Morgunblaðið - 02.01.2014, Side 20

Morgunblaðið - 02.01.2014, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2014 ✝ Jón Guð-geirsson fædd- ist 21.8. 1927 í Reykjavík. Hann lést á á lungna- deild Landspít- alans 23.12 2013. Foreldrar Jóns voru Guðgeir Jóns- son, bókbands- meistari, f. 25.4. 1893, d. 7.6. 1987 og Guðrún Sigurð- ardóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 25.9. 1893, d. 17.8. 1987. Jón var yngstur 7 systkina sem voru: Guðrún Jósefína, f. 6.8. 1917, d. 19.1. 2000, Einar Guð- mundur, f. 12.10. 1919, d. 7.4. 1999, Þorlákur Valgeir, f. 23.1. 1921, d. 7.7. 1984, Sigrún, f. 25.5. 1923, d. 21.10. 2013, Ás- björg, f. 30.8. 1924, d. 13.1. 2009 og Sigurður, f. 30.5. 1926, d. 6.7. 1983. Jón kvæntist Guðrúnu Jó- hannesdóttur, húsfreyju, þann 25.7. 1953. Hún fæddist á Húsa- vík, 16.10. 1927 og dó 21.7. 2006. Faðir Jóhannes Ármanns- son, f. 9.1. 1900, d. 14.2. 1959 og móðir Ása Stefánsdóttir, f. 18.11. 1895, d. 25.1. 1972. synir þeirra: Stefán Ás, f. 3.9. 1996 og Jón Goði, f. 19.5. 1999. 4. Jóhannes Heimir, f. 18.1. 1971, maki Agnes Benedikts- dóttir, f. 29.7. 1975, börn þeirra: Benedikt, f. 9.12. 2001, Jóhannes, f. 11.7. 2004 og Guð- rún, f. 2.11. 2007. Jón lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands 1949 og kandídatsprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands 1957. Hann lauk sérfræðigráðu í húð- og kynsjúkdómum í Svíþjóð 1970. Jón starfaði og kenndi við ýmis sjúkrahús í Svíþjóð á árunum 1960-1970. Hann starfaði sem sérfræðingur í húð- og kyn- sjúkdómum á Íslandi frá 1970 til 2010, tryggingalæknir hjá Tryggingastofnun ríkisins 1971-1981, yfirlæknir á húð- lækningadeild Landspítala 1981-1997, síðan lausráðinn sér- fræðingur hjá LSP til 2009. Jón sinnti kennslu hjúkrunarfræði- og sjúkraþjálfunarnema um nokkurra ára skeið og stunda- kennslu 4. árs læknanema við Háskóla Íslands frá 1982. Jón rak einnig læknastofu í Domus Medica frá árinu 1971 til ársins 2010 og hann átti því langa og farsæla starfsævi sem læknir eða alls í 53 ár. Útför Jóns fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 2. janúar 2014, kl. 13. Börn Jóns og Guðrúnar eru: 1. Ása, f. 7.3. 1957, maki Björn Halb- laub, f. 9.6. 1944, d. 13.10. 2012. Börn þeirra: a. Grímur Ásgeir, f. 19.4. 1989, sambýliskona Alexandra P. Bark- ardóttir, f. 14.6. 1991 og b. Erla, f. 26.7. 1992, sam- býlismaður Leifur Eiríksson, f. 11.12. 1989, sonur þeirra Eirík- ur Björn. Börn Ásu af fyrra hjónabandi: c. Daníel Snær Ragnarsson, f. 27.9. 1978, maki Agnes Helga Martin, f. 14.3. 1978, börn þeirra: Ísak Sindri, Markús Andri og Írena Sóldís. d. Ása Þöll Ragnarsdóttir, f. 8.2. 1983, sambýlismaður Þor- steinn Óli Eggertsson, f. 3.6. 1988, sonur þeirra Baltasar Leó. 2. Guðgeir, f. 5.11. 1958, sambýliskona Guðrún A. Árna- dóttir, f. 27.09. 1972. Dætur Guðgeirs: Jóhanna, f. 5.12. 1989 og Glódís, f. 23.12. 1993. 3. Guðrún f. 17.2. 1965, maki Ingvar Stefánsson, f. 24.4. 