Morgunblaðið - 02.01.2014, Side 15

Morgunblaðið - 02.01.2014, Side 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2014 lÍs en ku ALPARNIR s www.alparnir.is GLERÁRGÖTU 32, AKUREYRI, SÍMI 461 7879 • KAUPVANGI 6, EGILSSTAÐIR, SÍMI 471 2525 • FAXAFENI 8, REYKJAVÍK, SÍMI 534 2727 P P Góð gæði Betra verð Tökum notaðan skíða- og brettabúnað upp í ný Skíða- og snjóbrettapakkar 20%afsláttur • Svigskíði • Fjallaskíði • Gönguskíði • Snjóbretti Áramótin 2013-2014 voru mörkuð með stórbrotnum flugeldasýningum úti um allan heim, s.s. í stórborg- unum New York, Dubai, Sydney og Rio de Janeiro. Á nýársdag bárust þær fregnir frá Ítalíu að ár- veknisherferð gegn flugeldaslysum hefði heppnast með ágætum en mun færri slösuðust í fagn- aðarlátum þar í landi þessi áramót en áramótin á undan, þegar tveir létust og 361 þurfti að sækja sér læknisaðstoð. Að venju fagnaði einnig fjöldi fólks nýja árinu með sjóbaði, s.s. í Sviss, Frakklandi og Hollandi, þar sem þessar kátu konur brugðu á leik. AFP Ljósadýrð og sjósprikl á áramótum Kim Jong-Un, leiðtogi Norður- Kóreu, sagði í ára- mótaávarpi sínu í gær að flokkur hans hefði gripið til einbeittra að- gerða til að losa sig við „sund- urlynt úrþvætti“ og vísaði þar til af- töku Jang Song-Thaek, sem var gift- ur föðursystur Kim og einn helsti ráðgjafi leiðtogans unga þegar hann tók við völdum í landinu fyrir tveimur árum. Kim sagði að ákvörðunin hefði styrkt flokkinn og byltinguna og auk- ið samstöðu hundraðfalt. Leiðtoginn kallaði eftir ströngum aga á öllum sviðum og hét því að berj- ast gegn utanaðkomandi hug- myndafræði og gjálífi en lofaði á sama tíma viðamiklar bygginga- framkvæmdir á borð við Masik Pass- skíðaparadísina. Þá sagði hann tíma- bært að Kóreurnar tvær hættu að vinna gegn einingu og sættum en sakaði á sama tíma Suður-Kóreu og Bandaríkjamenn um að leggja lín- urnar fyrir kjarnorkustríð gegn Norður-Kóreu. Aftakan styrkti einingu Kim Jong-Un Frá áramótum geta Búlgarar og Rúmenar starfað án takmarkana í öll- um aðildarríkjum Evrópusambands- ins. Ríkin gengu í sambandið árið 2007 og íbúar þeirra hafa frá þeim tíma átt búseturétt í hinum aðildar- ríkjunum en aðeins um þriggja mán- aða skeið. Eftir þann tíma hafa þeir þurft að sýna fram á að þeir geti fram- fleytt sér og séu tryggðir, þannig að þeir séu ekki byrði á viðkomandi sam- félagi. Flest aðildarríki sambandsins hafa þegar lyft takmörkunum á atvinnu- réttindum Búlgara og Rúmena en ákvæði um frjálsa för verkafólks ryðja hindrunum úr vegi í níu löndum til viðbótar þar sem þær eru enn í gildi; í Austurríki, Belgíu, Bretlandi, Frakklandi, Þýskalandi, Lúxemborg, Möltu, Hollandi og á Spáni. Margar Evrópuþjóðir hafa lýst yfir áhyggjum af því að fjöldi aðfluttra verkamanna frá löndunum tveimur muni hafa skaðvænleg áhrif á inn- lendan vinnumarkað en Evrópusam- bandsríkin geta gripið til ýmissa úr- ræða til að stjórna innflutningi fólks, s.s. á grundvelli almannareglu og ör- yggis- og heilbrigðissjónarmiða. Bretland er meðal þeirra landa þar sem innflutningur erlends vinnuafls er mikið áhyggjuefni en David Han- son, skuggaráðherra Verkamanna- flokksins um málefni innflytjenda, hefur sakað þarlend stjórnvöld um að hafa hunsað áköll eftir strangari lög- gjöf til að koma í veg fyrir að fyr- irtæki leitist við að lækka launakostn- að með því að ráða erlent vinnuafl í stað innlendra verkamanna. Í viðtali við BBC Radio 5 sagði Hanson mikilvægt að sjá til þess að lögum um lágmarkslaun væri fram- fylgt og gagnrýndi íhaldsmenn fyrir ofstækisfulla orðræðu um takmark- anir á aðflutningi fólks. „Það er búið að lyfta þessum takmörkunum um alla Evrópu. Við ættum