björn Steinar Sólbergs-
son. Fræðslumorgunn kl. 10. Guð-
laugur Gunnarsson kristniboði flytur er-
indi. Tónleikar Mótettukórsins
sunnudag kl. 17. Eldklerkurinn sýning
laugardag kl. 16.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11 á
kristniboðsdaginn. Barnastarf í umsjá
Arnars og Öllu Rúnar. Félagar úr
Kammerkór Háteigskirkju syngja, org-
anisti er Kári Allansson. Prestur sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir.
HJALLAKIRKJA | Lofgjörðarguðs-
þjónusta kl. 11. Þorvaldur Halldórsson
leikur undir og leiðir söng. Ferming-
arbörn leika á hljóðfæri og aðstoða.
Starf kristniboðsins kynnt. Prestur sr.
Steinunn A. Björnsdóttir. Kaffisopi á
eftir. Sunnudagaskóli kl. 13 í umsjá
Gísla og Hilmars auk prests. Hressing
á eftir.
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík |
Samkoma kl. 17. Áslaug Haugland tal-
ar. Hljómsveitin Ingimar tekur lagið.
HVALSNESKIRKJA | Kirkjukórs-
messa kl. 17. Arnór Vilbergsson org-
anisti og félagar úr Kirkjukór Keflavík-
urkirkju annast tónlistina. Prestur sr.
Sigurður Grétar Sigurðsson. Kirkju-
kórsmessa á Garðvangi kl. 15.30.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sam-
koma kl. 13.30. Lofgjörð, fyrirbænir og
barnastarf. Friðrik Schram predikar.
Kaffi á eftir.
KÁLFATJARNARKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 14 á kristniboðsdaginn. Skúli
Svavarsson segir frá starfi Kristniboðs-
sambandsins í Afríku og prédikar.
Börnin í æskulýðsstarfinu syngja undir
stjórn Bryndísar Svavarsdóttur æsku-
lýðsfulltrúa. Kór Kálfatjarnarkirkju
syngur undir stjórn Franks Herlufsens
organista. Sr. Kjartan Jónsson þjónar
fyrir altari. Tekið á móti framlögum til
kristniboðsins. Vænst er þátttöku
fermingarbarna og aðstandenda
þeirra. Kaffi á eftir.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjón-
usta og barnastarf kl. 11. Sr. Erla,
Systa, Esther og Anna Hulda sjá um
barnastarfið. Arnór og félaga úr Kór
Keflavíkurkirkju. Prestur er sr. Sigfús
B. Ingvason.
KÓPAVOGSKIRKJA | Útvarpsguðs-
þjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Sr.
Sigurður Arnarson, sóknarprestur þjón-
ar fyrir altari. Ragnar Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Kristniboðssambands-
ins prédikar. Skólakór Kársnes syngur
undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur.
Umsjón með sunnudagaskólanum
hafa Þóra Marteinsdóttir og Sólveig
Anna Aradóttir.
KVENNAKIRKJAN | Guðþjónusta í
Grensáskirkju kl. 20. Sr. Arndís G.
Bernhardsdóttir Linn prédikar. Kór
Kvennakirkjunnar leiðir söng við undir-
leik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Kaffi.
LANGHOLTSKIRKJA | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Jóhanna Gísla-
dóttir, Kristín Sveinsdóttir og Snævar
Andrésson þjóna ásamt messuþjónum
og kirkjuverði. Krúttakórinn syngur,
stjórnendur kórsins eru Björg Þórs-
dóttir og Thelma Hrönn Sigurdórs-
dóttir. Organisti er Guðfinnur. Kaffi.
LAUGARNESKIRKJA | Messa og
barnastarf kl. 11. Haraldur Hreinsson
prédikar, Sigurvin Lárus Jónsson þjón-
ar fyrir altari. Organisti er Aðalheiður
Þorsteinsdóttir. Sameiginlegt upphaf
með barnastarfi.
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Sönghópurinn Norðurljós syng-
ur undir stjórn Arnhildar Valgarðs-
dóttur, Ágústa Dómhildur leikur á fiðlu.
Prestur sr. Skírnir Garðarsson. Sunnu-
dagaskóli kl. 13. Umsjón hefur Hreiðar
Örn Zoëga Stefánsson.
MELSTAÐARKIRKJA | Barna- og fjöl-
skyldumessa kl. 14. Samvera í safn-
aðarheimili á eftir.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl.
11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr
Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng, org-
anisti er Steingrímur Þórhallsson. Sr.
Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar
fyrir altari. Umsjón með barnastarfi
hafa Ása Laufey, Katrín og Ari. Kaffi-
sopi á eftir.