1966, Þó sárt sé að kveðja pabba sinn, þá er það jafnframt ljúft, því margs er að minnast á langri og góðri ævi. Í mínum huga var pabbi alltaf einstaklega rólegur og góður maður og ávallt stutt í húmorinn. Ég minnist þess sér- staklega að samstarfskona hans spurði mig nýlega hvort hann væri alltaf svona rólegur og glaðlyndur. Ég get varla sagt að það hafi verið mikið um boð og bönn á heimili foreldra minna, línurnar voru frekar lagðar með eigin fordæmi. Aldrei var sofið frameftir, alltaf mætt í vinnu og verkefni dagsins í dag ekki látin bíða til morguns. Þetta mótaði okkur systkinin, sennilega meira en við gerum okkur grein fyrir. Pabbi hafði gaman af því að fylgjast með íþróttum og gerðu hann og mamma sér ávallt far um að fylgjast með þegar ég keppti og þótt hann hafi verið sparsamur á hrósið og nefndi frekar það sem betur mætti fara þá fannst mér, og finnst enn í dag, afskaplega vænt um þessar stundir. Pabbi og mamma ferð- uðust mikið og eftir að ég og fjölskylda mín fluttum til Sví- þjóðar 2003 heimsóttu þau okk- ur alloft. Þau höfðu mjög gaman af að koma og rifja upp þegar þau bjuggu þar sjálf 1960-70 og var það greinilega einn besti tíminn í þeirra lífi. Það þótti mér afar vænt um. Pabbi hafði mjög mikla bíladellu og kom sér það vel fyrir okkur systkinin, bæði var alltaf til nóg af bílum á heim- ilinu og hann ávallt tilbúinn til að skutla manni út um allar trissur. Hann hafði gaman af laxveiði og deildi hann þeim áhuga með Gurra bróður og voru þær ófáar veiðiferðirnar sem þeir fóru saman feðgar, nú síðast fyrir þremur árum, sem verður að teljast ansi gott hjá 83 ára gömlum manni. Læknisstarfið var hans helsta áhugamál og sinnti hann því af elju í 53 ár. Naut ég síðar meir góðs af þessu. Í fyrstu sem ung- ur óreyndur læknir í héraði sem þurfti ráðleggingar með allt og hringdi heim hálfgrátandi um miðjar nætur, síðar var alltaf gott að leita til hans vegna erf- iðari mála og fannst mér aðdá- unarvert hve almenn þekking hans var mikil. Eftir að mamma dó hélt pabbi ótrauður áfram og hélt merkjum þeirra á lofti. Hann var alltaf til í að vera með í öllu, þótt erfiður lungnasjúkdómur setti síðar strik í reikninginn. Við töluð- umst við daglega milli landa. Ræddum læknisfræði, pólitík, sem okkur fannst frekar döpur og ekki síst veðrið, sem ein- hverra hluta vegna var alltaf betra á Íslandi. Elsku pabbi, ég sakna þín, hjálpsemi þinnar, glaðlyndis og endalausrar bjartsýni en nú ertu kominn til mömmu, sem þú saknaðir mikið. Þakka ykkur fyrir allt sem þið gáfuð okkur. Jóhannes Heimir Jónsson (Minni). Sólin glitrar á hafflötinn, sandurinn í litlu víkinni er heitur og mjúkur. Gamlir veðraðir strandkofar í röð, einn tilheyrir okkur og í honum geymum við stranddótið okkar, litla fjöl- skyldan frá Íslandi. Árið er 1960, veturinn áður höfðum við verið í „héraði“ á Kópaskeri við ysta haf norðursins, þar sem helsta aðdráttarafl barna var risastór og lífshættulegur kolab- ingur á hafnarkantinum. Snemma vors 1960 lauk þessari vist og við fórum suður til Reykjavíkur og vorið eftir sigld- um við með flaggskipi íslenska kaupskipaflotans, Gullfossi, til Kaupmannahafnar. Sigrún frænka og Willy tóku á móti okkur með opinn faðminn og það var nú aldeilis enginn smá faðm- ur hjá þeim, hann var ávallt op- inn og alltaf nægt gistirými, mikil glaðværð og gott fæði í boði. Við börnin, ríflega fjögurra ára og þriggja ára, nutum þessa mikla ævintýris áhyggjulaus, tveir hrokkinhærðir glókollar