Morgunblaðið - 02.01.2014, Síða 26

Morgunblaðið - 02.01.2014, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2014 Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Hjónin Björgvin Björgvinsson og Marólína Erlendsdóttir eiga 60 ára afmæli í dag, 2. janúar. Þau verða að heiman á afmælisdaginn. Árnað heilla 60 ára Ólafsfjörður Írena Líf fæddist 3. september kl. 1.27. Hún vó 2922 g og var 48 cm löng. Foreldrar hennar eru Alda Hrönn Magnúsdóttir og Jón Bjarni Sigurjónsson. Afmælisdagurinn er nokkuð hefðbundinn, ég er yfirleitt vakinaf systur minni sem bíður mín spennt með pakka,“ segirRakel Lind Hjartardóttir, 19 ára nemandi við Kvennaskól- ann. „Svo syngja systur mín og móðir mín fyrir mig og við borðum saman brunch með amerískum pönnukökum og fleira góðgæti.“ Um kvöldið býður hún svo oftast í fjölskylduboð auk þess sem hún bakar árlega franska súkkulaðiköku í tilefni dagsins. Rakel segir það nokkuð sérstakt að eiga afmæli 2. janúar, svo nærri jólahátíðunum en að hún sé mun meira afmælisbarn heldur en jólabarn. „2. janúar er sérstakur að mörgu leyti. Það er nefnilega oftast vörutalningadagur. Þegar ég hélt upp á barnaafmæli þegar ég var yngri fékk ég stundum að gjöf bensínstöðvardót eða eitthvað sem aðrir höfðu fengið í jólagjöf en vildu ekki sjálfir. Ef ég hélt upp á afmælið seinna fékk ég yfirleitt útsöluvörur, því útsölurnar byrja oftast daginn eftir afmælið,“ segir Rakel. Hún segir svo frá því þeg- ar hún ætlaði að kaupa sér eitthvað fallegt á afmælisdaginn í fyrra. „Ég fór með vinkonu minni í Smáralind til þess að kaupa mér eitt- hvað fyrir pening sem ég hafði fengið í afmælisgjöf. Það heppnaðist ekki betur en svo að þegar þangað var komið voru bara tvær eða þrjár verslanir opnar og það eina sem var eftir í búðunum var í stærð XL eða XS,“ segir Rakel hlæjandi að lokum. bmo@mbl.is Rakel Lind Hjartardóttir er 19 ára í dag Nemi Rakel er nemandi í Kvennaskólanum og stefnir á útskrift í vor. Engar búðir opnar á afmælisdaginn Reykjavík Matthías Bergmann fædd- ist 9. september kl. 3.18. Hann vó 3228 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Elín Sigurðardóttir og Birgir Bergmann Benediktsson. Nýir borgarar H alldór fæddist á Sval- barði í Ögurvík í Ísa- fjarðardjúpi 2.1. 1934 og ólst þar upp til 11 ára aldurs en síðan á Ísafirði. Hann var í Barnaskóla í Ögurvík, var í Barnaskóla Ísafjarð- ar, lauk landsprófi frá Gagnfræða- skóla Ísafjarðar og lauk síðar hinu meira fiskimannaprófi frá Stýri- mannaskólanum í Reykjavík 1956. Halldór fór ungur til sjós með föður sínum, var sjómaður á ýmsum bátum hjá Gunnari, bróður sínum, frá 1950, m.a. frá Hafnarfirði. Er Halldór kvæntist eiginkonu sinni settust þau að á Ísafirði og hafa búið þar síðan og alltaf í sama húsinu: „Þetta er stórmerkilegt hús hér í Mjógötu 3, byggt af norskum síldveiðimönnum á Torfnesi árið 1882, en síðar flutt hérna yfir poll- inn á ís eftir að Norsararnir hurfu af landi brott. Ég skipti um járn á öllu húsinu fyrir nokkrum árum og þá kom í ljós að það er sérlega vel viðað og ekki til í því fúi. Mér hefur liðið vel í þessu góða og gamla húsi.“ Halldór var stýrimaður og skip- stjóri á ýmsum bátum og skipum frá Ísafirði. Hann festi kaup á 15 tonna bát, ásamt Óskari Jóhann- essyni frá Dynjanda, árið 1968, en þeir gerðu út á rækju og línu í nokkur ár. Þremur árum síðar keyptu þeir 30 tonna bát og fyrstu beitningavélina sem kom hingað til lands. Þá komu þeir upp rækju- Halldór Hermannsson, skipstjóri á Ísafirði – 80 ára Stór hópur Halldór og Katrín fyrir nokkrum árum, ásamt börnum, tengdabörnum, barnabörnum. Sjómaður úr Ögurvík Á kunnugum slóðum Halldór á Djúpinu með Rit og Grænuhlíð í baksýn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.