Morgunblaðið - 02.01.2014, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 02.01.2014, Qupperneq 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2014 HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Rvík. • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Alúð • Virðing • Traust Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN KRISTMANNSSON, Seljalandsvegi 36, Ísafirði, verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 4. janúar kl. 11.00 Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð Úlfs Gunnarssonar, Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, Ísafirði. Hulda Jónsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Guðm. Stefán Maríasson, Helga Birna Jónsdóttir, Gunnar Bjarni Ólafsson, Bryndís Jónsdóttir, Guðjón Már Þorsteinsson, Margrét Brynja Jónsdóttir, Þórdís Jónsdóttir, Höskuldur Bragason, afabörn og langafabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍSABET REYKDAL, Setbergi, lést á Sólvangi laugardaginn 21. desember. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnar- firði föstudaginn 3. janúar kl. 11.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Halldór Einarsson, Unnur Jónsdóttir, Kristín Einarsdóttir, Haukur Bachmann, Jóhannes Einarsson, Pálína Pálsdóttir, Friðþjófur Einarsson, Hulda Júlíusdóttir, Sigrún Einarsdóttir, Sigurður Gíslason, Pétur Einarsson, Guðrún Harðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HJÖRTUR EINARSSON, Neðri-Hundadal, Dalasýslu, sem lést mánudaginn 23. desember, verður jarðsunginn frá Kvennabrekkukirkju föstu- daginn 3. janúar kl. 14.00. Rútuferð verður frá Umferðarmiðstöðinni, BSÍ, kl. 11.30 sama dag. Lilja Sveinsdóttir, Sigríður Hjartardóttir, Helgi Reynisson, Sigursteinn Hjartarson, María Guðmundsdóttir, Kristín Lára Hjartardóttir, Jóhann Hreggviðsson, Signý Harpa Hjartardóttir, Axel Gíslason, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN STEFÁNSDÓTTIR, Sóltúni, áður Hallveigarstíg 2, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 3. janúar kl. 13.00. Oddný Björg Halldórsdóttir, Helgi Kristjánsson, Ólöf Berglind Halldórsdóttir, Stefán Örn Betúelsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Heiðrún Frið-riksdóttir fæddist á Sauð- árkróki 22. nóv- ember 1949. Hún lést á Heilbrigð- isstofnuninni Sauð- árkróki 22. desem- ber 2013. Foreldrar Heið- rúnar eru Alda S. Ellertsdóttir hús- móðir, f. 13.5. 1926, og Friðrik L. Margeirs- son, fv. skólastjóri, f. 28.5. 1919, d. 12.6. 1995. Systkini Heiðrúnar eru: Helga Ingi- björg, f. 1948, Hallfríður, f. 1950, Jóhann, f. 1953, F. Mar- geir, f. 1960, Valgerður, f. 1962, og Páll, f. 1967. Hinn 1.12. 1971 giftist Heiðrún eft- irlifandi eiginmanni sínum, Sveini Rúnari Sigfússyni, f. 5.8. 1946. Þau eignuðust þrjú börn: 1) Hólmfríður, f. 8.2. 1972, maki Stefán Friðriksson, f. 2.6. 1973, börn þeirra eru: a) Frið- rik Þór, f. 11.7. 1995; b) Herj- ólfur Hrafn, f. 15. 12. 2001; c) Heiðrún Erla, f. 9.4. 2007. 2) Ingibjörg, f. 23.3. 1973, maki Ing- ólfur Ingólfsson, f. 5.7. 1970, barn þeirra er Birgitta, f. 22.10. 2005. Börn Ingólfs af fyrra sambandi eru: 1) Thelma Björk, f. 31.10. 1990, dóttir hennar er Saga Guðmunda, f. 23.6. 2011. 2) Eyþór, f. 8.12. 1991. 3) Rúnar, f. 9.5. 1981, maki Efemía Rún Sig- urbjörnsdóttir, f. 15.2. 1980, barn þeirra er Rúnar Magni, f. 19.2. 