sem vissu ekki að foreldrar okk- ar, Nonni og Gunna, höfðu gerst svo djörf að sigla utan án þess að hafa vinnu eða framtíðarhús- næði fast í hendi. En ævintýrin gerast, pabbi fékk stöðu við end- urhæfingarsjúkrahúsið í Apel- viken utan við Varberg í Svíþjóð og fjölskyldan flutti í litla húsið í skógarrjóðrinu með öllum gömlu húsgögnunum sem buðu uppá endalausa möguleika til leikja, sem rennibrautir og flekar í flóttaleikjum okkar undan sjó- ræningjum, stormum, öldugangi og hættulegum dýrum. Við nut- um samvista við og dáðumst að öllum litlu skógardýrunum, ak- urhænum, íkornum, refum og greifingjum sem mamma fóðraði vel á matarafgöngum. Við lékum okkur undir öruggri vernd stóra schaeffer-hundsins sem umsjón- armaðurinn átti, hundurinn sótti okkur í mat, stóð í marki í fót- bolta og fylgdi okkur heim að leik loknum. Ég minnist glókoll- anna tveggja á fleygiferð á þrí- hjólinu á ferðalagi um ævintýra- stíga skógarins, hangandi á hliðgrindinni þá sjaldan einhver bíll átti erindi um veginn. Hver dagur stanslaus gleði, fullur af ævintýrum og hamingju. Dulúð skógarins að vetri, Lúsían með föruneyti aðfaranótt 13. desem- ber, syngjandi kyrtlaklætt föru- neyti og jólasveinn með kerta- lugt komu hægt og líðandi eftir skógarstígnum í snjónum og myrkrinu, þvílíkt ævintýri, litla húsið fyllist af syngjandi undra- verum. Jólabrauð, piparkökur og heitt kakó. Litla víkin okkar að sumri, sléttir, mjúkir steinar, salt og volgt hafið, sandur og kastalabyggingar, djús og „bull- ar“, sól og sæla, er hægt að biðja um meira? Pabbi og mamma, kærar þakkir fyrir þetta mikla ævintýri og dásamlegar minn- ingar. Ása og Guðgeir. Mig langar að minnast tengdaföður míns, Jóns Guð- geirssonar, með nokkrum orð- um, en hann lést á Þorláksmessu eftir erfið veikindi. Ég hitti Jón fyrst árið 1987 en þá vorum við Guðrún dóttir hans nýbyrjuð saman. Hann átti eftir að reyn- ast mér vel, bæði sem læknir og tengdafaðir minn. Það sló mig strax hvað hann var alltaf með létta lund og skipti nánast aldrei skapi, Jón kom mér fyrir sjónir eins og hann væri alltaf í góðu skapi og ávallt stutt í húmorinn alveg til dauðadags. Þennan góða eiginleika hafa öll börnin hans greinilega erft og því má segja að andi Jóns lifi áfram þó með öðrum hætti sé. Jón tók veikindunum af miklu æðruleysi og kvartaði aldrei vegna þeirra þó svo að hann hafi líklega verið mjög kvalinn síðustu vikurnar. Það var alltaf gaman að vera í kringum Jón. Jón og Gunna komu oft við hjá okkur Guðrúnu og eftir að Gunna eiginkona hans féll frá árið 2006 kom hann nokkrum sinnum í viku í mat. Hann átti auðvelt með að tala við alla, þótti gaman að ræða þjóðfélagsmálin og var ekki feiminn að tjá skoðanir sínar á mönnum og málefnum, hann var því oft á tíðum miðpunkturinn á mannamótum. Jón var merkilegur maður, átti langan og farsælan stafs- feril, var læknir í 53 ár, eða húð og „hitt“ eins og hann sagði gjarnan sjálfur. Hann var oft fljótur að greina hvað væri að og var vel að sér bæði í sinni fræði- grein sem og í almennri lækn- isfræði. Hann fylgdist vel með öllum nýjungum og lét prenta út fyrir sig nýjustu fræðigreinar af veraldarvefnum þó að hann væri vel kominn yfir áttræðisaldurinn enda rak hann