ekki að bregðast við með ofsa, við ættum að nálgast þetta á rólegan og yfirvegað- an hátt,“ sagði hann. Áætlað er að um 50 þúsund Búlg- arar og Rúmenar muni flytja til Bret- lands á ári hverju næstu fimm ár en ríkisstjórn David Cameron hefur ákveðið að herða reglur um atvinnu- leysis- og húsnæðisbætur til handa innflytjendum, til að stemma stigu við „bótatúrisma“. holmfridur@mbl.is Atvinnutakmörkunum aflétt  Búlgarar og Rúmenar gjaldgengir í öllum aðildarríkjum ESB  Fengu aðild 2007 Svisslendingar tóku í gær við stjórnartaum- unum innan Ör- yggis- og sam- vinnustofnunar Evrópu og hyggjast næsta árið setja mál- efni vestari hluta Balk- anskaga og Suður-Kákasus í for- gang. Utanríkisráðherra Sviss, Didier Burkhalter, hefur þegar skipað sérstaka fulltrúa fyrir svæðin en Svisslendingar vilja m.a. að ÖSE komi að samkomulagi milli stjórn- valda í Serbíu og Kosovo, sem undirritað var í fyrra, og lausn yf- irráðadeilu Armena og Asera. Þeir munu að auki leggja áherslu á baráttuna gegn pynt- ingum, aukna virðingu fyrir mannréttindum, lýðræðislegar kosningar og viðbúnað vegna nátt- úruhamfara. Vestur-Balkan og Suður-Kákasus Didier Burkhalter ÖSE Mahmud Abbas, forseti Palestínu, sagði á þriðjudag að Palest- ínumenn myndu grípa til dipló- matískra og lagalegra að- gerða til að koma í veg fyrir út- þenslu land- tökubyggða Ísraelsmanna í Jerú- salem. Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, gagn- rýndi Abbas sama dag fyrir að vera viðstaddur móttöku 26 fanga eftir að þeim var sleppt úr haldi Ísr- aelsmanna en þeir höfðu allir verið fundnir sekir um að hafa myrt ísr- aelska borgara eða hermenn. John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, mun funda með báðum leiðtogum í vikulok en við- ræður milli stjórnvalda í Palestínu og Ísrael hafa lítið þokast síðan þær hófust aftur í júlí síðastliðnum. Kveður ekki við sátt- artón fyrir heimsókn Mahmoud Abbas FRIÐARVIÐRÆÐUR Bandaríski hæstaréttardómarinn Sonia Sotomayor veitti á gamlársdag hópi nunna undanþágu frá ákvæði nýrrar heilbrigðislöggjafar Banda- ríkjastjórnar sem skyldar atvinnurek- endur til að greiða fyrir getnaðarvarn- ir starfsmanna sinna. Ákvæðið hefur verið afar umdeilt og telja margir það brjóta í bága við ákvæði stjórnar- skrárinnar um trúfrelsi en Sotomayor gaf stjórninni frest fram á föstudag til að skila andsvari til dómstólsins. Heilbrigðislöggjöfin, sem gengur undir gælunafninu Obamacare, tók gildi um áramót en hart hefur verið barist um hana í Washington frá því hún var undirrituð fyrir um fjórum ár- um. Samkvæmt henni verða allir Bandaríkjamenn að vera sjúkra- tryggðir en frá og með gærdeginum er tryggingafélögum óheimilt að neita einstaklingum um tryggingu vegna sjúkdóma sem vitað er að viðkomandi þjáist af né mega þau setja þak á ár- legar greiðslur vegna nauðsynlegrar þjónustu. Löggjöfin skilgreinir einnig þá þjónustu sem sjúkratryggingum ber að greiða fyrir, s.s. sjúkrahúsvist og fyrirbyggjandi þjónustu á borð við krabbameinsskimun og bólusetning- ar. Um það bil 25 milljónir Bandaríkja- manna sem ekki eru tryggðir í gegn- um vinnuveitandur sína munu njóta góðs af löggjöfinni og geta kynnt sér þær tryggingar sem í boði eru á þar til gerðri vefsíðu stjórnvalda, healt- hcare.gov. Aðeins 2,1 milljón manna hefur skráð sig fyrir tryggingu í gegnum vefsíðuna til þessa en það má m.a. rekja til tæknilegra vandamála sem hafa plagað síðuna. Alls eru 50 milljónir Bandaríkjamanna ótryggð- ar. Fá tímabundna undanþágu  Obamacare tók gildi um áramótin EPA Umdeilt Sotomayor veitti kaþólskum nunnum tímabundna undanþágu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.