2011. Heiðrún lauk gagnfræða- prófi frá Hagaskólanum í Reykjavík. Hinn 1. janúar 1968 hóf hún störf við Heilbrigð- isstofnunina Sauðárkróki og vann þar lengst af sem lækna- ritari. Samhliða vann Heiðrún um árabil hjá Sögufélagi Skag- firðinga. Útför Heiðrúnar fer fram frá Sauðárkrókskirkju í dag, 2. janúar 2014, og hefst athöfnin kl. 15. Mikið sem lífið getur stund- um verið ósanngjarnt. Mamma sem svo oft var búin að hafa á orði allt það sem hún ætlaði að gera þegar hún hætti að vinna. Hún fór ung út á vinnumark- aðinn og var búin að vinna hjá „ríkinu“ alla sína tíð. Hún var því á svokallaðri 95 ára reglu og átti rétt á lífeyri 62 ára gömul. Mamma veiktist í febrúar 2011, á 62. aldursári. Höggið kom í ágúst sama ár þegar mamma greindist með ólæknandi lungnakrabbamein. Þá hófst barátta sem allir vissu að enda myndi á einn veg. Að fylgjast með mömmu í þessari baráttu var ótrúlegt, það var sem hún byggi yfir óveraldlegum krafti. Hún sýndi þvílíkt æðruleysi, hún var alltaf að segja við okk- ur að við yrðum að vera sterk, þetta var svo súrrealískt á köfl- um. Vorum það ekki við sem áttum að vera að hughreysta hana og telja í hana kjark? Maður hálfskammaðist sín fyrir að klökkna fyrir framan hana. Innst inni held ég að mamma hafi trúað á kraftaverk, að hún myndi sigra krabbann og satt best að segja var ég farin að trúa því sjálf á tímabili, allt gekk svo vel. Mamma bar sig svo vel, fór í endurhæfingu á morgnana og út að ganga eftir hádegi ásamt því að sinna heim- ilsstörfum og ýmsum snúning- um í kringum barnabörnin. Hún var alltaf að afsaka sig ef maður kom að henni uppi í sófa, ég verð reyndar að viðurkenna að það tók smátíma að venjast því. Smám saman fór að draga af mömmu og fór hún hægt og síg- andi að gefast upp á daglegum athöfnum eins og endurhæfing- unni, göngunni, heimilisstörfum og undir það síðasta hætti hún að gera handavinnu vegna sjón- leysis. Það var mikið tekið af mömmu þegar hún gat ekki gert handavinnuna og fannst mér alltaf jafnskrítið undir það síðasta þegar við vorum að spjalla saman á sjúkrahúsinu að horfa á hendurnar hennar mömmu ekki gera neitt. Mamma var alveg ótrúlega mik- il mamma og þegar barnabörnin fóru að tínast í heiminn varð hún þeim heimsins besta amma. Hún var alltaf að búa eitthvað til handa okkur, hvort sem það var matarkyns eða fatnaður. Hún var einstaklega hagsýn og nýtin og var sérfræðingur í að búa til eitthvað nytsamlegt úr engu. Mamma hafði þann hæfi- leika að allt sem hún kom ná- lægt varð gott, fallegt og lét manni líða vel. Mikið rosalega sem ég er þakklát fyrir að hafa átt mömmu eins og hana. Elskulega mamma mín mjúk er alltaf höndin þín tárin þorna sérhvert sinn sem þú strýkur vanga minn. Þegar stór ég orðinn er allt það skal ég launa þér. (Sig. Júl. Jóhannesson.) Þín dóttir, Hólmfríður. Nú þegar komið er að leið- arlokum hjá Heiðrúnu vinkonu minn og sá illvígi sjúkdómur, krabbamein, hefur haft betur í þeirra viðureign, fyllist ég sökn- uði en jafnframt streyma fram góðar minningar frá liðnum samverustundum okkar og margt er að þakka og margs að minnast. Hún var ein af þeim sem gott var að kynnast og eiga sem vinkonu. Þó við Heiðrún séum báðar fæddar og uppaldar í Skaga- firði, þá hófust kynni okkar og vinátta í Hagaskólanum í Reykjavík þar sem við vorum saman í bekk og útskrifuðumst þaðan sem gagnfræðingar. Með okkur myndaðist einlæg vinátta sem haldist hefur hátt í hálfa öld. Þegar litið er til