læknastofu þar til hann varð 83 ára. Hann mætti á fundi með læknum alveg til ævi- loka þó að hann hafi verið hætt- ur að reka læknastofu. Sem dæmi um hvað hann var farsæll í starfi var að einhverju sinni heyrði ég sögu um tvær konur sem ræddu saman um húðsjúk- dóm sem hrjáði barn annarrar þeirra. Sú hafði gengið á milli lækna og úrræðin sem hún hafði fengið hjá nokkrum læknum höfðu ekkert dugað. Hin kunni ráð við þessu, „farðu bara með barnið til gamla læknisins í Do- mus, ég lenti líka í þessu en hann var fljótur að greina hvað væri að“. Þetta segir mikið um Jón. Hann vann ávallt mikið og var um tíma í þremur vinnum samtímis og mjög eftirsóttur og alltaf tilbúinn hvenær sem var ef leitað var til hans, hvort sem það voru vinir, ættingjar eða „gamla fólkið“ á Hrafnistu sem þó var stundum yngra en hann sjálfur. Hann var alltaf að og það var enginn afsláttur gefinn af því að vakna á morgnana. Jón var vanur að vera með okkur á jólunum eftir að hann missti Gunnu, því miður gat hann ekki verið með okkur þessi jól og hans er sárt saknað. Nú hefur hann kvatt þennan heim og er væntanlega kominn til hennar Gunnu sinnar sem hugs- ar vel um hann. Kæri Jón, hvíl í friði. Ingvar Stefánsson. Fallinn er frá heiðursmaður- inn og höfðinginn Jón Guðgeirs- son, læknir. Góður vinur og frændi. Nonni frændi. Upp koma í hugann góðar minningar af öllum góðu samverustundun- um.Margs er að minnast. Léttar stundir í saumaklúbbi tjáning- arinnar hér áður fyrr. Þar var mikið rætt og hlegið, með góðan mat og drykk sem orkugjafa. Menningarklúbbur okkar var virkari hin síðari ár. Fastir mið- ar á Sinfó og fleiri viðburði hér og þar. Nonni var þar alltaf í góðum gír. Kom með gullmola stutta er sögðu allt sem þurfti. Af mörgu minnisstæðu af ferðum okkar um landið vil ég nefna veiðiferð í Laxá í Aðaldal með þeim hjónum, Gunnu og Nonna. Þar var Gunna í sinni sveit. Rifjaði upp margt og fræddi okkur um staðhætti. Þar nutum við allrar fegurðarinnar við ána. Þar söng Gunna fyrir okkur vakandi og sofandi. Ógleymanlegur tími. Nonni var alltaf mikill vinnu- maður. Að vakna hvern morgun með bros á vör. Fagna hverjum degi með virðingu. Að ganga að verki. Hitta fólk með brosi og ást. Blíður og tillitssamur. Gat glaðst yfir góðu dagsverki. Að leika upp æskunnar ævintýr með áranna reynslu sem var svo dýr, er lífið í ódáins-líki. Ég gref allt hið liðna í gleðinnar skaut, ég gjöri mér veginn að rósabraut og heiminn að himnaríki (Einar Ben) Nonni frændi var tignarlegt glæsimenni. Öll hans hugfræði var kærleikur og hjálpsemi. Þakka ég fyrir mig og mína fjöl- skyldu. Hleypir skeiði hörðu halur yfir ísa glymja járn við jörðu, jakar í spori rísa. Hátt slær nösum hvæstum hestur í veðri geystu. Gjósta af hjalla hæstum hvín í faxi reistu. (Einar Ben) Votta ég allri hans fjölskyldu samúð mína. Minningin lifir. Sigurður Örn Sigurð- arson og Ágústína G. Pálmarsdóttir. Vinur minn og starfsfélagi Jón Guðgeirsson var farsæll maður í lífi og starfi og leysti öll sín verk af natni og samvisku- semi. Hógværð og létt lund var honum eðlislæg. Kynni okkar hófust þegar ég var í sérnámi í Svíþjóð en þá var hann yfirlækn- ir á húðsjúkdómadeild Landspít- alans á Vífilsstöðum. Við urðum