Morgunblaðið - 09.11.2013, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 09.11.2013, Blaðsíða 52
52 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2013 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Láttu ekki óttann við hið ókunna binda þig í báða skó. Reyndu að umbera eig- in duttlunga og sérvisku annarra. Leitaðu samstarfs því margt smátt gerir eitt stórt. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er smá hlé á spennunni á milli þín og dásamlegrar mannveru, þótt þið séuð enn föst inni í hrifningarbólunni. Vertu því stöð- ugt á varðbergi. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Aðstæður sem virðast aðkallandi eru ekki svo mikið vandamál þegar upp er staðið. Gakktu frá þínum málum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Ástvinur þinn gæti orðið órólegur vegna þess að gamall vinur úr fortíðinni leit- ar þig uppi. Njóttu velgengninnar á meðan þú hefur byr í seglin. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú skalt ekki verða vonsvikinn þótt eitt- hvað renni þér úr greipum. Allt sem þú gerir í dag mun bæta heimili þitt, heimilislífið og samband þitt við fjölskylduna. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þér líður eins og þú sért að neyða fólk til að vinna. Láttu ekki villa þér sýn, taktu þann tíma sem þú þarft. Með litlum breyt- ingum skapar þú þar fullkominn samhljóm. 23. sept. - 22. okt.  Vog Nú þarftu að leggja mál þitt fyrir og þótt þú sért fullur sjálfstrausts skaltu muna að kannski eru aðrir litlir í sér. Dagurinn í dag einkennist af léttleika og daðri. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Settu það í forgang að hlúa að þínum nánustu því þá ertu um leið að hlúa að sjálfum þér. Hættu að gera lítið úr sjálfum þér; þú ert ekki verri en hver annar. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Lokaðu þig ekki af frá umheim- inum þótt þú sért ekki upp á þitt besta. Láttu þig hafa það að vera meðal fólks í dag því út- koman mun verða þér í vil. 22. des. - 19. janúar Steingeit Láttu vera að eyða miklum pen- ingum í dag, þú gætir átt til að fara yfir strik- ið og kaupa einhvern óþarfa eða eitthvað fok- dýrt. Forðastu þá sem gera þig þreyttan. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er engin ástæða til þess að þú gerir það sem aðrir vilja. Reyndu að koma þér sem allra sjaldnast í aðstæður fullar af freistingum. Mundu að ekki er allt sem sýn- ist. 19. feb. - 20. mars Fiskar Manneskja sem máli skiptir í lífi þínu þarf ekki að gera mikið til þess að koma þér úr jafnvægi. Ef þú lætur í ljós óskir þínar, verður litið á það sem kvörtun, nema þú gerir það mjög glæsilega. Ég hitti karlinn á Laugaveginumfyrir utan Reykjavíkurapótek, hann nikkaði höfði, – „nú er hún Snorrabúð stekkur,“ sagði hann og lék gnarrískt bros um varir hans. „Já,“ bætti hann við, „borgarstjór- inn segist hættur í pólitík og um leið séu dagar „Besta flokksins“ taldir og átti hægt andlát.“ Spurði Rut: „Sá sem sál sína seldi hvort hann sveik eða hinn sem ‘ann véldi? – Á orð ekki sparr og einatt með narr þegar dagur er kominn að kveldi?“ Veturinn er farinn að kreppa að og hiti fyrir neðan frostmark á Leirnum. Höskuldur Búi yrkir: Vetur blæs og nuddar nær, netadræsur hristir. Kröftugt dæsir, kaldur hlær, klónum læsir, frystir. Georg Ólafur bætir við: Kominn er vetur, eftir vori ég bíð vaðmálstreyju og sokka úr lopa brúka í næðingi og norðanhríð – nefinu sultar ég þerra af dropa. Kristján Runólfsson bíður líka eftir vorinu: Nú er föl á fold, fellur jurt í mold, vond er vetrartíð, veður geisa stríð. Vorið birtist brátt blítt með sunnanátt, lifnar blómið blítt, boðar sumar nýtt. „Frost og funi“ varð Hrólfi Sveinssyni að yrkisefni: Sá ofsi kom eitt