baka hafa árin liðið svo undurfljótt en á þessum tíma höfum við fylgst með uppbyggingu heimilanna, uppvexti og menntun barnanna, hvor hjá annarri, komu tengda- barnanna inn í fjölskyldurnar og fæðingu barnabarnanna. Heiðrún var lánsöm í sínu fjölskyldulífi, eignaðist sinn góða og trausta eiginmann, Svein, og eiga þau þrjú börn sem öll standa sig með afbrigð- um vel, hvert í sínu starfi og hafa fært þeim góð tengdabörn og barnabörn sem voru gleði og stolt ömmu sinnar. Þau Sveinn byggðu þau sér fallegt hús í Birkihlíðinni og ræktuðu garðinn sinn svo vel að eftir var tekið og hann marg- verðlaunaður. Heimili þeirra bar myndar- skap Heiðrúnar gott vitni en það lék allt í höndum hennar sem að hannyrðum laut. Til þeirra hjóna var gott að koma, bæði gestrisin og veitul. Síðast þegar ég heimsótti hana í Birkihlíðina voru veik- indin farin að marka hana mikið og hún gat aðeins verið frá sjúkrahúsinu stutta stund á degi hverjum. Þá stuttu stund notuðu hún og Haddý systir hennar til að flokka tölur sem Heiðrún taldi að væru best komnar hjá Rauða krossinum en það var eitt af áhugamálum hennar að sauma barnaföt og prjóna húfur til að gefa í starf Rauða krossins. Allt sem hún tók sér fyrir hendur var drifið áfram og helst ekki slegið slöku við fyrr en hún hafði lokið verkinu. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Með þessum orðum vil ég, fyrir hönd okkar allra á Syðra- Skörðugili, kveðja kæra vinkonu og bið þess að Guð og allar góð- ar vættir gefi fjölskyldu hennar styrk við fráfall hennar Ásdís S. Sigurjónsdóttir. Er mér barst sú fregn að morgni Þorláksmessu að Heið- rún væri látin eftir hetjulega baráttu við veikindi sín, varð mér orða vant en hugsaði um þeim mun meira frá okkar æskudögum og samstarfi til þrjátíu og þriggja ára á vinnu- stað okkar. Heiðrún vann sem læknaritari á fyrrverandi vinnu- stað mínum af samviskusemi og trúnaði alla tíð þar til þessi vondi sjúkdómur barði að dyr- um og hafði því miður að lokum betur. Heiðrún var alltaf hvers manns hugljúfi og vildi allt gera fyrir alla, hvort sem það var að sauma eða prjóna fyrir Rauða krossinn handa fátækum börn- um eða heimsækja gamla ein- stæðinga í bænum. Heiðrún kom oft í heimsókn til mín og var þá iðulega með Heiðrúnu nöfnu sína með sér sem henni þótti mikið til koma eins og allra sinna barnabarna. Á hest- um þótti þeim hjónum gott að vera og voru margar ferðirnar farnar um landið. Alls staðar voru þau hrókur alls fagnaðar. Elsku Heiðrún, ég trúi varla að ég sitji hérna við tölvuna og skrifi minningargrein um þig, þig sem barðist svo heitt og sagðist ætla að vinna þetta stríð. Ég kveð þig nú, Heiðrún mín, og sendi mínar einlægu samúðarkveðju til Svenna þíns, móður þinnar, barna og barna- barna og systkina sem nú sjá á eftir góðri konu. Með þessu ljóði hans Bubba kveð ég þig þar til við sjáumst aftur, elsku vinkona. Þar sem englarnir syngja sefur þú, sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú, að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós, lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós, tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál, slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær, faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær, aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Kveðja. Ólína Rut Rögnvaldsdóttir (Ollý) Í dag er til moldar borin vin- kona