síðar samstarfsfélagar og vinir. Hann var óspar á góð ráð en jafnframt óhræddur að leita ráða og aðstoðar ef svo bar und- ir, en slíkt er nauðsynlegt öllum læknum. Eftir að Jón komst á eftirlaunaaldur og hætti sem yf- irlæknir, starfaði hann áfram sem sérfræðingur á húðsjúk- dómadeildinni um nokkurra ára skeið. Þetta reyndist deildinni ómetanlegt. Hann fylgdist vel með faglega og kom á vikulega fundi húðdeildar Landspítalans á meðan heilsan leyfði eða fram til ársins 2011 og þá kominn á 85. aldursár. Þegar fjölskylda mín hafði dvalist hartnær 10 ár í Svíþjóð var ekki sjálfgefið að flytjast aftur heim til Íslands. Ég hafði leyst af á húðsjúk- dómadeild Landspítalans og fann að þetta var góður vinnu- staður en var þó ekki afráðið hvert framhaldið yrði. Jón nafni minn og Guðrún kona hans komu þá í heimsókn til Svíþjóð- ar, en þau höfðu áður dvalist í Svíþjóð í álíka langan tíma og við. Þau sannfærðu okkur um að nú væri rétti tíminn til að snúa við blaðinu og flytjast aftur heim, sem við og gerðum og sáum ekki eftir því. Aðstoð Jóns og hjálpsemi alla tíð var mér mikils virði. Hann var einstak- lega ráðagóður og glöggur mað- ur í fjármálum en tók ekki óþarfa áhættur. Það var eftir- tektarvert hve nærgætinn og góður hann var við sína nánustu svo og við samstarfsfólk og vini. Jón var farsæll í einkalífi og stoltur af sínu fólki. Mér er það minnisstætt þegar við nafnarnir vorum á þingum erlendis ásamt starfsfélaga okkar heiðursmann- inum Hannesi Þórarinssyni heitnum. Þá kom glögglega í ljós hve hjálpsemi og tillitssemi var Jóni í blóð borin þegar hann að- stoðaði Hannes sem þá var kom- inn á efri ár. Betri ferðafélagar voru vandfundnir, báðir verald- arvanir, skemmtilegir og einstök prúðmenni. Minningin um Jón Guðgeirsson sem góðan dreng mun ætíð lifa í hugum okkar hjónanna. Jón Hjaltalín Ólafsson og Þórunn Þórhallsdóttir. Mér auðnaðist sú gæfa að eiga Jón Guðgeirsson lækni að stofunaut í meira en tvo áratugi. Hann hafði opnað stofu sem sér- fræðingur í húð og hinu á upp- hafsárum Domus Medica og þjónaði þar meðfram trygginga- og yfirlæknisstarfi og mun leng- ur, því að hann var kominn á ní- ræðisaldur er Landlæknisemb- ættinu þótti ekki ástæða til að veita frekari undanþágur til áframhaldandi stofureksturs. Jón var hins vegar jafn klár og fær, þótt aldurstalan væri komin upp fyrir viðtekin mörk yfir- valda. Þess vegna þótti okkur ástæða til að gera grín að kerf- inu með því að ég réð hann sem aðstoðarlækni hjá mér. Og það var ekki bara grín, því að Jón mætti einu sinni í viku og tók á móti sjúklingum sem ég vísaði til hans, bæði úr mínu samlagi og af Læknavaktinni, og þá var engin tveggja mánaða bið eftir tíma hjá sérfræðingi. En gæfa mín fólst í því að fá að ljúka hverjum vinnudegi með því hitta Jón sem var mættur kl. fjögur til að taka á móti sínum sjúklingum. Ef mínir sjúklingar voru farnir að taka í eða skrif- finnskan sem fylgir, þá leið sú þreyta fljótt úr við að sjá framan í Jón. Hans lund var einstök. Léttleikinn og lífsgleðin sem geislaði af honum lýstu upp um- hverfið. Smástríðni, sem undir- ritaður gaf oft tilefni til, krydd- aði tilveruna, en jafnframt var hann ævinlega inni í því sem var að gerast í