Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.12.2013, Qupperneq 23
* Við fórum að eltakanínur, það end-aði á því að ég missteig
mig og fékk stokkbólg-
inn ökkla og var frá
æfingum í ein-
hvern tíma.
E
ygló Ósk Gústafsdóttir, sunddrottning úr Ægi, er ein
efnilegasta sundkona landsins. Hún æfir 20 klukku-
stundir á viku og borðar nánast það sem hún vill.
Hversu oft æfir þú á viku?
Æfi sirka 10 sinnum í viku, 2 klukkutíma í senn.
Hvernig æfir þú?
Ég fer bæði á sundæfingar og svo fer ég líka tvisvar sinnum í
viku í World Class.
Hentar sund fyrir alla?
Sundæfingar henta fyrir alla en kannski ekki svona oft. Öll
hreyfing er náttúrlega góð.
Hvernig er best fyrir nýliða að koma sér af stað?
Bara muna að byrja hægt og vinna sig upp. Passa sig á að of-
reyna sig ekki strax.
Hver er lykillinn að góðum árangri?
Vera ákveðin og setja sér markmið, sama hversu stór mark-
miðin eru. Svo er alltaf gott að vera jákvæður.
Hvað er það lengsta sem þú hefur synt?
Lengsta sundæfingin mín hefur verið 16 km á fjórum klukku-
tímum.
Hvað ráðleggurðu fólki sem vill hreyfa sig meira?
Setja sér markmið og vera duglegt að fara reglulega á æfing-
ar.
Líður þér illa ef þú færð
ekki reglulega útrás fyr-
ir hreyfiþörfina?
Mér líður ekki beint
illa en ég finn það á
mér að ég þurfi að
koma mér út og hreyfa
mig eitthvað, finn það á
mér að ég er með alltof mikla
aukaorku.
Hvernig væri líf án æfinga?
Ég held mér myndi bara leiðast,
þegar ég er til dæmis veik í einhvern
tíma þá bíð ég eftir að komast á æfingu.
Hvað er það lengsta sem hefur liðið
á milli æfinga hjá þér?
Það lengsta eru sirka 4 vikur, en það er líka sumarfríið mitt
sem er eini tíminn á árinu sem ég fæ til að slaka alveg full-
komlega á.
Hvernig heldurðu þér í formi þegar þú ferð í frí?
Ég nýti mér sumarfríið mitt til að slaka á þannig að ég held
mér ekki beint í formi en það er líka mikilvægt að slaka á inn
á milli.
Ertu almennt meðvituð um mataræðið?
Ég reyni að borða mikinn og fjölbreyttan mat en ég viður-
kenni að ég er ekki alltaf í hollustunni.
Hvað borðarðu til að halda þér í formi?
Ég æfi svo rosalega mikið að ég verð
að borða mjög mikið til að halda
uppi orkunni. Ég borða bara
venjulegan heimilismat og fæ
mér líka reglulega ávexti.
Hvaða óhollustu ertu veik
fyrir?
Kók og popp því miður. Ég elska
líka pitsur!
Hvað ráðleggurðu fólki sem vill
bæta mataræðið?
Bara finna eitthvað sem er bæði hollt og gott af því að það er
ekki gaman að borða eitthvað vont bara af því að það á að vera
hollt.
Hvaða gildi hefur hreyfing og líkamsrækt fyrir þig?
Ég hef æft síðan ég var 5 ára og hef farið á mörg stórmót úti í
heimi þannig að sundíþróttin er minn lífsstíll en hreyfing er
náttúrlega mikilvæg fyrir alla. Allir geta fundið sér eitthvað
sem þeim finnst gaman að.
Hver eru erfiðustu meiðsli sem þú hefur orðið fyrir?
Ég hef ekki orðið fyrir neinum alvarlegum meiðslum sem bet-
ur fer en ég hef tognað og fengið smá axlaróþægindi.
Hversu lengi varstu að ná þér aftur á strik?
Með axlarmeiðslin var ég bara dugleg að fara til sjúkraþjálf-
ara og gera æfingar sem hjálpuðu öxlunum.
Hver eru heimskulegustu meiðslin sem þú hefur orðið
fyrir?
Ég var 11 ára í skólaferðalagi og allir voru farnir nema ég og
vinkona mín. Við vorum að bíða eftir að pabbi hennar kæmi að
sækja okkur þannig að við fórum að elta kanínur, það endaði á
því að ég missteig mig og fékk stokkbólginn ökkla og var frá
æfingum í einhvern tíma.
Hver eru algeng mistök hjá fólki við æfingar?
Að fara of geyst í æfingarnar og lenda þá kannski í meiðslum
eða verða fyrir ofþjálfun.
Hver er erfiðasti mótherjinn á ferlinum?
Bara þeir sem eru ennþá betri en ég úti í heimi. Held að erf-
iðasti mótherjinn í minni grein sé Missy Franklin vegna þess
að hún er fljótust.
Hver er besti samherjinn?
Vinir mínir í Ægi. Ég gæti aldrei klárað allar þessar æfingar
án þess að hafa þennan félagsskap með mér.
Hver er fyrirmynd þín?
Ég mundi segja Missy Franklin, hún er jafnaldra mín og á
núverandi heimsmet í aðalgreininni minni (200 m bak-
sund).
Hver er besti íþróttamaður allra tíma?
Ég mundi segja Michael Phelps en hann vann 8
gullverðlaun í sundi á Ólympíuleikunum í Peking
2008.
Skemmtileg saga/uppákoma frá ferlinum?
Ég held að kjánalegasta uppákoman hafi
verið á Ólympíuleikunum 2012 þegar ég
var að fara að keppa í 100 m baksundi og
ég hafði gleymt upphitunarbolnum mín-
um í þorpinu. Ég þurfti að biðja Unni
sjúkraþjálfarann okkar um að fara að ná í
sundbolinn handa mér sem tók dágóðan tíma,
en allt reddaðist og ég fékk sundbolinn tímanlega.
Þetta er svona ein af mörgum sögum sem hafa gerst
en mér fannst þessi kjánalegust út af því að ég ætti að
vera búin að keppa nógu oft til að vita hvað ég á að setja í
sundtöskuna mína, hvað þá á Ólympíuleikunum.
ÍÞRÓTTAKEMPA VIKUNNAR EYGLÓ ÓSK GÚSTAFSDÓTTIR
Sundíþróttin er minn lífsstíll
Morgunblaðið/Ómar
Hæg og löng hlaup henta vel ef þú ert að æfa fyrir maraþon. Ef þú
ert ekki að æfa fyrir slíkt er tilvalið að skjóta inn 10-60 sekúndna
spretti til að keyra á líkamann. Gott er síðan að hægja á milli og ná
púlsinum niður. Þetta byggir upp vöðvana og eykur þolið.
Mikilvægt að spretta
8.12. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
* Lífshamingja er ekkertannað en blanda af góðriheilsu og lélegu minni.
Albert Schwitzer