okkar, Heiðrún Friðriks- dóttir. Þegar Svenni hringdi í mig að morgni Þorláksmessu grunaði mig strax að hann væri að láta okkur vita af að Heiðrún væri dáin. Við höfðum fylgst með því hvernig heilsu hennar hrakaði stöðugt, þrátt fyrir hetjulega baráttu og ótrúlegt æðruleysi sem hún sýndi í veik- indum sínum. Minningarnar eru margar þegar litið er til baka þann langa tíma sem vinskapur okkar hefur staðið. Margar voru heim- sóknir okkar hjóna til þeirra í Birkihlíðina á Króknum á þeim rúmlega 40 árum sem við höfum brallað saman og margt til gam- ans gert og mikið hlegið. Á sl. ári eru tveir viðburðir sem við áttum saman efst í minning- unni, þegar Svenni og Heiðrún buðu okkur á Bítlatónleikana í Hörpunni og allt í kringum það og svo þegar þau dvöldu hjá okkur hjónum í húsinu okkar á Dönskum dögum í Hólminum. Þá bauð okkur í grun að Heið- rún ætti ekki eftir að gista aftur hjá okkur á Skólastígnum svo mjög hafði heilsu hennar hrak- að. Það var skemmtilegur tími þegar ég var að múra fyrir Svenna og Heiðrúnu væntanlegt heimili þeirra, einbýlishúsið að Birkihlíð 33, sumarið 1972. Hús- ið sem þau bjuggu í alla tíð. Þegar ég var að múra kom Ósk, kærasta mín og síðar eiginkona, fyrst í heimsókn á Krókinn og urðu strax miklir kærleikar með henni og Svenna og Heiðrúnu. Heiðrún helgaði eiginmanni og börnum sínum og síðan barnabörnum líf sitt. Hún bjó þeim fagurt heimili þar sem hún sá um að allt væri í röð og reglu. Það var sama hvað hún tók sér fyrir hendur, matargerð, bakstur, sauma- eða prjóna- skap, allt lék í höndunum á henni. Ekki má gleyma fallega garðinum þeirra sem skartaði fegurstu blómum og runnum, enda höfðu þau hjón hlotið verð- laun fyrir fegursta garðinn á Sauðárkróki eitt sumarið. Heiðrún var mjög sterk kona sem best mátti sjá á þeim tíma sem hún barðist við þann vágest sem krabbinn er. Hún sýndi einstakt æðruleysi í veikindum sínum og hræddist ekki það sem beið hennar. Við og synir okkar viljum þakka allar góðu og skemmti- legu samverustundirnar sem við höfum átt saman á Króknum, Borgarnesi, Hólminum og nú síðast Akranesi. Megi góður Guð varðveita Heiðrúnu og vernda í nýjum heimkynnum og víst er að hún á eftir að rækta þar fallegan lysti- garð, sem við munum fá að skoða með henni síðar. Við biðj- um góðan Guð að styrkja Svenna, Hólmfríði, Ingibjörgu, Rúnar og fjölskyldur og Öldu móður Heiðrúnar á erfiðum tímum. Missir þeirra er mikill. Hvíldu í friði, kæra vinkona. Ósk og Óli Jón. Heiðrún Friðriksdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma okkar, núna ertu orðin engill og vakir yfir okkur. Við mun- um aldrei gleyma þér og þökkum fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum með þér. Mikið eigum við eftir að sakna þín, elsku besta amma. Við látum fylgja með bænina sem þú kenndir okkur: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Friðrik Þór, Herjólfur Hrafn, Birgitta, Heiðrún Erla og Rúnar Magni. Blómin falla, fölskva slær á flestan ljóma. – Aldrei hverfur angan sumra blóma. Þannig varstu vinur, mér sem vorið bjarta. Það sem gafstu geymist mér í hjarta. Ilma sprotar, anga lauf, sem aldrei falla. Drottinn launi elskuna þína alla. (Sigurbjörn Einarsson) Innilegar samúðarkveðj- ur til Sveins og fjölskyld- unnar. Klíkuvinir, Kristín og Hermann, Hjördís og Sigurður, Jóhanna og Valdimar, Birna og Guðmundur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.