NJARÐVÍKURKIRKJA Innri | Guðs-
þjónusta og sunnudagaskóli kl. 11.
Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Stef-
áns Helga Kristinssonar organista.
Barn borið til skírnar. Meðhjálpari er
Pétur Rúðrik Guðmundsson. Sókn-
arprestur prédikar og þjónar fyrir altari.
Umsjón með sunnudagaskóla hafa
Heiðar og María. Veitingar á eftir.
ÓHÁÐI söfnuðurinn | Guðsþjónusta
og barnastarf kl. 14. Látinna minnst.
Sr. Pétur Þorsteinsson þjónar fyrir alt-
ari, meðhjálpari er Þuríður Pálsdóttir.
Sveinbjörn Gizurarson frá Gideonfélag-
inu predikar og kynnir Gideonfélagið.
Kór safnaðarins leiðir sönginn undir
stjórn Árna Heiðars Karlssonar. Maul á
eftir. Sjá ohadisofnudurinn.is
SALT kristið samfélag | Samkoma
kl. 17 á kristniboðsdaginn í Grensás-
kirkju. Ræðumaður er Haraldur Jó-
hannsson.
SAUÐÁRKRÓKSKIRKJA | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Umsjón: Guðríður
Helga, Fanney Rós og Rögnvaldur.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ólafur
Jóhann Borgþórsson prédikar. Kór
Seljakirkju leiðir safnaðarsöng, org-
anisti er Tómas Guðni Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðs-
þjónusta og sunnudagaskóli kl. 11 á
Kristniboðsdaginn. Sr. Irma Sjöfn Ósk-
arsdóttir þjónar. Organisti er Friðrik
Vignir Stefánsson, félagar úr Kamm-
erkór Seltjarnarneskirkju leiða almenn-
an safnaðarsöng. Almanaki Kristni-
boðssambandsins fyrir árið 2014
dreift. Kaffiveitingar.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Fjöl-
skylduguðsþjónusta og kökubingó kl.
11. Prestur er sr. Sigríður Rún Tryggva-
dóttir. Kór Seyðisfjarðarkirkju, undir
stjórn Sigurbjargar Kristínardóttur org-
anista leiðir almennan safnaðarsöng.
Fermingarbörn aðstoða í stundinni. Kö-
kubingó á eftir til styrktar söfnun fyrir
línuhraðli á Landspítalann. Félagar úr
kór og sóknarnefnd gefa kökur til
styrktar söfnuninni.
STAÐARKIRKJA Hrútafirði | Messa
kl. 20.30. Íhugun, tónlist og bæn.
STAFHOLTSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 14. Kirkjukór Stafholtskirkju leiðir
söng undir stjórn Jónínu Ernu Arn-
ardóttur. Prestur er sr. Elínborg Sturlu-
dóttir. Sunnudagaskóli verður á prests-
setrinu í umsjón sr. Jóns Ásgeirs
Sigurvinssonar. Kaffi á eftir til styrktar
söfnun fyrir línuhraðli fyrir LSH. Auk
þess verða seld jólakort til styrktar
sama málefni.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Kirkjukórsmessa
kl. 14. Arnór Vilbergsson organisti og
félagar úr Kirkjukór Keflavíkurkirkju
annast tónlistina. Prestur er sr. Sig-
urður Grétar Sigurðsson. Kirkjukórs-
messa á Garðvangi kl. 15.30.
VEGURINN kirkja fyrir þig | Sam-
koma kl. 14. Barnastarf, lofgjörð, pré-
dikun og fyrirbæn. Guðlaug Tóm-
asdóttir prédikar.
VÍDALÍNSKIRKJA | Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11 á kristniboðs-
daginn. Sr. Friðrik J. Hjartar prédikar og
þjónar fyrir altari. Fermingarbörnin
skila söfnunarbaukunum og beðið fyrir
gjöfunum. Veitingar á eftir.
VÍÐISTAÐAKIRKJA | Fjölskylduhátíð
kl. 11. Barnakórinn syngur undir stjórn
Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur.
Sunnudagaskólinn fléttast inn í dag-
skrána. Prestur er sr. Bragi J. Ingi-
bergsson sóknarprestur.
Orð dagsins:
Trú þín hefir gjört
þig heila.
(Matt. 9)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Staðarkirkja í Hrútafirði.
Megirðu njóta hvíldar í friði
samtímis sem ég færi þér þakkir
frá Landssambandi smábátaeig-
enda fyrir þín störf í þágu trillu-
karla.
Örn Pálsson.