sinn að hjónum að elskast berfætt í snjónum þó hjónum sé bannað að elska hvort annað í skafli og upp úr skónum. Hér yrkir Hrólfur um „Raunvís- indi“: Að vatn geti frosið í frosti er fráleitt, að minnsta kosti því trúi ég síst. Hitt tel ég alls víst, að tunglið sé gert úr osti. Uppruni öfugmælavísna er rak- inn til Bjarna Jónssonar Borgfirð- ingaskálds: Smérið er í skeifur skást, skurnið ljónum heldur, í lífkaðal má fífan fást frýs við potta eldur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af vorþrá og vetrarhörkum Í klípu „ERTU VISS UM AÐ ÞÚ SÉRT TILBÚINN Í ÞESSA STÖÐUHÆKKUN? ÞAÐ GETUR VERIÐ BÝSNA KALT Á TOPPNUM.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG ER ENN AÐ BÍÐA EFTIR AÐ FÁ ÞRJÁR KRÓNUR TIL BAKA.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að velta því fyrir sér hvað hefði getað orðið. EF ÞÚ LIGGUR ÞARNA NÓGU LENGI FERÐU AÐ SAFNA RYKI! OG Á ENDANUM MUN EKKI SJÁST Í ÞIG LENGUR! GOTT. ÞÁ HÆTTIR ÞETTA NÖLDUR KANNSKI. NEI NEI NEI! ÞETTA ER EKKI ÞAÐ SEM ÉG MEINTI MEÐ „GRÆNU HEIMILI“! ÉG VAR AÐ MEINA AÐ VIÐ ÆTTUM AÐ FLOKKA RUSL OG RÆKTA MATJURTIR! Enn er Víkverji að kjamsa á Morg-unblaðið frá því um síðustu helgi, afmælisútgáfunni sjálfri. Enda ógrynni af viðtölum við fólk sem tengist blaðinu með einum eða öðr- um hætti. Ákaflega góð viðtöl við reynda blaðamenn. Slíkt kemur ný- græðingum í starfi ákaflega vel. Það er nefnilega þannig að ekkert er nýtt undir sólinni og ófáir staðið í sömu sporum og Víkverji. Alltaf gott að fá þá staðfestingu. x x x Ekki er hægt að neita því að Vík-verja þótti ákaflega gaman að lesa síðuna þar sem ýmiss konar mis- skilningur og stafavíxl hafði átt sér stað. Grátbroslegt var að lesa um stafavíxl á einföldum stöfum eins og -di og -ki í minningargrein. x x x Það var samt eitt viðtal í Sunnu-dagsmorgunblaðinu sem Vík- verja þótti einstaklega áhugavert. Það var við hina indversku Indra No- oyi forstjóra Pepsico. Margt af því sem hún sagði þykir Víkverja umhugsunarvert. Ástæðan fyrir því að hún ákvað að koma hingað til lands var bæði vegna þess að hún fékk einstakt boðskort og þótti landið áhugavert. Hún fær á hverjum degi ógrynni af boðum hingað og þangað út í heim. En þetta var öðruvísi. x x x Landið heillaði hana algjörlegasagði hún, það væri svo hreint, tært og óspillt í alla staði. Það er eitt- hvað sem við þyrftum að standa vörð um. Kynningarmyndbandið snerti einhverja taug. Góð markaðssetning þar sem samspil var milli mynda af landinu og tónlistar sem kveikti hug- hrif. x x x Í viðtalinu lýsir hún því að hún hafiiðulega verið höfð til sýnis hjá móður sinni eftir að hún tók við sem forstjóri. Eftir þá upplifun hafi hún brugðið á það ráð að senda öllum for- eldrum starfsmanna sinna bréf þar sem foreldrum hafi verið hrósað fyrir framúrskarandi uppeldi. Hrósið hef- ur svínvirkað og tryggt henni holl- ustu fjölskyldu starfsmanna sinna – leiki aðrir þetta eftir. víkverji@mbl.is Víkverji Jesús svaraði: „Já, því sælir eru þeir sem heyra Guðs orð og varðveita það.“ (Lúkasarguðspjall 11:28) Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki, stofnanir og prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt að gera kröfur um gæði og góða þjónustu. bizhub C35 er sannkallað fjölnotatæki bizhub C35 er prentlausn sem hentar flestum fyritækjum. Prentari, ljósritunarvél, faxtæki og skanni í einu nettu tæki sem prentar 30 blaðsíður á mínútu, hvort sem er í svart-hvítu eða lit. Kynntu þér rekstrarkostnaðinn því hann kemur á óvart. Þú þarft ekki annað tæki en bizhub C35. Verð: 379.900 kr. Konica Minolta fjölnotatækin eru margverðlaunuð fyrir hönnun, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika. Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.