samfélaginu, gagn- rýninn jafnaðarmaður. Jón átti ekki langt að sækja róttæka samfélagssýn og réttlætiskennd, sonur hins ástsæla forseta ASÍ, Guðgeirs bókbindara Jónssonar og Guðrúnar Sigurðardóttur. Oftar en ekki var Sveinn Seinn ekki tilbúinn að skila stof- unni af sér á réttum tíma. Aldrei olli það nokkrum árekstrum, ekki svo mikið sem einu grammi af pirringi. Mikið vildi ég óska þess að ég ætti brot af þeirri þolinmæði, jafnlyndi og prúð- mennsku. Í þeim heimshluta þar sem ég held mig mest, ef ég er ekki í vinnunni eða í berjamó, er höf- uðkostum manna gjarnan lýst með orðinu kurteis. Og þá er ekki bara átt við góða fram- komu, heldur eðalkosti einsog umhyggjusemi, örlæti og góð- lyndi. Jón Guðgeirsson var afar kurteis maður. Sjúklingar hans og samstarfsmenn nutu þessara eðalkosta hans sem fóru vel saman við faglega kunnáttu og færni. Mér lætur vel að vera með væl og neikvæðni í bland af mús- íkölskum ástæðum, því það þurfa að vera margvíslegir tónar í sinfóníunni. Þannig kenndi ég Jóni um það hversu lélegur ég smám saman varð í húðlækn- ingum af samverunni með hon- um. Hafandi mann eins og Jón við hliðina á sér sem var svo auðvelt að vísa vandanum til, þýddi að smám saman varð minna úr mínu frumkvæði. Og þótt þetta hljómi vitlaust, þá er þetta ekki arfavitlaust. Sama átti við um smáskurðlækningar sem mér fannst sjálfsagt að stunda í sveitinni. Maður stein- hættir síðan að gera nokkuð þegar allt í kring eru menn sem eru ávallt með hnífinn á lofti. Með sveitinni á ég við Húsavík, en þangað sótti Jón sína Guð- rúnu, þá fögru og góðu berja- konu. Ég þakka Jóni samverustund- irnar; öll brosin, léttan hláturinn og lífsgleðina. Ég votta fjöl- skyldu Jóns innilega samúð. Minning um góðan dreng lifi. Sveinn Rúnar Hauksson. Kveðja frá Félagi íslenskra húðlækna Jón Guðgeirsson var starfandi húð- og kynsjúkdómalæknir á Íslandi í yfir 40 ár og yfirlæknir Húðlækningadeildar Landspítal- ans í 16 ár. Þeir eru ófáir Íslend- ingarnir sem notið hafa góðs af læknisstörfum hans og ófáir læknanemarnir sem hann hefur miðlað af þekkingu sinni. Ég kynntist Jóni lítillega sem læknanemi en mun betur þegar við störfuðum saman á húðlækn- ingdeild Landspítalans. Mikil góðmennska og enn meiri kímni- gáfa eru þeir eiginleikar sem lýsa Jóni best, hann hafði óend- anlega gaman af góðlátlegri stríðni og gleðskap með sam- starfsfólki sínu. Það var mikið hlegið á Vífilsstaðaspítala og minningarnar um þann góða tíma hlýja mér um hjartarætur. Að leiðarlokum þakka félagar í Félagi íslenkra húðlækna Jóni Guðgeirssyni fyrir áratuga sam- fylgd og senda fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur. Far þú í friði, góði félagi, og þökk sé þér fyrir allt sem þú hefur gert í þágu húðlækninga á Íslandi. Elísabet Reykdal Jóhann- esdóttir, formaður Félags íslenskra húðlækna. Jón Guðgeirsson HINSTA KVEÐJA Afi var okkur alltaf mikil fyrirmynd, dugnaður og lífsgildi hans munu fylgja okkur ævilangt. Hann bar ætíð mikla reisn yfir sér, var hjálpsamur og greið- vikinn. Léttleiki og glað- lyndi voru hans aðalsmerki. Við munum alltaf finna fyr- ir væntumþykju hans og ömmu. Þínir Stefán Ás og Jón Goði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.