Traustur, dugmikill og umfram
allt skemmtilegur vinur er fallinn
frá í firðinum okkar fagra, Ólafs-
firði. Aðalbjörn Sigurlaugsson er
látinn. Við hjónin getum ekki
komið því við að vera við jarðarför
hans og því vil ég minnast þessa
góða félaga með örfáum kveðju-
orðum. Við kynntumst ungir þótt
nokkur ár skildu okkur að. Ég
minnist þess sérstaklega þegar
við og fleiri vinir hittumst nokkr-
um sinnum heima í Ólafsfirði um
jólaleytið á unglingsárum og spil-
uðum „brús“ fram eftir nóttum.
Hlátrasköllum okkar lauk þá oft
ekki fyrr en dagur reis að morgni.
Engan bjór né áfengan drykk
þurfti til á þeim stundum. Þar var
Bjössi í essinu sínu, hár í loftinu
með stórar og fimar hendur á spil-
um og þessa smitandi, leiftrandi
kímni, sem einkenndi hann öðru
fremur. Eftir æskuárin skildi leið-
ir. Bjössi fór á sjóinn og lauk þeim
starfsferli heima í Ólafsfirði sem
eigin húsbóndi á trillunni sinni
Blíðfara, harðduglegur og afla-
sæll, en ég sótti á önnur mið ólgu-
sjóa.
Síðar á ævinni tókum við saman
þátt í ferðaævintýrum sem eru
meðal skemmtilegri minninga okk-
ar hjóna. Við fórum með hópum
Ólafsfirðinga í ferðir „austur fyrir
tjald“ á árunum 1988 og 1992.
Ferðirnar voru í tengslum við vina-
bæjarheimsóknir til Lovisa í Sví-
þjóð og Hilleröd í Danmörku. Það-
an fórum við m.a. um Rússland,
Eistland, Lettland, Litháen, Pól-
land, Austur-Þýskaland og Tékkó-
slóvakíu. Aðalbjörn starfaði með
öðrum góðum vinum okkar í Ólafs-
firði að undirbúningi ferðanna og
var í þeim ævintýrum öllum hrókur
alls fagnaðar og fékk maklega
nafnbótina „Hovedbjörnen“.
Dönsk ferðaskrifstofa tók að sér að
leigja rútu og panta gistingar fyrir
ferðalangana. Þegar síðari ferðinni
lauk var svolítið samkvæmi í Tívolí
í Kaupmannahöfn. Þar ávarpaði
Bjössi forráðamenn ferðaskrifstof-
unnar á fínni dönsku og þakkaði
þeim frábæra fyrirgreiðslu. Hann
fékk dynjandi klapp fyrir enda jafn
fimur á húmorinn með dönsku ívafi
og íslensku!
Síðustu ferð okkar Bjössa fór-
um við Rúna í nóvember í fyrra
ásamt fleiri vinum saman á skipi
sem var aðeins stærri en trillan
hans Blíðfari. Það heitir Norwegi-
an Dawn og er um það bil 92.000
brúttótonn og áhöfnin rúmlega
1.000 manns, langflestir til þess að
þjóna farþegum um borð. Bjössi
var í tengslum við mann sem gat
boðið ódýra miða í siglingu á þessu
skipi um Karíbahaf til Mexíkó og
fleiri staða. Það var því fyrir at-
beina Bjössa að við fórum í þessa
stórskemmtilegu siglingu ásamt
fleiri Ólafsfirðingum, m.a. Antoni
Sigurðssyni og Herdísi konu hans,
Jóni Þorvaldssyni og Sigrúnu
konu hans. Þessi sigling var ólýs-
anlega skemmtileg og ævintýra-
leg. Hún hófst með því að við
þurftum að fara í gegnum vopna-
leit áður en gengið var um borð í
skipið. Vörður sem var þar vildi fá
að athuga Bjössa betur. Í ljós kom
að hann var með vasahníf. Bjössi
brosti breitt og sagðist aldrei
skilja hnífinn við sig. Hann notaði
hann heima á Íslandi til að blóðga
þorsk! Vörðurinn brosti á móti og
Bjössi fékk að hafa sinn hníf
áfram í vasanum.
Það er mikil eftirsjá að dug-
miklum og heilsteyptum mönnum
eins og Aðalbirni Sigurlaugssyni.
Við Rúna flytjum Addý og að-
standendum innilegar samúðar-
kveðjur og biðjum Guð að blessa
minningu hans.
Lárus Jónsson.
Fleiri minningargreinar
um Aðalbjörn J. Sigurlaugs-
son bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.